Helgarpósturinn - 20.10.1994, Side 2

Helgarpósturinn - 20.10.1994, Side 2
2 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994 Er þaö nokkuð merkilegt þótt sendiherrann hafi innstungu fyrir rakvélina sína í svítunni í Kína? Nei, nema fyrir það að hundurinn hefur líka innstungu fyrirsína rakvél. ■ Umboðsmaður Alþingis kemur löggunni til hjálpar ■ Hollendingur kennir auglýsingamönnum trix gegn Bónusi og öðrum ódýrum búðum (jreinilegt er að réttum vinnuregl um er ekki alltaf fylgt um það hvern- ig veita á lögreglumönnum áminn- ingar eða víkja þeim úr starfi hjá Lögreglustjóraembættinu í Reykja- vík. Ógilding dómsmálaráðuneytis- ins á áminningu sem Arnþór H. Bjarnason, lögreglumaður, fékk fyrr á þessu ári fyrir meint brot í starfi er nýjasta dæmið um það en alls ekki það eina. Fyrir tveimur árum var starfssamningur við fjóra unga lög- reglumenn, sem voru við nám í Lög- regluskólanum, ekki endur- nýjaðir á þeim forsendum að þeir stæðust ekki þær kröfúr sem gerðar væru til laganna varða. Þeir báru sig upp við umboðsmann Alþingis, Gauk JöRUNDSSON, í framhaldi af því. Niðurstaða hans var sú að Böðvar Bragason, lögreglustjóri, hefði brot- ið á margvíslegan hátt á fjórmenningunum þegar hann vék þeim úr starfi og neyddist hann þvi til að ráða þá til starfa á ný. í álitsgerð umboðs- mannsins segir að verulega hafi skort á að starfsnámi hafi verið hagað samkvæmt reglugerð, ástæður uppsagnarinnar hafi ekki verið rökstuddar á fullnægj- andi hátt og grundvallarreglur stjórnsýsluréttar um rétt til and- mæla hefði verið brotinn... F éiag íslenskra teiknara, FÍT, hefur boðið formanni hollenska systur- félagsins, Eugene Bay, hingað til lands og mun hann halda fyrirlestur í Húsi iðnaðarins næsta fimmtudag. Þar ætlar hann að fjalla um upp- byggingu vörumerkjaímyndar. Sér- stök ástæða þykir til að ff æða ís- lenska hönnuði um þessi mál í Ijósi þeirrar samkeppni sem herjar nú á þekkt vörumerki frá ódýrum ffam- leiðsluvörum stórmarkaða eins og Bónus þar sem allt er lagt upp úr lágu verði en ekkert upp úr vöru- merkinu... Áheyrnarfulltrúi Kvennalistans í Kópavogi sendur út í horn á farsakenndum fundi Gunnar I. Birgisson með áherslu „Hejga, srttu þama“ ...fær Guðni Ágústsson þingmaður Framsóknar fyrir að sjá og koma því á framfæri til þjóðarinnar á Alþingi að III- ugi Jökulsson sé líklega besti pistlahöfundur Evrópu. Hann sparaði ekki stóru orðin í ræðustól og sagði að einhver hefði „greinilega hótað Heimi Steinssyni qIIu illu ef lllugi yrði ekki rekinn.“ ...fær Sigurður G. Tómas- son dagskrárstjóri Rásar 2 að sama skapi fyrir að láta besta pistlahöfund Evrópu renna úr greipum sér. Lastið á líka skil- ið allt Ríkisútvarpsapparatið sem studdi við bakið á Sig- urði sem og þungavigtarliðið úr þingliði Sjálfstæðisflokks- ins sem þagði þunnu hljóði á meðan umræðan um „pólit- ísku aflúsunina" stóð yfir á Al- þingi. Áheyrnarfulltrúi Kvennalistans í Kópavogi er hættur að mæta á fundi bæjarráðs eftir að hafa verið meinað að sitja við sama borð og aðrir bæjarráðsfulltrúar. Þess í stað hefur henni verið vísað út í horn. „Satt að segja leit ég á þetta sem hálfgert