Helgarpósturinn - 03.04.1995, Page 4

Helgarpósturinn - 03.04.1995, Page 4
FRÉTTIR r r „Það er mín einlæga von að þessi uppgangur íslenskra fyr- irtækja að undanförnu muni verða þjóðfélagi okkar til framdráttar í launamálum. Það er að sjálfsögðu alltaf óskaplega gaman þegar vel gengur en ég hef ekki séð þennan hagnað í ársskýrslum almennings, það er, hjá fjöl- skyldum og einstaklingum sem eru að vinna fyrir sér í al- mennri launavinnu. Það er ekki fyrr en að uppgjör allra sýnir hagnað sem við getum talað um raunverulegan ár- angur. Það er að sjálfsögðu ekkert jafnrétti fólgið í þeim stað- reyndum að einn geti tekið og annar missi í staðinn. Það eru ákveðin auðæfi til skiptanna og þeim verður að skipta af réttlæti. Það er grundvallar- skekkja í samfélaginu sem þarf að leiðrétta, þessi hugsana- skekkja, að litið er á misrétti eins og náttúruiögmál og það er misrétti að auðæfum sé misskipt. Fjölskyldur í land- inu, barnafólk og láglauna- fólk hefur staðið í hatrammri baráttu við skuldasöfnun um langt skeið. í raun og veru býr íslenskt samfélag við óskap- legt misrétti, sem er aldagam- alt samfélagsvandamál sem gengur út á gróða eins og tap annars. Misskipting auðs, launamisrétti, meðhöndlun nýbúa, við- brögð við fötluðum, réttindaleysi samkynhneigðra og annað kúgunarsukk er sú hugsanaskekkja sem skapar misréttið. Það þurfa allir að breyta hugsun sinni í þá veru til þess að það sé hægt að skapa betra þjóðfélag.“ ■ í fangelsi lyrir aðpína börnin sín Á dögunum var rúmlega þrítug- ur íslendingur, Grímur Thorkelin Vilhjálmsson, dæmdur til hálfs árs fangelsisvistar í Noregi fyrir gróf- ar misþyrmingar á börnum sín- um. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að fullsannað væri að Grímur hefði sparkað í börnin, barið þau með spýtu og stungið þau með nálum. Verjandi Gríms mótmælti dómsorðinu og sagði að ákæran væri einungis byggð á munnlegum málflutningi fólks sem þekkti til á heimili Gríms á meðan hann bjó í Flisa í Noregi en áþreifanleg sönnunar- gögn skorti í m á 1 i n u . Hann krefst að lögreglu- yfirvöld í Noregi taki málið aftur til rannsókn- Grímur einnig ar. var Grímur Thorkelin Vilhjálmsson. grunaður um að hafa misnotað börnin kynferðislega og aflað sér sálfræðiréttinda með fölskum gögnum en fallið var frá þeim ákæruatriðum. Til frádráttar frá fangelsisdómnum dragast 28 dag- ar sem Grímur sat í gæsluvarð- haldi vegna málsins. ■ 1. APRÍL Fjölmiðlar brugðu á leik að vanda 1. apríl og sér- staklega tókst vel til hjá Sjónvarpinu og Stöð 2 sem sœmrœmdu apríl- gabbið að þessu sinni. í fréttum Sjónvarpsins og í fréttaþœttinum 19.19 á Stöð 2 var sagt frá því að Irwing-feðgar hefðu þá um daginn gengið frá kaupum á Essó sem keypti Olís á dögunum eins og kunnugt er. Sagt var að Skeljungur vœri eina eftirlifandi íslenska olíufélgið á markaðnum og hefðu Skeljungsmenn brugðist við með þeim hœtti að bjóða bensín- lítrann á sama verði og hann kostar í Kanada, eða 28 krónur. Látið var í veðri vaka að óvíst vœri hversu lengi ódýra bens- ínið vœri fáanlegt og jafnvel einungis fram til lokunar bensínstöðva að kvöldi 1. apríl. í fréttum sjónvarpsstöðvanna var rœtt við Kristin Björnsson, forstjóra Skeljungs, vegna þessa auk bensín- afgreiðslumanna og ánœgðra viðskiptavina. Fjöldi fólks stökk til og örtröð myndaðist á sölu- stöðum Skeljungs vegna þeirra sem voru að ham- ast við að hlaupa apr- íl. ■ Reykvískt Næturlíf Trekkir Breska