Helgarpósturinn - 13.03.1995, Page 11

Helgarpósturinn - 13.03.1995, Page 11
 M'A'RSWA'N W ÐWGUJ R FRETTIR „Það er verið að eltast við menn þar sem ekkert er vitað hvort þeir séu vopnaðir eða ekki,“ segir Óskar Bjartmarz, for- maður Lögreglufélags Reykjavík- ur. „Við erum með sérþjálfaða sveit sem ætti frekar að koma að svona hlutum, Sérsveit lögregl- unnar. Við teljum að það eigi að nota þá þegar einhver áhöld eru um að menn séu vopnaðir.“ Lögreglufélagið hefur miklar Mifthærinn McDonalds í Hressó? PÓSTURINN hefur heimildir fyrir því að til standi að veitingastað- urinn McDonalds færi út kvíarn- ar og opni útibú í Austurstræti 20, nánar tiltekið þar sem Hress- ingarskálinn var áður til húsa. Aðspurður sagðist Kjartan Örn Kjartansson, eigandi McDonalds, ekkert búið að ákveða í þessum efnum. Á hinn bóginn væri alltaf verið að reyna að finna nýjar leiðir í viðskiptum. ■ Laugi sagði að Jóhanna væri sjarmerandi og elegant kona og heilög Jóhanna virðist ( mörgu hafa sótt stíl sinn til Lauga rakara eða öfugt. I'tífatar.nikunnar Mun tími Lauga rak- ara koma? Laugi rak- ari á Hár- snyrtistof- unni við Kirkjutorg er um margt líkur Jóhönnu Sig- urðardóttur í útliti. Að- spurður um útlit og stíl Jóhönnu sagði Laugi að hún væri sjarmerandi og elegant kona en hann kvaðst engan tíma hafa frá rakarastörfum til að vera álits- gjafi PÓSTSINS um hvort stíll Jó- hönnu væri henni til framdráttar í stjórnmálum. Það má þó gera sér í hugarlund að fyrst að bæði heilög Jóhanna og Laugi rakari hafa tileinkað sér sömu hár- greiðslu og sama stíl að hann sé ákjósanlegur á ansi breiðum grundvelli. En hver veit? kannski er tími Lauga rakara að renna upp í stjórnmálum. ■ Jóhanna Sigurðar- dóttir með kosn- ingabaráttuútlitið nýja. áhyggjur af öryggi lögreglu- manna þar sem vopnaburður í Reykjavík er orðinn almennur. Neysla fíkniefna hefur aukist mikið, ásamt stóraukinni glæpa- tíðni og ofbeldisverkum þar sem vopnum er beitt. Á sama tíma er skorið niður hjá lögreglunni, ekki síst Sérsveitinni sem er sér- staklega ætluð til þess að fást við hættulega menn. Þá er einnig gagnrýnt harðlega aukin notkun hjálparsveitarmanna til lögreglu- starfa. Óskar nefnir sem dæmi þegar stórfelld leit var gerð út á Granda á dögunum eftir Skelj- ungsránið. Þá var alsendis óvíst hvort viðkomandi menn væru vopnaðir eða ekki en þrátt fyrir það voru venjulegir lögreglu- menn fengnir á vettvang. Og að auki var sporhundur hjálpar- sveitarinnar fenginn og fjölmarg- ir hjálparsveitarmenn kallaðir út sem ekki eru í stakk búnir til þess að fást við vopnaða menn. Óskar nefnir einnig sjoppurán þar sem hjálparsveitarmenn og sporhundur þeirra hafi verið notaðir til þess að leita uppi mis- indismennina. í tilvikum sem þessum eigi Sérsveitin að koma til en stöðugt sé skorið niður fjármagn til þeirra og reyndar allrar löggæslu í landinu. ■ Óskar Bjartmarz óttast vopnaburð glæpamanna samfara niðurskurði til lögregiunnar, einkum hjá Sér- sveitinni. „Þetta hefur verið svona í bráðum fimm til sex ár en það er samt ekki langt síðan ég sótti um að komast á hjúkr- unarheimili en ég veit ekki hvenær ég kemst að,“ sagði Kristín Þorsteinsdóttir. „Það getur víst liðið langur tími.“ ■ „Hræðilegast er að geta aldrei farið út og vera svona mikið ein en ég get ekki gert neina handavinnu þar sem ég er svo slæm í höndunum og ég reyni að lesa en sjónin er orðin slæm,“ segir Kristín Þorsteinsdóttir sem er ein stærstan hluta dagsins þó að hún geti varla farið hjálparlaust á salerni og þurfi hjálp við hér um bil allt. Hún getur ekki klætt sig hjálp- arlaust og ekki farið í stólinn án aðstoðar. Þrátt fyrir það er ekki pláss fyrir hana á hjúkrunar- heimili líkt og fjöldamarga aðra aldraða í sömu sporum. Hún fær heimilishjálp fyrir há- degi og heimahjúkrun í stutta stund á dag, annars situr hún ein í hjólastólnum eða gengur um í göngugrindinni með örygg- ishnappinn sér tii halds og trausts. ÍCETUR EKKERT FARIÐ „Þetta hefur verið svona í bráðum fimm til sex ár en það er samt ekki langt síðan ég sótti um að komast á hjúkrunarheimili en ég veit ekki hvenær ég kemst að. Það getur víst liðið langur tími.