Helgarpósturinn - 13.03.1995, Page 14
IÞROTTIR
Vinstra horniö í landsliðinu enn
á SDurninaarmerki.
í Konrað Olavsson
| hefur „átt“ stöðu
P vinstri hornamanns
| í landsliðinu. Hann
I sýndi með frammi-
' stöðu sinni í leikjunum
við KA að hann ætlar
að halda landsliðssæt-
inu.
segir Viggó Sigurðsson, þjálfari Stjörnunnar.
„í dag held ég að það
komi ekki aðrir til greina í
þessa stöðu en Konráð 01-
avsson og Gunnar Bein-
teinsson,“ svarar Viggó
Sigurðsson, þjálfari Stjörn-
unnar, aðspurður hvaða
leikmenn hann telji að eigi
að vera í stöðu vinstri
hornamanns 5 landsliðinu.
Konráð og Gunnar hafa
„átt“ þessa stöðu í lands-
liðinu undanfarin misseri
en þar sem hvorugur hef-
ur leikið afgerandi vel í
deildinni f vetur hafa
menn veit því fyrir sér
hvort athugandi væri að
kalla á nýja menn til að
leysa þá af hólmi. Þorberg-
ur Aðalsteinsson landsliðs-
þjálfari var spurður út í
þetta atriði skömmu áður
en úrslitakeppnin hófst
og þá sagði hann að
frammistaða manna þar
myndi hafa mikið að
segja.
Auk Konráðs
Gunnars hafa Páll
Þórólfsson Aftureld-
ingu og Gústav
Bjarnason Haukum
verið nefndir sem
vænlegir kandíd-
atar í stöðu
vinstri horna-
manns. Páll
er ungur og
mjög efnilegur
1 e i k m a ð u r,
sterkur
hraðaupphlaup-
um og hefur átt
gott tímabil, en
hefur ekkert
spreytt sig með
landsliðinu af al-
vöru. Gústav
hefur hins vegar
leikið töluvert
með landslið-
inu og þá fyrst
og fremst í
stöðu línu-
manns. Gúst-
av er aftur á
móti sérlega
lipur leikmaður og hefur
brugðið sér í vinstra
hornið hjá Haukum í vet-
ur og sýnt þar snaggara-
leg tilþrif. Viggó finnst þó
sú hugmynd að setja
hann í hornið í landslið-
inu ekki ganga upp og um
Páll segir Viggó: „Hann er
mjög efnilegur leikmaður
en er ekki tilbúinn í svona
mót þar sem allir eru und-
ir gríðarlegri pressu."
Það vakti nokkra at-
hygli þegar Bengt Johan-
son þjálfari sænska lands-
liðsins sagði nánast ber-
um orðum í viðtali við
Morgunblaðið að Konráð
Olavsson væri vælukjói.
Hvað segir Viggó um
þetta?
„Ég er búinn að þjálfa
Konráð í eitt ár og ég hef
ekki heyrt hann kveinka
sér ennþá. Þetta er eitt-
hvað röng mynd sem
hann hefur fengið af hon-
um.
Þegar landsliðseinvald-
urinn Þorbergur Aðal-
steinsson er spurður
hvort hann sé búinn að
gera upp hug sinn
hverjir verða í
vinstra horninu, er
hann þögull sem
gröfin og segir
einungis:
„Ég læt ekkert
uppi um þetta
núna. Þetta verður
allt tilkynnt á blaða-
mannafundi eftir
viku.“ ■
Gunnar Beinteins-
son hefur verið í
vinstra horninu á
móti Konráði.
Þykit líklegur til
að vera þar
áfram, einkum
vegna mikillar
reynslu með
landslið-
inu.
Þrír KR-ingar
úr Austurbænum
sem eiga eftir að klæðast landsliðstrevjunni í komandi framtíð.
Finnur Þór Vilhjálmsson, Steinar
Kaldal og Baldur Ólafsson heita
þrír körfuboltastrákar úr Austur-
bænum. Strákarnir eru góðir vin-
ir, Steinar og Finnur frændur.
Frændurnir stunda nám við
Laugalækjarskóla en Baldur, sem
er yfir tveir metrar á hæð, við
Langholtsskóla. Auk þess að spila
með sigursælum 10. flokki KR
leika þeir með unglingalandslið-
inu þar sem þeir eru atkvæða-
miklir; Finnur er meira að segja
fyrirliði landsliðsins.
Aðspurður hvort það væri ekki
skrítið að búa í Austurbænum,
höfuðvígi Þróttara, og leika með
KR sagði Finriur að annað lið hefði
ekki komið til greina. Síðan geng-
ur strætóinn alveg upp að dyrum
KR-heimilisins, bætti hann við.