danssveitin Drumclub mun vœntan- leg til landsins, eins og PÓSTURINN greindi frá fyr- ir nokkru síðan. Ætlun sveitarinnar verður að taka upp hljómleikaplötu á ferðalagi sínu til ís- lands, en ástœður þeirrar ákvörðunar munu liggja að baki þeim furðulegu sögusögnum sem erlend- ar hljómsveitir bera með sér í heimahagana aftur að loknu skemmmtana- haldi hérlendis. Lol Hammond, annar tveggja meðlima Drumclub, sagði í símaviðtali við blaðið fyrir helgi að uppliafið að komandi œvintýri þeirra hérlendis œtti rœtursín- ar að rekja til ummœla strákanna í bresku sveit- unum Underworld og In- nesphere þeirra í milli, en Underworld stigu á fjalir með stórstiminu okkar, Björk, síðastliðið sumar í Laugardalshöllinni og skemmtu fyrir troðfullu húsi og kraflmiklum und- irtektum dansfíkla. ln- nesphere skemmtu hins vegar reykvískri œsku fyrir nokkmm vikum og fóru þeir brosmildir heim til Englands aftur eftir velheppnaða tónleika- ferð. ■ Stefan Almars, oft kallaður Ma- lagafanginn, fær sjúss hjá Hall- dóri Fannari, sjálfskipuðum at- kvæðasmala Alþýðuflokksins. Kratar biðla til drykkkjumanna á krám borgarinnar Ef myndin prentast vel sest eitt atkvæði í aftursætinu þar sem það veifar bjórdós. F r Fabioro fypir ao kjosa lÍIiHlMMi POSTSINS I #Síöasta föstudag komu tveim menn á Hafnarkrána viö Hafnar- | stræti, kynntu sig í nafni Alþýðuflokksins og buöu gestum staö- * arins áfengi gegn því aö koma með sér og kjósa Alþýðuflokkinn | utankjörstaðaatkvæðagreiðslu. Samkvæmt heimildum póstsins - hafa nokkrar slíkar ferðir verið farnar með drykkjumenn undan- I farið og hafa starfsmenn sýslumanns sem sjá um utankjör- ■ staðaatkvæðag re iðsl u r veitt þeim athygli. " Forsprakki þessarar atkvæð- Iasmölunar er Halldór Fannar, sem hefur verið ötull talsmaður Ifanga og þekkir vel lífið innan múranna af eigin raun. Hafþór ISamúelsson, barþjónn á Hafnar- kránni, kannast vel við Halldór og atkvæðaveiðarnar. I„Ég tók fyrst eftir þessu í dag [föstudag] þegar stroilan fór út Iog allir fóru að tala um þetta. Þeir eru tveir með fullan bíl af Ibrennivíni og bjór og bjóða mönnum að drekka eins og þeir geta á leiðinni fram og til baka á Ikjörstað í staðinn fyrir að kjósa. Það fóru þrír áðan og svo fór Ieinn með þeim þegar þeir komu til baka að skila hinum,“ sagði - Hafþór. Hafþór sagði mennina þó ekki koma dauðadrukkna til baka eft- ir að hafa kosið, enda væru þetta vanir menn og það þyrfti Imeira en tvo, þrjá bjóra og nokkra slurka af brennivíni til að Isæi á þeim. Aðspurður hvort menn næðu ekki meira en tveim- ur, þremur bjórum og nokkrum I snöfsum út á atkvæðið, sagði ■ Hafþór að þeim hefði einnig ver- |^ð boðið að koma á kosninga- vöku Alþýðuflokksins og sagt að þar yrðu fríar veitingar. Hafþór lá ekki á þeirri skoðun sinni að það sé allt annað en lýðræðisást sem fær umrædda gesti Hafnar- krárinnar til að nýta atkvæðis- rétt sinn. „Þeir sem ég veit að hafa farið hérna fóru bara út af brennivín- inu, ekki af því að þeir vildu kjósa.