Helgarpósturinn - 24.08.1995, Side 2
2
PÓsturinn
Útgefandi:
Miðill hf.
Ritstjóri:
Sigurdur Már Jónsson
Framkvæmdastjóri:
Kristinn Albertsson
Auglýsingastjóri:
Öm Isleifsson
Setning og umbrot:
Morgunpósturinn
Filmuvinnsla og prentun:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Leiðari
í úttekt í blaðinu í
dag má lesa um það
hvernig góð-
mennska samfélags-
ins hefur eyðilagt
heilu kynslóðirnar.
Með því að breiða
náðarfaðm félags-
kerfisins yfir fólk
sem á í tímabundn-
um erfiðleikum
sviptum við fólkið
lífskraftinum. Það el-
ur síðan börn sín
upp til að verða „fé-
lagslegir kerfisfræð-
ingar“ sem sjá þá
einu möguleika sem
í félagskerfinu felast.
Þetta allt saman veit
starfsfólk kerfisins
sem daglega glímir
við þessi mál. Það
þorir hins vegar ekki
að tjá sig um þau
nema undir nafn-
leynd. Þetta eru
nefnilega skoðanir
sem ekki má hafa
uppi. Það verður að
halda áfram að
bjarga fólki í tíma-
bundnum erfiðleik-
um og skapa þannig
langvarandi vanda-
mál. Þessi peninga-
austur hættir síðan
að verða í neinum
tengslum við raun-
veruleikann. Alltaf
má finna einhverja
sem má gera betur
við og þurfa á að-
stoð að halda. Um
leið fjölgar þeim sem
ekki fá aðstoð vegna
mistaka starfsmanna
kerfisins sem aldrei
sjá út yfir vandann.
Pásturinn
Vesturgötu 2, Reykjavík
sími 552-2211
fax 552-2311
Bein númer:
Ritstjóm: 552-4666
símbréf: 552-2243
Tæknideild: 552-4777
Auglýsingadeild: 552-4888
símbréf: 552-2241
Dreifing: 552-4999
Fréttaskotið: 552-1900
Smáauglýsingar: 552-5577
HelgarPósturinn kostar 250 kr.
Áskrift er 800 kr. á mánuði
ef greitt er með greiðslukorti
en 900 kr. annars.
llppleið/niðurleSð
Ólafur Tómasson,
Póst- og símamálastjóri,
stekkur úr öskustónni og
beint á toppinn. Eftir hringl
fram og til baka meö símaskrána
er hann hættur að hlusta á ráðvillta
ráðgjafa sína. Þess í stað ætlar
hann að taka mark á símnotendum
og stefna gulu og bláu skránni
I eina græna og væna.
Helgi Hjörvar, framkvæmdastjóri Blindrafélagsins, er á hröðu flugi
upp á við en honum tókst að slá I gegn í hugvekju Sjónvarpsins síðastliðinn
sunnudag, af öllum stöðum. Æðstipresturinn I Efstaleiti hefur sjaldan verið
gerður jafnhlálegur opinberlega af öðrum en sjálfum sér og þá í óskastund-
inni hans, af öllum stöðum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri er á uppleið. Nú stefnir í að
hallinn á borgarsjóði verði „aðeins" einn
milljarður króna í ár en það er miklu
minna en gamla meirihlutanum
'tókst að eyða á ári á síðast
liðnum fimm árum.
Hallgrímur
Helgason
eftir að hafa slegið ráeki-
lega í gegn i sumar. Hall-
grímur héfur fyljt Kaffileik-
rð þrisvar sinnum þar
sem hann hefur
farið með gamanmál en
nú ætlar hann að fara að
hita upp hjá einhverri
hljómsveit úti á landi.
Guðni Ágústsson
þingmaður kemst sennilega
ekki neðar, hver veit annars?
Hann fær ekki dulið
lengur hvað hann er
spældur yfir að hafa ekki
fengið að vera ráðherra og
er á hraðri leið yfir í Þjóðvaka.
Þoröir þú aö fara
á einhvem Jeik
á HM?
