Helgarpósturinn - 03.04.1995, Side 18

Helgarpósturinn - 03.04.1995, Side 18
 Skák Margeir stóð fyrir sinu Það er þá ljóst að við Islend- ingar eigum tvo menn á milli- svæðamótunum í skák þar sem Margeir Pétursson náði 2. sæti á Norðurlandamótinu sem lauk um helgina. Áður hafði Helgi Áss Grétarsson náð þessu með heimsmeistaratitlinum síðasta ár. Þeir Heigi Ólafsson og Jóliann Hjartarson hristu af sér slenið í lokin og náðu inn í aukakeppni ásamt þeim Piu Cramling, Lars Bo Hansen, Jonathan Tisdall og Rune Djurhuus um sætið við nokkra aðra. Ólöf Kolbrún Harðardóttir, gjaldkeri í Langholtskirkju, vísar ummælum um fjárhagsstöðu kirkjunnar á bug Þetta er rökleysa og Róki hefur ekkert í höndunum •„Ég vil ekki ræöa þessi mál en ég get þó sagt aö séra Flóki Kristinsson kemur ekki nálægt fjárhagsmálum kirkjunnar," sagði Ólöf Kolbrún Harðardóttir, gjaldkeri í sóknarnefnd Langholtskirkju. „Flóki tekur engan þátt í að skipuleggja fjármálin og hann hefur ekki séð neina reikninga og hann hefur ekkert í höndun- um sem getur staðið undir þessum fullyrðingum. Þetta er hrein rökleysa og hann hefur ekki hugmynd um hvernig að þessu Var staðið í upphafi. Þó að kirkjan hafi ekki verið vígð fyrr en fyrir tíu árum er að- dragandinn miklu lengri.“ Ólöf vildi ekki tjá sig um gagnrýni Flóka á kaup safnað- arins á dýru hljóðveri. „Það var fyrir mína tíð sem gjaldkeri í sóknarnefndinni." Það staðfestu þó fleiri í sam- tölum við PÓSTINN að kirkjan stæði illa fjárhagslega en að- spurður um ummæli Flóka í síðasta MÁNUDAGSPÓSTI um valda- togstreitu milli sóknarnefnda Ólöf Kolbrún segirséra Flóka fara með rökleysu. og presta sagði séra Ragn- ar Fjalar Lárusson prófast- ur: „Valdastreita er ekki til staðar þar sem er gott samkomulag. Flóki er hæfileikaríkur að mörgu leyti en sjaldan veldur einn er tveir deila. Sjálf- sagt má túlka lögin á ýms- an hátt en sóknarprestur- inn á að stjórna því sem fram fer í kirkjunni en sóknarnefndin fer með þetta veraldlega vald. Fyrstu árin í Langholts- kirkju gengu mjög vel hjá Flóka en síðan fór að sker- ast í odda og ég veit ekki nákvæmlega hvað olli því. En ég mun reyna til hlítar að stuðla að því að þarna náist sættir, að presturinn komi til starfa og sóknarnefndin og sem flestir starfsmenn." ■ Ólafur Helgi Kjartansson SVSLUMA0UR Sýslumaður TÓK HEIÐAR Á BEINIÐ Mikil viðbrögð voru við frétt PÓSTSm síðastlið- inn fímmtudag um ásak- anir Heiðars Guðbrands- sonar, athugunarmanns snjóflóða í Súðavík. Heiðar hélt því fram að sveitarstjórinn, Sigríður Hrönn Elíasdóttir, hefði skellt á hann þegar hann hafí varað við þeirri hœttu sem byggð- in var í aðfaranótt 16. janáar, en fjórtán fórust í snjóflóðinu sem féll í morgunsárið. Sýslumað- ur, Ólafur Helgi Kjartans- son, kallaði Heiðar á sinn fund strax á fímmtudaginn en Ólafur Helgi sakaði Heiðar um að hafa brugðist skyldu sinni með því að láta hann ekki vita afhœtt- unni. Sigríður Hrönn staðhœfði að Heiðar hefði aldrei minnst á hœttuna við hana en viðurkenndi að hán hefði skellt á hann, en Heiðar segist hafa gert ráð fyrir að hún léti sýslumann vita. Súðvík- ingar lásu fréttina áður en PÓSTllRlNN barst vest- ur. Ljósrit afhenni var sent með faxi