Helgarpósturinn - 20.10.1994, Page 17

Helgarpósturinn - 20.10.1994, Page 17
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994 MORGUNPÓSTURINN FÓLK 17 tónlist. Nú veröur ekkert ballvesen, bara tónleikahald í samfloti við Quicksand Jesus og Jet Black Joe, enda allar þrjár að gefa út plötu um þessar mundir. Við ætlum víð^jtaar. um landið, meðal annars að komTvfo á heimavistum og svo framvegis." Er bannað að dansa? „Tónlistin er ekki gerð með dans i huga. En það má samt alveg dansa við hana.“ GK a afmæli Aðalstöðvan'nnar á Hótel Islandi ^Ánnað kvöld verður fimm ára af- mælinu fagnað á Hótel íslandi þar sem nokkrar af helstu skrautfjöðr- um stöðvanna verða dregnar úr stúdíóunum ásamt mörgum af þekktustu skemmtikröftum lands- ins. „Þetta verður þrumu samkoma,“ en þá hefst skemmtidagskráin,“ segir Þormóður. Aðalstöðin hyggst einnig færa út kvíarnar á næstunni og bæta við þriðju stöðinni sem er létt klassísk stöð, Klassík FM, og fagna eflaust margir þeirri viðbót í íslenska út- varpsflóru. LAE segir Þormóður Jónsson fram- kvæmdastjóri Aðalstöðvarinnar, „en meðal þeirra sem ffam koma eru Bubbi Morthens, KK, Palli og millarnir, Sniglabandið og Halli, Laddi, Siggi Sigurjóns og margir fleiri.“ Að hans sögn hyggst stöðin bjóða íooo af hlustendum sínum í afmæl- isveisluna í dag og morgun en þegar veislan stendur sem hæst verður dreginn út einn heppinn gestur og vinnur hann utanlandsferð. „Ég vil hvetja fólk til að koma snemma og þiggja fordrykk sem heitir Aflvakinn 909 á milli 9 og 10 ormóðúfJöhssonlofar þrumu stuði í afmælisveislunni en þa koma fram Bubbi, KK, Páll Óska og Milljónamæringarnir og fleiri. Brotin framtönn Bó Halldórs hefur aldrei verið heitari en einmitt núna. Það er leitun að þver- móðskupúkum sem standa gegn straumnum og halda því fram að Bó sé ekki bestur. Þeir sem eru með brotna framtönn eru á toppnum því þeir tilheyra „wild''-armi Bó-bylgjunnar. Támjóir skór Helst þarf táin að vera sem allra allra lengst. Þeir, sem sáu konsertinn með Len- ingrad Cowboys í Helsinki þar sem þeir fóru á kostum ásamt kór Rauða hersins, vita við hvað er átt. Barir sem skrifa Það er gömul og ný saga að um leið og einhver staður nær þokkalegum hópi fa- stakúnna þá sigla unglingarnir í kjölfarið og fylla staðinn þannig að þeir sem ung- lingamir komu til að sjá komast ekki að. En besta leiðin til að halda í góða kúnna er að þeirfái að skrifa drykk og drykk enda út i hött að menn sem eyða að jafn- aði 50 kalli á mánuði á einhverjum stað geti ekki fengið notið þeirrar sjálfsögðu þjónustu. Hannes Hólmsteinn Hannes datt blásaklaus inn í umræðuna. Hannes er því heitur um þessar mundir og þurfti hvorki afglapahátt né snilld af hans hálfu til þess. Nokkuð töff: Að vera eða vera ekki Hannes — það er engin spurn- ing. En á móti kemur að það er heldur neyðarlegt fyrir hann að fylgja með llluga eins og hver annar handfarangur. Hannes er þvi hvorki né um þessar mundir og er við 0°. Kvennalistinn Orðinn að hálfgerðu skrípi á hinu pólit- íska skákborði. Kristín Ástgeirsdóttir, sem er aðalsprautan i HemmaGunnhædúllía- deikvintett stjórnmálaflokkanna, spyr hvað Kvennalistinn eigi sameiginlegt með Jóhönnu og G-listanum? Nærværi að spyrja hvað þær eiga ekki sameiginlegt með þeim. Á stuttum tíma er Kvennalist- inn öðrum fremur orðinn að tákni fyrir úr- 1 sérgengið flokkakerfið. Þeir sem ekki fengu styrk hjá Óla G. Bjánarnir sem kunna ekki á systemið. Maður getur ekki annað en vorkennt þeim. En Guð (eða Ólafur) hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir og þessu liði er hreinlega ekki við bjargandi. 2 Ekkert Me He Innlendir fatahönnuðir færast æ nær náttúruöflunum. Áslaug Leifsdóttir, nýútskrifaður fatahönnuður frá Ma- astricht, sýndi í gærkvöld lokaverkefni sitt fýrir fúllu húsi á Kaffi Reykjavík. Líkt og Filippía Elísdóttir hefur Áslaug eitthvað alveg nýtt fram að færa; mystíska, íslenska, hráa tísku sem fer vel á íslenskum valkyrjum. En yfirskrift sýn- ingarinnar var Ekkert Me He. Fatnaði Áslaugar klæddust íslensku fyrirsæturnar í senn kynþokkafullar og hættuleg- ar, allt að því vampýrulegar. Næstum eins og „natural born killers“. Afurðir sauðkindarinnar eru mikið notaðar í fatnaði Áslaugar, sem og íslensk net frá Hampiðjunni. Nýr íslenskur strengjakvartett lék nokkur lög, auk þess sem dansarar sýndu listir sínar. Kynnir var Steinunn Ólafs- dóttir leikkona. Hluti fatnaðar Áslaugar verður sýndur í Þýskalandi og víð- ar í Evrópu í vetur. Það er því tímabært að spyrja, er ef til viil loks að skapast íslensk tíska til útflutnings? Ljósmyndir Björn Blöndal Jón Sím, júníor, Davíð Þór Hlinason, Sigurður Gíslason, Ingimundur Þorkelsson og Heiðar Kristinsson halda tónleika víðs vegar um landið í samfloti við Jet Black Joe og Quicksand Jesus. Jón Símonarson, júníor, eins og hann er oftast nefndur, hefur tekist það með félögum sínum í Dos Pilas að fá því framgengt að Rósenbergkjallaran- um verði skellt í lás á fimmtudags- kvöld. Það kemur þó til af góðu því með þessari lokun er kjallarinn að lýsa yfir stuðningi sínum með Dos Piias. Rósenbergkjallarinn er nefnilega að fara að halda útgáfutónleika Dos Pilas í Tunglinu, þar sem öll gæði til alls slíks þykja mun betri en á fyrrnefnda staðn- um. Þetta umstang kemur til af því að tíu laga geislaplata lítur dagsins Ijós frá Dos Pilas í dag og nefnist hún My own Wings. En við upptökur á henni eru drengirnir búnir að sitja sveittir síðan í vor. Hvað kemur svo út úr þessu öllu saman? „Bara allt önnur hlið á hljómsveitinni. Nú er grafið djúpt í texta og læti. Ég held þó að þetta verði svolítið tormelt en smíðin verður betri fyrir vikið. Ef maður gefur lögunum sjéns fattar maður hana,“ segir júníorinn. Eruð þið komnir út úr grunge-popp- inu? „Ja, það er alla vega ekkert popp, bar§ rokk.“ Hvert er svo framhaldið? „Að fara út um allar trissur og spila*

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.