Helgarpósturinn - 20.10.1994, Síða 32

Helgarpósturinn - 20.10.1994, Síða 32
■ Steingrímur enn að skipta sér af ■ Jón Ólafssonfékk minna en Friðrikfrá Ólafi G. ■ Halldór Guðbjamar fann hrceódýrt sumar- bústaðaland í landbúnaðarráðuneytinu OteinrrImur Hermannsson gerir það ekki endasleppt með þátttöku sína í pólitík þrátt fyrir að vera kominn í sæmdarsæti Seðlabanka- stjóra. Við sögðum frá því fyrir skömmu, að Steingrímur styður Hiálmar árnason, skólastjóra, með ráðum og dáð sem arftaka sinn í fyrsta sæti framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi, - í óþökk allra hinna kandidatanna, sem finnst að Steingrímur eigi ekkert með að vera að skipta sér af þessu. Hann gi að sinna sínum störf- um í Seðlabankanum og láta flokkinn í friði. Steingrímur lætur þessar aðfinnslur hins vegar sem vind um eyrun þjóta og um betur. beitirhann sér fyrir því, Gunnlaugur SlGURMUNDSSON, skjólstæðingur Stein- gríms til margra ára, fyrsta sæti framsóknarmanna á Vestfjörðum, en þar sat áður Ólafur Þ. Þórðarson, sem hefur ákveðið að láta af þingmennsku sök- um veikinda. Þeim mun nú fara stöðugt fjölgandi framsóknarmönnunum, sem eru búnir að fá sig fullsadda af afskipta- semi Steingrims, sem hafði jú talið mönnum trú um að hann væri hæltur í pólitík... ir að vakti töluverða athygli að einn þeirra sem þáðu fjárveitingu af ráðstöfunarfé menntamála- ráðuneytisins var Jón Ólafs- son og fyrir- tæki hans Skíf- an. Styrkurinn nam 1.750.000 krónum og hafa ýmsir velt því fyrir sér í hvað aurarnir hafi farið. Skýringin er hins vegar ekki sérlega æsandi, en hana er að finna í þeirri staðreynd að kvikmynd ÓSKARS JóNASSONAR Sódótna Reykjavík, sem Skífan framleiddi, komst í aðalkeppnina á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Það þótti glæsilegur árangur og var styrkurinn ætlaður til kynningar á Sódómu á hátíðinni. Menntamálaráðu- neytið hefur áður styrkt íslenska kvik- myndagerð með þess- um hætti en það var þegar Friðrik ÞóR Friðriksson fékk 4 milljónir króna til þess að kynna Börn náttúrunnar eftir að hún var til- nefnd til óskarsverðlaunanna... Halldór Guðbjarnarson, banka- stjóri Landsbankans, hefur skika á leigu í landi ríkisjarðarinnar Ketil- valla í Laugardal í Árnessýslu og hyggst hann flytja sumar- bústað á landið. Samn- ingur Hall- dórs er til 25 ára með forleigu- rétti að þeim tima liðnum. Þegar MORGUNPÓSTURINN leitaði upplýsinga um leigugjald og stærð lóðarinnar hjá Jarðeignum ríkisins, sem heyrir undir landbún- aðarráðuneytið, neitaði JóN Hösk- uldsson að gefa upp þær upplýsing- ar, taldi sér það ekki skylt. Hann sagði að allir gætu sótt um slíkar sumarbústaðalóðir en þær væru ekki auglýstar sérstaklega eða boðn- ar út. Full ástæða er því til að benda fólki, sem er á höttunum eftir ódýru sumarbústaðalandi, á að hafa sam- band við Jón í landbúnaðarráðu- neytinu. Síminn er 609750... IVIarteini Jóhannssyni, prentinn- kaupastjóra hjá auglýsingastofunni Góðu fólki, var sagt upp störfum í síðustu viku og lætur hann af störf- um á morgun, föstudag. Hann er þrautreyndur i prentiðnaðinum og rak um skeið prentsmiðjuna Grafík. Ástæða uppsagnarinnar er sú að Marteinn hafði unnið í fristundum fyrir gamla kúnna auglýsingastof- unnar. Ástþór JóHANNSSON, og aðrir eigendur stofunnar, sættu sig ekki við það og létu hann taka pokann sinn... / poppinu ber hæst rokktón- leika sem verða í kvöld í Kola- portinu en þar koma fram efni- legustu hljómsveitir landsins, einar tíu. Þá er vert að hafa í huga Norden Rockarsem verður á Tveimur vinum alla helgina. Myndlist Steingrímur Eyfjörð er með ástsælustu listamönnum þjóðarinnar. Hann opnaði sýn- ingu sína á Kaffi List síðastliðinn laugardag á Silfurskottumannin- um og þar voru allir sem eru eitt- hvað í menningarbransanum. Klassík Þeir sem vilja lyfta and- anum á æðra plan er bent á risa- tónleika Sinfóníuhljómsveitarinn- ar, Diddú, Cortes og fleiri foringj- ar verða í Hallgrímskirkju á fimmtudagskvöld. Leiklist Ein frumsýning verður um helgina, „Hvað um Leon- ardo?" 1 Borgarleikhúsinu. Þeir sem eiga ekki miða geta mætt um ellefuleytið á föstudags- kvöldið og skoðað frumsýningar- aðalinn. Konsert er nýr íslenskur tónlistar- þáttur sem fer í fyrsta sinn í loftið laugardaginn 29. október eftir fréttir og Lottó. Þátturinn er gerður að fyr- irmynd „Unplugged“-þáttanna á MTV og verður á dagskrá vikulega. Fyrst í stað verða gerðir sex þættir og er umsjónarmaður þeirra Dóra Takefusa. „Það er ekki búið að loka því alveg hvaða hljómsveitir spila,“ segir hún. „Böndin sem er búið að bóka í fyrstu þrjá þættina eru Jet Black Joe, Gummi Péturs, sem verður með blúsþátt, og í þriðja þættinum spilar Bong. Annað hefur ekki verið stað- fest en væntanlega mun Mezzoforte koma og það verður gaman að heyra í þeim órafmögnuðum.