Helgarpósturinn - 20.10.1994, Blaðsíða 4

Helgarpósturinn - 20.10.1994, Blaðsíða 4
4 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994 Bréf til blaðsins Kiddi þarf aö lata herða ásér toppstykkið Eiríkur Jónsson svarar fyrir kveðjuna fré Kidda rót. Sá í Morgunpóstinum síðastlið- inn mánudag að fyrrum bílstjóri utanríkisráðherra kallaði mig sóða- kjaft vegna þess að ég hefði eyðilagt brúðkaupið hans. Bílstjórinn sá reyndar um það sjálfur með því að misnota síma ut- anríkisráðuneytisins á boðskortum sem hann sendi út - meðal annars til allra ráðherra og þingmanna ís- lenska lýðveldisins. Sannleikurinn er sá að undirritaður og bílstjórinn sættumst heilum sáttum nokkrum dögum effir brúðkaupið á sólríkum degi á Vesturgötunni þar sem bíl- stjórinn var að bíða eftir yfirvaldi sínu. Síðan þá hef ég oftlega rætt við bílstjórann fyrrverandi í síma og ávallt farið vel á með okkur. Hefur hann oftar en tvisvar og oftar en þrisvar íhugað alvariega að koma fram í sjónvarpsþætti mínum til að ræða örlög og vandræði fyrr- um ráðherrabílstjóra. „Skýtur því skökku við þegar ráð- herrabílstjórinn fyrrverandi segist aldrei horfa á þætti mína og óski mér út í hafsauga," segir Eiríkur í bréfinu. Skýtur því skökku við þegar ráð- herrabílstjórinn fýrrverandi segist aldrei horfa á þætti mína og óski mér út í hafsauga. 1 mín eyru segist hann vera einlægur aðdáandi minn og helst ekki sleppa þætti. I Morg- unpóstinum á mánudag virðist bíl- stjórinn vera búinn að gleyma handabandi sáttarinnar á Vestur- götunni og geysist á of miklum hraða þvert yfir hraðbraut sann- leikans líkt og hann gerði á Kefla- víkurveginum hér áður fyrr. Ég ætla ekki að segja að Kiddi rót (Kristinn T. Haraldsson) sé sóðakjaftur - en hann þyrfti að láta herða upp toppstykkið á sér - og vonandi er það ekki forskrúfað. Eiríkur Jónsson ■ Fréttir afandláti Samúels stórlega ýktar ■ Dónablöðin breiðast yfir bensínstöðvarnar ■ Arngrímur ekki bara listamaður íflugrekstri heldur alvöru listflugmaður F réttir af ótímabærum dauðdaga tímaritsins Samúels virðast vera orðum auknar því nú bendir aflt til þess að tímaritakóngurinn Magnús Hreggviðsson haldi áfram að gefa út blaðið. Nýlega komu upplýsingar um að þetta 25 ára gamla tímarit væri að syngja sitt síðasta. Hvort sem það hefur verið umtalið eða annað, þá seldist afmælisblaðið ágætlega auk þess sem auglýsinga- sala í það minnti á hina gömlu, góðu daga. Þess vegna eru menn að íhuga að endurskoða afstöðu sína og halda áfram útgáfu eina ærlega karlablaðsins á íslandi. Það er hins vegar spurning hvort Snorri Óskarsson í Betel kætist við þessi tíð- indi... o, " g áfram um karla- blöðin. Kristinn Biörns- SON í Skeljungi hefur orðið að þola nokkrar ákúrur fyrir það að Skelj- ungur selur „hressileg“ karlablöð á bensínstöðvum sínum. Hann er hins vegar ekki lengur einn í baráttunni því Einar Bene- hjá Olís er byrjaður að bjóða upp á þessa tegund af á bensínstöðvum sín- um. Þar er reyndar verið að selja fjölbreytt úrval erlendra blaða vekur athygli að erlendu blöðin fá mun betri sölustað en inn- lend... F lugfélag Arngríms Jóhannsson- ar, Atlanta, hefur verið mikið í fréttum undanfarið vegna launa- deilu og dómstólameðferðar í kjöl- far þess. Margir kunningjar Arn- gríms bíða hins vegar í ofvæni eftir því að sjá listflugvél hans sem Arn- grímur pantaði fyrir nokkru. Fyrir áhugamenn um flug má geta þess að vélin er af gerðinni Pitt S. Special og verður sett saman hér á landi... Þorsteinn Jónsson, kvikmyndaleikstjóri „Það, að menn telja sig ekki þurfa að greiða lánin til baka, hefur leitt til þess að sumir hafa gert flóknar listrænar myndir sem enginn vill sjá.