Helgarpósturinn - 05.01.1995, Síða 9
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1995
MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR
9
við Stálsmiðjunni
Onnur stjómarbyttingin á tæpum mánuði.
„Það hafa aftur orðið eigenda-
skipti á hlutabréfum í fyrirtækinu
þannig að þess er að vænta að kosin
verði ný stjórn síðar í þessum mán-
uði,“ segir Ragnar Hall, lögmaður
Stálsmiðjunnar, og segir það „ekki
ofmælt" að nýr meirihluti standi á
bak við Ágúst Einarsson, fyrrum
forstjóra Lýsis.
Atburðarásin hefur verið hröð
þennan rúma mánuð sem hún hef-
ur staðið. 1 lok nóvember gerði
Stálsmiðjan nauðasamning við
lánadrottna sem fólu í sér niðurfell-
ingu á 75 prósent af kröfum. Sam-
hliða því var hlutafé fyrirtækisins
fært niður um 75 prósent og varð
tæpar 9 milljónir. í kjölfarið var
ákveðið að auka hlutafé fyrirtækis-
ins um 40 milljónir króna að nafn-
virði.
Þann 6. desember sagði Ágúst
Einarsson upp sem forstjóri Lýsis
og tilkynnti stjórninni að hann vildi
losna strax af því að hann væri að
taka við framkvæmdastjórn í Stál-
smiðjunni. Þann 11. desember fór
Ágúst Einarsson. Varð undir í bar-
áttunni um Stálsmiðjuna um jólin
og ný stjórn kosin fyrir áramót.
Nú hefur hann aftur náð meiri-
hluta og verður framkvæmda-
stjóri í jok mánaðarins.
hann í fyrirfram ákveðna ferð á veg-
um Lýsis ásamt Baldri Hjaltasyni
sem nú er orðinn forstjóri Lýsis.
Ferðin var til Asíuríkjanna Tælands
og Kóreu en Ágúst kom skyndilega
heim þegar ljóst var að nýir menn
væru komnir með meirihluta í Stál-
smiðjunni. Feðgarnir Darri Gunn-
arsson og Gunnar
Bjarnason, sem lengi var
framkvæmdastjóri Stál-
smiðjunnar, keyptu upp
gamalt hlutafé. Þannig
eignuðust þeir meirihluta
þessara tæpu 9 milljóna
og skráðu sig fyrir hluta-
fjáraukningunni sam-
kvæmt forkaupsréttar-
ákvæðum hlutafjárlag-
anna. Flluthafafundur var
svo haldinn þann 27. des-
ember þar sem kosin var
ný 5 manna stjórn sem öll
laut forystu feðganna
Gunnars og Darra. Samn-
ingaviðræður hafa staðið
yfir síðustu daga sem end-
uðu nú með því að Gunn-
ar og Darri seldu sinn hlut
og nýr meirihluti undir
forystu Ágústs tekur við
eftir hluthafafund síðar í
mánuðinum. Fullvíst er
að Ágúst verði fram-
kvæmdastjóri í kjölfar
þess.
„Þeir eru búnir að selja
nánast allt sem þeir eiga í
Stálsmiðjunni og þeir að-
ilar sem áður höfðu lýst
áhuga á að taka þátt í
þessari 40 milljóna króna
aukningu eru nú orðnir
meirihlutaeigendur í fyr-
irtækinu. 1 tengslum við
þessa sölu var gert sam-
komulag þess efnis að ný-
ir eigendur ráða ferðinni
fram að hluthafafundi
þótt formlega séu þeir
ekki í stjórninni,“ segir
Ragnar Hall.
Stærsti eigandi Stálsmiðjunnar
eftir nýjustu tíðindin verður Máln-
ingarverksmiðja Slippfélagsins sem
mun eiga tæplega helming en aðrir
stórir hluthafar eru Olís og Hrað-
frystihús Eskifjarðar sem eiga um 10
prósent hvor. Meðal annarra eig-
enda eru Ásgeir Pálsson í stjórn
Slippfélagsins og Ágúst sjálfur,
Björgun hf., Sindrastál, Hringrás,
Sjóvá/Almennar, Gjögur hf. og
Síldarvinnslan á Neskaupstað. Það
skal tekið fram að Ágúst Einarsson
vísaði alfarið á lögmann fyrirtækis-
ins þegar leitað var til hans. -pj
Úlfar Nathanaelsson. Fyrirtæki hans og Ólafs sonar hans hefur ver-
ið sakað um að hafa boðið söluaðilum ólöglega flugelda til kaups
og endursölu.
Dansskóli Auöar Haralds
óskar ölíum gleMeqs nýs drs!
