Alþýðublaðið - 12.12.1969, Qupperneq 14

Alþýðublaðið - 12.12.1969, Qupperneq 14
14 Alþýðublaðið 12. desember 1969 Framhaldssaga eftir Elizabelh Messenger A fjallahótelinu 26. róandi á öxl Virginiu, og síðan gekk hann til skrif- stofunnar. Þegar hann andartaki síðar kom' út, var hann með flatan böggul í hendirrni. Það hefði mátt heyra saumnál detta í forstofunni, þegar hann gekk gegnum anddyrið og út að bifreið sinni, sem beið hans fyrir utan. Hún sneri við og ók á brott, en töfrum þrungin þögnin varði áfram. Ein mínúta — tvær — þrjár.... Nú hlaut hann að vera kominn á staðinn, sat ef til vill andartak kyrr áður err hann steig út úr bifreiðinni og hélt aftur upp að hótelinu. Það var engu líkara en allir héldu niðri í sér andanum. Þegar hr. Carlton kom aftur, var hann líkastur öldungi. Hægt gekk hann inn og settist, meðan vísar klukkurrnar siluðust áfram. Nokkrum bridgeborðum hafði verið komið upp, sumir flettu blöðum, en flest- ir biðu aðeins — biðu — biðu. Carlton-hjónin sátu í sófanum úti við gluggann, og John Webley var hjá þeim. Virginia gekk eirðar- laust fram og aftur, kastaði sér andartak niður f stól til þess eins að spretta aftur á fætur og halda áfram eirðarlausu rápinu. Þeir, sem næstir stóðu gátu heyrt hana snökta. Skyndilega lyfti hún handleggjunum: — Sex! Klukkan er ekki nema sex! Ég get ekki afborið þetta lengur, ég fer niður eftir tafarlaust! Hún hentist yfir forstofuna og reif glerhurðina upp svo að kuldinn næddi inn sem snöggvast. Svo var hún horfin út í myrkrið. — Nei! Virginia! Bíðið! Það var engu líkara en allir hrópuðu í einu. Hún sneri teknu og æstu andliti sínu að þeim: — Þeir hljóta að. hafa sótt peningana strax og myrkrið skall á, hrópaði hún. — Peter hlýtur að vera þarna niður frá, hann er einsamall og hræddur, ég verð að sækja hann! Charles Carlton ætlaði að hlaupa á eftir henni, en Cowley tók í handlegg hans. — Leyfið henni að fara, sagði hann. — Það er ekki að vita, nema hún hafi rétt fyrir sér. — Leyfið mér þá að fara með henni! Það var John Webley, sem kominn var út að hurðinni, en lögreglu- forirrginn hélt aftur af honum. —Ef einhver er þarna niður frá ennþá, verða þeir fúsári til að afhenda móðurinni barnið, ef hún er einsömul. Komi fleiri á vettvang, er ómögulegt að segja fyrir um afleiðingarnar, á þessu stigi málsins hefur ræninginn allt að vinna, og jafnframt öllu að tapa. ... Sekúndurnar snigluðust áfram, ekkert gerðist, engin fagnandi móðir kom aftur með barn sitt í fanginu. —Leyfið mér að fara niður eftir, sagði John Webley biðjandi. —Nei, bíðið! sagði lögregluforinginn ákveðinn. Klukkan sló hálf sjö. Virginia Carlton kom ekki aftur. 31. KAFLI. PAT STÓÐ EINSÖMUL. Hún sá hvergi hvorki Meg eða Stephen eða Jerry. Lágvær kliður færðist yfir rnann- fjöldann, þegar Cowley gekk að glerhurðinni og gaf merki svörtu bifreiðunum tveim, sem stóðu fyrir utan. Þeir brunuðu af stað og héldu niður að krossgötunum. Webley og Carlton ruddust áfram. — Bíðið, sagði lögregiuforinginn og lyfti ann- arri hendinni. — Þetta er allt skipulagt. Menn litu hissa og órólegir á hann .Hann var sá, sem hafði stjórniira, hann, sem hafði valdið, en hvers vegna hafði hann ekki farið sjálfur? Hann átti að fara niður að gatnamótunum til þess að. at • huga, hvort barnið vær þar, athuga, hvar Virginia væri, athuga, hvort peningarnir væru horfnir.... 1 Lögreglumaður birtist í dyrunum: — Það er síminn til yðar, Sir. Lögregluforinginn gekk yfir forstofuna, og augu allra hvíldu á honum. Svo heyrðist önnur bifreiðilij renna í hlað. John Webley og Carlton-hjónin gengu hvatskeytlega á eftir lögregluforingjanum og hurfu inn í skrifstofu Frames. Svo gerðist enn ekkert — ekkert.... Eftir góða stund birtist Frame aftur í dyrunum. Allt var hljótt, þegar hann tók til máls, en það, sem hánn hafði að segja, var þá ósköp hversdagslegt: — Kvöldverður verður borinn fram innan tíu mínútna, vilja allir .gjöra svo vel ogl gprigja inn í salinn og setjast að snæðingi eins og ekkert sé. —Hvað hefur eiginlega komið fyrir? hrópaði óþolinmóð rödd. — Er búið að finna drenginn? Hvað kom fyrir frú Carlton? — Það eru enn engar nýjar fréttir, svaraði Frame og hurðin lokaðist aftur að baki harrs. I I I I ! I I I I I 6 I 1 t t I I I I I I 1 t I Smáauglýsingar TRESMIÐAÞJONUSTA Látið fagmann annast viðgerðir og viðhald á tréverki húseigna yðar, ásamt breytingum á nýju og eidra húsnæði. — Sími 410 5 5 VOLKS W AGENEIGENDUR! Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok — Geymslu lok á Vclkswagen í allflestum litum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin. Bílasprautun Garðars Sigmundssonar, Skipholti 25 — Símar 19099 og 20988. PIPULAGNIR Tek að mér viðgerðir og uppsetningu á hreinlætistækjum, frárennslis- og vatnslögnum. GUÐMUNDUR SIGURÐSSON Sími 18 717 PIPULAGNIR. Skipti hitakerfum. Nýlagnir, viðgerðir, breytingar á vatns- leiðslum og hitakerfum. Hitaveitutengingar. Þétti heita og kalda krana. Geri við WC-kassa. — Sími 17041. HILMAR J. H. LÚTHERSSON, pípulagningameistari. Jaröýtur - Traktorsgröfur Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtur og traktorsgröfur cg bílkrana, til allra framkvæmda, innan og utan borgar- innar. Keimasímar 83882 33982. JarSvinnslan sf. Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31080. Malur og Bensín ALLAN S OLARHRINGINN VEITINCASXÁUNN, Geifhálsi

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.