“ gerðu 24 mifljónir sem við þurftum að eyða þar í borg í ýmislegt tengt kvikmyndagerðinni. Það sama gild- ir með Evrópusjóðinn, þar þarf ég að leggja fram endurskoðað bók- hald, samþykkt af öllum framleið- endum.“ Styrkir sem Kvikmyndasjóður Is- lands veitir til framleiðslu bíó- mynda eru beinir styrkir, það er að segja þeir kvikmyndagerðarmenn sem fá framleiðslustyrki þurfa ekki að endurgreiða þá til sjóðsins þó hagnaður verði af bíómyndunum sem framleiddar eru fýrir þá. I Evr- ópu er styrkjafyrirkomulagið tölu- vert annað. Þorsteinn bendir til dæmis á að ef hagnaður verði af mynd hans beri honum að endur- greiða hluta af styrkjunum. „Megnið af þessum styrkjum frá Evrópu eru á formi víkjandi lána, þannig að ef hagnaður verður af myndinni er gert ráð fyrir því að styrkirnir séu endurgreiddir. Ef hagnaðurinn verður hins vegar enginn er ekki gengið hart fram í innheimtunni. Þetta fýrirkomulag hefur verið gagnrýnt og ég er reyndar á því sjálfur að það ætti að vera meiri harka í innheimtunni. Það að menn telja sig ekki þurfa að greiða lánin til baka hefur leitt til þess að sumir hafa gert flóknar list- rænar myndir sem enginn vill sjá. Ég tel mig hafa verið að gera þver- öftigt, ég var að reyna að gera mynd sem höfðar til áhorfenda. Þeir hafa hins vegar ekki þyrpst á myndina eins og ég vonaðist til en vonandi fer fólk að kveikja á henni og láta sjá sig í bíó.“ Dræm aðsókn að Skýjahöllinni launin mín verð anæg hæst- segir Þorsteinn Jónsson, leikstjórí Skýjahallarinnar. „Mér finnst nú að gangurinn mætti vera betri, en miðað við hvernig þetta hefur verið með ís- lenskar myndir undanfarið er þetta ágætt,“ segir Þorsteinn Jónsson, leikstjóri Skýjahallarinnar, en á þeim þremur vikum sem liðnar eru síðan myndin var frumsýnd hafa sex til sjö þúsund áhorfendur séð hana. Að sögn Þorsteins kostaði Skýja- höllin 105 milljónir í framleiðslu og er fyrir vikið með dýrari myndum sem gerðar hafa verið á íslandi. Ef myndin ætti eingöngu að standa undir sér með miðasölu þyrftu um það bil 210 þúsund manns að kaupa sig inn í bíó til að sjá hana, eða lið- lega 80 prósent íslensku þjóðarinn- ar. Þetta er þó ekki tilfellið því Skýjahöllin er gerð í samvinnu við erlenda aðila og er fjármögnuð svo til að öllu leyti með íslensku og evr- ópsku styrkjafé. Þorsteinn segir að myndin hafi fengið sérstaklega góða afgreiðslu hjá ýmsum kvik- myndasjóðum og það hafi mjög auðveldað fjármögnun myndar- innar að um barna- og fjölskyldu- mynd var að ræða. Þetta gerði það að verkum að áður en sýningar á Skýjahöllinni hófust hafði allur kostnaður við hana verið greiddur, nema það sem Þorsteinn sjálfur lagði í hana. Það er hins vegar at- hyglisvert að þrátt fýrir góða fjár- mögnun er ekki víst að Þorsteinn fái til baka allt framlag sitt til myndarinnar. „Ég hef ekki borgað mér laun nema fyrir brot af minni vinnu, en ég var leikstjóri, framleiðandi og handritshöfundur myndarinnar. Þannig ef það koma ekki inn tekjur af myndinni fæ ég ekki nema hluta af mínum launum.“ Einnig nefnir Þorsteinn að tveir meðframleiðendur að myndinni, annar danskur, hinn þýskur, hafi heldur ekki fengið greitt fyrir sitt framlag en þeirra hlutur er hins vegar mun minni en Þorsteins. „Það sem ég lagði í myndina er náttúrlega vinna og einnig afhot af ýmislegri aðstöðu og tækjum. fnn í þessu er líka ákveðin áhætta sem ég tók, bankalán og peningaframlög, en alls eru þetta 19 milljónir.