Helgarpósturinn - 06.07.1995, Blaðsíða 10
Von er á tveim-
ur mönnum
frá fyrirtæk-
inu Newman’s Own
hingað til lands til að
veita fjórum íslensk-
um félagasamtökum
rúmlega fimm millj-
óna króna styrk.
Karl K. Karlsson er
umboðsaðili fyrir-
tækisins á íslandi en
eigandi þess er
megastjarnan Paul
Newman. New-
man’s Own gefur all-
an hagnað sinn til
góðgerðarmála og
hafa íslensk félög
hlotið um það bil 18
milljónir króna í
styrk síðustu fimm
árin. Tilkynnt verður
hver félagasamtökin
fjögur eru við hátíð-
lega athöfn í Listhús-
inu í Laugardal á
sunnudaginn...
Hjón í Hafnarfirði töpuðu skuldlausri íbúð vegna
vanrækslu Valgeirs Kristinssonar og Sveins
Sigurjónssonar, eigenda fasteignasölunnar
Valhúsa sf. Þau seldu íbúðina í makaskiptum fyrir
einbýlishús og verða föst í skuldafeni þeirra viðskipta
fram eftir næstu öld. Líf þeirra hefur verið martröð
líkast frá undirritun kaupsamningsins fyrir átta árum.
Björgunarsveitin Fiskaklettur hyggst kæra Valhús sf.
vegna sams konar viðskiptahátta
Valgeir Kristinsson hrl., löggilt-
ur fasteignasali og annar eig-
enda Valhúsa sf. Halldór Viðar
Halldórsson segir hann hafa
séð um gerð kaupsamningsins
sem varð þess valdandi að
hann tapaði milljónum króna.
Valgeir neitaði fyrir dómi vitn-
eskju um vandræði viðskipta-
vina sinna fyrr en með bréfi
lögmanns stefnenda í apríl árið
1994. Samt hafði hann gert
kröfu um fjárnám í Grænukinn
27 en talið er að fjárnámið hafi
verið dómskuld vegna víxils
fyrir sölulaunum til Valhúsa sf.
vegna Vallarbarðs 19.
4
I
4
4
4
4
Eigendur fasteignasölunnar
Valhúsa sf. í Hafnarfirði, þeir Val-
geir Kristinsson, hæstaréttarlög-
maður og löggiltur fasteignasali,
og Sveinn Sigurjónsson sölustjóri
voru á dögunum fundnir sekir
fyrir Héraðsdómi Reykjaness um
„vávæna vanrækslu" í fasteigna-
viðskiptum, eins og komist var
að orði í dómnum. Féllst dómur-
inn á allar megin kröfur stefn-
enda í málinu, hjónanna Halldórs
Viðars Halldórssonar og Auðar
Gísladóttur, en þau töpuðu millj-
ónum króna vegna viðskipta
sinna við fasteignasöluna. Val-
geiri og Sveini var gert að greiða
þeim tæpar 3,7 milljónir króna
með almennum vöxtum frá 6.
september 1990 til 6. september
1994, auk dráttarvaxta frá 6.
september í fyrra til greiðslu-
dags og 500.000 krónur í máls-
kostnað. Þetta er þó ekki nema
brot af því fjárhagstjóni sem
Halldór og Auður urðu fyrir
vegna fjármagnskostnaðar sem
ekki var tekið tillit til við úrskurð
dómsins.
