Helgarpósturinn - 16.03.1995, Page 12
12
MORBUNPÓSTURINN FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 16. MARS 1995
I Bandaríkjunum ertalið að um 80 prósent allrar
steramisnotkunar sé utan hinna hefðbundnu keppn-
isgreina og talið er að hér á landi sé hlutfallið svip-
að. Heilbrigðis- og lögregluyfirvöld hér og erlendis
hafa nú auknar áhyggjur af steranotkun unglinga
og tengslum steramisnotkunar og ofbeldis
Margrét Sigurðardóttir, margfaldur Islandsmeistari í vaxtarrækt,
segir að taisvert sé um steraneyslu.
f seinni heimsstyrjöldinni voru
anabólískir sterar notaðir í íyrsta
sinn á skipulagðan hátt. Það var
ekki gert í lækningaskyni heldur
notuðu rússnesku og þýsku herirn-
ir anabólíska stera til að auka árás-
arhneigð og úthald hermanna
sinna. Steranotkun var til dæmis al-
geng meðal SS-sveita Hitlers. Eftir
heimsstyrjöldina fór svo að bera á
notkun anabólískra stera meðal
íþróttafólks og strax árið 1968 var
notkunin orðin svo algeng að al-
þjóðaólympíunefndin hóf lyíja-
rannsóknir. Árið 1976 var öll notk-
un stera bönnuð af nefndinni. Síð-
an þá hafa komið upp mörg tilfelli
þar sem mönnum hefur verið vísað
úr keppni og verðlaunahafar hafa
verið látnir skila verðlaunum eftir
að upp hefur komist að þeir not-
uðu stera.
Birgir Guðjónsson lyflæknir,
sem situr í bæði laga- og lyfjanefnd
fsf , segir að lyfjaprófun sé nú orðin
hluti af öllum stærri mótum. Hér-
lendis hafí tólf lyfjapróf á íþrótta-
fólki reynst jákvæð þar af tvö við
réttarrannsókn (krufningu), þrjú
hjá frjálsíþróttafólki og hin sjö hjá
vaxtarræktarfólki. Vandamálið við
prófun á steranotkun sé hins vegar
að oft sé erfitt að mæla notkun á
mótum því að steranotkun fari yf-
irleitt fram á æfmgatímanum.
Reglulegar lyfjaprófanir utan
keppni eru heldur ekki skylda hjá
sumum sérsamböndunum og hér-
lendis er það svo innan kraftagrein-
anna.
Deilt um skaðsemina
Margrét Sigurðardóttir, sem er
sexfaldur íslandsmeistari í vaxtar-
rækt, segir að þó nokkuð sé um
steranotkun. Hins vegar sé lítið tal-
að um það opinberlega, þeir sem
noti stera eigi það við sjálfa sig. Sjálf
ekki,“ segir ívar. „Eins og allir vita
hrynur hús sem byggt er á lélegum
grunni. Þess vegna er nauðsynlegt
að þroska báða þessa þætti sam-
hliða í langan tíma. Einnig eiga
menn að kynna sér náttúruleg efni
vel áður en þeir fara að huga að
notkun stera því að það er einnig
hægt að ná góðum árangri með
notkun þeirra. Það versta sem
menn gera er að byrja of snemma
að taka stera og hlusta á fólk sem
hefur enga þekkingu á þessum mál-
um. Þegar viðkomandi hættir á
þessum efnum eru bólgur í vöðva-
festingum og liðum það eina sem
hinar miklu æfmgar skilja eftir.
Þessi vandamál geta orðið krónísk
og þar af leiðandi er hægt að af-
skrifa allar æfrngar í náinni fram-
tíð.“
En er til einhver rétt notkun á
sterum fyrir íþróttafólk? Pétur
Pétursson, læknir á Akureyri, seg-
ir að öll notkun stera önnur en í
lækningaskyni sé fordæmanleg og
geti beinlínis verið mjög hættuleg.
