Helgarpósturinn - 03.04.1995, Síða 14
ÍÞRÓTTIR
Doohan lét tæra bremsuna upp í styri og notar nú vinstri
þumalputtann til að bremsa með afturdekkinu.
Onnur keppnin í mótor-
hjólakappakstri (GP) var
ekin í Malasíu um helgina.
Heimsmeistarinn Michael
Doohan vann sinn 21. sig-
ur í GP 500 og annan í röð
á þessu ári.
Keppnin var lítil um
fyrsta sætið, en um annað
sætið var mikil barátta á
milli næstu þriggja
manna.
Ferill Doohan er sér-
lega glæsilegur. Hann er
31 árs Ástrali og hefur
keppt í GP 500 síðan 1989.
Fyrsti sigur hanns var
1990 og þá var hann í 9.
sæti í heimsmeistara-
keppninni, 1991 var hann
í 5. sæti, 1992 í 2. sæti og
1993 í 4. sæti. En með 9
sigrum, þremur keppnum
í öðru sæti og tvisvar í 3.
sæti varð Doohan heims-
meistari 1994.
í keppni í Hollandi 1992
datt Doohan á um það bil
170 km. hraða og braut á
sér hægri öklann svo illa
að hann getur ekki hreyft
öklann á hægra fæti.
Þetta er bagalegt fyrir
mótorhjólamann vegna
þess að afturbremsan er
á hægra fæti, en Doohan
lét færa bremsuna upp í
stýri og notar nú vinstri
þumalputtann til að
bremsa með afturdekk-
inu. Doohan varð heims-
meistari í GP 500 1994 og
sigraði hann með miklum
yfirburðum það miklum
að þegar 3 keppnir af 14
voru eftir var hann orð-
inn heimsmeistari. Doo-
han er fyrsti GP 500 öku-
maðurinn sem nær því að
komast á verðlaunapall í
öllum keppnunum 14 á
einu keppnistímabili. Þeg-
ar keppnistímabilinu lauk
var Doohan með 317 stig
og sá sem var í öðru sæti
var með 174 stig. ■
•Það hlýtur að vera forráðamönnum og aðdáendum Chicago
Bulls mikið áhyggjuefni hve illa Michael Jordan virðist ætla að
finna sig á hinum nýja heimavelli liðsins í Chicago, United Centre.
Bulls vígðu nýjan heimaleik-
vang í byrjun síðasta tímabils,
sama haust og Jordan fór í tíma-
bundið frí frá körfuboltanum.
Jordan lék sinn fyrsta leik í nýju
höllinni gegn Orlando Magic á
dögunum og fann sig ekki vel,
enda tapaði Bulls leiknum. Eftir
leikinn gaf Jordan þá skýringu á
frammistöðu sinni að hann sakn-
aði gömlu íþróttahallarinnar,
Chicago Stadium. Um helgina lék
Chicago annan heimaleik sinn
frá því Jordan sneri aftur en liðið
tók að þessu sinni á móti Phila-
delphia 76’ers. Og aftur endur-
tók leikurinn sig, ekkert gekk hjá
Jordan sem hitti afleitlega, setti
5 skot niður af 19 utan af velli, og
skoraði aðeins 12 stig. Chicago
hafði þó sigur, 91-84.
Eins og gefur að skilja var
Jordan ekki ánægður með sinn
þátt í leiknum og sagðist þurfa
tíma til að aðlagast hinum nýja
velli.
Michael Jordan finnur sig ekki á
nýja heimavelli Chicago Bulls og
saknar gömlu íþróttahallarinnar.
„Mér líður bara ekki alveg eins
og heima, ennþá. Núna þoli ég
þessa byggingu ekki,“ sagði
Jordan eftir leikinn.B
Meistararn-
ir úrleik
íslandsmeistarar síðustu
þriggja ára í keilu, Lærlingar
(KFR), féllu úr keppni í fyrstu
umferð úrslitakeppni 1. deildar
karla. Það var lið PLS (ÍR) sem
sigraði Lærlinga í tveimur leikj-
um.
Fjögurra liða úrslit hófust í
gær með leikjum deildarmeist-
ara KR og Þrasta (KFR) þar sem
KR sigraði og með leik Keilu-
landssveitarinnar (KFR) og PLS
(ÍR) og sigraði PLS. Næstu leikir
úrslitakeppninnar verður annað
kvöld þar sem sömu lið mætast
og verða báðir leikirnir í Keilu í
Mjódd. ■
Valur og KR
ekki með
Ekkert verður að þátttöku
Reykjavíkurliðanna, Vals og KR, í
Litlu bikarkeppninni eins og til
stóð. Þegar á reyndi kom í ljós
að ekki var eining um að leyfa
Reykjavíkurliðunum að vera
með. Andstaðan er sögð hafa
fyrst og fremst komið frá tveim-
ur þjálfurum, Inga Birni Alberts-
syni, þjálfara ÍBK, og Loga Ólafs-
syni, þjálfara ÍA. ■
Kærurá
kærur ofan
Tvær veigamiklar kærur bíða
úrlausnar vegna keilumanna.