“ Að sögn Dóru var reynt að velja hljómsveitirnar sem spila með það í huga að þær breyttust sem mest ef þær notuðust ekki við rafmagns- hljóðfæri en upptökur á þáttunum hefjast í næstu viku og verða áhorf- endur í salnum til að skapa sem mesta hljómleikastemmningu. Geta þessar hljómsveitir eitthvað þegar búið er að taka þær úr sam- bandi? „Ég efast ekki um það, sko. Það er ekki málið. Það sem er svo skemmti- legt við þetta er að tónlistin um- breytist því við ákváðum að fara alla leið og nota einungis hljóðfæri sem þarf ekld að stinga í rafmagn. Með því að hafa tónlistina órafmagnaða erum við að leita að einhverju nýju en leitum til bestu Jiljómsveita og hljóðfæraleikara okkar. Við ákváð- um að blanda þessu vel og vera með einn rokkþátt og einn blúsþátt, einn með tölvuhljómsveit og síðan djass.“ Af Dóru er annars það að frétta að hún er að leika í mynd Þráins Bert- elssonar, Einkalífi, og fer með eitt af þremur aðalhlutverkunum. „Ég veit ekki hvað ég má láta uppi um mynd- ina og vil því segja sem minnst,“ seg- ir hún. „Það er ekki komin rnikil mynd á þetta, en við erum með of- salega skemmtilegt handrit frá Þráni í höndunum og svo er það okkar allra að búa til mynd úr þessu.“ Einkalíf er önnur kvikmyndin þar sem Dóra kemur við sögu en ætlar hún að striplast aftur eins og þar? „Ha, ha, ha, ha, ha, það er leyn- dó,“ segir hún. ■ Það verður ekki af því skafið að einn frumlegasta listviðburðinn í bænum um þessar mundir er að finna á Kaffi List. En þar opnuðu um síðustu helgi Stein- grímur Eyfjörð Kristmundsson og Torfi Franz Ólafsson ásamt þeim Möggu og Ástu sýningu á Silfurskottumanninum. Auk myndverka, myndbands og búninga er hægt að gæða sér á silfurskottukökum og silfur- skottudrykk sem búinn er til úr piparbrjóstsykri, þeim er börnin eta og svitna af í tíma og ótíma. Er ef til viil komin fram í dags- Ijósið ódauðleg fígúra? „Já, ég hugsa að hún sé orðin það,“ segir Steingrímur Eyjörð sem á heiðurinn af Silfurskottumann- inum eins og hann er í dag. „Ég myndi vilja sjá þetta sem leik- rit.“ Þar sem ógerlegt reyndist að troða Steingrími í Silfur- skottubúninginn, var tekið á það ráð að setja Torfa Franz í jakkann. Silfurskottukjóllinn hangir hins vegar uppi á vegg því enginn komst í hann. Upp- runalegu fyrirmynd Silfur- skottumannsins er að finna í Seðlabankanum. Horfur á föstudag: Noröaustlæg átt. Strekkingur norövestan til en ann- ars kaldi víðast hvar. Súld eða rigning austan til en smá skúrir vestan til. Hiti 2 - 8 stig, hlýjast suðaustan lands. Horfur á sunnudag: Hvöss norða- nátt austan til en norðanstrekkingur vestan til. Snjókoma norðaustan- lands, él norðvestan til en víða létt- skýjað sunnanlands. Vægt frost verð- ur um mest allt landið. Veðurhorfur næsta sólarhring: Fremur hæg austan og suðaustan átt. Súld eða rigning á suður og Austur- landi, en él á Vestfjörðum. Anars stað- ar verður skýjað en úrkomulaust. Hiti 1-10 stig. Horfur á laugardag: Nokkuð hvöss norðanátt. Slydduél norðvestanlands, slydda norðaustan til, en skýjað með köflum sunnanlands. Hiti 0 - 4 stig norðan til en 3 - 7 stig sunnanlands. Veðrið um helaina Kjörkassinn MORGUNPÓSTURINN hefur sett á laggirnar Kjörkassann, símsvara þar sem almenningur getur svarað brennandi spurningum dagsins í dag. Það er einfalt að taka þátt. Þú hringir í síma 99 15 16, hlustar á spurninguna og greiðir síðan atkvæði með því að ýta á 1 eða 2 á símtækinu þínu. Á sunnu- daginn verður síðan talið upp úr Kjörkassanum og niðurstöðurnar birtar í mánudagsblaði MORGUNPÓSTSINS. Spurningin er... Áaðleyfasölu ávíniogbjór íverstunum? Greíddu atkvæði 39,90 krónur mínútan r k Hlustum allan sólarhringinn 2 1900 H

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.