Helgarpósturinn - 20.10.1994, Page 15
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
15
Birgir Rúnarsson segir að tuttugu nýbúar hafi ráðist á sig og unnustu sína um síðustu helgi og gengið í
skrokk á þeim. Frásögn hans er á skjön við orð lögreglumanns sem var á vettvangi, og sjónarvotta.
Gapandi yfir því að þetta sé orðið stórmál
segir lögnegluþjónn sem vará vettvangi
„Ég er fyrst og fremst eftir mig
andlega og reiður út af þessu,“ seg-
ir Birgir Rúnarsson sem að eigin
sögn varð fyrir því að hópur inn-
flytjenda frá Austurlöndum réðst á
hann aðfaranótt síðasta sunnudags
þar sem hann var á göngu ásamt
unnustu sinni í Austurstræti.
Tvennum sögum fer hins vegar af
upphafi slagsmálanna og lögreglu-
þjónn sem var á vettvangi segir að
málavextir eins og þeir hafa áður
komið fram í fjölmiðlum séu stór-
kostlega ýktir.
Argaði á óskiljan-
legu tungumali
Samkvæmt frásögn Birgis hafði
hann ekkert til sakar unnið þegar
maður, sem hann heldur að sé af
tælensku bergi brotinn, tók að
abbast upp á hann.
„Hann var að snapa sér slagsmál
eins og stundum gerist. Fyrst gerði
ég ekki neitt en þegar hann byrjaði
að kýla mig reyndi ég að verja mig,
en ég vildi ekki standa í neinu ve-
seni. Síðan kom félagi hans og arg-
aði eitthvað á óskiljanlegu tungu-
máli. Hinn Tælendingurinn svar-
aði og þá tók félaginn á rás beint
inn á Gullið en þetta gerðist þar
beint fyrir utan. Og áður en ég vissi
af kom halarunan af þessum Asíu-
búum hlaupandi út og rignir yfir
mig og ég laminn og sparkað í mig.
Ég reyndi að komast á fætur til að
hjálpa kærustunni minni, sem þeir
réðust líka á, en það gekk ekki.
Loksins þegar ég var að komast á
fætur, kom einn þeirra og sparkaði
framan í mig með þeim afleiðing-
um að ég nefbrotnaði. Þegar ég
stóð loksins upp sá ég bara hóp af
Tælendingum sem öskruðu eitt-
hvað sem ég skildi ekki. Þetta fólk
ber ekki meiri virðingu fyrir land-
inu en það að það vill ekki læra
tungumálið.“
Birgir segir að bæði hann og
kærastan hans beri skýr merki eftir
átökin.
„Kærastan mín er tognuð bæði á
baki og á hálsi, með gat á höfðinu
og öll blá og marin á líkamanum.
Sjálfur er ég með glóðarauga báð-
um megin og brákaður á tveimur
liðum á annarri hendinni.“
Birgir segir enn fremur að bróð-
ir kærustu hans hafi verið staddur
skammt frá og að hann hafi ásamt
nokkrum kunningjum þeirra kom-
ið þeim til aðstoðar. Samkvæmt
Birgi voru Asíubúarnir tuttugu
talsins gegn honum, kærustu hans
og sjö kunningjum þeirra. Einnig
kemur fram í máli Birgis að vinur
hans hafi séð að Tælendingarnir
væru þungvopnaðir.
„Vinur sem ætlaði að koma okk-
ur til hjálpar sagði við mig að hann
hefði séð hnúajárn, einn með hníf
og svo var hann að tala um ein-
hverja rörbúta. Ég get ekki staðfest
þetta sjálfur þar sem ég sá þetta
ekki og ég hef ekki ennþá náð í
þennan mann til að fá staðfest-
ingu.“
Það sem hér er á undan rakið er
frásögn Birgis. Karl Hjartarson
lögregluþjónn sem var á vettvangi
hefur hins vegar töluvert aðra sögu
Lögreglan
kannaðist
ekki við málið
í ljósi þess að maður fullyrti að
tuttugu manna hópur þungvopn-
aðra „nýbúa“ hefði gengið í
skrokk á sér og kærustu sinni þeg-
ar þau voru á næturrölti í mið-
bænum, voru svör lögreglunnar
við fyrirspurn blaðamanns MORG-
UNPÓSTSINS undarleg. Þar þekkti
enginn málið.
Fyrst var rætt við Gylfa Jóns-
son hjá Rannsóknardeild lögregl-
unnar í Reykjavík. Hann hafði
ekki heyrt um neina „nýbúaárás".
