Helgarpósturinn - 20.10.1994, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 20.10.1994, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR 7 Allt að tveggja milljóna króna hótelreikningur vegna tveggja mánaða dvalar Hjálmars W. Hannessonar, sendiherra íslands í Kína Sendiherrann í Kína býr á HiHon-hótelin Hjálmar W. Hannesson, sem ákveðið var í sumar að verði fyrsti sendiherra íslands í Kína frá og með áramótum, mun verja allt að tveim- ur mánuðum á Hilton-hótelinu í Bejing áður en íslenska sendiráðið kemst í eigið húsnæði. Samkvæmt heimildum MORGUNPÓSTSINS er talið harla ólíklegt að annað en svíta undir sendiherrann komi til greina, þótt Róbert Trausti Árnason, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneyt- inu, segi ekkert um það ákveðið enn. Ekki sé búið að panta hótelherberg- ið. Fyrir utan heíðbundin herbergi eru þrenns konar svítur að finna á Hilton-hótelinu í Bejing. Strax má útiloka forsetasvítuna en þar kostar nóttin 12 hundruð dollara. Hinar tvær eru eins og tveggja herbergja svítur. Dvelji hinn nýbakaði sendi- herra í minni svítunni kostar nóttin 21.080 krónur, verði sú stærri fyrir valinu kostar nóttin hins vegar 32.300 krónur miðað við núverandi gengi dollarans. Verji hann tveimur mánuðum á hótelinu, eins og allar líkur benda til, kann því hótelkostn- aður sendiherrans að fara í allt að 1.970.300 krónur. Verður kostnað- urinn alfarið greiddur af íslenska ríkinu. Þar fyrir utan er gert ráð fyrir að stofnkostnaður við nýtt sendiráð í Kína verði á bilinu 26 til 30 milljón- ir, upplýsir ráðuneytisstjórinn. Ekki tveir sendiherrar undir sama þaki Þegar ákvörðun Jóns Baldvins Hannibalssonar utanrikisráðherra lá fýrir um að setja á stofn nýtt sendiráð í Kína í vor, í kjölfar ferðar hans þangað, var það meðal annars á þeim forsendum að kostnaður yrði í lágmarki, enda var upphaflega gert ráð fyrir að íslenski sendiherrann hefði vinnuaðstöðu í sænska sendi- ráðinu í Kína. Síðar kom á daginn að Svíarnir sögðust ekki geta haft tvo sendiherra undir sama þaki. Hefði málið því endað þannig, miðað við upphaflegar áætlanir, að Hjálmar heföi aðeins getað orðið einhvers konar fulitrúi Islands í sænska sendi- ráðinu, ekki formlegur sendiherra með þeim áhrifum sem embættinu fyigir. „Mín persónulega skoðun er sú að það sé ekkert sem mæli með því að setja sendiherra okkar í Bejing í eitt- hvert vinnulegt einskinsmannsland, þar sem hann getur ekki sinnt skyld- um sínum sem sendiherra bara af því að við þurfum að búa í skamman tíma hjá öðru vinsamlegu sendiráði. En ekki er þetta nú endanlega frá- gengið,“ segir Róbert Trausti. Hann segir utanríkisráðuneytið hafa haft vaðið fýrir neðan sig með nokkra valkosti. Nú velti þetta á þvi hvort kínversk stjórnvöld geti fyrr en síðar útvegað húsnæði sem er ásætt- anlegt. En í Kína er sama fyrirkomu- lag og lengst af hefur verið í Moskvu; Meðal [indaí iherra- íbúðinni Tvöfalt bað - það er sturta og baðker Baðsloppar Dagssloppar Hárþurrkur Sértengi fyrir rafmagnsrakvél Öryggisgeymsla Hitunaraðstaða fyrir te og kaffi Skrifstofuaðstaða Rafmagnslæsing „Ekki setjum við hann í tjald,“ segir Róbert Trausti Árnason, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðu- neytinu. þar er hvorki ffjáls leigumarkaður né heimilt að eiga fasteignir. „Við erum alveg háðir kínverskum yfirvöldum um staðsetningu, stærð húsnæðis, búnað og leigu.