Alþýðublaðið - 12.12.1969, Page 12

Alþýðublaðið - 12.12.1969, Page 12
I 12 Aiþýðíuiblaðið 12. d'esember 1969 SJÖTUGUR Framh. af bls. 7. ig persónulega þökk að gjalda, því að hann sýndi verkefni mínu jafnan vakandi áhuga, og er ég hélt til framhaldsnáms, benti hann mér á margt, sem stóð til bóta, og ráð hans reynd ust hollt vegarnesti. Hið mikla æviverk Einars Ólafs Sveinssonar í Háskóla fs lands felst þó ekki fyrst og fremst í kennslu hans, heldur fræðastörfum hans og vísinda- iðkun, og er þetta tvennt þó óaðskiljanlegt, því að kennsla hans reis á þeim vísindalega grunni, er hann bjó henni, eins og jafnan hlýtur að vera, ef akademisk kennsla á að vera annað en nafnið tómt. Einkenni Einars Ólafs sem vísindamanns er óvenjulegt samræmi milli hugkvæmni, hugmyndaauðgi og varfærni, sem ásamt skáldlegri sýn og rithöfundarhæfileikum hafa ■skapað þá allsgái, er einkenn- ir verk hans. Sem bókmennta- fræðingur er hann vaxinn af traustum evrópskum stofni. Hjá honum halda'it í hendur gjörþekking á sérsviðum hans og víðtæþ almenn menntun í sögu evrópskra og íslenzkra bókmennta og menningar. Ég nefndi samræmi og alls- 'gái. Þetta tvennt einkennir höf undarverk Einars Ólafs sem fræðimanns. Styrkur hans felst tíðum í því að sjá senn hið ein- staka og almenna. Vafalítið hefur það stundum verið freist ing svo hugmyndaríkum manni og skáldlega vöxnum að set.ja fram miklar og altækar kenn- ingar um fræði sín, en var- færni og heiðarleikur hins gjör hugula fræðimanns hafa hverju sinni boðið honum að virða hið sérstaka, jafnframt því sem yf- irsýn hans hefur ávallt forðað honum frá að einblína um of á mikla fjöld smárra atriða. Þessi agaða og allsgáða af- staða til fræðanna birtist okk- ur nemendum margoft í kennslu hans. Ég held ég muni bezt úr kennslustundum hans lífsreglu, sem hann eitt sinn orðaði eitthvað í þessa áttina; Ef ein staðreynd mælir gegn níutíu og níu líkum, nægja líkurnar ekki til að reisa á þeim kenningu. Sams konar jafnvægi og sam ræmi ríkir í verkum Einars Ólafs gagnvart hinu listræna og fræðilega. Lærdómurinn kæfir hvergi listina, en jafn- framt gefur vísindamaðurinn ■aldrei skáldinu algjörlega laus- an tauminn. Hér er allt í ein- kennilega miklu hófi. Einar Óafur er ekki aðeins einn hinn traustasti fræðimað- ur, heldur og einn hinn mikil virkasti, og hann hefur ekki bundið sig við .þröngt svið. Fjöl hæfnin er eitt megineinkenni hans. Ritaskrá bans öll myndi fylla drjúgmikið kver, og er 'riiönnum tiltæk vitneskja ' um hið helzta í skrám um rit ihá- sKólakennara. Aðeins skal minnzt á nokkur áhugasvið ■háns. Fyrsta vísindarit Einars Ól- •afs, _ Verzeichnis islandischer Márchenvarianten, kom út í Helsinki 1929. Síðan hefur hann ritað margt um íslenzkair þjóð- sögur og ævintýri, t. a. m. bók- ina Um íslenzkar þjóðsögur, Rvk. 1940, og séð um útgáfur á þjóðsögum og þjóökvæðum. Einnig bjó hann til prentunar íslenzka þjóðhætti séra Jónas- ar á Hrafnagili. Mér er kunn- ugt um, að hann nýtur