Helgarpósturinn - 13.03.1995, Page 6

Helgarpósturinn - 13.03.1995, Page 6
FRETTIR Útgefandi Ritstjóri Aðstoðaritstjóri Framkvæmdastjóri Markaðsstjóri Auglýsingastjóri Dreifingastjóri Miðill hf. Gunnar Smári Egilsson Sigurður Már Jónsson Kristinn Albertsson Guðmundur Örn Jóhannsson Örn (sleifsson Sveinbjörn Kristjánsson Setning og umbrot: Morgunpósturinn Filmuvinnsla og prentun: Oddi hf. Verð í lausasölu kr. 99.- Áskriftarverð er kr. 1.000 á mánuð (Fimmtudagspósturinn fylgir) Þeir sem greiða með greiðslukorti fá 100 króna afslátt. SKOÐANIR BLAÐSINS Nýttblað ■ ■ I þessu fyrsta tölublaði af Mánudagspóstin- um kveður við nýjan tón í íslenskum fjölmiðla- heimi. Blaðið kemur inn í að mörgu leyti staðnað fjölmiðlaumhverfi sem byggir á samtryggingu rík- isfjölmiðlanna og Morgunblaðsins sem hafa búið til skjallbandalag um fréttir og fréttamat. Aðrir fjölmiðlar hafa ekki náð að skapa sér sérstöðu í skugga þessara risa þrátt fyrir veikburða tilraunir. Blaðið verður metið af því hvort það fær lesendur og hvernig almenningur tekur því. Til þess að ná til sem flestra hefur verð blaðsins verið fært veru- lega niður og vonumst við til þess að neytendur taki því vel og bæti blaðinu í innkaupakörfu sína. Bjargið afgreiðslufölkinu ■ ■ í blaðinu í dag má lesa umfjöllun um viðbún- að sjoppueigenda í Reykjavík sem hafa mátt búa við skelfilegt ástand undanfarið vegna ofbeldis- hrinu sem gengið hefur yfir borgina. Virðist hún hafa bitnað harðast á þeim án þess að séð verði að yfirvöld ætli sér að grípa til sérstakra aðgerða. Bíða menn eftir að morð verði framið? Á sama tíma kemur fram að lögreglan telur viðbúnað sinn ekki nægan, hún þurfi vopn. Þetta er því einkennileg og nýstárleg aðstaða sem yfirvöld standa frammi fyrir. Flestir geta verið sammála um að vopnaburður lögreglunnar er ekki það sem koma skal. Aðgerðir víkingasveitarinnar til þessa hafa ekki réttlæt tilvist hennar umfram það sem hefðbundið lögreglulið getur framkvæmt. Oftast er þar um dómgreindar- litlar og öfgafullar aðgerðir að ræða. En hvað er til ráða? Árangur af starfi hverfislögreglu virðist vísa veginn og væri rétt fyrir ráðamenn að beina kröft- um sínum inn á slíkar brautir í samvinnu við íbú- ana úti í hverfunum. Á Reykjavík enga þingmenn? ■ ■ Undanfarið hefur mikið verið rætt um að gera stórfelldar og tímabærar úrbætur í gatnamál- um Reykjavíkur. Sáu flestir að löngu var orðið nauðsynlegt að skila Reykvíkingum til baka ein- hverju af þeim fjármunum sem teknir hafa verið af þeim í gegnum bensíngjaldið. Það er vissulega gaman fyrir samgönguráðherra að opna jarðgöng eða gefa ferjur en tíð dauðaslys höfðu að endingu opnað augu manna fyrir ástandinu í höfuðborg- inni. Eða svo héldu Reykvíkingar. Þar til kom að afgreiðslu landsbyggðarplaggs númer eitt - vega- áætlunar. Þá eins og vanalega kom í ljós að Reyk- víkingar eiga enga þingmenn. Vesturgötu 2, 101 Reykjavík, sími 552-2211 fax 552-2311 Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2243 Tæknideild: 552-4888 Auglýsingadeild: 552-4888, símbréf: 552-2241 Dreifing: 552-4999 Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingar: 552-5577 Skrifstofa Morgunpóstsins er opin mánudaga til föstudaga frá 9:00 til 17:00 Dreifingar- og áskriftardeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 8:00 til 19:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00 Auglýsingadeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 9:00 til 18:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00 Smáauglýsingadeildin er opin frá 9:00 til 21:00 virka daga, nema miðvikudaga, til 18:00, 12:00 til 16 á laugardögum og milli 13:00 og 21:00 á sunnudögum. „Sumt fólk er notað eða notar líkama sinn í auglýsingaskyni. Kyn- in eru ólík og auðvitað má sá munur koma fram en það á ekki að draga einstaka manneskju út og hampa henni á þann hátt að það misbjóði sómatilfinningu fóiks,“ segir Guðmundur Örn Ragn- arsson, prestur í Orði lífsins. Sómatilfinningin hvers tíma er mismunandi en vissir hlutir misbjóða okkur þó að hún geti brenglast þegar stöðugt er gengið fram af fólki. En þetta fyrirbæri er í raun ákaflega ógeðfelit likt og þeg- ar verið er að nota líkama fólks til að draga athygli kaupenda að ákveðinni vöru. Skýrt dæmi um þetta 1 er söngkonan Madonna sem notar líkama sinn og mis- býður fólki frek- lega í auglýs- ingaskyni." ■ vaðsegir Guðmundur Örn prestui um kyntákn? Landlæknir