Helgarpósturinn - 20.10.1994, Page 25
MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF
25
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994
Eitt lítið Ijóð
eftir síra Heimi, “
Hófstillingin
Til innstu dala ogyztu nesja
um þéttbýlið allt ísveit og við sjó
þelið í brjósti sérhvers Islendings
skal allsendis vísað á bug.
Fylgispakur frelsisdrauminum,
kynni að verða hið sama á.
Astæðulaust var talið að eiga
slíkt yfír höfði sér.
Yfírmenn Ríkisútvarpsins
einhuga um efhistök.
Allt orkar tvímælis,
þá gert er
feta hinn gullna meðalveg.
Síra Heimir Steinsson ritar grein í Morgunblaðið á þriðjudaginn. Heimir er lýrískur maður og
laumaði litlu Ijóði (lína hér og lína þar) í annars epískan texta sinn.
Varið í bíó
með AqJi
Gangið niður dimma ganga kvíkmyndahúsanna með Agli
Bíoborgin
Laugarasbió
Portrett
Kaffi-
húsa-
fræo-
ingur
Ámi Valur Ámason, þjónn,
um myndina af sjálfum
sér: „Jaaá. Þessi maður er
augljóslega eðlisfræðingur
eða eitthvað svoleiðis. Öll
þessi tákn. Hann er
kannski eins konar lífsstíls-
eðlisfræðingur því hann er
á kaffihúsi. Hann er mjög
þungt hugsi, búinn að
brjóta heilann mikið um
mótsögnina sem felst í því
að vera kaffihúsaeðlis-
fræðingur. Hann langar út
fyrir þetta gler og sjá betur
og finna hvað erfyrir utan.
Við sjáum ekki hvaö hann
sér en það er eitthvað sem
hann vill kanna nánar.
Hann er lokaður inni en ég
hef það á tilfinningunni að
hann sé þama af fúsum og
frjálsum vilja. Þetta er
svona ástand og svo kem-
ur upp sú staða einn dag-
inn að hann segir við sjálf-
an sig: „Jæja, nú stend ég
upp og fer.“ Kannski er
hann að gera eðlisfræði-
lega tilraun með sjálfan
sig. Þetta er smekkmaður,
gleraugun eru einstaklega
falleg, symetrísk í takt við
eðiisfræðina. Hann er með
stórt nef og gæti verið
gyðingur. Hann hefur látið
klippa frá enninu og það er
til þess að þriðja augað fái
notið sin. Tölustafurinn sex
myndar glerauga um það.
En það er greinilega þungt
í honum og ég held að
hann vilji vita hvað er
handan þessara stafa.
Hann ætlar sér eitthvað,
en ég hugsa að hann viti
ekki hvað það er sjálfur."
'JIM SMART
Fæddir morðingjar Natural Bom
Killers ★★ Boðskapurinn er líklega
sá að ameriskt samfélag sé gegnsýrt
af ofbeldi. En kannski er Oliver
Stone ekkert minna hugfanginn af
ofbeldinu en allir hinir.
Leifturhraði Speed ★★★ Það er
kostur við Keanu Reeves að hann er
ekki jafn úttútnaður og margir koll-
egar hans i harðjaxladeildinni —
myndin hans er heldur ekki jafn útt-
útnuð og myndimar þeirra.
Skýjahöllin ★★ Ábyggilega ekkert
óhollt fyrir börn en tilþrifalítið fyrst
og fremst. Krakkar og dýr leika
ágætlega, en fullorðnir leikarar em i
keþþni i ofleik.
Umbjóðandinn The Client ★★★ /
fyrri myndum eftir bókum Grishams
voru Tom Cmise og Julia Roberts.
Þau standast ekki Tommy Lee Jo-
nes og Susan Sarandon snúning.
Bíóhöilin
Forrest Oump ★★★★★ Mynd
sem erað læðast um íheilabúinu á
manni lengi eftir að henni er lokið.
Það hlýtur að benda til þess að hún
sé ilagi.
Sannarlygar True Lies ★★
Schwarzenegger kann ekki að
dansa tangó en getur fundið upp
ótal brögð til að niðuriægja konuna
sina.
Hefðarkettirnir Arístocats ★★★★
Eins og Disneymyndir eiga að vera,
hlýleg, fyndin og falleg.
Þumalina ★★ Disney fátæka
mannsins. islenska talið er hins veg-
ar kostur.
Háskólabíó
Forrest Gump ★★★★★ Kannski
er þetta allt partur af þeim sjálfslygi
að Amerikumenn hafi misst eitthvert
sakleysi síðustu þrjátíu árin. En
kannski skiptir það ekki neinu máli.
Næturvörðurinn Nattevagten
★★★ Mátulega ógeðsleg hrollvekja
og á skjön við huggulega skólann í
danskri kvikmyndagerð.
Kúrekar i New York The Cowboy
Way ★ Mætti maður þá frekarbiðja
um Kúreka norðursins.
Fjögur brúðkaup og jarðarför Four
Weddings and a Funeral ★★★
Breska yfírstéttin makar sig í ágætri
kómedíu og Hugh Grant er sjamner-
andi hjálparvana. Enda dæymir kon-
ur um að passa hann.
Griman The Mask ★★★ Myndin er
bönnuð innan tólfára ogþví telst
það lögþrot að þeir sjái hana sem
hafa af henni mest gaman — tíu ára
drengir.
Flóttinn frá Absolom Escape from
Absolom O Maður þarf að vera dá-
litið mikið heilaskaddaður til að hafa
gaman afþessu.