Hann bætir því við að allir læknar
með vott af sjálfsvirðingu og sið-
ferðiskennd komi ekki nálægt því
að gefa heilbrigðu fólki ráð um
steranotkun.
Stórfellt smygl
Ekki er litið á stera sem ólögleg
lyf nema innaníþróttahreyfingar-
innar og því er eftirlit með annarri
misnotkun vandasamt. Hjá fíkni-
efnadeild lögreglunnar, sem sér um
þessi mál ásamt rannsóknarlögregl-
unni, hafa menn á tilfmningunni
að notkun stera hafi aukist talsvert
utan íþróttahreyfingarinnar. Árið
1993 var sett reglugerð um inn-
flutning á sterum og síðan þá hefur
eftirlit verið hert. Hjá tollgæslunni í
Keflavík eru notaðar sömu aðferðir
við leit að sterum og við leit að
fíkniefnum.
Innflutningur á sterum hefur
aukist talsvert á síðustu árum.
Þannig voru 8.177 töflur af sterum
gerðar upptækar árið 1993, árið
1994 var lagt hald á 44.389 töflur og
520 ambúlur (sterar í sprautu-
formi) og það sem af er þessu ári
Olafur Ólafsson, landlæknir,
hefur mikla áhyggjur af því að
unglingar séu farnir að sækja í
stera. Verið er að kanna hversu
útbreitt það er í framhaldsskólun-
um.
sé uppi á teningnum. Landlæknis-
embættið er nú með í gangi úttekt á
steramisnotkun unglinga í fram-
haldsskólunum. Niðurstöður úr
könnuninni munu liggja fyrir í vor.
Ólafur Ólafsson, landlæknir,
segir margar ástæður til að vara við
steranotkun unglinga og hvetur
foreldra til að vera á varðbergi. Af-
leiðingar steranotkunar unglinga
svo sem ótímabær vaxtarstöðvun
geta verið varanlegar.
En alvarlegar aukaverkanir
steramisnotkunar eru ekki bundn-
ar við unglinga. Hjá konum eru
aukaverkanir eins og djúp rödd,
skeggvöxtur, minnkun brjósta, af-
lögun kynfæra (sérstaklega hjá
ungum stúlkum) og truflanir á
tíðablæðingum oft varanlegar.
Misnotkun anabólískra stera getur
einnig orsakað margs konar hættu-
lega sjúkdóma svo sem hjarta- og
lifrarsjúkdóma, háan blóðþrýsting
og vöðvasjúkdóma. Pétur Péturs-
son læknir segir að nokkuð sé um
að menn sem misnoti stera verði
hræddir þegar þeir fari að finna til
fyrir hjartanu og komist þá undir
læknishendi. Ólafur Ólafsson land-
læknir segir að það séu þó ekki ein-
ungis líkamlegu aukaverkanirnar
sem menn hafi áhyggjur af heldur
einnig þær andlegu. Misnotendur
stera verði oft árásargjarnir og
dómgreindarlausir. Rannsókn
bandarísks læknis, H. Pope að
nafni, bendir til þess að ofnotkun
anabólískra stera sé hættulegri en
ofnotkun kókaíns og heróíns vegna
segist hún ekki nota stera því að
auk þess að styrkja og auka vöðva
þá geti það eyðilagt líkamann mjög
mikið. ívar Hauksson, vaxtar-
ræktarmaður, segir að erlendis séu
til sambönd sem ekki lyfjaprófa og
hann nefnir sem dæmi að í keppni
um titilinn Mr. Olympia hafi lyfja-
prófun verið hætt vegna þess að
áhorfendur misstu áhugann á
keppninni því að kröfur almenn-
ings séu orðnar það miklar. Ivar
telur að misnotkun og ofnotkun
stera megi fýrst og fremst rekja til
þekkingarleysis og vankunnáttu á
þessu sviði. Farið sé með steranot-
endur eins og glæpamenn og þeir
geti ekki ráðfært sig við lækna um
rétta notkun eins og hægt sé er-
lendis. Hann segist í auknum mæli
verða var við að ungt fólk sem ný-
byrjað er að æfa taki stera. Þetta
fólk hafi hvorki þekkingu á efninu
né á eigin líkama og því geti stera-
notkunin verið þeim mjög hættu-
leg. Fráleitt sé að huga að notkun
stera fyrr en búið sé að æfa í nokkur
ár og þá þurfi menn að kynna sér
alla þætti mjög vel. „Eflaust geta
vöðvarnir tekið við allri þeirri æf-
ingu sem eykst við notkun þessara
lyfja en vöðvarfestingarnar geta það
Hauksson telur að hægt sé
að nota stera án þess að hættu
stafi af því en unglingar eigi ekki
undir nokkrum kringumstæðum
að fikta við það.
