Helgarpósturinn - 20.10.1994, Side 29

Helgarpósturinn - 20.10.1994, Side 29
MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF 29 FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1994 Jóhanna gefur ekkert ölver, sú fræga krá, hefiir eins og svo margir vínveitingastaðir komið sér upp slottmaskínum frá Háskólanum eða það sem þeir kalla Gullnámuna. öl- versmenn hafa persónugert vélamar, gefið þeim nafn eftir þekktum stjórnmálamönn- um. Og nú hefur svolítið ein- kennilegt komið á daginn. „Davíð Oddsson" hefur gefið lang best — eina ío silfurpotta — en það er alveg sama hvað miklu er dælt í raufina á „Jóhönnu Sig.“, aldrei kemur neitt. Því er það svo að fólk sem kemur til að spila hunsar „Jó- hönnu“ en slæst um „Davíð“. Hvernig þetta rímar við íslcnska pól- itík og fylgi er stjórnmálafræðing- um látið eftir að spá um. Ástarseiður Ingu •Ástin er ótakmörkuð, síbreytileg og hafin yfir rökræna hugsun. •Ástin býr í hjarta hvers manns. •Ástin getur ekki bara gefið gleði og frið. •Ástinni fylgir líka sorg og hræðsla. •Að elska er ekki það sama og eiga. •Haltu ekki í það sem aðskilur þig frá ástinni. •Fyrirgefningin gefur frelsi. •Gefðu öðrum færi á að sýna þér ást og áhuga. •Einmanaleiki er ein af þeim tilfinn- ingum sem alltof margir þjást af. •Sá sem leyfir einsemdinni að ráða ríkjum þorir í raun ekki að gefa og þiggja þá ást sem býr í hjartanu. •Að elska sjálfan sig er að vera í tengslum og í samræmi við sinn innrí mann. •Innst inni veistu að þú ert góður. •Pað er engin persóna sem ekki þarf að glíma við einhverja erfiðleika. •Það er mjög slæmt þegar við verðum svo upptekin af því að maki okkar eigi að vera fullkominn að við gleymum að sjá hann eins og hann er. •Tökum hvort öðru eins og við erum. •Gleymum ekki að hrósa og sýna áhuga á því sem vel er gert. •Grunnur að góðum árangri er ást. •Það sem skiptir máli sjáum við ekki með augunum. •Maður getur aðeins séð rétt með hjartanu. •Við getum breytt því sem við viljum. •Ást er lykillinn að góðu lífi. •Elskum hvert annað. •Líf án ástar er ekkert líf. •Við deyjum ef við finnum enga ást. að elska. Til að geta fundið ástina og leyft henni að blómstra þarftu að finna sjálfan þig og leyfa þér að finna að þú átt skilið að öðrum þyki vænt um þig. Þetta er ekkert rosal- ega flókið heldur erum það við sem flækjum það. Að elska og vera elsk- aður er bara ein af grundvallarþörf- um okkar.“ Hvernig er best að rœkta ástina? „Ég held að stærsta hindrunin sé sú að við gefúm okkur ekki nógan tíma til að rækta hana. Við þurfum að sinna þessu blómi ef maður get- ur kallað ástina blóm. Það þarf á næringu að halda og við þurfum að finna upp á einhverju til að gera saman. Það er ekki nóg að reyna að láta ástina standa öll veður án þess að maður geri nokkuð. Mér finnst mikilsvert að eiga sameiginleg áhugamál og geta fundið upp á ein- hverju óvæntu og sett líf inn í sam- bandið með einhverjum uppákom- um. Margir gera þetta skipulagt, aðrir ekki. Ég held að fólk þurfi að taka sér tíma til að vera eitt saman og leyfa sér að finna og njóta í friði. Það er hægt að halda áfram þessari upptalningu lengi, en ég held að það sé mjög misjafnt hvað fólk ger- ir til að halda lífi í ástinni. Engu að síður tel ég að lykilinn sé að finna í því að hlúa að henni og gefa henni tíma.“ Sigurður Ragnarsson sálfræð- ingur er eiginmaður Ingu en hvern- ig skyldi vera að vera kvæntur ást- arsérfræðingi? „Þetta er einföld spurning og svarið er einfalt. Það er yndislegt," segir hann. „Ég hef engu við það að bæta. Mér finnst það segja allt.“ Fyrirlestur Ingu hefst kl. 14 á laugardaginn en auk þess verða pallborðsumræður, ljóðalestur og tónlist. LAE ) vera gott þá þurfi að vera meira ú í myndinni en athöfnin sjálf.