Þeir viðskiptahættir sem Val-
hús sf. viðhafði í þessum við-
skiptum virðast ekki vera eins-
dæmi í sögu fasteignasölunnar
því Björgunarsveitin Fiskaklett-
ur hyggst stefna Valhúsum sf.
vegna svipaðs ágreinings sem
kom upp vegna kaupa sveitar-
innar árið 1992 á sjóbúð að Forn-
búð 8 í Hafnarfirði.
fasteignir á skrifstofu Valhúsa sf.
að Reykjavíkurvegi 62, Hafnar-
firði. Halldór og Auður áttu
gamla íbúð í tvíbýlishúsi að
Grænukinn 27 Hafnarfirði og var
hún nær skuldlaus með aðeins
47.667 krónum í áhvílandi veð-
um. Á þessum tíma var Kristinn
Grétar Jónasson að byggja einbýl-
ishús að Vallarbarði 19 Hafnar-
firði en var kominn í greiðsluerf-
iðleika og leitaði því til Valhúsa
sf. með sölu eða makaskipti á
ódýrari eign í huga. Halldór og
Auður fengu augastað á húsi
Kristins og töldu þau að fengn-
um upplýsingum og leiðbeining-
um á skrifstofu Valhúsa sf. við-
ráðanlegt og hentugt að kaupa
húsið. íbúð þeirra við Grænu-
kinn gengi upp í útborgunina og
það sem á vantaði greiddu þau
með yfirtöku veðskulda.
Bygging einbýlishússins var
vel á veg komin en eftir var að
ganga frá tréverki innanhúss.
Hugðist Halldór sjá um þær
framkvæmdir sjálfur en hann er
trésmiður að mennt.
VILLANDI UPP-
LYSIIUGAR OG
LEHDBEIIUIIUGAR
Fasteignaviðskiptin, sem dóm-
urinn er nýgenginn í, áttu sér
stað árið 1987 en 13. júlí það ár
komust á makaskipti um tvær
VtÐSKIPTIIU
VORU GLAPRÆÐI
Sama dag og gengið var frá
kaupsamningnum var gefið út af-
sal, þar eð kaupverðið var að
fullu greitt, og fékk Kristinn veð-
leyfi hjá Halldóri og Auði fyrir
allt að 2000.000 króna til að flytja
lánin, sem þau yfirtóku ekki við
kaupin á Vallarbarði 19, á íbúð-
ina við Grænukinn 27. Við samn-
ingsgerðina hafði fasteignasalan
framreiknað þær skuldir sem
hjónin yfirtóku en lét hjá líða að
framreikna þau lán er Kristinn
hugðist flytja með sér við maka-
skiptin og reikna út veðhæfi
íbúðarinnar. Fullvíst má telja að
ef fulltrúi Valhúsa sf. hefði hirt
um að gefa gaum að veðhæfi
íbúðarinnar, í hlutfalli við fyrir-
hugaðan veðflutning, að fast-
eignasölunni sem og hjónunum
og Kristni hefði verið Ijóst að
viðskiptin voru glapræði.
íbúðin að Grænukinn 27 var
metin á 3 milljónir króna við
kaupsamninginn en lánin sem
Kristinn hugðist flytja voru kr.
1.889.478 miðað við útgáfudag.
Lánastofnanir samþykkja nær
undantekningarlaust ekki veð í
fasteignum fyrir meira en 50-60
prósent af gangverði þeirra og
því er ljóst að veðhæfi íbúðar-
innar að Grænukinn 27 var rúm-
lega ein og háif milljón króna eða
tæpum 400.000 krónum minni en
lánin sem Kristinn hugðist flytja
ef miðað er við útgáfudag þeirra.
Ef þessi lán eru hinsvegar fram-
reiknuð til dagsetningar kaup-
samningsins 13. júlí árið 1987
losuðu þau þá rúmar 3 milljónir
króna, eða meira en verðgildi
íbúðarinnar var á þeim tíma.
Lánin sem Kristinn hugðist flytja
voru því rösklega einni og hálfri
milljón króna hærri en veðhæfi
hennar sagði til um samkvæmt
gangverði hennar. Engu að síður
gerði fasteignasalinn engar at-
hugasemdir við þetta við gerð
kaupsamningsins.
BAÐAR IBUÐIRIUAR A
lUAUÐUNGARUPPBOÐ
Kristni tókst einungis að fá
veð fyrir rúmlega einni og hálfri
milljón króna á íbúðinni að
Grænukinn 27 en stóð ekki við
þau orð sín að flytja allar veð-
skuldir sínar af Vaílarbarði 19.
