Alþýðublaðið - 10.02.1970, Qupperneq 6
6 Þriðjudagur 10. febrúar 1970
í YIKUBYRJUN:
i ■mr-mri ■■ ■"■—■■■—
Fuiltrúar á
allsherjarþingi
□ Engum blanðast um það
hugnr að þátttaka íslendinga
í störfum Sameinuðu þjóðanna
er hin mikilvægasta, og að á
miklu ríður að þjóðin ræki þenn
an þátt alþjóðlegs samstarfs á
sem beztan hátt. Þess vegna er
það ákaflega furðulegt, hvaða
háttur hefur um langt skeið
verið hafður á við val fulltrúa
af íslands hálfu til setu á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna. Auk nokkurra atvinnu-
diplómata hafa setið þingið full-
trúar stjómmálaflokkanna, sem
ut af fyrir sig er gott og bless-
að, en flokkarnir hafa hins
vegar að jafnaði haft mjög tíð
mannaskipti, nýir menn hafa
yfirieitt verið sendir á hvert
þing, og stundum hefur meira
að segja verið skipt um fulltrúa
□ Sökum rúmleysis í blaðinu
í gær féll þátturinn „í viku-
byrjun“ úr og birtist því hér
með. —
á miðju þingi. Það gefur auga
leið, að fulltrúar, sem þannig
eru til komnir og eiga ekki í
vændum að sitja nema eitt
þing, geta ekki sett sig inn
í þau mál, sem þeir þó eiga að
fjalla um á þinginu. Enda mun
það mála sannast, að oft hefur
verið litið á setu á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna frem
ur sem skemmtiferð til vestur-
heims en alvarlegt starf, sem
sýna þurfi fyllstu kostgæfni.
Þetta kemur greinilega fram
í viðtali, sem vikublaðið fs-
lendingur/fsafold birtir nýlega
við Jón G. Sólnes, bankastjóra,
en hann var fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins á síðasta allsherjar-
þingi. Jón segir:
„f sannleika sagt hef ég ver-
ið mjög afskiptalítil af mál-
efnum S.Þ. og lítið sett mig inn
í þau allt til þessa. Það var með
mjög skjótum hætti, sem það
gerðist, að ákveðið var um þátt
minn í sendinefnd fslands á
síðasta allsherjarþingi, og varð
mér það þá fyrst fyrir, að fara
að reyna að snusa eitthvað í
málefnum S.Þ., lesa mér eitt-
MINNING:
HANNES M. STEPHENSEN
Vinur minn, Hannes M.
Stephensen, Hringbr. 78, verður
jarðsunginn frá Fossvogskap-
' ellu kl. 8 á morgun.
f marga áratugi höfum við
þeskakzt og sérstaklega þó sl.
20 ár.
tiann vakti fyrst athygli mína
í ver kalý ðsh r eyf ingu höfuð-
borgarinnar og á sérstaíkan hátt.
Ég tók eftir því, að þótt hanni
vaari hæglátur og fátataður,
var oft spurt um álit hans og
reyndist hamn þá úrxæðamarg-
* ur og tillögugóður og átti
miiklu meiri þátt í farsælum
lausnum en marga grunaði, er
ekki voru hnútum kunnugir, og
var svo til hinztu stundar. —
Þessi áberandi eiginleiki í fari
hans kom auðvitað gleggst fr‘am
í, Dagsbrún, jafnt hvort hann
var formaður félagsins eða ut-
en stjórnarinnar. Banines var
miikill félagshyggjum'aður og
og eftirsóttur í forystusveit
þeirra félaga er hann starfaði
í, em jafnframt var hann gjör-
sneyddur löngun til að trama sér
fram, og virtist ævinlega þurfa
að þröngva honum til að fcaká
að sér forystuhlutverk.
Sýndarmennsku átti hann:.
ékki til og henti oft góðlátlegt
gaman að þeim samferðamönn-
um er höfðu uppi slíka tilburðr,
Hann var með eindæmum
trúr, heiðarlegur og sannur í
hvað til, og í sumarfríinu blað- .
aði ég' í bók prófessors Ólafs !
Jóhannessonar um Sameinuðu |
þjóðirnar. Hún er mjög fróð- "
leg, þó að mörgu leyti sé hún I
nú orðin úrelt, og svo kynnti I
ég mér aðrar bækur um þetta [
efni eftir föngum, en auðvitað
gat það aldrei orðið tæmandi
á svo stuttum tíma. Frumskil- |
yrði til þess að geta orðið full- *
trúi þarna er auðvitað að hafa I
einhverja hugmynd um það, [
hvemig stofnunin er byggð [
upp.“
Þótt Jón G. Sólnes geri sér [
grcin fyrir því hvert sé frum- [
skilyrði þess að geta orðið
fulltrúi á þingi Sameinuðu þjóð |
anna, þá er greinilegt að stjórn [
málafl., sem gera hann og suma |
aðra út á þingið, — gera sér
þess enga grein. Sú vitneskja J
kemur að minnsta kosti ekki í
fram i mannavali þeirra og 5
þeirri venju, að skipta um menn i
með hverju þingi. í sjálfu sér
er eðlilegt að flokkunum sé
falið að skipa menn til þing-
setu hjá Sameinuðu þjóðunum,
en ef gera á sér vonir um ein- J
hvem árangur af starfi þeirra |
væri áreiðanlega farsælla, að i
skipta sjaldnar um menn, láta
sömu fulltrúana fara á þingið
ár eftir ár. Með því móti gætu
fiokkamir komið sér upp sér- I
fræðingum í málefnum Samein
uðu þjóðanna, en á því er eng- |
in vanþörf. Núverandi fyrir- ,
komulag, að líta á fulltrúastarf-
ið sem skemmtiferð, er hægt
sé að hvgla einstökum mönn-
um með, kemur ekki að neinu '
gagni og er á mörkum þess að |
geta talizt sæmandi. — KB. I
öllu, ér hann tók sér fyrir |.
