Helgarpósturinn - 13.03.1995, Side 15

Helgarpósturinn - 13.03.1995, Side 15
'MiflRS1 ÍÞRÓTTIR iMcglonaáieaiMadrid Töpuöu bæði Topplið spænsku fyrstu deild- arinnar Real Madrid og Barcel- ona töpuðu bæði leikjum sínum um helgina. Real Madrid fór í heimsókn til Racing Santander, sem er í neðsta hluta deildarinn- ar, og máttu þola auðmýkjandi tap 3-1. Barcelona átti einnig útileik en þeir fóru til Madridar að leika við Atletico Madrid sem er á svipuð- um slóðum og Racing Santander. Aður en umferðin hófst voru meistararnir í Barcelona þrem stigum á eftir Real og hefðu því getað minnkað muninn í tvö stig. Atlatico Madrid sá hins vegar til þess að nágrannar þeirra í Real halda forskotinu þrátt fyrir tap og unnu Barcelona 2-0. ■ ~l Michael Jordan. Á 32. aldursári reyndi hann nú að ná frama í íþrótt sem hann hafði ekki stundað í 14 ár. Það sem hefur hins vegar vak- ið athygli allra er að Jordan hef- ur undanfarið mætt á æfingar hjá Chicago enda verkfall í hafnaboltanum. í ljósi ummæla hans um úrslitakeppnina er ekki nema vona að menn spyrji sig hvort hann sé að byrja aftur. Þá telur dagblaðið Chicago Tri- bune hafa fullvissu fyrir því að hann sé búinn að gefast upp á hornaboltanum og hafi sagt við vini sína að hann vilji byrja aftur, svo framarlega sem Iiðið hafi möguleika. ■ „Hann er mesti íþróttamaður allra tíma og getur hið ómögulega. Hann þarf hins vegarsinn tíma eins og aðrirtil að læra hlutina.“ Shawon Dunston hjá Chicago Cubs. j Þar sem mannrán eru biððaríbrátt Rússneska íþróttakonan Irina Privalova sagði frá því nýlega í blaðaviðtali að eftir að tekjur hennar voru gefnar upp í rúss- nesku tímariti hefði hún ekki þorað heim. Ástæðan; jú, rúss- neska mafían ræður öllu og mannrán eru orðin þjóðaríþrótt. Hún, eins og aðrir rússneskir af- reksmenn, búa við það að lög og reglur finnast varla lengur í Rússlandi og mafían hefur fyllt Irina Privalova var stoppuð af löggunni og fékk ekki að halda áfram fyrr en hún greiddi lausnar- gjald. upp í það tómarúm sem alræðið skildi eftir sig. Og löggan er ekk- ert skárri. Privalova, sem gerir kröfu til titiisins sprettharðasta kona heims, var nýlega á leið út á flugvöll með þjálfara sínum og var ferðinni heitið á mót í Madr- íd. Löggan stoppaði þau á leið- inni og gerði sitt besta til að finna eitthvað athugavert. Ef það finnst verður fólkið að kaupa sér frið með því að borga löggunni lausnargjald. Að lokum varð Pri- valova að greiða sem svaraði 100 dollurum til að sleppa við kæru vegna ölvunaraksturs. Þá er bókstaflega vonlaust að koma með glæsibifreiðar þær sem íþróttafólkið vinnur heim til Rússlands — að meðaltali líða þrír dagar þar til búið er að ræna Mercedes Bens-bifreið frá rétt- mætum eiganda. Stangastökkvarinn Sergei Bubka telur ástandið svo alvar- legt að hann neitar að keppa á mótum nema miklar öryggisráð- stafanir séu gerðar og hann ferð- ast ekki innanlands nema með lífverði. Aðaikeppinautur hans innanlands, stanga- stökkvarinn Rodion Gataullin, missti all- ar sínar eigur þegar íbúð hans í Péturs- borg var rænd. Þrí- stökkvarinn Iva Prandzheva og há- stökkvarinn Svetl- ana Lesseva voru rændar af leigubíl- stjóra á leiðinni út á flugvöll nýlega og tveim búlgörskum íþróttamönnum var rænt í febrúar á leiðinni á Rúss- neska innanhús- mótið. Krafist var 20.000 dollara Sergei Bubka neitar að ferðast um nema með lífvörð. lausnargjalds. Þetta allt saman hefur leitt til þess að sumir, eins og til dæmis Privalova, geta hvergi verið nema heima hjá sér eða á vöktuðum æfingavöilum. ■ Mexíkómenn hafa til- kynnt forráðamönnum FÍFA að þeir treysti sér ekki til að sjá um heims- meistarakeppnina árið 2002 eins og þeir höfðu áður sóst eftir. Þar með er Ijóst að Asíubúar sitja að keppninni þar sem aðeins Japan og Suður- Kórea eru eftir í pottin- um. Mextkómenn hafa ekki gefið neina ástœðu fyrirþessum sinnaskipt- um en þeir sáu um keppnina árið 1970 og 1986. IVAN ZAMARAN0 Zamarano Þrátt fyrir að Real Madrid hafí tapað um helgina lcetur hinn chile-œttaði sóknarmað- ur liðsins, lvan Zamorano ekki deigan síga. Það var að sjálfsögðu hann sem skoraði eina mark Madridarliðsins. Þetta var 20. mark Zamoranos í 25 leikjum í vetur og er hann markahœstur á Spáni fyrir vikið. ■ Ajax sigraði MEÐ HARIVI- KVÆLUM Ajax, efsta lið hollensku deildarinnar, sigraði botnliðið Go- Ahead- Eagles í slökum leik í gœr. Leikur toppliðsins var ekki sannfœrandi en það var ekki fyrr en botnliðið skoraði skömmu eftir leikhlé sem lifnaðiyfir leik- mönnum Ajax. Finninn fljúgandi, Jari Litmanen, jafnaði með góðu skalla- marki á 73. mínútu en hann hafði áður farið illa með góða fœrí. Það var svo ekki fyrr en eftir að venjulegum leiktíma var lokið sem Nígeríu- maðurinn Nsanko Kanu skoraði sigurmark Ajax en hann kom inn á sem varamaður í leiknum. Ajax náði þar með tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar því Roda gerðijafntefli við Sparta Rotterdam. ■

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.