frá Sölu- miðstöð hraðfrystihús- anna í frystihúsið Frosta þar sem henni var svo dreift til starfsfólks. Er það mál manna að flest- ir Súðvíkingar hafí vercI fegnir að fá þessa um- rœðu upp á yfirborðið en alls konar kjaftasög- ur hafa gengið fyrir vestan um hvað raun- verulega gerðist nóttina fyrir snjóflóðið. Nú er bara beðið eftir skýrslu Almannavarna ríkisins og viðbragða dómsmála- ráðuneytisins vegna kröfu Hafsteins Númason- ar og fleiri aðstandenda þeirra sem létust um op- inbera rannsókn. ■ „Það er ekkert mál að slæda upp glugga á bílum og komast þannig inn, eða þá maður notar bara gler- skera og fer inn um afturrúðuna ef bíllinn er læstur." Sviðsett mynd • “Þetta er fínt sport, að brjótast inn í bíla. En ég er enginn krimmi, maður. Eitt laugardagskvöld, fyrir sirka tveimur mánuð- um, var ég á rölti með kunningja niðri í bæ, þegar það varð fyrir okkur einhver rosalegur bíll á stæði þarna rétt hjá miðbænum. Græjan var ólæst og áður en ég vissi af vorum við komnir inní hann og rifum geislaspilarann úr sambandi. Og daginn eftir vor- um við búnir að losa okkur við hann aftur. Við seldum hann bara. Það var upphafið að öllu saman.“ Sá sem talar er ungur mennta- skólapiltur sem blaðamaður hitti að máli og var hann beðinn að segja frá glæpaferli sínum. „Ég var í almennum mennta- skóla áður en verkfallið byrjaði og ætlaði að klára árið þar. En svo fór allt í hnút í skólanum og síðan þá hef ég legið með tærn- ar upp í loft á daginn. Ég byrjaði innbrotin um svipað leyti. Hvað átti maður að gera í þessu verk- falli? Svo leystist þetta, en ég fer ekki aftur í skólann.“ Raunveru- leikinn er þó oft lygilegri en skáldskapurinn og. heimilisað- stæður þessa unga pilts knýja hann tæpast til að vinna fyrir sér með bílainnbrotum. Hann kemur frá efnaðri miðstéttarfjöl- skyldu og ætti í raun, vegna fjár- hags foreldra sinna, ekki að þurfa að líða neinn skort. En af hverju, „maður“, eins og hann sjálfur myndi komast að orði? VERÐUR AÐ FÍKN „Þetta verður bara eins og einhver fíkn með tímanum. Maður verður algerlega stel- sjúkur og getur ekki hætt. Ég held að þetta sé minnst pening- anna vegna, maður, þó að mað- ur hafi haft dúndurlaun í þann tíma sem þetta stóð yfir. Þetta er bara fílingur. En svo verður „Það er ekkert mál að losa sig við stolnar græjur. Það vilja allir versla við mann, allt frá strákum á fyrsta bílnum upp í gamla leigubílstjóra.“ maður að hætta, því ef löggan kemst á slóðina myndu þeir klína á mig óteljandi innbrotum og foreldrar mínir myndu fríka út ef þeir kæmust að sannleik- anum. Ég mæli ekki með þessu við neinn annan. Ég held bara að bílainnbrot séu að komast í tísku núna, þessum strákum finnst þetta alveg geysilega töff. Þeir eru fífl að haida það. Ég er hættur þessu,“ segir hann núna en hvernig hófst þetta? „Fyrst vorum við nokkrir sam- an, sem keyrðum um á nóttunni og hirtum geislaspilara úr bíl- um. En eftir smástund varð maður alger atvinnumaður í fag- inu og þá fór ég að hafa hægar um mig. Núna vinnum við bara tveir saman. Það er ekkert mál að slæda upp glugga á bílum og komast þannig inn, eða þá mað- ur notar bara glerskera og fer inn um afturrúðuna ef bíllinn er læstur. Stundum