“ Þorsteinn varði tveimur árum í undirbúning og gerð myndarinnar og segir hann að laun fýrir þá vinnu séu í kringum 5 milljónir. Aðspurð- ur um hvað hann geti átt von á að fá mikið upp í þær 19 milljónir sem hans framlag var, segir Þorsteinn að það muni velta á aðsókninni hér á landi og svo hvernig tekst með sölu á myndinni erlendis. „Ég var að vonast til þess að fá svona þrjátíu þúsund manns hérna heima, það myndi gera 15 milljónir í okkar hlut, og að hægt væri að selja hana erlendis fyrir eina millj- ón dollara, sem myndi skiptast milli framleiðandanna. En ég er orðinn dálítið svartsýnn á að þetta gangi upp, ef ég á að segja alveg eins og er. Ástæðan fýrir því er sú að að- sóknin hefur ekki gengið eins og vonir stóðu til, en það er hugsan- legt að hún nái fýrirhuguðu marki ef myndin gengur í þrjá, íjóra mán- uði. Þetta kemur því ekki í ljós fyrr en eftir töluverðan tíma. En ef ég fæ launin út úr þessu verð ég hæst- ánægður.“ Framleiðslustyrkir til Skýjahall- arinnar voru alls 83 milljónir króna. Þar af lagði Kvikmyndasjóður Is- lands til 20 milljónir króna í beinan styrk en frá Danmörku, Norræna kvikmyndasjóðnum, Evrópska kvikmyndasjóðnum og kvik- myndasjóði í Berlín komu samtals 63 milljónir króna. Þorsteinn segir að strangt eftirlit sé með því í hvað styrkirnir fari og að sumum þeirra fýlgi ýmis skilyrði. „Kvikmyndasjóður fær bókhald fyrir myndina sem og allir sjóðirnir sem myndin fékk styrk úr. Sjóðn- um í Berlín þurfum við til dæmis að sýna fram á að við eyðum í Berl- ín þeirri upphæð sem sjóðurinn lét í myndina, plús 50 prósent, en það Sigríður Dúna Kristmundsdóttir Ætlar ekki að ganga í Sjálfstæðis- flokkinn til þess eins að kjósa í prófkjöri. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir segir sig formlega úr Kvennalistanum „Er kannski verýuleg hausthreingeming“ 1 síðustu viku sendi Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, fyrrum oddviti Kvennalistans, bréf til flokkskvenna þar sem hún fer fram á að vera tekin formlega út af fé- lagaskrá Kvennalistans í Reykjavík. „Það sem veldur því að ég geri þetta núna frekar en á einhverjum öðrum tíma er kannski venjuleg hausthreingerning. Þetta er löngu orðið staðreynd og það er kominn tími til að gera þetta formlega.“ Sigríður Dúna sagði að margt smátt gerði það að verkum að hún kysi að gera þetta formlega, meðal annars sú staðreynd að Kvennal- istakonur hefðu á opinberum vett- vangi sagt að hún væri ekki í Kvennalistanum lengur. Því væri eins gott að ganga frá þessu form- lega. „Mér varð það deginum ljósara eftir að Kvennalistinn slóst í fram- boð með stjórnmálaflokkum á vinstri væng í borgarstjórn og myndaði R-listann að ég ætti ekki lengur samleið með honum. Kvennalistinn hefur breyst mjög og ætli við höfum ekki bara vaxið sundur eins og í vondu hjónabandi. Auðvitað hafði ég aðstöðu til að móta stefnuna á meðan ég var þarna inni en það sem varð til þess að ég missti áhugann á því var af- staða ýmissa kvenna í Kvennalist- anum til þess þegar ég tók saman við mann í öðrum stjórnmálaflokki - ekki af vinstri væng. Þetta gerði það að verkum að mig langaði ekki lengur til þess að starfa þarna.“ Sigríður kvaðst ekki vera á leið- inni í annan flokk og sagðist ekki ætla að ganga í Sjálfstæðisflokkinn til þess eins að kjósa í prófkjöri sem þar er framundan, en þar berst sem kunnugt er Friðrik Sophusson eiginmaður hennar um sæti. ■

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.