Dauðaleikur Surviving the Game
★ „Freeze motherfucker“-mynd.
Regnboginn
Lilli er týndur Baby-s Day Out ★
Stærsti gallinn erað óheppnu þrjót-
amirem ekki vitund fyndnir.
Neyðarúrræði Desperate Reme-
dies # Maður hugsar þessu Ijóta og
leiðinlega fólki þegjandi þörfina.
Ljóti strákurinn Bubby Bad Boy
Bubby ★★ Einhver Ijótasti afturúr-
kreistingur sem sést hefur i bió.
Allir heimsins morgnar Tous les
matins du monde ★★★ Voða-
lega siðfáguð mynd. Sem breytirþví
ekki að þetta er ekkkert annað en
myndskreytt skáldsaga.
GestimirLes Visiteurs ★★★
Mátulega vitlaus kómedia sem kem-
ur þeim á óvart sem héldu að Frakk-
ar hefðu engan húmor.
Sögubíó
Leifturhraði Speed ★★★ Það er
kristilegt af Keanu Reeves að vilja
bjarga strætófarþegum í Los Ange-
les.
Fæddir morðingjar Natural Bom
Killers ★★ Það eina góða er kvik-
myndatakan, klippingin og hvernig
þetta tvennt fær mann til að halda
að þremur sætaröðum fyrir aftan
mann sitji hálfgeggjaður maður sem
stjórni myndinni með fjarstýringu.
Skýjahöllin ★★ Mynd fyrirbörn
sem gera ekki miklar kröfur um per-
sónusköpun.
Stjörnubio
Flóttinn frá Absolom Escape from
Absolom 0 Óboj.
Úlfur Wolf ★★ Glottið á Jack Nic-
holson er orðið voða rútinerað.
Bíódagar ★★★ Meistarar myndar-
innar eru Jón Sigurbjörnsson og
propsmaðurinn sem reddaði spur-
flöskunum. En það vantar einhverja
þungamiðju.
ekki vœnta að þið sjáist
opinberlega fyrr en eftir
áramót?
„Já, ég ætla að flýja
land á meðan jólaver-
tíðin stendur sem hæst.
Þessi árstími fer í taug-
arnar á mér. Ég ætla tii
New York 4. desember
og kem ekki heim fyrr
en rétt í jólasteikina. Ef
til vill kaupi ég ný átfitt
á hljómsveitina þarna
úti í leiðinni, svona til
að hressa upp á ímynd
hennar fyrir næstu
plötu sem nú er í
vinnslu.“
Ertu semsé stílisti
hljómsveitarinnar einn-
ig?
„Já.“
Páll Óskar ætlar að yfirgefa Milljónamæringana á
meðan jólavertíðin stendur sem hæst. Hann ætlar
ekki að koma heim fyrr
en rétt í jólasteikina.
Danskt ógeð ogfrönsk linka
Næturvörðurinn
HáskólabIó
★★★
Smoking — No Smoking
Frönsk kvikmyndahátíð
★★
Toxic Affair
Frönsk kvikmyndahátíð
★
Næturvörðurinn sýnir að Danir
kjinna fleira í kvikmyndagerð en
að búa til nærfærnislegar myndir
um börn á mótunarskeiði eða
mannlega gamansamar myndir
um miðaldra sósíaldemókrata.
Hún er semsé ágætlega á skjön við
þá dönsku kvikmyndagerð sem við
nauðaþekkjum; hún reynir ekki að
segja neinum neitt um tilveruna,
en er passlega ógeðslegur hryll-
ingsþriller með ágætlega óvæntum
og blóðugum endi.
Það er góður siður að halda
franska kvikmyndahátíð á haustin,
þótt tæpast sé hægt að ráða af úr-
valinu þessa vikuna í Háskólabíói
að við séum að missa af miklu í
bíóhúsunum í París. Næstu daga
verða þar helstar þrjár gaman-
myndir þar sem koma við sögu
tvær af helstu stjörnum franskra
kvikmynda.
Leikstjórinn Alain Resnais er 72
ára og hefur skilað merku lífsstarfi.
Smoking — No Smoking eru tvær
samstæðar myndir sem hann
byggir á bresku leikriti. Á yfirborði
minnir þetta á breska mynda-
flokka sem við þekkjum gjörla úr
sjónvarpi. En auðvitað er Resnais,
sem er hvað fílósófískastur leik-
stjóra, að róa á dýpri mið. Einkum
er hann að velta fyrir sér sögu-
framvindu; myndirnar eru eins og
stórt uppkast þar sem hann fer
fram og aftur, færir til persónur og
hnikar til atburðum, eins og til að
aðgæta hvað það muni leiða af sér.
Þetta er spaugilegt á köflum -
stundum finnst manni Resnais
næstum ætla að brjótast til ein-
hvers skilnings — en, æ, þegar öllu
er á botninn hvolft er þetta ekkert
sérstaklega intressant.
Toxic Affair er konumynd þar
sem Isabelle Adjani er allt i öllu.
Hún æðir í ófullnægðri ástsýki um
fremur skuggalega norðurborg
Parísar, hittir skrítið fólk og reynir
að kála sér, en slompast svo ein-
hvern veginn upp úr þurru á að
finna grundvöll lífsins og ástarinn-
ar. Allt er þetta innantómt mestan-
part og kannski verst að Adjani,
þótt draumfögur sé, er frekar vond
gamanleikona. ■