Helgarpósturinn - 31.07.1995, Síða 16

Helgarpósturinn - 31.07.1995, Síða 16
ÍÞRÓTTIR 3 Æ annarra Góðvinur minn einn, sem á að baki langan feril i boltanum, hafði brugðið sér á leik Breiðabliks og ÍA. Eftir leik hafði hann samband og lýsti því yfir að fram- vegis færi hann aðeins á völlinn þegar hann væri að spila sjálfur. Fannst honum íslenski boltinn í mikilli lægð og alls ekki þesslegur að laða að áhorfendur. Ég heyri svipaðan tón h]á flestum þeim sem hafa fylgst með þróun íslensku knattspyrnunnar á undan- förnum árum. Að loknu þessu tímabili verður knattspyrnufor- ystan ásamt félögunum að setjast niður og leita leiða til úrbóta. Hvað sjálfan leikinn varðar finnst mér að ákveðnum grundvallaratriðum sé mjög ábótavant. Þar má nefna þríhyrn- ingsspil, sem er eitt beitt- asta vopnið í að brjóta upp varnarleik andstæð- inganna er lítið sem ekk- ert notað í deildinni. Svo virðist sem íslenskir þjálf- arar feti ekki í fótspor kollega í Evrópu sem Önnur lið sigla að mestu lygnan sjó og vegna for- skots Skaga- manna, sem vinna leiki sumarsins fyrirhafnarlítið, ná þau ekki upp al- mennifegum metn- aði. „Eg er mjög hissa á því hvernig hægt er að halda Davíð Garðarssyni utan við þetta lið.“ leggja mikið upp úr æfing- um tengdum þríhyrnings- spili. Fyrirgjafir eru oft slak- ar, leikmenn kannski bún- ir að leika upp að enda- mörkum, misheppnuð fyr- irgjöf og andstæðingnum færður upp í hendurnar möguleiki á hraðaupp- hlaupi. Skot á mark- og skallatækni er mjög ábótavant. Oftar en ekki sér maður upplögð skot- færi enda út við hornfána og góð skallafæri fara víðsfjarri marki. Þetta eru allt atriði sem þarf að æfa mjög reglu- lega og óttast ég að marg- ir þjálfarar séu ekki með réttar áherslur miðað við leik liða þeirra. Svo við víkjum aftur að baráttunni í 1. deild þá blasir við, að loknum leikjum 10. umferðar, harður fallslagur. ÍBV tók sig loks á og vann fyrsta útisigurinn í langan tíma. Fórnarlambið var Valur, sem eftir uppsveiflutíma- bil missti algerlega takt- inn og virðist ekki líklegt til að ná sér á strik. Ég er mjög hissa á því hvernig hægt er að halda Daviö Garðarssyni utan við þetta lið. Botnslagurinn ætlar að verða uppgjör milli Fram, Vals og FH. Þá er mögu- leiki að Breiðablik blandi sér í þá baráttu. FH sýndi á köflum gegn KR stór- skemmtilega takta og bar- áttan var góð. Á ég því einna helst von á að FH slíti sig frá gömlu Reykja- víkurrisunum. Gengi Fram er umhugs- unarvert. Liðið er með góðan mannskap sem ekki nær saman. Nú er að duga eða drepast hjá þeim að ná upp stemmn- ingu í næstu þremur leikj- um ef ekki á illa að fara. Ákveðnir leikmenn inn- an liðsins leika langt und- ir getu og virðist sem nýju leikmennirnir falli alls ekki að leikstíl liðsins. Önnur lið sigla að mestu lygnan sjó og vegna forskots Skaga- manna, sem vinna leiki sumarsins fyrirhafnarlít- ið, ná þau ekki upp al- mennilegum metnaði. ■ MatllÉs ú1 leik? Svo gæti farið að hinn snjalli leikmaður Bayern Múnchen, Lot- har Mattháus, verði að hætta að spila fótbolta eftir sextán ára fer- il sem atvinnumaður. Mattháus er 34 ára gamall og því gætu meiðslin sem hann á í leitt til þess að hann hætti. Hann hefur verið meiddur frá áramótum, en vonir stóðu til að hann gæti leik- ið með liðinu frá byrjun þessa tímabils en Bundesligan hefst 12. ágúst. Læknar telja ólíklegt að Lothar spili næstu sex mán- uðina og Lothar telur sjálfur að þetta séu erfiðustu meiðsl sem hann hefur átt í, því jafnvel þótt læknavísindin geti hjálpað til með flest þá sé hann svo gamall að það taki hann einfaldlega of langan tíma