Það sem við kennum:
Frábæra, skemmtilega barnadansa
og leikir fyrir börn 3-4 ára.
Jóki trúður kemur í heimsókn.
Samkvæmisdansa fyrir alla aldurs-
hópa. Sértímar fyrir byrjendur.
Rock'n'Roll 5 tíma námskeið.
Funk og jazz-dansa, yngst 8 ára.
íslandsmeistarar i Funk kenna.
Afsláttartilboð fyrir lokaða hópa, s.s.
fyrirtæki, saumaklúbba, starfsmanna-
hópa o.fl.
Kennarar skólans eru:
Auður Haraldsdóttir,
Hinrik Valsson,
Ragnar Sverrisson,
Hólmfríður Þorvaldsdóttir,
Jóhannes Bachman „Rock“
Norðurlandameistarar '94.
Einkatímar / hóptímar
DA/VSS
Grensásvegur 12 (bakhús),
Grafarvogur, Breiðholt,
Seltjarnarnes, Garðabær,
Selfoss, Akranes.
Auðar haralds
Innritun og upplýsingar til 7. janúar frá kl. 13-21 í síma 39600.
Afhending skírteina 8. janúar kl. 15-18. kennsla hefst mánudaginn 9. janúar.
Stálsmiðjan fór í nauðarsamninga í nóvember þar sem 75 prósent krafna voru felldar niður. Ágúst Einarsson taldi framkvæmdastjórastólinn vís-
an og sagði upp sem forstjóri Lýsis en snéri snarlega við frá Kóreu þegar Ijóst varð að feðgarnir Darri og Gunnar Bjarnason höfðu eignast meiri-
hluta fyrirtækisins og kusu nýja stjórn um áramótin. Nú hefur Ágúst aftur náð meirihluta en feðgarnir selt sinn hlut.
Ágúst Einarsson sagði upp forstjórastöðu hjá Lýsi fyrir mánuði til að
taka við Stálsmiðjunni. í millitíðinni kom nýr meirihluti og ný stjórn.
Nú hefur Ágúst aftur náð meirihluta og tekur við framkvæmdastjóra-
stólnum í lok mánaðarins þegar ný stjórn verður kosin.
Töluvert um ólöglega flugelda
Útfar Nathanaels-
son seldi bannaða
flugelda
segja söluaðilarog hyggja sjátfirá innflutning.
Töluverður urgur er í fjölmörg-
um söluaðilum flugelda vegna
söluaðferða feðganna Úlfars Nat-
hanaelssonar og Ólafs H. Úlf-
arssonar fyrir áramótin. Söluað-
ilarnir segja að fyrirtæki þeirra
feðga, S.ÍDA hf, hafi boðið flug-
eldasölum ólöglega flugelda til
kaups og að margir þeirra flugelda
sem fyrirtækið flytji inn og teijast
löglegir hafi verið lélegir og að
kvartanir hafi borist vegna þcirra
frá óánægðum viðskipavinum.
Fyrirtæki þeirra feðga er ekki
aðeins í flugeldainnflutningi held-
ur selur það einnig flugelda í smá-
söiu. Þannig voru sölustaðir þess
alls sjö fyrir áramótin, í skúr við
BSÍ, við Höfðatún 12, Skeifuna 8,
Bústaðaveg 151, Fossháls 27 og
Funahöfða 8.
Samkvæmt heimildum MORG-
UNPÓSTSINS hefur ástand þeirra
flugelda sem S.fDA selur verið
mjög misjafnt og hafa kvartanir
borist til einstakra söluaðila vegna
þeirra, bæði vegna þess að vantað
hafi í pakkana og einnig vegna
þess að fólk hafi orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum með sprengi-
kraftinn.
Það orðspor sem farið hefur af
flugeldunum hefur leitt til þess að
fjöimargir hyggjast snúa viðskipt-
um sínum annað fyrir næstu ára-
mót. Þannig flutti Kiwanisklúbb-
ur í borginni sjálfur inn töluvert
magn flugelda fyrir áramótin frá
Hollandi og rcynslan af sölu og
notkun þeirra hefur leitt til þess
að fjölmargir söluaðilar hafa haft
samband við klúbbinn og beðið
um samningaviðræður vegna sa-
minnkaupa fyrir næstu áramót.
Úlfar vildi ekkert kannast við
þetta þegar MORGUNPÓSTURINN
ræddi við hann í gær. „Við höfúm
aldrei selt ólöglega flugelda og
munum aldrei gera það,“ sagði
Úlfar. „Við erum með úrvalsvörur
á boðstólum og leggjum mikið í
okkar vörur.“ -Bih
Agúst í Lýsi tekur