„Ég veit ekkert hvað þú ert að tala
um,“ sagði hann og það vissi ekki
heldur neinn félaga hans í deild-
inni.
Hörður Jóhannesson, rann-
sóknarlögreglumaður hjá RLR,
hafði ekki frekar enn kollegi hans
hjá Rannsóknardeildinni heyrt á
málið minnst. „Þú ert að segja mér
fréttir, ég veit ekkert um þetta. Ég
sé allar skýrslur sem koma hingað
inn þannig að ég ætti að þekkja
málið ef það væri komið tÚ okk-
ar.“
Þá var haft samband við Friðrik
Gunnarsson, en hann fer yfir all-
ar skýrslur sem gerðar eru hjá
Lögreglunni í Reykjavík. Hann
hafði ekki frekar en þeir tveir fyrr-
nefndu neinar upplýsingar um
málið. „Ég veit ekkert annað en
stendur í DV. Ég hef ekkert séð
um þetta í mínum gögnum, ennþá
að minnsta kosti. Eina skýringin
sem mér dettur í hug er að það eigi
eftir að gera skýrslu um málið."
Enn varleitinni haldið áfram og
næst var borið niður hjá Jónasi
Hallssyni aðstoðaryfirlögreglu-
þjóni. Hans svar var skýrt og
skorinort. „Ef þetta væri eitthvað
stór mál væri skýrsla fyrirliggj-
andi,“ sagði hann og bætti við
„Við setjum ekki allt í gang þó ein-
hverjir kjósi að æsa fjölmiðla upp
út af einhverju sem þeir hafa lent í.
Þetta hefur eðlilegan gang hjá
okkur og viðkomandi aðilar hafa
verið kallaðir til þess að gefa frek-
ari upplýsingar um þetta atvik.“
Að lokum var talað við Guð-
mund Einarsson sem var varð-
stjóri þá nótt sem árásin átti að
hafa átt sér stað. Hann tók undir
orð Jónasar og segir að það sé ekki
litið alvarlegum augum á þetta
mál innan lögreglunnar. „Fyrst
lögreglumaðurinn sem skakkaði
leikinn sá ekki ástæðu til þess að
skrifa skýrslu um þetta atvik strax
að lokinni vaktinni hefúr honum
ekki þótt málið mjög alvarlegt.
Skýrslan var skrifuð um þetta í dag
(gær) og liggur nú fyrir.“
Þegar haft var samband aftur
við Gylfa Jónsson hjá Rann-
sóknardeildinni síðdegis í gær
hafði hið meinta fórnarlamb tutt-
ugu nýbúa, Birgir Rúnarsson,
komið á lögreglustöðina. Lög-
regluskýrsla var ekki fyrirliggjandi
um árásina en venjan er að form-
leg ákæra sé ekki lögð fram fyrr en
eftir að slík skýrsla hefur verið
gerð. Umrædd skýrsla er núna til-
búin og í dag mun Birgir hyggjast
leggja fram formlega ákæru. 1
framhaldi af því mun lögreglan
rannsaka málsatvik.
Aðstoðarmenn ráðherranna eru flestir önnum kafnir við nefndarstörf. Sex þeirra hafa sam-
tals setið í fimmtíu nefndum á kjörtímabilinu og þegið fyrir það umtalsverðar fjárhæðir
að segja sem og Haraldur Jóns-
son, veitingamaður á Gullinu.
Einn drengur með
hníf, og hann var
rammislenskur
Karl kom ásamt félögum sínum í
Austurstræti um það leyti sem
átökin áttu að hafa átt sér stað.
Fréttaflutningur af málinu hefur til
þessa komið honum vægast sagt
spánskt fyrir sjónir.
„Ég bara gapti þegar ég sá að
þetta var orðið stórmál. I DV er
talað um vopnaburð og mönnum
hafi verið ógnað með hnífum,
hnúajárnum og öðrum tólum. Það
var ekki minnst einu orði á þetta
vjð okkur um nóttina. Upphaflega
kemur til okkar vegfarandi sem
segir okkur að þarna sé krúnurak-
aður piltur í hermannajakka sem
hafi verið með hníf. Við tókum
hann inn í bíl og það kom í ljós að
hann var með svona lítinn, rauðan
hníf, svokallaðan Sviss Army knife,
í vasanum en hvort hann hafi verið
eitthvað að sveifla honum er ekki
nokkur leið að henda reiður á. En
þessi drengur var rammíslenskur
og við höldum að hann hafi ekkert
blandast í þessar stympingar. Ætli
þetta hafi ekki allt í allt verið 15 til
20 manns, innfæddir og nýbúar,
sem voru að stympast þarna. Við
tókum tvo Tælendinga inn í bíl og
einn sem var eitthvað að blanda sér
í það mál fékk að fljóta með. Síðan
var rætt við þetta par sem hafði
verið í þessum pústrum og þá kom
ekkert fram um neinn vopnaburð.