\
FI ril Ivl Tú D AGu R 2477\G u ST 19 9 5
Nei, ég vissi að þeir
enduöu allirí „jeiíinu".
Veðréttaflutningar
seg/r Sigurður E. Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Húsnæðisstofnunar, en hann hyggst ekki gefa útyfir-
lýsingu til skýringar á „Svavarsleiðinni".
Sigurður E. Guðmundsson: „Opinberar stofnanir mega helst
ekkert gera, þá er það kallað spilling og ég tala nú ekki um
ef þjóðþekktir stjórnmálamenn koma þar einhvers staðar
nálægt."
„Forsendurnar fyrir undanþág-
unum hafa aldrei verið neitt
óskýrar þótt þær séu metnar í
hverju tilfelli fyrir sig. Ég hef
þetta á minni hendi og ber
ábyrgð á því. Þetta hefur ekki
verið neitt vandamál,“ segir Sig-
urður E. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins, um veðréttarflutn-
inga byggingarsjóðslána, sem
nokkuð hafa verið til umræðu að
undanförnu. Veðréttarflutning-
arnir komust í hámæli þegar
PÓSTURINN sagði frá því 3. ágúst
síðastliðinn að Svavar Gestsson
alþingismaður hafi fengið veð-
réttinn á rúmlega þriggja millj-
óna króna húsbréfaláni fluttan af
fasteigninni Jöldugróf 10 yfir á
eign Guðrúnar Ágústsdóttur, konu
sinnar, að Ártúnsbletti II, Reykja-
vík. Almenna reglan undanfarna
áratugi í meðhöndlun byggingar-
sjóðslána hefur hins vegar verið
sú að lán hafa fylgt þeim eignum
sem þau voru tekin út á og
hvorki Jóni Guðmundssyni, for-
manni Féiags fasteignasala, né
öðrum fasteignasölum var kunn-
ugt um frávik frá þessari reglu
þegar blaðið leitaði til þeirra
vegna málsins. Fjöldi fyrirspurna
um veðréttarflutninga hafa bor-
ist til fasteignasala í kjölfar þess
að fyrirgreiðslan sem Svavar
fékk hjá Húsnæðisstofnun varð
opinber og telja þeir forsendur
veðréttarflutninganna óskýrar.
Sigurður E. Guðmundsson seg-
ir ekki standa til að gefa út yfir-
lýsingu af hendi Húsnæðisstofn-
unar til frekari skýringar á for-
sendum veðréttarflutninga.
Hann nefndi engu að síður nokk-
ur dæmi máli sínu til skýringar.
„Til að maður taki slík erindi
til athugunar þurfa að vera fyrir
hendi knýjandi aðstæður. Það
getur verið allt mögulegt. Það
hefur til dæmis komið í ljós að
sumum gömlum konum er ekki
vel við að lán hvíii á íbúðum sín-
um. Maður hefur tekið því af
skynsemi og með raunsæi eftir
þvf sem aðstæður hafa leyft.
Stundum hafa íbúðir eyðilagst
og fólk hefur ekki verið tilbúið til
að greiða upp lánin. Gott og vel,
þá hefur maður ef til vill fallist á
að flytja þau yfir á aðrar íbúðir. I
öðrum tiivikum hafa íbúðir verið
rifnar af sveitarstjórnum og fólk
hefur verið búið að fá lán út á
þær. Það hefur beðið um að fá að
halda lánunum og þá hefur mað-
ur ef til vill fallist á það. Þetta er
það sem mér kemur helst í hug í
augnablikinu."
Hvort einhver þessara for-
senda ættu við varðandi fyrir-
greiðslu Svavars vildi Sigurður
ekkert segja. „Ég hef lýst því yfir
áður að það er ekki til umræðu
að skýra frá því hvaða afgreiðslu
ákveðnir einstaklingar fá hér. Ég
lít þannig á að ég sé bundinn
þagnarskyldu þar að lútandi og
hegða mér samkvæmt því.“
Hann vísar einnig á bug öllum
ásökunum fasteignasala um að
fyrirgreiðslan sem Svavar fékk
beri mark um spillingu innan
Húsnæðisstofnunar.