hins mesta álits meðal erlendra þjóð sagnafræðinga. Höfuðrannsóknarsvið Einars Ólafs hefur þó verið íslenzkar fornbókmenntir, Qg ber þar hæst rannsóknir hans á Brennu Njáls sögu. Upi hana fjallaði doktorsritgerð hans, Um Njálu, Rvk. 1933; hið nýrýna verk, Á Njálsbúð, Rvk. 1943; Stud- ies in the Manuscript Tradition of Njálssaga, Rvk. 1953, loks gaf hann söguna út með ræki- legum inngangi 1954. Auk Njálu hefur Einar Ólafur gef- ið út fjölmargar aðrar íslend- ingasögur fyrir Hið íslenzka fornritafélag. Ég hygg, að þessi tvenn við- fangsefni lýsi vísindamannin- um og manninum Einari Ólafi vel. Á áhugasviði hans mætast heiðríkja og allsgái íslenzkra fornbókmennta og rómantísk dulúð ævintýra og riddara- sagna. í Einari Ólafi býr mik- ið af þessu tvennu. Auk rannsókna á einstökum verkum íslenzkra fornbók- menhta hefur Einar Ólafur sam ið f jölmörg rit um ákveðin svið og heildir í íslenzkri bók- mennta- og menningarsögu, t. a. m. Sagnaritun Oddaverja, Sturjungaöld, Landnám í Skaftafellsþingi, íslenzkar bók- menntir í fomöld I og Ritunar- tíma íslendingasagna. Margar þessara bóka hafa ýmist verið þýddar á heimstungur eða birzt í frumgerð á erlendum málum. En Einar Ólafur hefur hvorki einskorðað sig við íslenzkar fornbókmenntir eða ísland. Þannig hefur hann einnig rit- að um Hómerskviður og Eddu- kvæði, um Hamlet og um Goethe. Af því, sem hann hef- ur fitað um íslenzkar bókmennt ir síðari tíma, nefni ég aðeins ritgerðir hans um Jónas Hall- grimsson. Þessi upptalning, sem þó tek- ur ekki nema til nokkurs hluta af, ritum Einars Ólafs, ætti að nægjá til að sýna fjölbreytni áhugaefna hans, hversu marg- lyndur hann er og víðfeðmur. Ég hef átt því láni að fagna að kynnast ýmsum lærdóm3- mönnum. Sumum eru gefnar snillilegar gáfur, öðrum mikil verklund. En ég held ég þekki engan, sem er gefið jafnmikið af hvoru tveggja og Einari Ólafi. Hjá honum hefur þetta tvennt haldizt í hendur, og um það ber æviverk hans vott'. Hjá því hefur ekki getað far- ið, að svo traustum og mikil- virkum vísindamanni hlotnaðist margvíslegur sómi í erlendum lærdómssetrum. Ég veit, að hann er heiðursdoktor við þrjá ■erlenda háskóla og félagi í mörgum vísindafélögum; fyrir- lestrar hans við erlend mennta- setur munu vera orðnir nærri því fleiri en tölum verði taid- ir. Ég veit, að Einari Ólafi hef- ur þótt vænt um marga sæmd, sem honum hefur þannig ver- fð sýnd, og hann er nógu mennskur og mikill af sjálfum sér að viðurkenna það. En það er ekki af hégómlegri dýrkun ytri stöðutákna, sem Einar Ól- afur virðir slíkan frama, held- ur hinu, að hann er að öllu eðli eins og Njáll sæmdarinn- ar maðúr. Sé honum sýnd sæmd, er það sæmd fræða hans, þjóð- ar hans og ástarefna hans, bók- menntanna íslenzku. Þeim hef- ur hann helgað líf sitt, og eng- um Íiðst að sýna þeim vansæmd í návist hans. Hans sómi er honum þeirra sómi. Persónuleg kynni mín af Ein- ari Ólafi hófust, eins og ég JÓLAGJAFIR SPEGLAR - BURSTASETT Hvtír getur verið án