Helgarpósturinn - 31.07.1995, Blaðsíða 10

Helgarpósturinn - 31.07.1995, Blaðsíða 10
Kvennaráöstefnan í Kína Ifesen með vegabréfsárítun Kvennaráðstefnan í Kína virðist ætla að verða mikill farsi. Það nýjasta er að kínversk stjórnvöld draga mjög lappirnar við að veita þeim sem ætla að sækja ráðstefnu frjálsra félaga- samtaka í Huairou vegabréfsáritun. Til að fá stimpil í vegabréfin þurfa konurnar fyrst að hafa undir höndum staðfestingu á að þær fái inni á hótel- um. Gallinn er hins vegar sá að þegar aðeins er mánuður þar til ráðstefnan á að hefjast hefur fjöldinn allur af konum um allan heim enn ekki fengið staðfestingu á að þær hafi gistirými í Kína. Þetta kemur sér sérstaklega illa fyr- ir konur sem búa í löndum þar sem ekkert kínverskt sendiráð er. Þegar þær fá staðfestingu frá hótelum verða þær því að senda hana ásamt vegabréfinu sínu til Kína og bíða þess að fá vegabréfið endursent með árit- un. Þær sem enn hafa ekki fengið staðfestingu geta því í raun gleymt ráðstefnunni, því engar líkur eru til að hinu illa smurða ríkisbákni í Kína takist að afgreiða vegabréf þeirra á þeim skamma tíma sem er til stefnu. Grunsemdir hafa vaknað um að þessi einkennilegheit Kínverjanna séu í raun ekkert annað en aðferð þeirra til að halda þeim frá Kína sem þeir vilji síst sjá spóka sig þar um stræti. ■ Díana prinsessa hefur ekki TJÁÐ SIG UM BÓK FYRRVERANDI RÁÐSKONU SINNAR. Kalli alls EKKI KÁTUR Talsmaður bresku hirð- arinnar segir að Karl Bretaprins muni neyta allra bragða til að tryggja að fyrrverandi ráðskona hans og Díönu, Wendy Berry, hagnist ekki á nýútkominni bók henn- ar um árin í þjónustu hinna konunglegu hjóna. Wendy var ráðskona á sveitasetri hjónakorn- anna frá 1985 til 1993 og kann því ábyggilega frá ýmsu að segja frá síðustu hjúskaparárunum. Bókin, Dagbók ráðskonu, kom út í Bandaríkjunum á föstudag og kaflar úr henni munu birtast í gleðiblaðinu Star á nœst- unni. Talsmaður hirðar- innar sagði að Karl prins hefði ekki gluggað í bók- ina og hygðist ekki gera það. Það vœri hins vegar Ijóst að Wendy hefði skrifað undir yfirlýsingu um fullan trúnað við húsbœndur sína og fyrir lœgi hœstaréttardómur um að efhjú brytu slíkan eið mœtti sekta þau um dágóða upphœð. Tals- maðurinn vildi hins veg- ar ekki segja nákvœm- lega til hvaða aðgerða Karl hygðist grípa. ■ Bombay VERÐUR Mumbai 77/ að uppfylla kosn- ingaloforð sitt hafa stjórnvöld í Mahar- ashtra-héraði á Indlandi ákveðið að breyta nafni borgarinnar Bombay t Mumbai. Með þessu telja þau sig vera að útmá arfleifð nýlendutímans, en fískimenn kölluðu þorpið, þar sem Bombay reis síðar, Mumbai fyrir um 400 árum þegar Portúgalar afsöluðu sér svœðinu til Englendinga. Nafnbreytingin verður þó ekkiýkja áberandi. Hugmyndin er að notast áfram við Bombay-nafn- ið, enda borgin œði vel kynnt og öflugasta við- skiptaborg Indlands. Mumbai-nafnið verður því meira til heimanota fyrir eldheita þjóðernis- sinna í Maharashtra. ■ ■■ mmm mnvi mnp ivvnh ,.nvpv nvvn mvvi vvm ■npi nvrvh. ivnvv vsvp vvvvv, vvvvv ivvvv vvvvv vvpv vppv vpp l!Morðinginn Leon Bor sem drap tvo í rútu í Þýskalandi ísraelski