Helgarpósturinn - 20.10.1994, Side 26
26
MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994
Endalausar grillveislur hjá nágrannanum
Yfirlitssýningu Magnúsar
Pálssonar á Kjarvalsstöðum.
Einum af eftirminnilegustu listvið-
burðum ársins iýkur á sunnudag.
Lind Völundardóttur í Gallerí
Sævars Karls. „Fallegasti óður til
kaffibollans innan íslenskrar mynd-
listar fram að þessu. “
Nágranni minn er haldinn einhverri sér-
kennilegri ónáttúru. I allt sumar hefur
hann grillað þrisvar og upp í sex sinnum
í viku og nú er kominn miður október og
enn er maðurinn að grilla úti í garði. Ég
veit ekki hvernig fjölskylda mannsins fer
að því að halda á hnífi og gaffli í kvöld-
kuldanum. Grey fólkið hlýtur að vera
krókloppið á fingrunum. En í sjálfu sér
kemur mér það ekki við. Það sem abb-
ast upp á mig er að maðurinn virðist
vera að grilla einhverjar gamlar birgðir af
hrossakjöti sem hann hefur komist yfir
og lyktin af þessu er nánast óbærileg.
Hún leggst yfir garðinn minn, smýgur
inn um alla opna glugga og festist í
áklæðum og gardínum. Ég er farinn að
passa mig og hef yfirleitt alla glugga
lokaða frá sex á daginn og til tlu á
kvöldin því maður veit aldrei nema
maðurinn taki upp á því að grilla ein-
hvern tímann á þessum tíma. Um dag-
inn gleymdí ég bílskúrnum mínum opn-
um, sem liggur upp að uppáhalds grill-
staðnum hans, lyktin slapp þar inn og
mér fannst marga daga á eftir að ég
gæti fundið lyktina inni í bílnum.
Hvernig get ég vanið manninn af þess-
um hrossabrennum sínum? Þú verður
að hjálpa mér!
48 ára tæknifræðingur
í Vesturbænum.
Það er heppilegt að þú skyldir minn-
ast á bilskúrinn þinn því þar liggur
lausnin. Fáðu leigða háþrýstisprautu
á næstu tækjaleigu og taktu til við að
hreinsa málninguna af bilskúrnum
með henni. Vatnið ætti að þyrlast yfir
í garðinn hjá nágrannanum og yfir
uppáhalds grillstaðinn hans. Til að
byrja með skalt þú fylgjast með hús-
inu hans og skjótast út að sprauta á
skúrinn um leið og þú sérð einhver
merki um að hann ætli sér að grilla.
Þegar frá líður ætti að vera nóg að
skilja háþrýstisprautuna eftir til
áminningar
um að þú
værir vís
með að taka
til við skúrinn
um leið og
snertir gríilið.
Gangi þér vel.
Frú Fjóla.
Skrifið frú Fjólu:
Utanáskriftin er: Frú Fjóla
Vesturgötu 2, 101 Reykjavík
Hreini Friðfinnssyni, Gerði
Leifsdóttur, Ingileif Thorlac
íus, Nielsi Hafstein og Har-
aldi Níelssyni öllum í Nýlista-
safninu.
Jenny Hozer
á Mokka kaffi.
Opnanir
Ragnhildur Stefánsdóttir opn-
ar sýningu á skútptúrum íLista-
safni Kópavogs, Gerðasafni á
laugardag.
Myndasögur og maurakallar eryf-
irskriftin á fyrstu einkasýningu
Bjama Hinrikssonar sem opnar
í Gallerí Greip á laugardag. Til sýn-
is verður myndasagan „ Vafamál"
og nokkraryngri og eldri maura-
kallateikningar.
Birgir Snæbjörn Birgisson
opnar sýningu ÍListhúsinu Þingi,
Akureyri á laugardag. Þar sýnir
hann málverk auk bókaverka.
Aðrar sýningar
Ruth Malinowski
með veggteppi í kjallara Norræna
hússins. I anddyrinu er sýning á
dönskum teiknimyndapersónum.
Magdalena Margrét
Kjartansdóttir
i Gallerí Umbrú.
Gunnar Öm
i Gallerí Borg.
Anna Jóhannsdóttir
iýkur á sunnudag í Galleri Sólon
Islandus.
Spessi
sýnir Ijósmyndir í Borgarkringlunni.
<D
E
O
(0
E
•ra
E <2
v> ,E
'E «
11
a-°
> c
.í=
U) D
ö) 2
ia «
s«
=: e
•ra 3
E i
<2 >o
Si
= X.
'M
s s
!í
•3 <1)
Bjarni Hinriksson.
meiri myndir. Frásögn er að færast
æ meira inn á hið sjónræna.
Myndasögur eru kannsld ein afleið-
ing af því. Hins vegar hafa útgef-
endur ekki beint verið í takt við
þetta.“ JBG
T eiknimyndlistarsýning
Á laugardaginn opnar Bjarni
Hinriksson myndlistarsýningu í
Gallerí Greip. Bjarni er einn af
forsprökkum myndasögublaðsins
GISP! og ber sýningin dám af því.
Meðal annars verður myndasagan
„Vafamál“ til sýnis en fyrirhugað er
að gefa söguna út seinna í vetur.