Sagðist hann eiga von á arfi þeg-
ar þau Halldór og Auður gengu á
eftir að hann stæði við skuld-
bindingar sínar en þegar tilkom
var ekkert hæft í þeim sögu-
sögnum. Hjónin stefndu því
Kristni fyrir héraðsdómi og
unnu málið en hann var ekki
borgunarmaður fyrir kröfunni
og var síðar lýstur gjaldþrota.
íbúðin að Grænukinn 27 fór á
nauðungaruppboð í nóvember
árið 1990 en Halldór og Auður
fengu ekkert í sinn hlut vegna
sölu hennar. Sjálf misstu þau
einbýlishúsið Vallarbarð 19 á
nauðungaruppboði mánuði síð-
ar en tókst að kaupa það aftur
með hjálp vandamanna sinna. í
áliti Héraðsdóms Reykjaness
vegna málsins gegn Vaihúsum
segir meðal annars að Halidór
Viðar hafi ítrekað leitað til Val-
húsa þegar vanefnda Kristins
um afléttingu veðskulda af Vall-
arbarði 19 fór að gæta. Þeim Val-
geiri og Sveini mátti þá augljóst
vera að stefndi í óefni en þeir
hafi ekki gripið til neinna raun-
hæfra aðgerða í samræmi við þá
skyldu fasteignasala að leysa úr
ágreiningi og öðrum vandkvæð-
um sem eiga beinlínis rót sína í
samningi þeim sem fasteignasali
hefur komið á.
Dómurinn vísaði á bug þeirri
málsvörn Valgeirs og Sveins að
þeir hafi ekki verið látnir fylgjast
með málinu. Rökstuddi hann
það álit sitt með tilvísun til
kröfu um fjárnám í Grænukinn
27 sem Valgeir gerði fyrir hönd
íslandsbanka en Halldór og Auð-
ur héldu því fram að sú krafa
hafi verið dómskuld vegna víxils
fyrir sölulaunum til Valhúsa sf.
þegar Kristinn seldi þeim Vallar-
barð 19.
lyilSTOK upp
A10 MILUONIR
„Þetta er búin að vera löng og
ströng þrautarganga sem hófst
skömmu eftir að við gerðum
rnakaskiptin," segir Halldór Við-
ar Halldórsson. „Næstu árin fóru
síðan í að redda eigninni frá
nauðungaruppboðum og þannig
hefur það verið alveg fram til
dagsins í dag. Við erum ekki laus
allra mála þótt dómur hafi geng- Q
ið í málinu því við erum búin að
taka svo mörg lán til að halda
þessu gangandi, nú síðast skuld- £
breytingalán og þar á undan hús-
bréf upp á 5 milljónir.
Halldór segir að sér sé ekki að
fullu ljóst hver kostnaður hans
og Auðar hefur verið vegna við-
skipta þeirra við Valhús sf. f
„Mér hefur ekki tekist að koma
því öllu saman, maður er búinn
að borga svo mikið hér og þar.
Þessar 5 milljónir voru Ián sem
ég var búinn að skuldbreyta en
gat ekki staðið í skilum við. Við
misstum húsið um tíma og ég
fékk þá þessa peninga til að
kaupa það aftur af Skandía sem
hafði eignast það vegna þess að
við gátum ekki staðið við skuld-
bindingar okkar. Ég væri ekkert
hissa ef kostnaður okkar stæði í
10 milljónum þegar þetta er allt
talið saman en bæturnar sem |
Valhúsum var dæmt til að greiða
eru ekki meira en fjórar og hálf
milljón króna með vöxtum. á|
Þessi sala hefði náttúrlega
aldrei átt að fara fram, segir Hall-
dór. Það var kannski minn kjána-
skapur að gera mér ekki grein
fyrir því. Maður treysti fast-
eignasölunni fyrir að þetta væru ||
eðlileg viðskipti því maður er
enginn sérfræðingur í þessu.“