Helgarpósturinn - 20.10.1994, Síða 14
14
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994
Spurningin
Hvað er svona
gott við
Gevalia kaffi?
Bolli prestsmaddiimunnar:
Það er svo ótrúlega
himneskt.
Bolli listamannsins:
Það gefur svo mikinn
innblástur.
Fantur hörkutólsins:
Það er svo ljúft og milt.
v., - ■'J' ' v» " "t' 1 ......
Bolli tannlæknisins:
Það hefur svo ríka fyllingu.
Bolli bölsýnismannsins:
Ég hef ekki séð það
svartara og betra.
GEVALIA
- það er kaffið!
allar helgarfram til nóvemberloka
FORRÉTTIR
sjávarréttapaté • villibráðarseyði
hreindýrapaté • villigœsakœfa
reyksoðinn lundi • grafinn lax eða silungur
reykt og sesamgrafin gœsabringa • ogfleira
AÐALRÉWR
hreindyrasteikur steiktar í salnum • ijiípur
pönnusteiktar gœsabringur • villikryddað fallalamb
villiandarsteik • svartfugl • hreindýrapottréttur
súla • hreindýrabollur í títubeijasósu • skarfur
gœsapottréttur • ogfleira
EFTIRRÉTTIR
bláberjaostaterta • ostabakki
heit eplabaka með rjóma • ogfleira
... Ííí. ,■
'
Borðhald hefst meðfordrykk kl. 20.00
Landsfrœgir tónlistarmenn munu skemmta matargestum
Dagskrá:
Föstudag 21. okt.
Magnús & Jóhann
Laugardag 22. okt.
HelgaMöller
Sunnudag 23■ okt.
Pálmi Sigurhjartarson &
SigurðurJónsson leika jass
Föstudag 4. nóv.
Pálmi Gunnarsson &
Magnús Eiríksson
Laugardag 5. nóv.
Pálmi Gunnarsson &
Magnús Eiríksson
Sunnudag 6. nóv.
Pálmi Sigurbjartarson &
Sieurður lónsson leika iass
Föstudag 28. okt.
Magnús & Jóhann
Laugardag 29. okt.
HelgaMöller
Sunnudag 30. okt.
Pálmi Sigurhjartarson &
Sigurður Jónsson leika jass
Föstudag 11. nóv.
Eyjólfur Kristjánsson
Laugardag 12. nóv.
Eyjólfur Krístjánsson
Sunnudag 13- nóv.
Pálmi Sigurhjartarson &
SigurðurJónsson leika jass
Bréf til blaðsins
Refsivendir og
niðurlœging
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
í einum grunnskóla
borgarinnar, Hagaskóla,
hefur í langan tíma verið
notast við punktakerfi til að
mæla hinar ýmsu syndir
nemenda. Nemendur
hljóta punkta, til dæmis
fyrir að mæta of seint í tíma
eða mæta alls ekki. Nem-
andi sem fengið hefur tutt-
ugu punkta er í refsingar-
skyni settur í svokallað tog.
1 íjóra daga er honum gert
að fylgja umsjónarkennara
sínum og sitja þá tíma sem
umsjónarkennarinn kenn-
ir. Hafi nemandinn um-
sjónarkennara sem ein-
göngu kennir íslensku
missir nemandinn af öllum
tímum nema þeim sem
tengjast íslenskukennslu.
Skólayfirvöld hafa meinað
honum að sækja lög-
bundna tíma og hann fær
enga uppbót á glataðan
tíma.
Nemandi sem á í náms-
erfiðleikum og lendir í áð-
urnefndu togi er í þeirri
hættu að lenda í enn alvar-
legri námserfiðleikum en
áður. Auk þess er hann tek-
inn frá þeim hóp sem hann
venjulega fylgir og hafður
til sýnis í öðrum bekkjar-
deildum. Hann hefur brot-
ið reglur skólans og hann
skai niðurlægður.
Það ætti að vera hverjum
skynsömum manni ljóst að
þeir nemendur sem helst
verða fyrir barðinu á þessu
kerfi eru þeir sem standa
ekki fullkomlega jafnfætis
féiögum sínum. Erfíðleikar
þessara nemenda geta verið
af ýmsum toga: bágbornar
heimilisaðstæður, andlegir
erfiðleikar, félagsleg ein-
angrun eða líkamlegur van-
þroski. Fleiri ástæður mætti
örugglega nefna.
Að baki hverju agabroti
er ástæða sem liggur ekki
ætíð í augum uppi. Ef við
viljum trúa því að börn og
unglingar séu óagaður og
illa meinandi lýður þá tök-
um við á þeim samkvæmt
því. Þá er vænlegast að nið-
urlægja einstaklinga innan
hópsins, hafa þá til sýnis
öðrum unglingum til við-
„Niðurlæging er eitt grimmasta
form refsingar. Sá sem er niður-
lægður tapar reisn sinni og sjálfs-
virðingu. Niðurlæging er öllum
mönnum erfið en fullorðnar
manneskjur eru hæfari til að
vinna sig frá slíkum áföllum en
ómótaðir unglingar," segir
Kolbrún Bergþórsdóttir í bréfi
sínu.
vörunar. Þannig gerum við þeim
ljóst hvar valdið liggur.
Ef við hins vegar viðurkennum
þá staðreynd að unglingsárin séu
mörgum unglingum erfið (og nýjar
íslenskar kannanir staðfesta að svo
sé) hljótum við að bregðast við á
mannúðlegri hátt og leita viðun-
andi og varanlegra lausna á vanda
nemandans án þess að hæða hann
og niðurlægja.
Niðurlæging er eitt grimmasta
form refsingar. Sá sem er niður-
lægður tapar reisn sinni og sjálfs-
virðingu. Niðurlæging er öllum
mönnum erfið en fullorðnar
manneskjur eru hæfari til að vinna
sig frá slíkum áföllum en ómótaðir
unglingar.
Ég furða mig á því að í íslensku
skólakerfi og undir lok 20. aldar
skuli vera í gildi svipaðar aðferðir
og við lesum um í 19. aldar skáld-
sögum þjóðfélagsgagnrýnandans
Charles Dickens. Eg veit ekki til
þess að Kennaraháskóli Islands hafi
menntað nemendur sína í því skyni
að láta þá sinna slíkum óþverra-
störfum. Ég mælist til þess að
Hagaskóli láti af því að nota þann
niðurlægjandi refsivönd sem nefn-
ist tog.
Kolbrún Bergþórsdóttir
gagnrýnandi og kennari
Leiðrétting
I Morgunpóstinum fyrir
viku var sagt frá því að við-
tal sem Kristinn R. Ólafs-
son fréttaritari Útvarps
hefði tekið við Friðrik Sop-
husson fjármálaráðherra á
Spáni hefði ekki birst. Það
er ekki rétt. Viðtalið birtist hins
vegar ekki fýrr en nokkrum dögum
eftir að það var tekið. Er beðist vel-
virðingar á þessu.
Ritsj.
Blaðþera
vaniar
í Garðabæ og Mosfellsbæ
Vinsamlega hafið samband við afgreiðslu
Morgunpóstsins í síma 22211
Pósturihn