kannar steranotkun unglinga Foreldrar hala fundið stera hjá börnum sínum Landlæknisembættið er nú að Iáta gera úttekt á misnotkun ana- bólískra stera hjá unglingum í framhaldsskólum. Er það gert í samvinnu við skólaheilsugæsl- una. Ólafur Ólafsson landlæknir segir þetta gert vegna reynslu nágranna okkar á Norðurlöndun- um af þessum málum en þar hafa rannsóknir sýnt að neysla stera er ekki bara bundin við íþróttaiðkun heldur taka ung- lingar stera í auknum mæli í því skyni að líta betur út og auka sjálfstraustið. Hérlendis hefur þetta ekki verið kannað áður en að sögn heimildamanna er tals- vert um þetta og auðvelt að kom- ast yfir lyfin ef áhugi er fyrir hendi. Einnig eru þess dæmi að foreldrar hafi komið til lækna með lyfjaskammta sem þeir finna í fórum barna sinna. í Bandaríkjunnum hefur þetta ver- r m r Stálu bíl f \ flrfirigpy 1 analdan i soluturnum bæiarins mnmmm Aðfaranótt laugardagsins var brotist inn í tvö fiskverkunarfyrir- tæki við Fiskislóð og Hólmaslóð í Örfirisey. Á öðrum staðnum hafði þjófarnir á brott með sér tölvu- búnað, faxtæki og síma en í hinu fyrirtækinu var stolið reyktum lax og lúðu. Þá var einnig stolið rauðri Toyota Hiace sendibifreið á sama stað og seint í gærkvöld var hún enn ófundin. Skrásetn- ingarnúmer bifreiðarinnar er IT457 og þeir sem hafa einhverjar upplýsingar hana eru beðnir um að láta lögregluna vita. ■ Þegar Ingibjörg kom til starfa var tölva borgarstjórans galtóm. TölgaJjQraatstjóra Árni eyddi gögnunum Mikil leit hefur nú farið fram í skjalasafni borgarinnar að skýrsl- um eða greinargerðum sem Inga Jóna Þórðardóttir hagfræðingur gerði fyrir Markús Örn Antonsson borgarstjóra á sínum tíma. Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri fékk hana senda í pósti og boðaði Ingu Jónu á sinn fund til að fá staðfest að skýrslan væri eftir hana. Klukkustundu síðar hélt Ingibjörg blaðamannafund. Þetta er dæmi um hve mikil harka er í stríðinu milli núverandi og fyrrverandi borgarstjóra. Þess má geta að þegar lngibjörg kom til starfa í ráðhúsið eftir kosning- ar var tölva borgarstjóra galtóm. Öllum gögnum hafði verði eytt úr, meira að segja gagnaerunnin- um. Gera má ráð fyrir að Árni Sig- fússon hafi verið síðastur til að fara höndum um töivuna á undan Ingibjörgu. ■ Harflnr árpifstnr 5 slasaðir Harður árekstur varð á Strandaheiði á Reykjanesbraut laust fyrir kl. hálfsex á laugardag. Tveir menn voru á leið til Kefla- víkur en töluverð hálka var á veg- inum. Rétt áður en þeir mættu bíl sem kom úr gagnstæðri átt rann bíll þeirra til með þeim afleiðing- um að bílarnir skullu saman. Fimm menn voru í bílnum á leið til Reykjavíkur og voru þeir allir fluttir á Borgarspítalann vegna meiðsla en bíllinn sem þeir voru í er talinn ónýtur. ■ f VT ' ndur og starfsfólk W na á höfnöhnrriar- ■ Eigendur og starfsfólk söluturna á höfuðborgar- svæðinu hafa sagt innbrotsþjóf- um og óprúttnum náungum stríð á hendur eftir gífurlega öldu ofbeldisverka að undan- förnu. Svo virðist sem gósen- tími ránsferða sé að líða undir lok. pósturinn kynnti sér vopna- búrin bak við búðarborðið. Íf .> j HUGAÐ AÐ SJALFSVARNARNAMSKEIÐI Þórlaug Arnardóttir, afgreiðslu- stúlka í söluturninum Bússa: „Það er ekkert langt síðan ég lenti í árás hérna bak við borðið. Ég hef ekki enn leitt hugann að sjálf- varnarnámskeiði en ég er vel út- búin með táragas, sem veldur gífurlegum sviða og sársauka í andliti og ég hika ekki við að beita brúsanum ef einhver vogar sér hingað inn í ránshugleiðing- um. Það eru myndavélar í loftinu hérna sem festa öll viðskipti á iilmu og í raun var allt varnar- kerfi hér eflt til muna eftir síð- ustu uppákomu. Við erum vel búin undir allt mögulegt." ÍflEÐ EITURLYFJA- GRENI VIÐ HLIÐINA Erla Sigurðardóttir, eigandi sölu- turnsins Bláhornsins, Kópavogi: „Ég get ekki gefið upp nákvæma útlistun á varnarkerfi sjoppunn- ar en get aðeins sagt að við erum vel vígbúin ef til árásar skyldi koma. Reyndar höfum við hug- leitt að loka inn á kvöldin og af- r Þorlaug Arnardóttir: Ég er vel útbúin með táragas, sem veldur gífurlegum sviða og sársauka íandliti. greiða aðeins gegnum lúgu. Hér við hlið sjoppunnar var áður al- ræmt eiturlyfjagreni og það gerði manni lífið leitt, það fólk er sem betur fer farið núna þannig að við lifum í friði. Við erum öllu vön núorðið og það er fátt sem kemur manni á óvart lengur."

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.