Þessi frétt í DV á ekkert skylt við
þetta mál sem átti sér stað aðfara-
nótt sunnudagsins.“
I samtali við blaðamann MORG-
UNPÓSTSINS og í frétt DV af mál-
inu kom fram hjá Birgi að lögregl-
an hafi fært kunningja hans ásamt
tveimur Tælendingum inn í lög-
reglubíl og þar hafi Tælendingarnir
þjarmað að vini hans. Þetta kann-
ast Karl alls ekki við.
„Þessi klásúla að þeir hafi verið
að slást inni í bíl er alveg af og frá.
Það var lögreglumaður aftur í bíl
hjá þeim og ræddi við þá í mesta
bróðerni.11
Karl ítrekar að lögreglan hafi lítil
afskipti þurft að hafa af nýbúum,'
hvort sem það er fólk frá Asíu eða
öðrum heimshlutum.
„Það er sárasjaldan sem við höf-
um þurft að hafa afskipti af nýbú-
um í miðbænum. Við höfum ekki
nokkurn skapaðan hlut við þetta
fólk að athuga,“ segir Karl.
Þetta fólk fær
sjaldan að vera I friði
Það er athyglisvert að Birgir full-
yrðir að um það bil tuttugu manns
hafi veist að honum og kærustu
hans, en lögreglan segir hins vegar
að allt í allt hafi hópurinn sem tók
þátt í stympingunum verið á bilinu
fimmtán til tuttugu. Eins og kemur
fram hér að ofan segir Birgir að sjö
kunningjar hans hafi komið hon-
um og kærustu hans til hjálpar.
Það þýðir að Tælendingarnir hafa
ekki getað verið fleiri en ellefu.
Haraldur Jónsson, veitingamaður á
Gullinu, en þar hafa Tælending-
arnir sem koma við sögu í þessu
máli verið fastagestir undanfarna
mánuði, segir að sú tala passi mjög
vel.
„Að þau hafi verið tuttugu er
fjarri öllu lagi, ég giska á að hópur-
inn hafi verið öðru hvoru megin
við tuginn."
Haraldur leggur mikla áherslu á
það að hann hafi elckert yfir Tæ-
Gullið í Austurstræti Birgir Rún-
arsson 21 árs, segir að fyrir utan
þennan stað hafi tuttugu Tælend-
ingar ráðist að sér og kærustu
hans, án þess að þau hafi gefið
nokkuð tilefni til þess.
lendingunum að kvarta.
„Þetta fólk hefur komið á stað-
inn um helgar undanfarna mánuði
og ég hef ekki orðið var við nein
vandræði af þeirra völdum. Einu
óþægindin í kringum þessi grey eru
að íslendingarnir láta illa við þau.
Við höfum margoft þurft að vísa
mönnum á dyr vegna þess að þeir
hafa verið að angra þau. Þeim er
leyft að flytja til landsins en síðan
fá þau engan frið.“
Haraldur varð ásamt dyravörð-
um staðarins vitni að átökunum
fyrir utan Gullið aðfaranótt sunnu-
dags.
„Eins og þetta leit út frá okkur,
án þess að ég geti fulllyrt neitt,
byrjaði þetta í kringum eina tæ-
lensku stelpuna. Það er alltaf verið
að kallað eitthvað á þessi grey og
þarna byrjaði einhver hasar. Við
sáum að það var verið að ýta við
þessari stelpu og síðan braust þetta
út.“
Aðspurður segir Haraldur að
hvorki hann né starfsmenn staðar-
ins hafi nokkurn tímann orðið var-
ir við að Tælendingarnir væru
vopnaðir.
Birgir Rúnarsson var spurður
hvort það gæti verið tilfellið að
hann eða einhver kunningja hans
hefði byrjað illindin.
„Það er ekki rétt, það er einfalt
mál. Ég hafði enga ástæðu til þess.
Hann gekk á mig og byrjaði þetta
og ég var bara að reyna að verja
mig. Ég var á leiðinni heim. Ef ég
hefði byrjað þetta væri ég ekki í
málaferlum eða að flagga þessu á
þennan hátt.“
Birgir þvertók fyrir að láta taka
mynd af sér eða áverkunum og gaf
þá ástæðu að hann óttaðist hefnd-
araðgerðir af hendi þeirra sem
hann átti í útistöðum við.