spegils? / Lítið á úrvalið hjá oss áður / ] en þér ákveðið vinargjöfina. Verð og gæði við allra hæfi. Speglabúðin LAUGAVEGI 15 r- SÍMI 196-35. LUDVIG STORR FLOTIÐ A Hér eir á ferðinni hók um sjósókn cg sjómannalíf í byrjuh aldarinnar. ,. Bók in verður örugglega talin merkilegt heimildarrit, er stundir líða . . . Auk þess er frásögnin oft ívafin og krydduð bráðskemmti- legri fyndni, sem léttir lund lesandans. ÆGISÚTGÁFAN EFTIR: rál. hallbjörnsson sagði, síðar en af öðrum kenn- urum mínum í Deildinni. Mér fannst hann við fyrstu kynni nokkuð breiður og djúpur eins og hin stóru skaftfellsku vötn, Sem ungum stúdent fannst mér allt fas hans með hátt- bundnum mikilleik úthafsöld- unnar, sem fellur að heima- byggð hans. En síðan ég kynnt- ist honum betur, undrast ég æ meir fjölbreytni hæfileika hans og geðfars. Hann á mikið af gáska og ■stráksskap hins unga stúdents. Að því leyti minnir hann á rómantísku skáldin, hvert yndi honum er að fáránlegum, koJl- varpandi hugmyndum. Það er svo sannarlega gaman að kynn- ast í prófessornum og margföld um heiðursdoktornum stúdent- inum, sem eitt sinn stakk upp á því végna væntanlegra túr- ista að flytja til Reykjiavíkur svo sem eins og fjóra eða fimm stórfossa — og að forgylla Esjuna. Tvennt þykir mér mest um vert í fari þess'a mikla lær- dómsmanns; Hann hefur ekki glatað hæfileikanum að sjá mannlífið næmum augum barns ins. Einnig þar er jafnvægi og samhljómur höfuðeinkenni hans. Hann sér tíðurn heiminn í senn sem vitur öldungur og saklaust barn. í annan stað er Einar Ólafur einhvers sannast- ur lífsnautnarmaður, sem ég þekki. Hann nýtur hvers and- artaks lífsins heilshugar, en jafnframt bíður hann næstu stundar með þeirri fovitni á fyrirbærum lífsins, sem nálg- ast græðgi. Ég þekki ekki ann- an mann, er betur gæti tekið sér í muiín þau orð, sem Goethe lagði Faust á tungu; I Werd’ ich zum Augenblicke sagen: Verweile doch! du bist so schön! Dann magst du mich in Fesseln schlagen Dann will ich gern zu Grunde gehn! Þótt kynni min af Einari ‘Ólafi hafi löngum verið kyrtni þiggjandans af örlátum veit- anda, verð ég sannleikans vegna einnig að nefna, að ég hef més liggur við að segja bor- ið gæfu til ósamþykkis við hann. Einnig þau kynni voru frjó og birtu mér nýjan flöt á þessum lærimeistara mínum. Mér varð Ijósara en áður, að hann er sæmdarinnar maður, að það samræmi og jafnvægi, sem einkennir verk hans, hef- ur hann ekki öðlazt átakalaust, heldur er þar öguð og meðvit- uð lífsstefna. í allsgái, birtu og klassiskri ró hefur hann með föstum vilja fundið þá hugsjón og þann heim, sem er honum líf á okkar sundurtættu öld. Einnig hér er dæmi um marg- breytni Einars Ólafs, að klass- íska lífssýn sína tjáir hann oft í impressj ónískum stíl. Ég hefði jafnvel löngun til að kalla hann síðasta mikla impressjón istann í bókmenntum okkar, í verkurm hans leika hálfbirta og skuggar á við tærleik og heiði Framh. á bls. 15

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.