Pétur Pétursson, læknir, hefur
barist manna harðast gegn stera-
notkun. Hann hafnar því alfarið
að hægt sé að neyta þeirra sér að
skaðlausu.
hafa 27.500 töflur og 70 ambúlur
verið gerðar upptækar.
Áður var algengast að þessi ólög-
legi innflutningur kæmi frá Suður-
Evrópu en þau lyf sem hafa verið
gerð upptæk á síðustu árum koma
aðallega ffá Tælandi. fvar Hauks-
son segir innflutning þennan yfir-
leitt vera til eigin nota og menn slái
saman í púkk til að kaupa efnið er-
lendis. Þetta sé ekki gert í gróða-
skyni heldur séu menn fyrst og
fremst að verða sér úti um efni sem
ekki fáist hérlendis. En Þorsteinn
Halldórsson, hjá fíkniefnalögregl-
unni á Keflavíkurflugvelli, er á öðru
máli og segir umfang innflutnings-
ins ótvírætt sýna að þetta er gert í
söluskyni auk þess sem nokkrir að-
ilar hafi orðið uppvísir að sölu á
lyfjunum. Samkvæmt heimildum
lögreglunnar leikur grunur á að
sterar séu boðnir til sölu á ákveðn-
um líkamsræktarstöðvum i Reykja-
vík. Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur einnig haft afskipti af málum
sem tengjast sölu á steralyfjum.
Úttekt á steraneyslu
I framhaldsskólum
Tölur frá Norðurlöndunum og
Bandaríkjunum um notkun ung-
linga á anabólískum sterum í því
skyni að líta betur út og öðlast
sjálfsöryggi, sýna að þetta vanda-
mál er mun algengara en áður var
talið. Þar er talið að milli fimm og
tíu prósent ungra drengja misnoti
stera. Hérlendis hafa heilbrigðisyf-
irvöld áhyggjur af því að hið sama
Einn flokkur stera eru ana-
bólískir sterar og þeir eru
kannski sá flokkur stera
sem síst er notaður til
lækninga þó svo að þeir
geti gert gagn ef þeir eru
notaðir á réttann hátt. Að-
allyfið í flokki anabólískra
stera er testósterón. Það
er karlkynshormón sem
einnig er hægt að búa til
efnafræðilega. Margar
tegundir með mismunandi
áhrifum hafa verið fram-
leiddar af því. Anabólískir
sterar eru til dæmis notað-
ir við meðfæddum skorti á
testósteróni og í takmörk-
uðum mæli við að hraða
uppbyggingu vefja eftir
veikindi. Misnotkun ana-
bólískra stera getur haft
margvíslegar neikvæðar
afleiðingar fyrir bæði sál
og líkama.
Nokkur e'mlkem ú
fnisnot tanar
I Tungllaga andlitsfall
I Húðbrestir á efri
hluta líkamans
I Bólur í andliti
I Hármissir
I Árásargirni
I Dómgreindarleysi
I Breytingar á kynfærum