Helgarpósturinn - 20.10.1994, Page 22
MORGUNPOSTURINN SPORT
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994
Ítalía
Boskovtek-
ur við Napolí
Italska dagblaðið Le Gazzetta
dello Sport greindi frá því í gær að
ítalska liðið Napolí væri í viðræð-
um við þjálfarann Vujadin Boskov
um að taka að sér þjálfun liðsins.
Napolí hefur gengið hreint afleit-
lega á tímabilinu og er nú í fjórða
neðsta sæti deildarinnar. 1:5 stór-
skellur gegn Lazio á sunnudag fyllti
síðan mæíinn og er nú talið ljóst að
Vincenzo Guerini, þjálfari liðsins,
þurfi að taka pokann sinn. Hann
var hinn rólegasti í gær er fréttirnar
voru bornar undir hann og sagði að
það hefði verið skemmtilegra ef
forráðamenn liðsins tilkynntu hon-
um uppsögn í stað fjölmiðla.
Boskov er margfrægur þjálfari og
skemmst er að minnast sex glæsi-
legra ára hans hjá Sampdoria sem
fólu í sér Evrópu- og Italíumeist-
aratitil meðal annarra viðurkenn-
inga.
„Ég veit ekkert enn um málið,“
sagði Boskov, sem er orðinn 63 ára,
við blaðamenn í gær. „Það eina sem
ég veit er að forráðamenn liðsins
báðu mig um að koma til Napolí á
föstudag og það ætla ég að gera.
Það hefur ekki verið skrifað undir
neitt.“ B
Middlesbro
Gamli landsliðsfyrirliðinn og
leikmaður Manchester United til
fjöldamargra ára, Bryan Robson,
er að gera það gott sem fram-
kvæmdastjóri Middlesbrough í
fyrstu deildinni í Englandi. Hann
tók við liðinu af Lennie Lawr-
ence, sem var rekinn í sumar. Sem
stendur er liðið í fjórða sæti deild-
arinnar, þrem stigum á eftir Úlfun-
um, sem eru efstir.
Bryan Robson, sem verður 38 ára
í janúar, er einn reyndasti leikmað-
ur í sögu enskrar knattspyrnu. Alls
lék hann 345 deildarleiki fyrir Unit-
ed og skoraði í þeim 74 mörk. Þá
var hann fyrirliði enska landsliðsins
til fjöldamargra ára og var á sínum
bestu árum talinn besti leikmaður
enskrar knattspyrnu. Nú hefur
hann hins vegar skipt um klúbb og
tekið við af Lawrence sem fram-
kvæmdastjóri Middlesbrough, sem
hafði gengið afleitlega áður en Rob-
son kom til sögunnar. Liðið fékk
ýmsa nýja leikmenn svo sem
miðjumanninn Clayton Black-
more, sem fylgdi Robson frá Unit-
ed, Nigel Pearson frá Sheffield
Wednesday og Neil
Cox frá Aston Villa. Þá
er Robson með tvo al-
kunna aðstoðarmenn,
þá Viv Anderson og
John Pickering, sem
fá að koma sínu áliti að
þegar svo býr undir.
Þeir stjórna síðan af
hliðarlínu þegar Rob-
son bregður sér í stutt-
buxur og spilar með
liðinu. Middlesbrough
féll niður úr úrvalsdeild
vorið 1993 en hefur sett
stefnuna á stutt stopp í
1. deild og þar af leið-
andi sæti í úrvalsdeild á
næsta tímabili. -RM
Bryan Robson fyrrum
fyrirliði Manchester
United og enska
landsliðsins hefur
byrjað mjög vel sem
þjálfari Middiesbro.
KA-menn enn að leita eftir þjálfara
Vildulá
James Bett
Enn hefúr ekki verið gengið frá
ráðningu nýs þjálfara hjá 2. deildar
liði KA. Rætt hefur verið við
nokkra þjálfara en enn hefur ekki
verið gengið frá samningum. Ing-
ólfur Hauksson hjá Knattspyrnu-
deild KA segir að félagið hafi verið
á höttunum eftir James Bett sem
lék með KR í sumar.
„Hann er maður með mikla
reynslu og hefði komið vel út,“
sagði Ingólfúr aðspurður um Bett.
„Það strandaði hins vegar á erfið-
um samningum hans við skoska
liðið Hearts sem hann leikur með
um þessar mundir."