“ En cr nauðsynlegt að hafa sendi- herrann á Hilton-hótelinu þar til hús- nœðifinnst, í alltað tvo mánuði? „Ekki setjum við hann í tjald. Þetta er óhjákvæmilegt. Það er mjög sjaldgæft að sendiherra geti flutt beint inn í húsnæði. Það þarf oft að dytta að. Sendiherrann þarf að fá sín húsgögn og annað slíkt. Þangað til reynum við að koma honum fýrir á sem hagkvæmastan hátt þar sem kostnaðurinn verður í eins miklu lágmarki og kostur er, án þess þó að það fari illa um hann.“ Verður nokkuð annað en svítafyrir valinu? „Ég hef reyndar ekki hugsað út í það. Mér finnst allt í lagi að það verði vel búið að þeim hjónum á meðan verið er að koma þessu af stað. Sjálfur var ég einu sinni píndur til að vera í minnsta herbergi á hóteli í Vín í nokkar vikur. Þegar upp var staðið var ég kominn með Litla- Hrauns-fráhvarfseinkenni ýmiss konar. Þetta er líka í fýrsta sinn sem við sendum sendiherra einan á póst. Það verða hvorki með honum ís- lenskur ritari né diplómat." Hvaðan koma peningarnir fyrir hótelkostnaðinum? „Þeir eru teknir af aðalskrifstofu- kostnaðinum eins og vera ber þegar ráðuneytið er að senda menn á fundi eða pósta.“ Fleiri starfsmenn í framtíðinni Bœtist við íslenskt starfsfólk í setidi- ráðið þegarfram í sœkir? „Þetta er spurning um útgjöld. Ég tel rétt að fara stutt en ákveðin skref í þessu máli. Fyrst er að koma þessu af stað og síðan að sjá hvað þetta kost- ar. Frá byrjun verða tveir staðar- ráðnir skrifstofumenn. Gert er svo ráð fýrir því að einn íslenskur ritari komi síðar meir. Síðan höfum við látið okkur detta í hug í fýrirhuguð- um sendiráðsbústað að hafa eitt ef ekki tvö skrifstofuherbergi fyrir hugsanlegan viðskiptafulltrúa eða fúlltrúa í útflutningi sem vildu vera með í lengri eða skemmri tíma í Kína. En tilgangurinn með stofnun sendiráðs í Kína er númer eitt og tvö að efla pólitísk og diplómatísk sam- skipti ríkjanna og í þriðja lagi, sem er kannski hið mikilvægasta, er að efla efnahagsleg samskipti ríkjanna. Eins og sést hefur á ferðalögum við- skipta- og embættismanna til Kína er töluverður áhugi á þessu stóra markaðssvæði. 1 hverju felast þessar 26 til 30 millj- ónir sem gert er ráð fyrir að kostnað- urinn verði við stofnun sendiráðsins, sem erfyrir utan dvalarkostnað sendi- herratis á Hilton? „Kínverjar hafa vanið sér vestræna háttu hvað varðar verðlag á hús- næði. Mér sýnist leigugjald per fer- metra hlaupa á 24 til 27 dollurum á mánuði. Nú, við þurfum að dytta að nýju íbúðarhúsnæði, en mér skilst síðan að þeir leggi til eitthvað af hús- gögnunum. Allt annað þurfum við að kaupa, öll skrifstofuhúsgögn, all- an skrifstofubúnað, tölvuvæðingu, bréfsíma, venjulegan síma og svo framvegis. Það segir sig sjálft, og það þarf ekki að tíunda það, að þetta er eins og hvert annað fýrirtæki sem er að fara af stað. Flutningskostnaður til Kína er svo óheyrilega hár, að jafnvel þótt þetta sé dýrt er ekkert sem réttlætir flutningskostnað ffá Is- landi. Ég held að mér hafi verið sagt að það að flytja meðalstóran gám til Bejing gæti farið upp í 700 þúsund krónur. Yfírleitt reyna utanríkis- ráðuneyti að búa eins vel að sínu fólki á svona fjarlægum póstum og kostur er.“ Veruieg hækkun annað árið Margrét Frímannsdótt ir er þingmaður Alþýðu- bandalagsins og á sæti í fjárlaganefnd Alþingis sem fjallaði um málefni sendiráðsins í Kína í vik- unni. Hún segir þetta um fyrirhugaða dvöl sendiherra íslands í Kína á Hilton: „Okk- ur finnst þetta ekkert annað en flottræfilsháttur. Það eru mörg svona mál finna í utanríkisþjónustunni. Hún segir málefni sendiráðsins í Kína fýrst hafa komið inn á borð fjárlaganefhdar í vikunni og því hafi enn engin umræða skapast um málið. Á fúndinum hafi verið farið yfir málið af hálfu utanríkis- ráðuneytisins. Samkvæmt frek- ari upplýsingum frá fjárlaga- nefnd Alþingis mun heildar fjárveiting til sendiráða og