Helgarpósturinn - 07.09.1995, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 07.09.1995, Blaðsíða 8
8 IMogganum í gær mátti lesa einkar athyglisverða auglýsingu. Þar var verið að auglýsa eft- ir fyrirsætu. Það virðist sem hörgull sé á fyrirsætum í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og þess vegna hefur skóla- meistari brugðið á það ráð að auglýsa eftir fyrirsætum. Fyr- irsætur skulu skila umsóknum til skóla- meistara, Kristínar Arnalds, sem sker væntanlega úr um hæfi umsækjenda. Ekki er tiltekið hvers kyns fyrirsætan á að vera. Líklegt verður þó að telja að FB vanti fyrirsætu fyrir myndlistardeidina... Eigendaskipti á Feita dvergnum. Fyrrum rekstraraðili hóar gestunum upp í rútu og lýsir því yfir að staðurinn sé hættur. Núverandi eigandi, Baldur Brjánsson, er ekki sáttur við aðferðirnar og óttast að gestirnir hætti að mæta Keyrðu burt með alla uiðskiptaviniiia „Maður er svoleiðis í sjokki að ég á ekki orð yfir þetta. Maður er nýbúinn að kaupa staðinn fyrir háar fjárhæðir og svo kemur þetta svona framan í mann. Þetta lítur út eins og skemmdar- starfsemi," segir Baldur Brjánsson en hann hefur nýverið keypt veitingastaðinn Feita dverginn við Höfðabakka og allt sem hon- um fylgir. Hann er ekki sáttur við hvernig fyrrverandi rekstrarað- ili, Oddsteinn Gíslason, hafi komið fram. Laugardaginn 26. ágúst var haldið lokahóf síðustu rekstrar- aðila Feita dvergsins með miklu húllumhæi en um miðnætti var öllum gestum staðarins rúllað upp í rútu og ekið á Næturgalann í Kópavogi þar sem Oddsteinn hefur nú tekið við rekstrinum. Oddsteinn lýsti því svo yfir við gestina, samkvæmt heimildum Póstsins, að Feiti dvergurinn væri hættur. „Svo koma þessar myndir í Mogganum í gær á besta stað þar sem sagt er frá því að Feiti dvergurinn sé fluttur. Hann er ekkert fluttur. Maður er alveg skíthræddur um að enginn komi hingað inn um helgina vegna þess hvernig hann hefur látið. Baldur Brjánsson hefur tekið við rekstri Feita dvergsins en óttast að fólk hætti að mæta vegna yfirlýsinga fyrrverandi rekstraraðila og klausu í Morgunblaðinu um að staðurinn væri fluttur. Mér finnst vera slegið fyrir neð- an beltisstað að koma því í Moggann að þetta sé hætt og bú- ið og flutt," segir Baldur. Oddsteinn segir að aldrei hafi farið á milli mála að staðurinn myndi starfa áfram. „Það var allt- af skýrt að ég hafi bara flutt sjálf- an mig og mína tónlist," segir Oddsteinn Gíslason. Hann segir að klausan í Morgunblaðinu hafi verið klúður því ekki hafi verið rétt sem þar kom fram. Hann hef- ur leigt reksturinn í þrjú ár en staðurinn hefur verið í eigu tíu aðila. Oddsteini var sagt upp samningnum við eigendaskiptin og telur Baldur að honum hafi mislíkað það. Oddsteinn segist vera kominn með nýjan rekstur í Kópavogi og fyrsta helgin hafi gengið vel. „Það linnir ekki símhringing- unum þar sem er fólk að spyrja hvert við séum fluttir og fólk heldur að allt sé búið hér hjá okkur,“ segir Baldur Brjánsson. Hann segist hafa opnað stað- inn formlega síðasta föstudag. Feiti dvergurinn er hér og verður áfram nema að þetta verður gert miklu huggulegra og staðið bet- ur að þessu en áður,“ segir Bald- ur. Óánægja innan bændahreyfingarinnar meö hvernig fjármunum Upplýsingaþjónustu landbún- aðarins er varið Tólf milljóna framúrkeyrsla „Stjórn Upplýsingaþjónust- unnar hefur farið langt út fyrir öll velsæmismörk. Það var búið að eyða svo miklu í fyrra að það kemur niður á starfseminni í ár. Ég hef áhyggjur af því hvernig komið er fyrir stofnuninni,“ sagði einn heimildamaður Pósts- ins innan bændahreyfingarinnar. Talsverðrar óánægju gætir meðal frammámanna í bænda- hreyfingunni með hvaða hætti fjármunum Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins hefur verið ráð- stafað. Veruleg framúrkeyrsla varð á fjárlögum síðasta árs, um 12 milljónir