„Ég vil ekld fá skrúfjárn eða hníf
í bakið einhvern tímann þegar ég
er að skemmta mér í framtíðinni,“
sagði hann orðrétt.
-Jón Kaldal
Sex aðstodarmenn í fimnvtíu nefndum
MORGUNPÓSTURINN hefur óskað
eftir því við aðstoðarmenn allra
ráðherra í ríkisstjórninni að þeir
gefi upplýsingar um allar þær
nefndir, stjórnir og ráð, sem þeir
hafa verið skipaðir í á kjörtímabil-
inu og yfirlit yfir þóknanir sem þeir
hafa þegið fyrir þau störf.
Svör borist frá sex
Þegar hafa borist svör frá sex
þeirra; Eyjólfi Sveinssyni, aðstoð-
armanni Davíðs Oddssonar, Ara
Edwald, aðstoðarmanni Þor-
steins Pálssonar, Birgi Her-
mannssyni, aðstoðarmanni Öss-
urar Skarphéðinssonar Margr-
éti S. Björnsdóttur, aðstoðar-
manni Sighvats Björgvinssonar,
Sigurgeiri Þorgrímssyni, aðstoð-
armanni Halldórs Blöndal og
Þórhalli Jósepssyni, aðstoðar-
manni sama ráðherra.
Enn hafa ekki borist yfirlit frá
Steingrími Ara Arasyni, aðstoð-
armanni Friðriks Sophussonar
og Þresti Ólafssyni, aðstoðar-
manni Jóns Baldvins Hannibals-
sonar. Þá hefur ekki náðst í Jón H.
Karlsson, aðstoðarmann Guð-
mundar Árna Stefánssonar, en
hann er í leyfi í útlöndum.
í upptalningunni hér á eftir er til
hægðarauka ekki gerður greinar-
munur á nefndum, stjórnum eða
ráðum og notað samheitið nefndir.
Frá 2 upp í 22 nefndir
Davíð réð Eyjólf til sín á síðasta
ári. Hann hefur setið í fimm nefnd-
um og hafa tvær þeirra lokið störf-
um. Hann hefur fengið greitt fyrir
setu í þremur þeirra samtals 145.961
krónu en á eftir að fá uppgert fyrir
hinar.
Ari Edwald hefur aðstoðað Þor-
stein allt kjörtímabilið. Hann hefur
setið í jafnmörgum nefndum og
Eyjólfur, eða fimm. Fyrir það hefur
Ari fengið greiddar 297.695 krónur.
Margrét S. Björnsdóttir hefur
verið skipuð í sjö nefndir en Sig-
hvatur réð hana til sín á síðasta ári.
Tvær þeirra hafa lokið störfum og
af hinum fimm eru þrjár fasta-
nefndir. Margrét hefur fengið greitt
Þórhallur Jósepsson, aðstoðar-
maður Halldórs Blöndal, er
nefndakóngur aðstoðarmanna
ráðherranna. Á kjörtímabilinu
hefur hann verið skipaður í 22
nefndir, stjórnir og ráð og þegið
fyrir það rúmlega 1,3 milljónir
króna.
fyrir setu sína í fjórum nefndum
samtals 247.394 krónur og á því
inni nokkra fjárhæð.
Sigurgeir situr í fimm nefndum
en á kjörtímabilinu hefur hann ver-
ið skipaður í níu, fjórar hafa lokið
störfum. 666.287 krónur hafa verið
greiddar Sigurgeiri fyrir þetta starf
en þó á eftir að gera upp við hann
setu í einni nefnd á þessu ári og því
síðasta.
Þórhallur er nefndakóngurinn í
þessum hópi. Alls hefur hann verið
skipaður í tuttugu og tvær nefndir,
stjórnir og ráð á kjörtímabilinu. Sjö
þeirra hafa lokið störfum þannig að
í dag á hann sæti í fimmtán. Upp úr
þessu hefur hann haft 385.353 krón-
ur en eftir á að greiða honum
þóknun fýrir sex þeirra og fyrir
tvær er ekki greidd þóknun. Auk
þess hefur Þórhallur fengið 24.308
krónur á mánuði fyrir setu í stjórn
Húsnæðismálastjórnar. Þar bætast
við 948.012 krónur. Samtals gerir
það 1.333.365 krónur.
Birgir hefur enn ekki fengið
krónu greidda fyrir setu í þeim
tveimur nefhdum sem hann hefúr
verið skipðaður í. -SG