grín og ég gerði ekki ráð fyrir að þetta væri meint í alvöru,“ sagði Helga Sigurjónsdóttir en hún segir að aðstaðan við borðið úti í horni sé mjög bágborin. Vara- maður hennar, Sigrún Jónsdóttir, hefur einnig lent í því að vera sagt að sitja annars staðar en við aðal- borð bæjarráðsmanna. Helga lýsti samtölunum á bæjarráðsfundi þannig - kannski aðeins stílfært: Gunnar I. Birgisson: „Helga, ert þú komin í bæjarráð?" Helga: „Ja, ég er áheyrnarfulltrúi í bæjarráði.“ Gunnar I. Birgisson (bendir út í horn): „Þú átt að sitja þarna.“ Helga: „Nei, ég ætla að sitja hér.“ Gunnar I. Birgisson: „Þú veist reglurnar - farðu.“ Helga: „Nei, mér þykir ómögulegt að sitja þarna. Ég sætti mig ekki við að sitja þarna úti í horni. Áðstæður eru svo slæmar þar, ég get ekki skrifað þar, ég vil sitja hérna.“ Guðmundur Oddsson: „Ég verð nú að taka undir með Gunnari í þessu máli, Helga. Þegar ég var for- maður bæjarráðs var þetta alltaf svona. Áheyrnarfulltrúar voru þarna. Ég get ekki samþykkt það sem þú segir." Sigurður Geirdal: „Helga, mér finnst þú vera að færa þig upp á skaftið. Við höfum komið til móts við ykkur með því að leyfa þér að vera hér sem áheyrnarfulltrúa og nú færir þú þig upp á skaftið. Þú vilt fá að sitja við borðið og svo færð þú kannski að tala.“ Helga segir að þessar þrætur hafi Jakob Jakobsson gegnir prófessorsembætti í fiskifræði við HÍ Ekki viss um að þetta sé heppilegt segir Guðjón A Kristjánsson. Jakob Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknarstofnunar, var í haust skipaður í nýstofnað embætti prófess- ors í fiskifræði við Háskóla Islands og hyggst hann gegna báðum embætt- unum. I framhaldi af embættisveit- ingunni hefúr borið á þeirri gagnrýni að óeðlilegt sé að sami maður stjómi þeirri stofiiun sem helst er mótandi í umræðunni um fiskveiðistjórnun og gegni jafhframt því embætti sem helst gæti veitt vísindamönnum sömu stofhunar aðhald. Guðjón A. Kristjánsson, formað- ur Farmanna- og fiskimannasam- bands fslands, er einn þeirra sem er gagnrýninn á skipun Jakobs í prófess- orsembættið. „Ég veit ekki hvort þetta er gott fýrir umræðuna um fiskifræði og veiðistjórnun sem Hafrannsókn- arstofhun hefur haft mótandi áhrif á. Ég er ekki að leggja dóm á að Jakob sjálfur sé óhæfur í þetta embætti. En hann verður sem forstjóri Hafrann- sóknarstofnunar að standa af sér gagnrýni og athugasemdir um hvort tillögur stofnunarinnar standist öll rök því þama er verið að fjalla um lífs- afkomu þjóðarinnar. Ég er því ekki viss um að það sé heppilegt að sá aðili, sem hefur yfimmsjón með því hvaða efhahagslegu forsendur er lagt upp með í þjóðfélaginu, skuli líka eiga að móta fræðin og kenningamar í stofn- un sem á að vera gagnrýnin og líta til allra átta.“ Gísli Már Gíslason, prófessor, er forstöðumaður líffræðiskorar Há- skólans sem embætti prófessors í fiskiffæði heyrir undir. Hann er ekki á sama máli og Guðjón. „Hér ríkir akademískt frelsi og inn- an líffræðinnar eru fleiri menn sem stunda rannsóknir á fiski og þeir munu eftir sem áður koma ffarn sín- um skoðunum á fiskveiðistjórnun. Það hefði því ekki breytt miklu þótt prófessorinn hefði komið annars staðar ffá, eins og upphaflega var þó ætlast til þegar embættið var auglýst. " -SG ■ ■■ ■■ Helga Sigurjóns- dóttir við hornborðið sem hún á að sitja við: „Satt að segja leit ég á þetta sem hálf- gert grín og ég gerði ekki ráð fyrir að þetta væri meint í alvöru.