króna. Er því haldið fram að þessi framúrkeyrsla komi niður á starfsemi Upplýs- ingaþjónustunnar í ár og geri landbúnaðinum erfiðara um vik að taka á málum nú þegar GATT- samningurinn er orðinn stað- reynd. Stór hluti fjárins hefur farið til GSP almannatengsla, sem Gunnar Steinn Pálsson stend- ur fyrir og auglýsingastofu hans, Hvíta hússins. „Það var miklum peningum eytt í það beinlínis að auglýsa og ég held að fáir aðrir en Hvíta húsið hafi hagnast á því,“ sagði einn viðmælandi sem vel þekkir til mála en efasemdir eru uppi um tilgang þess að auglýsa á þeim tíma sem það var gert. Gunnar Steinn Pálsson segir að nauðsynlegt hafi verið að bregð- ast við því hversu neikvæð um- ræðan í þjóðfélaginu hafi verið orðin frá hendi Alþýðuflokksins og Hagfræðistofnunar Háskólans til dæmis, auk þess sem Ríkis- sjónvarpið hafi sýnt þætti fjand- samlega bændum í dagskrár- stjóratíð Hrafns Gunnlaugssonar. „Þegar allt er talið er þetta hvorki kostnaðarsamara né ódýrara en gerist og gengur á markaðinum en það er rétt að umfangið var talsvert," sagði Gunnar Steinn. Auglýsingafé er greitt af Fram- leiðnisjóði landbúnaðarins með samningi til þriggja ára til þess og fleiri verkefna. „Menn héldu að því væri ætlað til ákveðinna verkefna en því var meira og minna eytt í þessa aug- lýsingaherferð," sagði heimilda- maður Póstsins. Talsverður kostnaður var af sjónvarpsþáttunum Af landsins gæðum sem sýndir voru í Ríkis- sjónvarpinu í sumar. Upplýs- ingaþjónustan hefur farið þess á leit við sjónvarpið að þeir taki þátt í kostnaðinum við þættina þar sem þeir hafi áður borgað fyrir þætti sem voru fjandsam- legir bændum. Upplýsingaþjón- ustan fer einnig fram á að þætt- irnir verði endursýndir þar sem þeir hafi ekki verið sýndir á besta tíma í sumar. „Þó svo að útgjöld hafi verið hærri en gert var ráð fyrir á síð- asta ári þá jafnar það sig á þessu ári,“ segir Hákon Sigurgrímsson, stjórnarformaður Upplýsinga- þjónustu landbúnaðarins. „Þetta er þriggja ára verkefni sem lýkur um næstu áramót. Innifalið eru auglýsingar og sjón- varpsþættirnir. Greiðslum er dreift á þrjú ár en við endum réttum megin við strikið um ára- mót, Það verður að líta á þetta sem áætlun sem tekur yfir þrjú ár en þungi framkvæmdanna er ekki sá sami öll árin,“ sagði Há- kon Sigurgrímsson. Gunnar Steinn Pálsson hef- ur unnið að stórum verkefn- um fyrir Upplýsingaþjón- ustu landbúnaðarins sem hafa kostað töluvert fé. LÖGÐ NIÐUR í PíSS- ARI MYIUD UM ARA- MOT Fyrirhugað er að leggja Upp- lýsingaþjónustu landbúnaðarins niður frá og með næstu áramót- um í þeirri mynd sem hún er í dag. Nefnd er að störfum sem á að skoða hvernig bregðast skuli við því breytta umhverfi sem verður við samruna Búnaðarfé- lags íslands og Stéttasambands bænda. „Það er verið að endurmóta starfsemi upplýsingaþjónust- unnar. Það var meiningin að stokka hana upp í kjölfar samein- ingarinnar og þeim skipulags- breytingum sem við gengum í gegnum á árinu,“ sagði Ari Teits- son, formaður Bændasamtaka ís- lands. Áætlað er að Upplýsinga- Hákon Sigurgrímsson, fram- kvæmdastjóri Upplýsinga- þjónustu landbúnaðarins, eyddi talsvert umfram heimildir á síðasta ári. þjónustan verði sérstök deild innan hinna nýju bændasam- taka. Að Upplýsingaþjónustunni standa meðal annars Fram- leiðsluráð landbúnaðarins, Bændasamtök íslands, Samtök sláturleyfishafa og Samtök af- urðastöðva í mjólkuriðnaði. Að- ildarfélögin borga um 10 -11 milljónir á ári til hennar en styrk- ur úr framleiðnisjóði tii þess að kynna betur en hægt hefur verið stöðu landbúnaðarins í samfé- laginu kemur utan við þau fram- lög, að sögn Hákonar Sigurgríms- sonar. Gert er ráð fyrir að nýtt skipu- lag upplýsingaþjónustunnar taki gildi um áramót en ekki er búið að ákveða nákvæmlega með hvaða hætti það verður.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.