sendiherrann í Þýskalandi sagði í gær að svo virtist sem Leon Bor, sem drap tvo gísla í rútu í Köln á föstudag, hefði áður drepið fólk og myndað það. Sendiherrann, Avi Primor, sagði í viðtali við ísraelska útvarpið að þýska lögreglan væri að kanna tengsl Bors við önnur morð og að fundist hefðu Ijósmyndir í fór- um hans af myrtu fólki með árituðum skilaboðum frá Bor. Primor sagði að líklegast væri að þessar myndir hefðu verið teknar Bandaríkjunum frekar en ísrael, en Bor dvaldi í Bandaríkjunum í júní síðastliðnum áður en hann fór til Amsterdam. „Hann virðist hafa myrt fólk áð- ur, skemmt sér við að misþyrma líkunum og myndað þau í bak og fyrir,“ sagði Primor sendiherra í viðtalinu. „Það lítur út fyrir að þetta hafi ekki gerst í ísrael, hugs- anlega í Bandaríkjunum, en eng- inn veit það með vissu,“ bætti hann við. Samkvæmt ísraelskum lög- er Leon Bor með sakavottorð. Hann kom til árið 1989 og virtist Iifa lífi í úthverfi Tel Aviv. gerðist ísraelskur ríkisborg- en flutti síðan til Bandaríkj- árið 1993. SALSJÚKUR SADISTI Talsmenn jjýsku lögreglunnar segjast enn ekki geta gert sér í hugarlund hvað fékk Bor til að fremja ódæðið. Þeir segja ein- vörðungu að maðurinn hafi auð- sjáanlega verið sálsjúkur sadisti sem skaut fórnarlömb sín af stuttu færi í hnakkann og tók síð- an polaroid-myndir af þeim. „Hann var algjör sadisti sem naut þess að drepa," segir Karl Ut- erman, saksóknari í Köln, við blaðamenn og sagðist trúa því að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem Bor hefði myrt. Til að ákvarða hver ætti að lifa og hver deyja gekk Bor eftir rút- unni og spurði gíslana, sem voru með bundið fyrir augun, hvaðan þeir væru. „Þegar ein konan sagðist vera þýsk skaut hann hana umsvifalaust,“ segir lögregluforinginn Win- rich Granitzka. Bor skaut konuna þremur skotum í brjóstkassa og kviðar- hol og skaut síðan fjórða skotinu í hnakka hennar. Síðan dundaði hann sér við að mynda líkið í bak og fyrir. Aðeins stuttu síðar tókst sérsveit lögregl- unnar að ráðast inn í rútuna undir því yfir- skyni að færa ætti Bor farsíma. Sveitin skaut Hans Buchner bjargar ser a flotta eftir um tuttugu skotum og stokkið í veg fyrir skothríð til að bjarga hæfðu þrjú þeirra Bor, ára dreng. sem lést samstundis. Leon Bor, fæddur Leonid Bors- hevski, fluttist frá Rússlandi til ísraels árið 1989. Nú er hann ekki einvörðungu grunaður um að hafa myrt tvo í rútunni í Köln og sært aðra, heidur er talið að hann hafi myrt fúlk áður. Enginn veit hvar eða hversu marga. STÖKK Í.VEG FYRIR SKOTHRIÐINA Bor breytti því sem farþegarnir gerðu ráð fyrir að yrði rólyndisleg útsýnisferð um Köln í helvíti þeg- ar hann vék sér að bílstjóranum og skaut hann í hnakkann, að því er virtist án nokkurrar ástæðu eða fyrirvara. Hann setti síðan á sig skíðahúfu og límdi það sem farþegarnir töldu vera dínamíttúpur við lík- amann, en sem síðan reyndust vera trékubbar. Fimm farþegum tókst að flýja rútuna á þeim sjö tímum sem lög- reglan sat um hana. 34 ára kona slapp þegar Bor sendi hana að ná í tösku sína í farangursrými rút- unnar. 