Alþýðublaðið - 18.12.1969, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 18.12.1969, Blaðsíða 8
8 Alþýðublaðið 18. desember 1969 BÖRNIN OKKAR Sjálfsmai barnsins mólast af framkomu okkar gagnvarf því, og nokkur vanhugsuð orð geta haft sferk og langvarandi áhrif á viðkvæml sálarlíf þess — Hvernig hagarðu þér gagnvart börnunum þínum? Hvern ávarparðu þau? Hvermg svararðu þeim? Manstu eftir að segja „fyrirgefðu” og „þakka þér fyrir“ þeggr það á við? Það er því miður alltof al- gengt, að fullorðið fólk hugsi lítið um tilfinningar og sjálfs- virðingu barnanna. Við særum þau með ónærgætni og dóna- skap sem okkur dytti aldrei í hug að sýna öðru fullorðnu fólki. Við skömmum þau og 'skipum þeim.að þegja ef þau spyrja spurninga sem okkur finnst ekki of þægilegt að svara. Og við hikum ekki við að_gagn- rýna þau í annarra áheyrn, þótt það sé bæði særandi og skað- legt 'fyrir þau. ÓKURTEISI FORELDR- ANNA VIÐ BARNIÐ Barnið verður fyrir sterk- um áhrifum af framkomu og tali fullorðna fólksins í kring- um sig. Og sjálfsmat þess skap- ast mikið til af áliti foreldr- anna á því. Það er engan veg- inn hollt að hlusta á mömmuna segja við vinkonur sínar: „Æ, hann Óli, hann er alveg ómögulegur, hann er svo mat- vandur, að það er ekki hægt að koma neinu í hann. Og það er eilíft stríð að fá hann í rúm- ið á kvöldin. Svo er hann blóð- 1 latur. Liggur í bókum í staðinn fyrir að hreyfa sig eitthvað úti. Ég verð að gera alla hluti fyr- ir hann . . .“ Þetta særir viðkvæma metn- aðarkennd Óla litla, og þessi neikvæða skoðun móðurimnar á honum getur mótað sjálfsmat hans ævina á enda. Það er heldur ekki mjög kurteislegt að segja við barn: „Geturðu aldrei gert nokk- urn hlut almennilega?“ „Reyndu að rétta úr þér og standa eins og manneskja!“ „Hver heldurðu, að vilji sjá stelpu sem nagar neglurnar upp í kviku eins og þú?“ „Haltu þér saman, óþekktar- ormurinn þinn!“ Myndum. við tala svona við fullorðið fólk? Erum við ekki að skeyta skapi okkar á börn- unum, af því að þau eru minni- máttar? Þau eiga ekki eins auð- velt með að svara fyrir sig. Og ef þau svara, er þeim skip- að að þegja. Jú, vitanlega elskum við börnin okkar og viljum allt fyrir þau gera, mennta þau, koma þeim áfram í lífinu o. s. frv. Bara ekki sýna þeim virð- ingu. HVERS VEGNA GERA UNGLINGARNIR UPPREISN? .. Það er óhugnanlega auðvelt að skerða sjálfsvirðingu barns- ins og kenna því að fyrirlíta sjálft sig. Við reiknum með því eins og sjálfsögðum hlut, að unglingar gerist þrjózkir og uppreisnargj arnir á vissu ald- ursskeiði. En það eru til börn sem þurfa aldrei að gera upp- reisn gegn foreldru-num, og það eru þau börn sem talað hefur verið við með virðingu og kurteisi alla tíð. Þau hafa feng- ið að njóta frelsis sem sjálf- stæðir persónuleikar með hátt- vísri leiðsögn foreldranna, og þau þurfa heldur ekki að rísa gegn kúgun eða hefna sín fyrir gamlar auðmýkingar. / ^ Ef þú heldur boð og einn gestanna verður fyrir því ó- happi að velta glasi þannig að hellist yfir dúkinn, þá byrjarðu ekki að skamma hann og sví- virða fyrir klaufaskapinn. Nei, auðvitað ekki. Hann biður af- sökunar, og þú fullvissar hann um, að þetta geri ekki nokkurn skanaðan hlut. til. En hvernig fer þegar mamma tekur Kidda litla með sér í bæ inn, .kaupir handa honum gos og hann veltir glasinu um koll? „Skelfilegur klaufi geturðu alltaf verið, barn! Það er ekki farandi með þig í bæinn“. Og þegar drengurinn fer að hágráta, skilur hún ekki, að það er vegna þess hvað hann tekur ’hærri sér að vera skamm- aður þegar aðrir sjá og heyra til. í hans augum hefur mamma svikið hann. Stolt hans er sært. Hann langaði til að kunna sig vel, og þegar honum varð á >að demba úr glasinu, gerði mamma hans illt verra með því að skamma hann. Hvernig haldið þið, að börn- unum þyki að heyra setningar eins og eftirfarandi: „Svona, ég skal gera þetta, þú ert svoddan klaufi . . .“ „Maður fer að skammast sín fyrir að hafa þig með sér á almannafæri . . .“ ,iHvað heldurðu eiginlega, að fólk hugsi þegar þú hagar þér svona . . .?“ „Líttu bara á hana systur þína, það er einhver munur á henni og þér. Hún stendur sig vel í skólanum, hún lagar til í herberginu sínu, . . .“ „Geturðu aldrei tekið þér neitt gagnlegt fyrir hend- , ur . . .?“ HRÓS FYRIR VEL UNNIÐ VERK Börn eru ekki löt að eðlis- fari En þau geta orðið slæp- ingjar eða a. m. k. sein og treg til verka ef sífellt er verið að atyrða þau fyrir að vera leti- blóð. Lítil börn eru fús til nö hjáipa pabba og mömmu — ef þau fá ekki eingöngu leiðinlegu verkefnin. Það er ekkert spennandi til lengdar að eiga alltaf að hella úr ruslafötunni eða laga til eft- ir yngri systkinin. Aftur á móti er gaman að fá t. d. að hjálpa til við matartilbúninginn, opna dósir og poka, vigta og hræra í pottum. Það er heldur ekk- ert gaman að verða alltaf að þurrka þegar þvegið er upp (og láta pússa glösin eftir sig), en að fá stundum að þvo upp og láta aðra þurrka, það er fyrir- tak. Öllum þykir lofið gott. Og þá ■ekki síður börnunum. En hrós fyrir vel unnið starf ér ennþá betur þegið en nokkrir gull- 1 i < < 1 ] ] < 1 ] ] i 1

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.