„Opinberar stofnanir mega
helst ekkert gera þá er það kall-
að spilling og ég tala nú ekki um
ef þjóðþekktir stjórnmálamenn
koma þar einhvers staðar ná-
lægt. Það er ekki mitt að útskýra
hvað það er sem einhver fast-
eignasali kallar spillingu.“
Aðspurður hvort ekki sé
óhentugt að meta beiðnir um
veðréttarflutninga í hverju ein-
stöku tilfelli sagði Sigurður:
„Það er ekki hægt að setja regl-
ur um allt í lífinu, það er ekki
nokkur leið. Það verður að vera
hægt að treysta forráðamönnum
stofnana og fyrirtækja til að
leysa úr aðsteðjandi vandamál-
um.“
Lalli Jones
Götuleikhús borgarstjórans
íslendingar eru sérfræðingar í
vandræðalegum uppákomum en
hallærislegast af öllu er þegar
við reynum að hefja upp suð-
ræna karnivalstemmningu götu-
leikhússins. Slíka kaótíska
stemmningu mátti sjá við vígslu
Hins hússins sem nú hefur tekið
sér bólfestu í Geysishúsinu.
Vígslan fór fram á afmælisdegi
Reykjavíkur 18. ágúst og borgar-
stjórinn mætti. Augljóslega var
atburðurinn af ættkvísl uppá-
koma „happenings" þar sem
þátttakendur mættu í sínum
furðubúningum og vonuðust til
þess að rættist vel úr öllu.
Fyrst heyrði maður gól og síð-
an birtist eldgleypir á þaki Geys-
ishússins. Utan á húsinu stóðu
nokkrir unglingar í furðufötum
og á meðan voru slökkviliðs-
menn að reisa við stigann á
gömlum slökkviliðsbíl. Utan á
bílnum stóð vísir að kór ungra
pilta sem tónaði misfalskar lag-
línur og gætti þess vandlega að
detta ekki inn í lag sem hafði
hvorki upphaf né endi. Inni í
áhorfendafjöldanum sást borg-
arstjórinn kyssa heilbrigðisr-
áherrann og nokkrar konur sem
höfðu meikað það inn á þing eða
í borgarstjórn. Þær voru allar
mjög glaðar og héldu hópinn um
stund og fögnuðu nýjum liðs-
manni á mínútufresti. Það var
greinilega föstudagur í þeim og
þær voru á leið í gott kokkteil-
boð sem augljóslega bjargaði
deginum.
Nú var búið að reisa við stig-
ann og var þá eldgleypinum
bjargað af þakinu. Þegar hann
kom niður brunaði lúðrasveit út
úr Geysishúsinu og lék lagið
„Hér kemur lúðrasveitin" og
renndi sér út á Ingólfstorg. Tveir
krakkar utan á húsinu byrjuðu
að dansa nokkur spor en hættu
við þegar þau sáu að enginn
hinna nennti því. Þar hélt borg-
arstjórinn ræðu sem var ekki
eins fyndin og þegar Davíð hélt
borgarstjóraræðurnar en Ingi-
björg er þó miklu skýrmæltari.
Það var mikið að gera hjá Hlölla
og í ísbúðinni. Það var augljóst
að allir voru með í þeirri von að
eitthvað sniðugt mætti lesa út úr
þessu. Hvert og eitt atriði hafði
augljóslega ekki merkingu
tengda hinum atriðunum. Eina
vonin var því í raun sú að eitt-
hvert mynstur kæmi í ljós á
gervitunglamyndum. Þeir sem
voru á Ingólfstorgi gátu í það
minnsta ekki séð neina merkingu
út úr þessu. Ef einhver hefði ver-
ið spurður að því hvað hann
væri að gera þá hefði viðkom-
andi líklega ekki getað svarað
því. En svona er þetta; ef þú hef-
ur ekki hæfileika til að stunda
list þá skaltu ganga í götuleik-
hús. Þar færð þú að taka þátt í
listinni án þess að neinn geri
kröfu til þess að þú hafir neitt
fram að færa — aðalatriðið er að
vera með. lalli jones