Önnur kæran, og sú eldri er frá
ÍR á hendur KR og mótanefnd
Keilusambandsins. Ástæða kær-
unnar er að ÍR-ingar eru ósáttir
við ákvörðun mótanefndar um
brautarskipan í einum leik í 1.
deild karla og síðari kæran er frá
einstaklingi sem er óánægður
með með hvaða hætti íslands-
mót einstaklinga var auglýst.
Keppni í 1. deild karla er lokið
og úrslitakeppnin er í gangi. Fari
svo að ÍR-ingar vinni sitt kæru-
mál verður það til þess að úr-
slitakeppni 1. deildar er ómerk,
þar sem KR myndi þá tapa deild-
armeistaratitlinum, sem félagið
vann í fyrsta sinn á dögunum.
Sama má segja varðandi seinni
kæruna. Sigri kærandinn þýðir
það að íslandsmót einstaklinga
er marklaust og verður þá vænt-
anlega spilað að nýju.
Keilumenn, sumir alla vega,
hafa áhyggjur af þessari kæru-
gleði keilara. Eins og kemur fram
annars staðar í blaðinu eru flest-
ar kærurnar komnar frá skot-
manni, það er Carli J. Eiríkssyni.
Þannig vill til að Keilusambandið
og Skotsambandið deila með sér
skrifstofuherbergi í íþróttamið-
stöðinni. Hvort það hafi eitthvað
með kærugleðina að gera skal
ósagt látið. ■
Fylkirfær
liosstyrk
Þorsteinn Þorsteins'son, bak-
vörður í KR, hefur gengið til liðs
við Fylki. Þorsteinn hefur verið í
meistaraflokki KR síðustu ár án
þess að vinna sér fast sæti í lið-
inu. ■
Liverpool deildarbikarmeistarar
•Guðni
Bergsson átti
góða innkomu
•Tvö frábær mörk Steve McManaman í úrslitaleik deildarbikar-
keppninnar á Wembley í gær bundu enda á þriggja ára titlaleysi
Liverpool sem bar sigurorð á Bolton, 2-1. Guðni Bergsson kom
inn á sem varamaður á 68. mínútu leiksins og stóð sig vel, átti
meðal annars drjúgan þátt í marki Bolton.
Leikur liðanna var frábær
skemmtun og þrjú stórkostleg
mörk litu dagsins ljós áður en
honum lauk. Fyrstu deildar liðið
Bolton byrjaði af miklum krafti
gegn hinu gamalgróna stórveldi
og hefði hæglega getað verið
komið tveimur mörkum yfir áð-
ur en McManaman skoraði fyrir
Liverpool. Bæði mörk McMana-
man voru hans eign með húð og
hári. Fyrra markið skoraði hann
á 37. mínútu eftir mikinn einleik
þar sem hann sneri á fyrirliða
Bolton Alan Stubbs og hægri
bakvörðinn David Green áður en
hann skaut boltanum í netið
fram hjá markverðinum Keith
Branagan. Seinna mark
McManaman var enn þá fallegra
og er það mál enskra spark-
fræðinga að tignarlegri tilþrif
hafi varla sést á Wembley.
McManaman fór eins og svo oft
áður upp vinstri kantinn, hljóp
einn varnarmann af sér og sól-
aði tvo aðra áður en hann setti
boltann innanfótar í hornið
fjær. Branagan var með fingur á
knettinum en það dugði ekki til.
Eftir markið var hægri bakverði
Bolton umsvifalaust skipt út af
og inn á völlinn kom Guðni
Bergsson. Hann var ekki búinn
að vera lengi inn á þegar hann
setti mark sitt á leikinn svo um
munaði. Mínútu eftir að Guðni
kom til leiks skallaði hann bolt-
ann inn í vítateig Liverpool,
beint á höfuð Finnans Mixu Paat-
elainen, hann skallaði hann
áfram fyrir fætur Alan Thompson
sem sneri sér á punktinum og
þrumaði knettinum efst í mark-
hornið fram hjá David James
markverði Liverpool. Frábært
mark. Það sem eftir lifði leiks
sóttu bæði lið af krafti, en án ár-
angurs og Liverpooí fagnaði
fyrsta titli sínum frá 1992. ■