“ Inga Stefansdottir og Sig- urður Ragnarsson sál- fræðingar. hjón sem eru búin að loka sig inni í skel komist út úr henni? „Ég vil meina að leiðin sé í gegn- um mann sjálfan og maður reyni að komast í tengsl við þær tilfinningar sem maður ber inni í sjálfum sér. Og ef þú kemst þangað þá er næsta skref að komast út með þær, til ein- hvers annars. Ef þú blokkerar sjálf- an þig og vilt ekkert með þær til- fmningar hafa sem eru innra með þér, getur þú ekkert gert. Þú getur ekki nálgast aðra manneskju með eitthvað sem þú hefúr ekki, þannig að maður verður að finna sjálfan sig til að geta gefið. Ég held að þessi námskeið sem eru í boði í dag, eins og íhugun og þess háttar, geti gert mikið gagn því þar fær maður þessa kyrrð sem þarf til að geta fundið sjálfan sig. Og kyrrðin er líka undirstaða fyrir gott kynlíf. Ef þú getur ekki tæmt hug- ann og „verið“ þá verður kynlífið ekki gott.“ Mystíkin er / sköpun- inni Er það ekki mystíkin við ástina sem heillar okkur og um leið og búið er að afhjúpa hana er búið að ganga afhenni dauðri? „Ef þú ert skapandi þá er mystík- in alltaf til staðar þótt þú hafir af- hjúpað þig, því það kemur alltaf eitthvað nýtt í ljós ef þú ert í tengsl- um við sjálfan þig. Þú finnur nýja strauma og ert allt í einu kominn á eitthvert flug sem þú hefur ekki fundið fýrir áður og leiðir sam- bandið í einhverja nýja og spenn- andi átt. En ef þú tapar þér á þessari leið, þá er mystíkin bara einu sinni og spenna í upphafmu og svo er allt búið. Kúnstin er því í raun að veru að viðhalda þessum tengslum við þig og spennunni við það að vera alltaf að koma með eitthvað nýtt frá sjálfúm sér. Margir eiga erfitt með að sætta sig við að þessi spenna í upphafi, þessi ástríða, breytist og er ekki til eilífðar. Það taka bara við aðrir hlutir sem eru jafn mikilvægir og mikilvægari." Ingu er illa við að skilgreina ást- ina. „Ég vil helst ekki reyna að skil- greina hana því þá er maður búinn að þrengja hugtakið svo mikið að sá óendanleiki sem ást er, kemst ekki fýrir. Ég get heldur ekki skilgreint hana og mér þætti gaman að hitta einhvern sem segði; „þetta er ást,“ og þá vissi ég nákvæmlega hvað hún er. Ég hef lesið talsvert um ást- ina og mér sýnist engin hætta sér inn á þessa braut.“ Er hœgt að stjórna ástinni eða stjórnar hún okkur? „Jú, ég held að ef maður getur stjórnað sjálfum sér geti maður líka stjórnað ástinni. Samt sem áður tel ég að maður eigi ekki að reyna að stjórna fyrstu ástarhrifunuum ef maður er laus og liðugur. Fólk á ffekar bara að njóta þess að dragast svolítið stjórnlaust í einhvern tíma af því að við tökum alltaf stjórnina fyrr eða síðar og mér finnst alltaf sorglegt ef samband hefúr misst af þessum þætti og er bara skynsemissamband." Yndislegt að vera kvæntur ástarsér- fræðingi Inga telur að allir geti elskað og það sé meðfæddur eiginleiki. „Ef við höfum verið elskuð þá höfum við allt sem við þurfum til Varið á tónleika með Ottari Látið Proppé poppa ykkur upp Fimmtudagur Kolaportið. Unglist með rokkkonsert þarsem fram koma Bubbleflies, Kol- rassa, Maus, Curver... alls tiubönd. Nýjasta nýtt i rokkinu. Tunglið færinn á sig hljómsveitar- garpana Dos Pilas sem eru með út- gáfutónleika. Frítt bús ef menn eru timanlega. Fógetinn er með úrvals djass á boð- stólum. Tríó Paul Wieder leikur. Wieder þessi er bandarískur en með honum spila Tómas R. Einarsson og Sigurður Flosason. Á Tveimur vinum verður húllumhæ að hætti Norðurlandasamstarfs. Já, já, en þetta er ekki eins slæmt og það hljómar. Finnland, Noregur, Danmörk og Sviðþjóð senda futttrúa á sviði rokk&róls. Island hefurá undanföm- um ámm sent út hljómsveitir og nú er komið að þviað taka á mótipopp- mönnum frá Norðuríöndum. Café Royale i Hafnaríirði á árs af- mæli og heldur upp á það með látum. Það er hljómsveitin Vax sem byrjar að kynda upp fyrír helgina. Þúsund andlit með beibið Sigrúnu Evu íbroddi fylkingar verður á Cauknum. Föstudagur Amma Lú verður með Egil Ólafs- son og Öm Áma til skemmtunar matargestum. Svo breytist Egill i Agga Slæ sem leikur og syngur fyrír dansi ásamt Tamlasveitinni. Hótel Selfoss fær heimsfræga skemmtikrafta að sunnan íheimsókn. Það eru meðlimir danssveitarinnar Tweety sem leika taktfasta tónlist en neita þviþó staðfastlega að það sé eitthvert