hendur, hvort heldur var til að
vinna fyrir daglegu brauði eða
berjast fyrir hugsjónum sínum.
Hann var víðlesinn og fróður,
enda unni hann bókum eins og
um lifandi verur væri að ræða.
Saman fóru í þeli hans mikil
alvara og þroskuð kimni, hvort
tveggja aðalsmerki. Spaug
hans var græskulaust en gáfu-
legt. Við töluðum oft saman
og stundum lengi, en um
stjónnmál urðum við aldrei
sammála og kastaðist þó aldrei
í kekki, því bjargaði sú mikla
og aldrei nógsamlega lofaða
guðsgjöf, að sjá hinar spaugi-
legu hliðar jafnframt hinum
alvarlegri.
í samtölum við vini sína var
ræða hans alvarleg með ívafi ,i
spaugs og alltaf vekjandi tii j|
umhugsunar.
Oft hugsaði ég er samtali |
okkar var lokið að svona ættu g
ræður að vera. 8
Hannes var Rangvellingur I
að ætt, og lézt á 68 aldursári. |
Góð .kona, góð börn og sam-
lyrit heimi'li hjálpuðu til aðö-
gera hann ;4ð hamiingjumanpi', ||
þrátt fýrir langvárandi heilsu- ®
leysi.
Ég votta ástvinum hans hlut- S
tekningu mína. ®
Erlendur Vilhjálmsson. ■
Orðsending
TIL FF.LAGSMANNA
Félagið hefur samið við eftirtalin þjánustufyrirtæki um
afslátt fyrir félagsmenn:
LUKAS-VERKSTÆÐIÐ, Suðurlandsbraut 10,
20% afsláttur af ljósastilling'um,
20% afsláttar af sjálf-þjónustuaðstöðu,
10% afsláttur af bifreiðaskoðun.
DEKK H.F., Borgartúni 24,
10% afsláttur af al'ri viðgerðarvinnu,
5% afsláttur af sólningu.
BÓN- OG ÞVOTTASTÖDIN, Sigtúni 3,
10% afsláttur af allri þjónustu.
HJÓLBARÐAVHfGERÐIN, Reykjavíkurv. 56, Hafnarf.
10% afsláttur af allri viðgerðarvinnu,
ne.ma sólningu og suðu.
GÚMMÍVIBGERÖIN, Hafnargötu 86, Keflavík
10% afs!áttur af allri viðgerðarvinnu,
nema sólningu og suðu.
<Opið alla vírka daga frá 8—21 cg sunnu-
daga 8—18).
BIFREIÐAÞJÓNUSTA GARÐARS ÓLAFSSONAR
Suðurlandsvegi 5. — Hveragerði
10% afsláttur af allri viðgerðarvinnu,
nema sólningu oz suðu.
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIN H.F. Suðurgötu 41 Akranesi.
10% afsláttur af allri viffgerðarvinnu,
nema sólningu og suðu.
HJÓLBARÖAÞJÓNUSTAN Glerárgötu 34, Akureyri,
10% afslátter af allri viðgerðarvinnu.
nema sólningu og suðu.
BÍLALEIGAN VEGALEIÐIR, Ilverfisgötu 103,
15%afsláttur af bjónustu.
NÝJA BIFREIÐALEIGAN, Hafnarbakkanum, Akureyri,
15% afsláttur af þjónustu.
BÍLALEIGAN BRAUT, Hringbraut 93B Keflavík, .
15% afsláttur af þjónustu.
Muniff að afsláttur eða önnur fyrirgreiðsla á vegum
F.Í.B. fæst eingöngu með framvísun félagsskírteinis
hverju sinni. Félagsskírteini 1970 gilda frá 1. jan. 1970
til 1. febr. 1971. Þeir félagsmenn styn ekki hafa fengið
fréttabréf F.Í.B. (sem út kom um síðustu mánaðamót)
góðfúslega látið skrifstofuna vita í símum 33614 eða
38355.
FÉLAG ÍSLENZKRA BIFREIÐAEIGENDA,
Eiríksgötu 5.
Jarðarför rnEr i' sirs míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Hannesar M. Stephensen
Hringbraut 76,-
fer fram frá Fossvcgskirkju, miðvikud'ag-
inn 11. febrúar kl. 3 e.h.
Þeim sem vildu minnast hins látna er
bent á Bljn!d!rafélagið HamraMíð 17.
Guðrún H. Stephensen
börn, tengdabörn og barnabörn.
Auglýsingasíminn er 14906