“ Aðspurð sagðist Kristín eiga eina dóttur sem kæmist ekki mikið til hennar þar sem hún ynni mjög mikið. Hún getur ekki farið út úr íbúðinni hjálparlaust „Hræöilegt aö geta aldrei farið út og vera svona mikið ein,“ Segir Kristín Þorsteinsdóttir sem bíður eftir vist á hjúkrunarheimili. þannig að lífið er tilbreytingalítið fyrir utan þau vandamál sem sjúkdómurinn skapar. #10 FÁ EKKi PLÁSS „Það eru um 200 manns sem fá ekki pláss á hjúkrunarheimilum þó að þeir falli undir vistunar- mat aldraðra og hafi brýna þörf fyrir pláss,“ sagði Gyða Jóhanns- dóttir, sem býr á Gimli og hafði forgöngu um stofnun Samtaka aldraðra og síðar byggingarfé- lagsins Gimli hf, sem byggði samnefndar þjónustuíbúðir. EFNAÐ FÓLK JAFN ILLA STATT Gyða hefur kynnt sér öldrun- arþjónustu erlendis og sat í stjórn Félags eldri borgara á síð- astliðnu ári. „Það er einfaldlega ekki pláss fyrir þetta fólk. Margt af þessu fólki er sterkefnað en hér eru engin einkarekin hjúkr- unarheimili til að mæta joví. Stór hópur fólks gæti vel greitt fyrir jjjónustuna en á þess ekki kost og vegna þessa fyrirkomulags ráðstafar það eignum sínum þeg- ar það eygir möguleika á að kom- ast að á ríkisreknum öldrunar- stofnunum. Það þarf að taka mið af skattframtali einstaklinga og hækka jijónustugjöldin fyrir þá sem geta borgað. Það þarf betri og öflugri heimahjálp og valkosti í öldrunarþjónustu þannig að þeir sem eiga peninga geti notað þá til að skapa sér þægilegt og áhyggjulaust ævikvöld. Þannig myndi álagi létta af þeim stofn- unum sem fyrir eru og þær nýt- ast fyrir þá sem eiga minna." ■ Skúli við opnun Subwav ( Skeifunni SllBWAY Á HEIMAVÖLL Hlölla Ákveðið hefur verið að Subway-veitingastaður opni með vorinu í mið- bœnum, en til þessa hafa Hiöllabátar setið einir á svoköliuðum bátamarkaðiþar. „Við lítum ekki á þetta sem strið. Samkeppni í mið- bœnum mun bara glœða viðskiptin ef eitthvað er.“ Þetta voru viðbrögð Kolfinnu Guðmundsdóttur, eiginkonu Hlölla i Hlöllabátum, sem tekið hefur að sér rekstur fyr- irtœksins í forföllum eiginmannsins. Hvað varðar nafngiftina bát- ar, sem alþjóðakeðjan Subway tók upp á að kalla samlokur sinar eftir að hinn alíslenski Hlölli hafði notað það nafn um árabil, segir Kolfinna heldur ekki stefna í stríð, langt þvi frá. Beðið er dóms í mál- inu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, en málið var tekið fyrir í síðustu viku. Skúli Sigfússon, eigandi Subway, segist heldur ekki líta á Hlöllabáta sem skœðan samkeppn- isaðila í miðbœnum, en Subway, sem opnaði við Suðurlandsbraut 11. september á síðasta ári, opnar nýtt útibú á tveimur hœðum að Aust- urstrœti 3 í byrjun maí. Líkt og á Hlöllabátum stendur til að hafa opn- unartímann opinn í alla enda um helgar þannig að svangir gestir mið- bœjarins geti fengið sér eitthvað gott í gogginn eftir skrall kvöldsins. ■ Sr. Sigurður Haukur Prestur á BOTNINUM „Jóhanna bauð mér 38. sœti en ég hefði hafnað að vera ofar á listanum. Eru það ekki helst gaml- ingjar sem eru ekki álitnir til mikilla átaka sem eru boðin þessi sœti?“ segir Sigurður Haukur Guðjónsson prestur en hann er í neðsta sœti lista Þjóð- vaka. Sigurður segist aldrei hafa leyft sér að vera eins pólitískur og hann hafí viljað vera og fínnst að kirkjan eigi að taka veraldlega afstöðu. „Ef boðskapur hennar skiptir ekki máli í pólitík þá á hann ákaflega lítið erindi held ég. Þá spyr ég sjálfan mig til hvers Kristur var sendur til jarðar.“ ■

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.