að jafna sig. Mattháus átti í vandræðum með hásin og sjálfur segist Mattháus ekki viss um að hann spili í Bundesligunni aftur. Fari svo að Mattháus leggi skóna á hilluna er hætt við þjóð- arsorg í Þýskalandi. Mattháus er dáður í heimalandi sínu og al- mennt talinn besti knattspyrnu- maður sinnar kynslóðar. Þjóð- verjar telja einungis einn leik- mann þýskan hafa verið betri, en það er Franz Beckenbauer, — keis- arinn. Þeir eru um margt líkir leik- menn og báðir hafa verið fyrirlið- ar heimsmeistara- liðs Þjóðverja. Mattháus á að baki fleiri landsleiki en Beckenbauer, 122 á móti 103. Mattháus, fyrrverandi knat- spyrnumaður árs- ins í Evrópu, segir að leikurinn sé orð- inn hraðari og Lothar MatthÖUS harðari og krafan liösins. um sigur öllu yfirsterkari, tækling- ar séu að verða grófari og grófari og þessi gríðarlega pressa sem sett er á líkamann verði til þess að leikmenn hætti fyrr en ella. Otto Rehagel, hinn nýi framkvæmda- , fyrrverandi fyrirliði þýska lands- stjóri Bayern, hefur þó ekki gefið upp alla von og segist ekki trúa því að Mattháus gefist upp fyrr en í fulla hnefana og vonast til að hann geti byrjað að leika með lið- inu um áramót. ■ PGolfleikarinn John Daly var taugaveiklaöur drykkju- sjúklingur sem drakk romm og skolaði því niður með dósabjór. Þessi lífsmáti hent- aði vitanlega ekki atvinnu- golfleikara svo Daly tók sig saman í andlitinu og hætti að drekka. „Líf mitt var búið að vera hræðilegt í mörg ár. Ég komst ekki í gang á morgnana nema fá mér áfengi," segir Daly. „Það hjálpaði ekici að ég gekk í gegn- um tvo skilnaði á þessu tíma- bili. Ég var eins langt niðri og hægt er að hugsa sér og fann hvergi huggun nema í flösk- unni og reyndar á golfvellinum líka.“ Árið 1987 ók hann um gjör- völl Bandaríkin í húsbíl sínum og reyndi að framfleyta sér með því að stunda áhugamál sitt — golfíþróttina. Árangur- inn lét á sér standa þar til árið 1991 að Daly bauðst þátttaka sem varamaður á Opna banda- ríska meistaramótinu og vann. Þrátt fyrir þennan glæsta sigur hélt Daly drykkjunni Dagskammtur Dalys I , SVðORGUNWlATUR Hafragrautur með sírópi, steiktar kartöflur og egg 2. Hádeossmatur Ostborgarar og súkkulaðikökur 3. Nasl á golfvellinum Tíu súkkulaðistykki 4. Nasl á rótelinu Hellingur af muffins-kökum, M&M-súkkulaði, rjómakökur og súkkulaðijógurt 5. Kvöldmatur Tvær T-beinsteikur, franskar kartöflur og súkku- laðiís 6. ÖBYKKtR Fimmtán til tuttugu sykurlausar kók 7. Tóbak Fimm pakkar af Marlboro áfram og þambaði nú romm og viskí af endurnýjuðum þrótti. HÆTTIR AO DREKKA 0G SIGRAR A OPNA BRESKA En rétt fyrir jólin árið 1992 er Daly búinn að fá sig fullsaddan af brennivíni og afræður að fara í afvötnun. Honum tókst ætlunin og hefur ekki drukkið síðan. Árangurinn á golfvellin um hefur farið síbatnandi og ferill Dalys fram að þessu náði hámarki þegar hann sigraði á Opna breska meistaramótinu fyrir skemmstu. En þrátt fyrir að Daly hafi hætt að drekka neitar hann sér ekki um ýmsar aðrar lysti- semdir og segja má með sanni að hann borði eins og svín og reyki á við austur-evrópskt smáríki fyrir fall járntjaldsins. Daly reykir fimm pakka af síg- arettum á hverjum degi, sem hlýtur að teljast undravert, því ef menn skoða listann hér til hliðar af matseðli Dalys sést að varla gefst mikill tími til reykinga. Eins og sést á matseðlinum drekkur Daly bara sykurlaust gos því eins og hann segir sjálfur: „Maður verður að passa upp á vigtina." ■ John Daly er hættur að drekka en borðar eins og svín John Daly er á síðasta gati á beltinu.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.