Helgarpósturinn - 24.08.1995, Síða 6
HM '95 á Islandi — klúður ársins?
jölmidlar
Stjörnuskin
Það fór lítið fyrir
klausunni í Morgun-
blaðinu í gær þegar
sagt var frá skelfileg-
um dómi á geisla-
disksútgáfu á Aidu í
flutningi Kristjáns Jó-
hannssonar. í raun var
dómurinn svo harður
að hann hefði verð-
skuldað sérstaka um-
fjöllun en hann er
mjög á skjön við þá
einhliða og barna-
legu mynd sem gjarn-
an er dregin upp af
frama Kristjáns er-
lendis. Þetta minnir
mig hins vegar á það
dauðahald sem ís-
lenskir fjölmiðlar
gjarnan halda í
frægðarferil landans
erlendis. Oftast nær
er viðkomandi einn
um að mata fjölmiðl-
ana og er frægt í því
sambandi þegar
ónefndur atvinnu-
maður í knattspyrnu
með erlendu liði
sendi gjarnan heim
miklar frægðarlýsing-
ar af sjálfum sér og
skipti þá engu hvort
hann spilaði eða
ekki; alltaf stóð hann
sig best. Frægðin er
hins vegar viðkvæmt
mál og stórlyndir
menn eins og Krist-
ján og hans fjöl-
skylda hafa aldrei
tekið því þegjandi ef
hallar á frægðina. Er
mér til dæmis minn-
isstætt þegar ættingi
Kristjáns fyrir norð-
an bauðst til að
keyra suður og
henda mér út um
gluggann sem ég sat
þá við vegna ein-
hverrar greinar sem
birst hafði í Pressunni
sálugu. Skipti litlu
þótt ég reyndi að
bjarga lífinu með því
að benda á að ég
hafði ekki skrifað
greinina. En þessi of-
urviðkvæmni og
þjónkun stórra miðla
eins og Morgunblaðs-
ins og Stöðvar 2 hafa
gert það að verkum
að „stjörnur" okkar
skína aðeins hér
heima.
SIGURÐUR MÁR JÓNSSON
„Framkoma
þeirra í minn
garð hefur
verið mjög
sérkennileg
svo ekki sé
meira sagt,"
Nú þegar þrír mánuðir eru
liðnir frá lokum Heimsmeistara-
keppninnar í handbolta á íslandi
logar allt í illdeilum. Fram-
kvæmdanefnd HM ‘95 hefur kært
Halldór Jóhannsson, eiganda Ra-
tvís, sem sá um miðasölu á HM,
til RLR fyrir fjárdrátt.
„Ástæða kærunnar er sú að
Halldór hefur ekki gert skil á
þeim greiðslum sem hann hefur
innheimt vegna miðasölunnar og
ekki sýnt fram á að þær fjárhæð-
ir séu til staðar. Við lítum alvar-
legum augum að þessum pening-
um sé ekki skilað,“ segir Helgi
Sigurdsson, lögmaður Fram-
kvæmdanefndarinnar.
„Inni á bankabók í Sparisjóði
Mývetninga sitja 20 milljónir í
beinhörðum peningum, sem ég
lagði fram sem tryggingu á sín-
um tíma, auk trygginga bæjarins,
þannig að þarna eru 40 milljónir
í tryggingum," segir Halldór sem
hefur véfengt uppgjör HSÍ. Hall-
dóri og HSÍ ber ekki saman um
nokkur uppgjörsatriði og Hall-
dór segir jafnvel spurningu um
hvort hann eigi ekki eitthvað
inni hjá þeim vegna vanefnda.
Halldór bætti við að starfsmenn
HSÍ hafi ekki viljað ræða við sig
um sínar kröfur af neinni sann-
girni og hafi á stundum látið
mjög dólgslega við sig og sitt
starfsfólk. „Framkoma þeirra í
minn garð hefur verið mjög sér-
kennileg svo ekki sé meira sagt,“
bætti Halldór við.