Axel Nikulásson, þjálfari úrvals-
deildarliðs KR, þjálfar strákana og
sagði að þeir væru þrír af fimm
efnilegustu leikmönnunum í ár-
ganginum (1979). „Þeir kunna og
sjá leikinn vel, og eru fljótir að
grípa smáatriðin og tileinka sér
þau. Baldur, sem er einn af fáu
stóru mönnunum sem við eigum,
hefur góðan skilning á leiknum.
Finnur, Baldurog Steinar.
Steinar hefur mikla líkamlega
hæfileika. Finnur er kominn lengst
af þeim enda hefur hann æft gríð-
arlega markvisst. Hann er ekki há-
vaxinn en það hefur ekki enn
komið að sök. ■
Spurningunni um það hvort
Michael Jordan gæti eitthvað í
hafnabolta svöruðu 78 prósent
leikmanna í amerísku horna-
boltadeildinni játandi í könnun
sem tímaritið Sport gerði nýlega.
Þetta er líklega táknrænt fyrir
breytta afstöðu manna til þeirrar
ákvörðunar besta körfuknatts-
leiksmanns heims að snúa sér að
hafnabolta. í fyrstu tóku menn
þessu sem brandara og dæmi-
gerðum stjörnustælum. En ein-
beitni Jordans og ótrúlegir hæfi-
leikar hans sem íþróttamanns
„Ég æfði með Mi-
chael síðasta vetur í
Chicago og veit að
hann ertilbúinn að
leggja gífurlega mikið
á sig. En að hann nái
árangri í úrvalsdeild-
inni, nei, ekki fyrr en í
fyrsta lagi 1996.“
Mike Huff
hjá Toronto Blue Jays.
sannfærðu fólk um að
hann gæti þetta, hugs-
annlega. Jordan
virtist dauð-
ans alvara
og hann gaf
ekki eftir
þrátt fyrir
mikið and-
streymi þar
til nýlegt
verkfall horna-
boltamanna skall á.
Meira að segja
hörðustu úrtölu-
menn eru búnir að
sjá að hann ætlar
sér að ná árangri —
hann hafi einfaldlega
verið orðinn leiður á
titlaveiðum í körfu-
knattleik.
í viðtali í Sport kemur
fram að Jordan sér ekki
eftir því að hafa reynt.
„Mér hefur farið gífurlega
fram en enn er langt í
land. Menn verða að
horfa til þess að ég lék
ekki hafnabolta í 14 ár."
Jordan segist ekki enn vera
tilbúinn til að keppa í úr-
valsdeildinni, hann sé enn
að ná áttum.
Menn benda á að það sé
mikil breyting fyrir hann
að vera aukaleikari eftir
að hafa nánast drottn-
að á vellinum alls
staðar þar sem hann
kom á körfuboltaferlin-
um. Nú er hann hins vegar
ekkert merkilegri en næsti
leikmaður, að því jú slepptu
að hann keypti rútuna! Én af
hverju hætti hann í körfunni?
„Það er aðeins ein ástæða;
mér leiddist. Mér leiddist
keppnistímabilið og mér
leiddist undirbúningstíminn.
Það var ekki fyrr en í úrslita-
keppninni sem hlutirnir byrj-
uðu að gerast. Þó við hefðum
unnið 82-0 þá skipti það ekki
máli. Þannig að einbeitingin
kom ekki fyrr en í úrslita-
keppninni og ég gat ekki far-
ið fram á að fá frí þangað til,
það var heldur ekki eftir-
sóknarvert. Það að vinna
einhverja titla sem einstak-
lingur; fyrir stigaskor, sem
besti leikmaður eða þess
háttar — það bara höfðaði
ekki lengur til mín. Ég vildi
bara liðssigra og ég hefði
vel getað hugsað mér að
vinna NBA-titilinn í tvö eða
þrjú skipti í viðbót. En til þess
hefði ég orðið að leika allt
„Hann erfrábær
íþróttamaður en það
tekur mörg ár að þróa
leiknina til að vera
gjaldgengur í úrvals-
deild. Samt sem áður
tel ég að hann eigi eft-
ir að koma öllum á
óvart.“
Jay Bell
hjá Pittsburgh Pirates.
tímabilið og það fannst mér
óhugsandi.“
TREYSTIR SÉR TILAÐKOMA OG
SKORA 33 STIG AÐ MEÐALTALI
Jordan var einnig spurður að
því hvort honum fyndist hann
vera búinn að missa getuna í
körfuknattleiknum. „Nei alls
ekki. Ég treysti mér til að koma
til leiks á ný og skora 33 til 34
stig að meðaltali. Ég get vel
hugsað mér að leika körfuknatt-
leik mér til skemmtunar en alls
ekki á sömu forsendum og til
þessa. Keppnin í dag snýst of
mikið um peninga en minna um
íþróttina."