“ staðið í fimm eða tíu mínútur en eftir það hefði hún vikið af fundi. Fulltrúar Kvennalistans hafa sent kvörtun vegna meðferðarinnar á sér til félagsmálaráðherra. Á fundi kvennanna á þriðjudag var ákveðið að koma með tillögu um það í bæj- arstjórn að áheyrnarfulltrúar fengju að sitja við aðalborðið. „Það er ekkert að þessari aðstöðu en Helga taldi sig geta gert þetta að frétt um hve illa væri farið með konur,“ sagði Sigurður Geirdal bæjarstjóri þegar MORGUNPÓSTUR- INN spurði hann um þetta mál. Hann sagði að þær Kvennalis- takonur hefðu svipaða aðstöðu og aðrir bæjarstjórnarfulltrúar sen^ sitja vilja bæjarráðsfundi sem' áheyrnarfulltrúar. ■ Glæsilegasta listaverkabók sem komið hefur út á íslensku er væntanleg um mánaðamótin Korpúlfsstaðir ná ekki að drepa Erró Gunnar B. Kvaran, listfræð- ingur, mætti á borgarráðsfund á þriðjudag og lagði fram bréf um kaup á væntanlegri bók um Er- ró. Þetta er í raun all sérkenni- legt mál því bókin er eftir Marc Auget sem er menningarpost- uli í Frakklandi og það er franskt forlag sem gefur bókina út. En prentsmiðjan Oddi prentar bókina sem kemur á sama tíma út á Islandi og í Frakklandi á ensku, íslensku og frönsku. Forsaga málsins er sú að Oddi gerði verktilboð í að prenta þessa bók og fékk verkið. Gunnar B. Kvaran sá sér leik á borði og spurðist fyrir um hvort ekki væri hægt að gefa út ein- hver eintök með íslenskum texta sem reyndist engum vand- kvæðum bundið. Listasafn Reykjavíkur pantaði því 1.500 bækur hjá franska forleggjaranum enda hafði hann engan áhuga á að selja bækur á íslenskum markaði. Sigurður Pálsson var fenginn til að þýða textann en hann er um 25 prósent, hinn hluti bókarinnar eru glæsilegar litprentanir en bókin er 300 blaðsíður að lengd. Listasafn Reykjavíkur borgar 4.000 fyrir hvert eintak en það er framleiðsluverð. Með hverri bók fylgir grafíkverk eftir Erró og er fyrirhugað að bókin kosti ís- lenskan kaupanda 8.000 krónur. Listasafn Reykjavíkur hefði aldr- ei haft bolmagn til að standa að þessu án þess að fá ábyrgð frá Reykjavíkurborg sem þarf að leggja fram ábyrgð upp á níu milljónir. Samkvæmt heimildum MORG- UNPÓSTSINS var þetta samþykkt einróma í borgarráði sem telur engan vafa á að tiltækið komi til með að borga sig og vel það. Bókin er hin glæsilegasta og að sögn Gunnars Kvaran, sú glæsi- legasta sem komið hefur út á ís- lensku. Það má því segja að þetta sé nokkur sárabót fyrir aðdáend- ur Errós eftir að fýrirhugað Erró- safn að Korpúlfsstöðum sigldi í strand. Það mál er altént í blind- götu og því verður opnuð yfir- litssýning að Kjarvalsstöðum þann 5. nóvember. Þar getur að líta fræga lista- verkagjöf Errós sem hann afhenti Reykjavíkurborg 1989 en íslend- ingar hafa átt fullt í fangi með að finna þessum verkum húsaskjól sem og kunnugt er. -JBG

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.