er þjófavarnar- kerfi tengt við bílana en þá fer maður bara undir hann og klippir á vírana. Búið. En um daginn, þegar við vorum að brjótast inn í bíl um nótt, þá renndi löggan upp að hliðinni að bílnum. Þetta var á ljósum og við sátum alveg frosnir inni í bílnum sem við vorum að brjót- ast inn í. En þeir keyrðu bara framhjá og áttuðu sig engan veginn á því sem við vorum að gera. Þá var ég virkilega hræddur. En þeir spáðu ekkert í okkur og við lukum bara verkinu sem við höfðum byrj- að á þegar þeir voru farnir." ! MARKAÐUR HER- LENDIS FYRIR STOUN BILTÆKI „Það er ekkert mál að losa sig við stolnar græjur. Það vilja allir versla við mann, allt frá strákum á fyrsta bílnum upp í gamla leigubílstjóra. Stundum semur maður við kunningja sem fer í fyrirtæki með lista yfir tækin og þannig er hægt að losna við sjö til átta stykki í einu. En maður verður að fara bakdyraleiðir, maður yrði böstaður á staðnum ef maður gengi beina leið inn í fyrirtækið. Kunningjar manns díla tækjunum út fyrir mann og fá sölulaun í staðinn, segjum 1000 kall fyrir stykkið. Ef maður er rosalega desperat þá fer mað- ur í rússnesku togarana og selur sjómönnunum tæki. En þeir borga bara í vodka og ég er ekk- „En um daginn, þegar við vorum að brjótast inn í bíl um nótt, þá renndi löggan upp að hlið- inni að bílnum. Þetta var á Ijósum og við sátum alveg frosnir inni í bflnum sem við vorum að brjótast inn í.“ ert hrifinn af áfengi, eiginlega drekk ég ekki. Það er mikið skemmtilegra að leggja fyrir og komast til útlanda." Viðmælandi okkar hefur ný- tekið bílprófið og stefnir á bíla- kaup innan tíðar, en fjölskyldan mun fjármagna kaupin að hluta, grunlaus um glæpsamlega iðju sonarins. Hyggur hann á stolin hljómtæki í eigin farartæki? „Ertu brjáluð, manneskja? Ég myndi aldrei keyra um bæinn með stolið tæki í bílnum. Það eru bara nískupúkar sem keyra um með stolin tæki. Þetta er bara fólk sem tímir ekki að versla hljómtæki á löglegan hátt þó það muni bara nokkrum krónum. Aldrei myndi ég gera svona lagað. Þetta eru bara tóm- ir aumingjar að geta ekki versl- að í búðum eins og annað fólk.“B Helga Sigurjónsdóttir. Því er hald- ið tram að hún hyggist ganga til liðs við Framsóknarmenn eftir kosningar. Helga á leið í Framsókn? Átök Kvennalistakvenna á Reykjanesi og Helgu Sigurjóns- dóttur, bæjarfulltrúa listans í Kópavogi, hefa verið mikið til umræðu innan listans að undan- förnu. Helga hefur sem kunnugt er sagt skilið við listann og hafa flokkssystur hennar krafist þess að hún segði af sér stöðu bæjar- fulltrúa. Hún hefur hins vegar neitað því. Því er haldið fram núna að Helga sé á leiðinni tii liðs við Framsóknarmenn og til- kynning þar um komi eftir kosn- ingar. ■ Haraldur Johannessen fækkar fangavörðum. Fangavörð- um fækkað Fækkun blasir við hjá fanga- vörðum þar sem þremur þeirra hefur verið sagt upp nýlega. Þar á meðal er Björk Bjarkadóttir yfir- fangavörður. Ástæða uppsagn- anna er sparnaður en þó er gert ráð fyrir að viðkomandi verði hliðrað eitthvað til í starfi. Þetta kemur mörgum spánskt fyrir sjónir Mjósi atburðarins í síð- ustu viku þegar ráðist var á fangavörð. ■

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.