fastanefnda hækka um 30 prósent á nýju ári. Þar ræður mestu nýtt sendiráð í Bejing og lóðakaup utanríkis- þjónustunnar í Berlín. Gert er ráð fýrir að 30 milljónir fari í rekstur- inn fýrsta árið í Bejing, reiknað er með verulegri hækkun annað árið. Sendiráðið í Kína verður níunda sendiráð íslands erlendri grund, en auk þess eru íslenskir sendiherrar hjá fastanefndum og alþjóða- stofnunum víða um heim Ekki náðist í utanríkis- ráðherra, þrátt fýrir ít- rekaðar tilraunir. Guðrún Kristjánsdóttir Hjálmar W. Hannesson, verðandi sendiherra i Kína, fær þjónustu 24 tíma á sólarhring á Hil- ton-hótelinu í Bejing í allt að tvo mánuði. Ingólfur Guðbrandsson ferðamálafrömuður Sanrrfærður um að hægt sé að lækka ferðaútgjöld ríkisins Úrval/Útsýn sér um að panta ferðir og hótel fýrir utanríkisráðu- neytið. Þar sem starfsmaður ferða- skrifstofunnar, Anna Sigríður Ell- erup, sem sér um ferðamál ráðu- neytisins, reyndist ófús að tjá sig nokkuð um hvort hugsanlegt væri að lækka fýrirhugaðan hótelkostnað sendiherrans leituðum við á náðir Ingólfs Guðbrandssonar hjá Heimsklúbbi Ingólfs og ferðaskrif- stofunni Príma, en hann hefur bæði langa og víðtæka reynsiu af ferða- málum. Auk þess hefur Ingólfúr tjáð sig opinberlega um ferðamál ráða- manna þjóðarinnar í grein er hann birti í Morgunblaðinu er umræðan um umhverfisráðstefnuna í Ríó í tíð Eiðs Guðnasonar stóð sem hæst. Ingólfur vitnaði í frétt DV þar sem fram kom að á ráðstefnuna færu um 40 íslendingar á vegum hins opin- bera, eins og frægt er orðið, og kost- aði ferð hvers og eins með hóteli um það bil hálfa milljón, að vísu fóru svo mun færri en ætlað var í upp- hafi. I grein sinni sem var undir fýrir- sögninni „Eru ferðalög ráðherranna of dýr?“ benti Ingólfúr á að þegar hann hefði skömmu áður haft ferða- hóp í vikudvöl á sama hóteli og ráð- stefnuhópurinn dvaldist á Ríó, hafi hótelkostnaðurinn verið mun lægri. Að hans sögn er Hilton-hótelið í Bejing fýrsta flokks, auk hefðbund- inna eins og tveggja manna her- bergja séu hæðir, svokallaðar superi- or-hæðir, eða yfirmannahæðir sem búnar séu miklum þægindum, her- bergin þar séu að sama skapi nokk- uð dýrari. „Slík hótel bjóða meðal annars upp á einkafaxtæki, en það er orðið mjög algengt á hótelum í Austurlöndum. Á yfirmannahæð- unum eru öll nútímaþægindi, tvö- falt bað, það er sturta og baðker, baðsloppar og dagssloppar, hár- þurrkur, sértengi fýrir rafmagnsrak- vél, öryggisgeymsla, hitunaraðstaða Ingólfur Guðbrandsson „Ég myndi fara fram á afslátt á grund- velli þess að maðurinn dvelur um lengri tíma á hótelinu." fyrir te og kaffi, skrifstofuaðstaða, rafmagnslæsing og svo framvegis. Á Hilton er þjónusta allan sólarhring- inn. Fyrir hana þarf þó að greiða sér- staklega.“ Er hugsanlegt aðfá verðið eitthvað niður? „Ja, segjum svo að ég ætti hiut í því að undirbúa þessa ferð - en ríkið hefur ekki skipt við mig þó ég hafi bent þeim á að ég gæti sparað fyrir þá - þá myndi ég fara ffam á afslátt á grundvelli þess að maðurinn dvelur um lengri tíma á hótelinu. Á Hilton eru 24 svítur sem ekki eru allar að jafnaði í notkun. I ljósi þess myndi ég reyna að fá svítu á verði superior- herbergis, en á því munar 150 doll- urum á dag. I janúar og febrúar er kalt í Bejing og því fáir ferðamenn. Það gæti verið að ríkisstjórnin gerði eitthvað vitlausara en að leita til manns sem kann eitthvað í ferða- málum. Mér skilst á fréttum að út- gjöld ríkisins vegna ferðalaga hafi verið tveir milljarðar á síðasta ári. Ég er alveg sannfærður um að þessi út- gjöld er hægt að lækka töluvert.11 - GK

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.