júróteknó. Feiti dvergurinn verður með hljóm- sveitina Útlagar sem er vfst aðal- kántrihtjómsveit landsins um þessar mundir. Tvelr vinir — einhver hljómsveit frá Norðurtöndum. KK mætir á Café Royale til að fagna afmæli staðaríns. Gaukurinn verður með hljómsveitina Galíleó en það er Sævar spilafífl sem er foringinn iþeirri ágætu hljómsveit. Afmælishátið Aðalstöðvarinnar fer fram með miklum látum á Hótel islandi. Útvarpið verður fimm ára og i tilefni þess koma fjöldi landsþekktra skemmtikrafta fram auk þess sem Þormóður Jónsson mun stjóma fjöldasöng að hætti Týrola. Vfkingasveitln alias Hermann Ingi og Smári halda uppi vikingastemmn- ingu í Fjörukránni. Þeirhafa spilað þama íein tvö ár. Rósenbergkjallarlnn er ekki með neina hljómsveit um helgina en það er eiginlega ekki hægt að láta þess ógetið að töffarínn Richard Scople verður diskótekari yfír helgina. Súlnasalurinn tekurá mótiglað- beittu R-listafólki sem heldur vetrar- fögnuð. Kvennakór Reykjavikur syngur, Steinunn Slg. og Einar Kára spjalla og Sagaclass leikur fyrir dansi. Laugardagur Eglll Ólafsson og Öm Áma með botnlaust grín til handa matargestum á Ömmu Lú. Þá taka Páll Óskar og MiHjónamæringarnir við að æra dansfifl. Útlagamir verða á Feita dvergnum þannig að úthverfafólkið fær tækifæri til að viðra kántríhattana sina. Tveir vinlr—einhver hljómsveit frá Norðuríöndum. Á Sólon íslandus verður Reynlr Sigurðsson sem leikur öðmm mönn- um beturá marimbu. Við má dansa sömbu og ríimbu ef vill. KK mætir á Café Royale en auk hans verður undirfatasýning frá Balítil skemmtunar gestum. Gaukurinn verðurmeð hljómsveitina Galileó en það er Sævar spilafifl sem er foringinn íþeirri ágætu hljómsveit. Bo Halldórs er með sitt stórshow á Hótel íslandi og við taka Hljómar og Ðe Lónlí Blú Boys. Siggi Gröndai í enn einu bandinu Á sunnudagskvöld kemur fram ný hljómsveit á Gauki á Stöng og ber hún nafnið Bing & Gröndal. Það þarf svo sem ekki að koma á óvart, þó ekki sé nema í ljósi nafn- giftarinnar, að gítarleikarinn er sjálfur Sigurður Gröndal sem ekki er við eina fjölina felldur í hljóm- sveitarbransanum. Þá er spurt: Hver er Bing? (Það fær enginn verðlaun fýrir að giska á Stefán Hilmarsson). Fjörukráin með Viklngasveitina. Hótel Mælifell á Sauðárkróki fær Lipstick Lovers til að berja hljóðfærí. Sunnudagur Tveir vinir — einhver hljómsveit frá Norðuríöndum. Gaukurinn er með splúnkunýtt band: Bing & Gröndal. En þó að bandið sé nýtt eru það engir nýgræð- ingarsem skipa hljómsveitina þviþeir Siggi Gröndal og Stebbi Himm eru þar innanborðs. Þið qetið líka fario með Jónasi Látið Jónas klass’ykkur upp Fimmtudagur i Risatónleikar með Sinfóníuhljómsveit Islands, Kórislensku óperunnar og ein- söngvurum, en það eru Sigrún Hjálmtýs- dóttir, Björk Jónasdóttir, GarðarCortes og Tómas Tómasson. Hljómsveitarstjóri er Osmo Vanska. Tón- leikamir verða i Hallgrímskirkju sem er ekki nógu gott, þviþar er ansi mikið bergmál. Þegarniunda sinfónia Beethovens var fíutt ikirkjunni siðastliðið vor drukknaði allt í einhverjum óskiljan- legum gný gný gný gný... Hallgrímskirkja, kt. 20.00 Föstudagur Óperan Nina pazza per amore eftir Paisiello, fíutt af átta mislangt komnum söngnemendum. Gunnlaugur Þór Briem spilar piarróútgáfu af hljómsveitarródd- inni, og færþviað vera heil sinfóníu- hljómsveit. Hafnarborg, kl. 20.30 Laugardagur Endurtekning ópenjnnar Nina pazza per amore. Hafnarborg, kl. 20.30 Sunnudagur / tengslum við sýninguna „Islenska ein-' söngslagiö“ mun Bjami Sæmundsson fíytja erindi. Einnig mun Bergþór Pálsson taka lagið af sinni atkunnu snillr. Ágæt, menningarieg byrjun á sunnudagsbil- túmum. Gerðuberg, Id. 14.00 ó n I s t G a u k s n s n æ s t u FIMMTUDAGUR 20. október FÖSTUDAGUR 21. október LAUGARDAGUR 22. október SUNNUDAGUR 23. október MÁNUDAGUR 24. október ÞRIÐJUDAGUR 25. október 1000 ANDLIT GALÍLEÓ GALÍLEÓ BING & GRÖNDAL BING & GRÖNDAL ÓVÆNT UPPÁK0MA U MIÐVIKUDAGUR 26. október ÓVÆNT UPPÁKOMA

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.