KA-menn stefna hátt fyrir næsta
tímabil og eru staðráðnir í að end-
urheimta sæti sitt í 1. deild. „Við
verðum þó ekki á ferðinni með
seðla eins og sum smærri félög eru
að gera. Við erum búnir að leggja
niður innkaupadeildina og ætlum
að vera örlítið skynsamari núna.“
James Bett Hann varð bikar-
meistari með KR-ingum í sumar
en leikur nú í skosku úrvals-
deildinni með Hearts. KA-menn
voru í viðræðum við hann um að
gerast þjálfari liðsins en þær
viðræður eru nú komnar í
strand.
Ei nn grófasti leikmaður nýliðinn-
ar 1. deildar, Eyjamaðurinn Nökkvi
Sveinsson, er einnig
genginn til liðs við
Framara. Nökkvi
hefur leikið manna
best í Eyjaliðinu og
er því mikil blóð-
taka fyrirliðið...
móti kemur að allt bendir til
þess að Anton Björn Markússon
leiki aftur með Eyja-
mönnum næsta
sumar. Anton lék
með Eyjamönnum
fyrir tveimur árum
en hélt síðan aftur
heim í Fram þar sem
hann er uppalinn.
Þar hefur vistin ekki verið góð,
hann hefur lítið fengið að leika og
mjög alvarlegur
ágreiningur hans við
þjálfara liðsins hefur
ekki bætt úr skák...
P etr Mrazek,
leikmaður FH, á enn
eftir að ákveða hvort
hann gengur að tilboði Framara.
Mrazek, sem átti glæsilegt tímabil í
vörn FH-inga, er
orðinn 35 ára gamall
en það virðast Mar-
TEINN GEIRSSON Og fé-
lagar í Fram ekki
setjafyrirsig...
?
Er handboHJnn
að springa?
Aston Villa og
Manchester City
hafa áhuga á Þon/aldi
„Nei, hann er ekki að springa. Því er ekki að
leyna að handboltinn hefur átt undir högg að
sækja og sérstaklega hefur hann verið í baráttu við
körfúboltann. Karfan hefur verið í mikilli upp-
sveiflu vegna mikillar NBA-umfjöllunar og þeir
hafa verið með öflugt starf í gangi.
Handboltinn hlýtur hins vegar að koma aftur
upp. Handboltalandsliðið íslenska er það eina hér
á landi sem á raunhæfa möguleika í bestu þjóðir
heims í greininni. Við ætlum að virkja yngri
landsliðin betur og með aukinni auglýsingu
íþróttarinnar í tengslum við HM ‘95 er ljóst að
vinsældirnar muni aftur aukast. Því er ljóst að
handboltinn er ekki að springa, hann er þvert á
móti að byrja að blómstra."
í MORGUNPÓSTINUM á mánudag voru birtar nýjar iðk-
endatölur íþróttasambands islands. Þar kemur glöggt
fram að „Þjóðaríþrótt Íslendínga", handboltinn, er á
mikilli niðurleið hvað vinsældir varðar. Iðkendum fækk-
aði um tæp 20 prósent á einu ári og árangur okkar liða í
Evrópukeppnum hefur sjaldan verið lakari. Örn H.
Magnússon er framkvæmdastjóri Handknattleikssam-
bandsins.
Örn H. Magnússon framkvæmdastjóri HSÍ. „Handbolt-
inn er ekki að springa, hann er þvert á móti að byrja að
blómstra.“
Örlygssyni.
Þorvaldur Örlygsson er á förum frá 1. deild-
arliðinu Stoke City ef marka má fréttir enskra
blaða um helgina. Þar segir í fyrirsögn „Hot Toddy“
og fjallar fréttin um áhuga stóru liðanna í úrvalsdeild-
inni á íslenska landsliðsmanninum. Þorvaldi mun hafa
verið boðinn nýr samningur við félagið en hann ekki
ákveðið sig, samkvæmt fréttunum.
Þegar MORGUNPÓSTURINN hafði samband við Þorvald
vegna málsins sagði hann að sér hefði ekki verið boðinn nýr
samningur, enda gilti núverandi samningur til loka keppn-
istímabilsins. „Ég veit að nokkur félög hafa verið að spyrj-
ast fyrir um mig en ennþá hefur engin ákvörðun verið
tekin.“ Samkvæmt heimildum blaðsins hafa ensku
úrvalsdeildarliðin Aston Villa og Manchester
City sýnt áhuga sem og 1. deildarliðin Wol-
ves og Derby.
„Þetta verður bara að koma í Ijós
segir Þorvaldur. „Ég á frekar von á
að ég verði seldur fyrr en seinna,
því forráðamenn liðsins vita sem er
að undir lok tímabilsins lækka ég
verði þar sem samningurinn verð
ur þá útrunninn." -Bih
Þorvaldur Örlygsson er enn í
umræðunni í Englandi og nú
segir enska pressan að hann
sé á förum.