MISMUIUAniDI REIKIU-
iniGSAÐFERÐIR
Deilur Halldórs og Fram-
kvæmdanefndar HM standa um
útreikninga við miðasölu. Þeir
sem vel til þekkja segja að HSÍ
hafi verið búið að koma upp
skotheldu kerfi. Allir miðar voru
númeraðir og dagsölu hvers
dags var skilað í viðskiptabanka
sambandsins. Þetta gekk eftir í
Reykjavík, Hafnarfirði og Kópa-
vogi. Á Ákureyri var dagssölu
skilað jafnt og þétt til að byrja
með, en að endingu mun dags-
salan ekki hafa skilað sér og
þarna sé komin undirrót mála-
ferlanna sem nú eru að hefjast.
Samkvæmt samningnum sem
Halldór og nefndin gerðu með
sér átti Halldór að fá 5 milljónir
þegar miðasalan næði 80 milljón-
um og aðrar 5 milljónir við 100
milljóna króna markið. Halldór
segir að miðar hafi verið seldir
fyrir um 100-110 milljónir, en for-
ystusveit HSÍ telur þá upphæð
mun lægri, eða nálægt 90 millj-
ónum. HSÍ segir að Halldór hafi
ekki gert skil á öllum þeim pen-
ingum sem komu inn í kassann.
KLÚÐUR FRÁ
UPPHAFI TIL EIUDA
Það er nokkuð ljóst að HM ‘95
verður rekið með tapi. Hversu
miklu er erfitt að segja til um að
svo stöddu. Heimildarmenn
Póstsins telja að ekki sé hægt að
kenna neinu einu um. Ratvís hafi
verið eina ferðaskrifstofan sem
gat lagt fram nægilegt trygginga-
fé og því HSl nauðugur einn kost-
ur að semja við Halldór. Aðrar
ferðaskrifstofur voru hins vegar
mjög fúlar yfir einkaleyfisveit-
ingu Halldórs og voru ekki liðleg-
ar honum og hans fólki. Bókun-
armiðstöðin, sem er í eigu Úr-
vals Útsýnar, Samvinnuferða
Landsýnar og Ferðaskrifstofu ís-
lands, tók til dæmis frá allt hótel-
rými á stór-Reykjavíkursvæðinu
og Akureyri í október ‘94. í lok
febrúar 1995 var hins vegar til
nægt hótelrými. Þessi vinnu-
brögð eru mjög sérkennileg og
eru ekki líkleg til að laða að.
Þetta varð til þess að á besta
sölutíma erlendis var allt hótel-
rými upppantað. Tilhögun sölu á
miðum til íslendinga var með
þeim hætti að erfitt var fyrir
venjulegt fólk við að eiga. Miða-
verð var einfaldlega of hátt.
Einnig hafi tíðar útsendingar
Sjónvarps sett strik í reikning-
inn. Þeir sem til þekkja segja út-
spil Ólafs B. Schram, formanns
HSÍ, þegar hann kom fram í sjón-
varpinu og sagðist vera að hugsa
um að hætta við keppnina, hafa
verið ákaflega vanhugsað. Eftir
það hafi komið upp neikvæðir
tónar sem voru ansi lífseigir.
SETID VID
SJOIUVARPIÐ
Til að fá að halda keppnina
urðu HSÍ-menn að sjá til þess að
keppnin yrði tekin upp. Þegar
HSI fór fram á það við RÚV að
taka upp keppnina settu þeir
það skilyrði upp að þeir mættu
sýna beint þá leiki sem þeir
vildu. Þetta ákvæði nýttu þeir
sér svo til hins ýtrasta og rúm-
lega 30 leikir voru sýndir beint.
Þetta hafði svo mikil áhrif á að-
sókn á leikina. Ólafur Schram tel-
ur frammistöðu íslenska liðsins
og fjölda beinna sjónvarpsút-
sendinga helstu ástæður dræmr-
ar aðsóknar landans.
ÖRFÁIR SEM KOMU
AÐ UTAIVI GAGMGERT
A KEPPMIIUA
Fjöldi erlendra keppenda og
forráðamanna var í kringum 500
manns. Erlendir blaðamenn
voru um 400 og túristar sem
komu gagngert á keppnina voru
nálægt 300. Þessa dagana er
Ferðamálaráð, með Magnús Ás-
geirsson í broddi fylkingar, að
kanna hvernig til hafi tekist með
markaðsetningu HM ‘95. Von er
á niðurstöðum með haustinu.