Af hverju teiknimyndir, er þetta
einhver unglingakomplex?
„Hér er svo lítil hefð fyrir teikni-
myndasögum að það er erfitt að fá
fólk til að líta við myndasögum sem
eru meira fyrir fullorðna. í teikni-
myndum er hægt að vinna bæði
með myndir og texta og ég hef
áhuga á því sem er að gerast á
mörkum þessara tveggja sviða. Það
eru nokkur ár síðan fór að koma út
blað sem heitir „Gisp!“ þar sem
birtust sögur eftir íslenska höfunda.
Síðan hefúr verið meira að gerast í
myndasögum en áður, bæði í blöð-
um eins og MORGUNPÓSTINUM og
áður Eintaki og Pressunni og þá
virðast myndlistarmenn hafa feng-
ið aukinn áhuga á þessu formi. Lík-
lega vegna þess að menn eru að
vakna til vitundar um að það býður
upp á ýmsa möguleika sem önnur
form gera kannski ekki. Einnig er
þetta í takt við tímann, minni texti,
Alda Ármanna Sveinsdóttir
sýnir i Sparisjóði Garðabæjar.
Magnús Theódór Magnússon.
Kallaður Teddi í Ráðhúsinu.
G/s/f Sigurðsson
sýnir i Hafnarborg.
Sæmundur Vaidimarsson
i Sverrissal Hafnarborgar.
Ólöf Einarsdóttir
sýnir iistvefnað í Stöðlakoti.
Kristján Steingrímur Jónsson
enn i gallerí Birgis Andréssonar.
Valgerður Hafstað
sýnir i Listasafni ASÍ.
Innsti kjarninn fastur fyrir
Það hefur vakið athygli að tíu leikurum hjá LR hefur verið sagt upp föstum samningum. Þó verður várt eins mikið
Það hefur vakið athygli að tíu leikurum hjá UR hefur verið sagt upp föstum samningum.
fjaðrafok við þessar uppsagnir og þegar Stefán Baldursson hreinsaði út í Þjóðleikhúsinu.
Að sögn Sigurðar Hróarssonar
þá eru það tíu sem fengu uppsagn-
arbréf og að auki sagði Kjartan
Ragnarsson upp sínum samningi
sem eins konar stuðningsyfirlýs-
ingu við þessar aðgerðir. Eftir sitja
ellefu leikarar á föstum samningi.
Þetta eru allt gamlir „Iðnó-jaxlar“ á
aldrinum 45-65 ára. Þetta er innsti
kjarninn og hafði hér á árum áður
viðurnefnið „hjónaklúbburinn“.
MORGUNPÓSTURINN spurði Sig-
urð hvort það setti ekki verkefna-
vali þröngar skorður að vera með
fastan leikarahóp og allir á sama
aldrinum?
„Ég get ekki sagt að ég hafi fund-
ið fyrir því. Það er þannig með leik-
bókmenntirnar að það er alitaf
mikið af hlutverkum fyrir fólk á
þessum besta aldri, fólk um fimm-
tugt. Ef horft er yfír síðustu ár og
áratugi hefur alltaf þurft að bæta
við þennan fastráðna hóp fólki á
þessum aldri. En ég vil fá að koma
því að að í flestum tilfellum kemur
ekki til uppsagna fyrr en 1. sept-
ember í haust og löngu fyrir þann
tíma verður búið að auglýsa og ráða
í nýjar stöður. Ég get ekki fullyrt á
þessari stundu hvað margir verða
ráðnir á fastan samning fyrir næsta
leikár en þeir verða aldrei færri en
tíu og hugsanlega allt að fimmtán.
Þeir verða ráðnir eins og alltaf þeg-
ar ég fastræð leikara, í kjölfar verk-
efnaskrár og vinna með leikstjórum
hafin og jafnvel langt komin.“
í Borgarleikhúsinu háttar því
þannig að leikarar hætta sam-
kvæmt kjarasamningi þegar þeir
verða 70 ára. Elstur hjá LR er
Steindór Hjörleifsson, sem er
fæddur árið 1926 og hættir því sjálf-
krafa eftir tvö ár. JBG
Samsýning fjögurra
iistakvenna
í Galleri Art-hún.
Unglist
i Gatteri Hressó.
íslenska einsöngslagið og
Ólöf Nordal i Gerðubergi.
Gréta Mjöll Bjarnadóttir
I Gallerí 1 1.
Þeir sem heima sitja
Steindór Hjörleifsson
Margrét Ólafsdóttir
Pétur Einarsson
Soffía Jakobsdóttir
Þorsteinn Gunnarsson
Valgerður Dan
Guðrún Ásmundsdóttir
Margrét Helga Jóhannsdóttir
Hanna María Karlsdóttir
Sigurður Karlsson
Jón Hjartarson
Þeir sem fengu bréf
Arni Pétur Guðjónsson
Ellert A. Ingimundarson
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir
Guðmundur Ólafsson
Jakob Þór Einarsson
Magnús Jónsson
Margrét Vilhjálmsdóttir
Sigrún Edda Björnsdóttir
Theodór Júlíusson
Þröstur Leo