69 ára manni og 32 ára konu tókst einnig að sleppa stuttu eftir að Bor skaut bílstjórann. Synir konunnar sem Bor sendi eftir farangrinum urðu hins vegar eftir í rútunni, annar 11 ára, hinn 12 ára. Þeir ákváðu að freista þess að sleppa eftir að móðir þeirra hvarf á brott. Sá ellefu ára hljóp aftur eftir rútunni, braut aftur- gluggann og stökk út í frelsið. Það sem varð honum til lífs var að Hans Buchner, 53 ára Austurríkis- maður, stóð upp og stökk í veg fyrir skotin sem Bor lét rigna á eft- ir drengnum. MISÞYRMDI DRENGNUM Buchner særðist illa en tókst samt að flýja sömu leið og dreng- urinn. Hann lét sig falla út um aft- urgluggann helsærður og var bjargað af lögregluþjónum. Á laugardag var orðið ljóst að hann myndi ná sér af sárum sínum. Eftir þetta réðst Bor að eldri bróðurnum og misþyrmdi hon- um. Stuttu eftir að Bor skaut bíl- stjórann kom lögreglumaður upp að rútunni til að aðgæta hvað gengi á. Bor skaut hann í magann. Lögregluþjónninn er nú á bata- vegi. Farþegarnir segja að Bor hafi eitthvað talað um rússnesku mafí- una en enn er allt á huidu um hvað manninum gekk til eða hvaða geðveiki greip hann. ■ I 78 ára kona í bílprófi Bakkaði yfir son sinn og drap hann 78 ára Ijömul kona í Illinois í Bandaríkjunum varð fyrir þeirri sáru reynslu þegar hún var að taka bílpróf að bakka yfir son sinn og drepa hann. Margaret Brown var í endur- upptökuprófi vegna aldurs og ökukennarinn var að leiðbeina henni um notkun stefnuljósa. Margaret var hins vegar eitthvað trekkt og setti bílinn í bakkgír í stað þess að gefa stefnuljós til hægri. James, 46 ára sonur henn- ar, reyndi að stöðva bifreiðina með þeim afleiðingum að hann varð undir henni og lést. Bíllinn stöðvaðist hins vegar ekki fyrr en hann hafði lent á tveimur kyrrstæðum bílum. Margaret fékk ökuskírteinið ekki endurnýjað. ■ Fyrrverandi eigin- maður Susan Smith Vildi hana í stólinn Fyrrverandi eiginmaður Susan Smith og faðir barnanna tveggja sem hún myrti er ósáttur við að kviðdómur skyldi ekki dæma hana til lífláts í rafmagnsstóln- um. „Ég og fjölskylda mín urðum fyrir vonbrigðum með að niður- staða kviðdómsins varð lífstíðar- fangelsi í stað dauðadóms," sagði hann þegar hann gekk út úr dómsalnum. „En við gerum okkur grein fyrir að það er ekki okkar að ákvarða refsingu henn- ar.“ Eiginmaðurinn fyrrverandi sagði að hann myndi aldrei gleyma því sem Susan gerði, hann myndi aldrei gleyma son- um sínum tveimur en hann vissi að hann yrði einhvern tímann að læra að fyrirgefa Susan. „En ak- kúrat núna get ég ekki séð fyrir mér að ég hitti Susan aftur,“ bætti hann við. ■ Samtök starfsfólks í kynlífsiðnaði Mellur mega vera meö Nýstofnuð samtök starfsfólks í kynlífsiðnaði hafa boðið vændis- konum landsins að ganga til liðs við þetta ört vaxandi stéttarfé- Iag. Um 30 þúsund manns eru meðlimir í samtökunum, sem berjast fyrir hag sinna félags- manna en ekki síður viðskipta- vinarins. Þannig hafa samtökin sett strangar reglur um ofbeldi í kynlífsleikjum. Ein reglan segir að vændiskonum sé ekki heimilt að nota handjárn sem taki lengri tíma að opna en þrjátíu sekúnd- ur. ■

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.