Jafnvel verstu hrakspár um
fjölda erlendra ferðamanna
brugðust algerlega, en hvers
vegna?
„Það er ekkert launungarmál
að miðasala á HM gekk verr en
áætlað hafði verið. Miklu færri
komu til landsins á keppnina en
til stóð,“ segir Halldór Jóhanns-
son. Halldór segir háu flugverði
til landsins og almennri dýrtíð
um að kenna að hluta. Það sé
umhugsunarvert að á meðan
ferðir til landsins frá Luxemburg
hafi verið seldar fyrir um 50 þús-
und, sem apex-fargjöld þá bjóð-
ist íslendingum nú ferðir um
hvippinn og hvappinn fyrir um
20 þúsund. Hjá Svíum var tals-
verður áhugi á að koma til lands-
ins en þeir höfðu ekki áhuga á að
borga 40 þúsund krónur fyrir
flugið. Það er athyglisvert að á
knattspyrnulandsleik íslands og
Sviss í forkeppni EM komu um
1500 áhorfendur frá Sviss. Það er
töluvert fleiri áhorfendur en
komu til samans á HM ‘95.
LOKAUPPGJÖR EKKI
EMM TILBUIÐ
Að sögn Hákonar Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra HM- nefndar-
innar, er verið að skoða fjárhags-
lega afkomu keppninnar þótt
ekki sé enn búið að gera keppn-
ina upp, ýmislegt sé ógert enn.
Til dæmis er uppgjöri Ríkissjón-
varpsins og HSÍ ekki enn lokið.
Þess má geta að Rudy Glock,
gjaldkeri Alþjóðasambandsins,
var staddur hér á landi ekki alls
fyrir löngu og, eins og Hákon
orðar það, „kvittaði á ýmsa
pappíra sem kemur sambandinu
við, eins og kostnað við alþjóða-
sambandsmennina, miðasölu og
fleira“. Það er ljóst að tap af HM
lendir á HSÍ og eins og staðan er
á þeim bæ gæti það orðið bana-
biti sambandsins sagði heimilda-
maður Póstsins innan handknatt-
leikshreyfingarinnar.
Debet
Kredit
„Aðalkostur Baltasars er hvað hann er helvíti
skemmtilegur og hvað það er gífurlegur kraftur í
honum,“ segir Ingvar Þórðarson, hjá Flugfíélaginu Lofti.
„Einn af stóru kostum Baltasars er hvað hann getur
verið einbeittur í starfi,“ segir Kristjana Samper, móðir
Baltasars. „Hann þekkir takmörk sín, veit hvað hann
veit og veit hvað aðrir vita betur en hann. Það er of-
boðslega stór kostur, eftir að hafa unnið með mönn-
um sem halda að þeir viti og kunni allt og hlusta ekki
á aðra,“ segir Davíð Þór Jónsson, félagi. „Hann býr yfir
miklum persónutöfrum og er fjölhæfur og kraftmikill
listamaður. Hann gerir vel það sem hann tekur sér
fyrir hendur," segir Heiðrún Anna Björnsdóttir, fyrrver-
andi kærasta.
Baltasar Kormákur
„Hann er betri hestamaður en ég," segir Ing-
var Þórðarson. „Hann getur ekki einbeitt sér að
neinu öðru á meðan," segir Kristjana Samper.
„Hans stærsti galli er að hann er ekki og verður
aldrei Hafnfirðingur. Auk þess á hann við sína ka-
rakterbresti að striða eins og allir góðir lista-
menn. Aðrir þekkja þá betur en ég," segir Davíð
Þór. „Hann þyrfti sennilega fleiri en 24 tíma í
sólarhring. Ég held að hann gleymi að hvíla sig,"
segir Heiðrún Anna Björnsdóttir.
BALTASAR KORMÁKUR HEFUR GJARNAN SÝNT HÆFILEIKA SlNA í LEIKHÚSUNUM. SÍÐAST LEIKSTÝRÐI HANN VEL HEPPNUÐUM SÖNGLEIK, ROCKY HORROR.