“ BUÐUST TIL AÐ ÚTVEGA SKILRIKI Einn af þeim sem fór með Hall- dóri Fannari á föstudag var Örn Þór Guðjónsson, sem vinnur í af- leysingum á Hafnarkránni. Hann hugðist kjósa en gat það ekki þar sem hann var ekki með per- sónuskilríki. Halldór sagði það hins vegar lítið mál, hann myndi útvega ljósmyndatöku á kosn- ingaskrifstofu Alþýðuflokksins við Hverfisgötu og redda nafn- skírteini. „Við vorum tveir skilríkjalaus- ir en þeir buðust til að redda því. Halldór sagðist ætla að koma á mánudaginn og sækja mig og fara með mig upp á kosn- ingaskrifstofu og láta talka mynd af mér, það er einhver ljósmynd- ari þar. Svo myndu þeir redda skilríkjunum svo ég gæti kosið,“ sagði Orn. Aðspurður hvort einhver skii- yrði hefðu verið sett fyrir þess- ari þjónustu svaraði Örn: „Nú, að kjósa kratana." Örn sagði að menn hafi náð að tæma nokkra bjóra á leiðinni til og frá Engjateignum, þar sem ut- ankjörstaðaatkvæðagreiðslan fer fram í Reykjavík, og hafi komið vel kenndir til baka. Aðspurður hvort hann sé að spá í að kýla á þetta, sagði Örn: „Já, mig vantar skilríki. En ég kýs bara eitthvað, ég ætla ekk- ert endilega að fara að kjósa Þá,“ Orn sagðist ekki hafa það á hreinu hversu marga Halldór og félagi hans væru búnir að fara með á kjörstað en sagði þá ætla að gera víðreist um bæinn í leit að atkvæðum. „Þeir eru að fara á alla stað- ina. Dóri sagði í dag [föstudag] að þeir væru búnir að fara á Skipperinn en þar hefði verið tómt, og svo sögðust þeir ætla að fara upp á Keisara næst.“ SAMSÆRIANNARRA FLOKKA Sigurður Tómas Björgvinsson, framkvæmdastjóri Alþýðu- flokksins, segist ekki þekkja til Halldórs Fannars og félaga hans. „Ég veit ekki hvað þú ert að tala um, hvernig dettur þér þetta eiginlega í hug?“ segir Sig- Sigurður Tómas Björgvinsson, framkvæmdastjóri Alþýðuflokks- ins. „Hvað veit ég nema þetta séu menn sem eru á vegum einhvers annars flokks og séu að reyna að koma höggi á Alþýðuflokkinn.11 urður, aðspurður hvort Halldór Fannar væri á vegum Alþýðu- flokksins. Þegar Sigurður er inntur eftir því hvað honum finnst um það framferði þeirra að reyna að fá menn til að kjósa Alþýðuflokkinn gegn áfengi, svarar hann: „Ég hef ekki hugmynd um hvort þetta hafi átt sér stað eða ekki. Ég á ekki von á því að þetta hafi gerst.“ Þar sem þetta svarar ekki spurningunni er hún ítrekuð. „Þetta hefur að minnsta kosti ekki verið gert í nafni flokksins og ég hlýt að fordæma þetta, ef það er rétt að þetta hafi átt sér stað.“ Sigurði finnst sagan ótrúleg og dettur helst í hug að um sam- særi annarra fiokka gegn Al- þýðuflokknum sé að ræða. „Hvað veit ég nema þetta séu menn sem eru á vegum einhvers annars flokks og séu að reyna að koma höggi á Alþýðuflokk- inn. Er ekki kosningabarátta núna?“B Ljósmyndari póstsins lenti í miklum hremmingum eftir að hafa tekið myndir af Halldóri Fannari og íélaga hans skila einum gesta Hafnarkrárinnar til baka eftir að hafa farið með hann til utankjörstaðaat- kvæðagreiðslu. Halldór Fann- ar brást ókvæða við mynda- tökunni og heimtaði að fá film- una. Ljósmyndarinn neitaði, en |)á brá félagi Halldórs á ]jað ráð að leggja l)íl þeirra félaga þannig að ljósmyndarinn komst hvergi á sínum bíl. Starfsmenn Hafnarkrárinnar fylgdust með atburðarásinni og leist ekki meira en svo á blikuna að j)eir hringdu á rit- stjórnarskrifstofu póstsins og létu vita af nauðum ljósmynd- arans, sem er kvenkyns. Þar sem ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru örstutt frá Hafn- arkránni voru tveir starfs- menn blaðsins fljótir á vett- vang, Ijósmyndaranum til hjálpar. Halldór var þá kom- inn í enn meiri ham og hótaði að „rústa prentsmiðjunni" ef myndirnar birtust. Engu tauti var við hann komið og að end- ingu varð ljósmyndarinn að skilja bílinn sinn eftir og ganga að skrifstofum blaðsins. En Halldór fékk ekki filmuna. ■

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.