Helgarpósturinn - 07.09.1995, Blaðsíða 30
FIM IvlTu DaGu R 7”SE PTE mBER 1995
popp
HMMTUDACUR
Dan Cassidy og
Kristján Guömundsson
leika saman blús á
Blúsbarnum.
Jet Black Joe,
ho,ho,ho eru skriðnir
úr híðinu. Þeir verða á
Gauknum í kvöld
Kvartett Reynis Sig
heldur uppi heiðri
RúRek á Fógetanum
í kvöld.
Bjarni Tryggva
og félagi munu leika
saman á Tveimur
FOSTUDAGUR
Valdimar Örn
Flygerning
leikur einn síns liðs
á Blúsbarnum.
Jón Ingólfsson
utanbæjartrúbadúr
á Fógetanum í kvöld.
MR. Moon og Black
and Always in Action
koma fram fyrir hönd
RúRek-hátíðarinnar í
Tunglinu í kvöld. Sú
fyrrnefnda er ársgöm-
ul hljómsveit úr Borg-
arnesi og Akranesi, en
hún leikur í senn acid,
hip hop og funk.
Tríó Tómasar R,
Einarssonar ásamt
Ólafíu Hrönn og Kvar-
tett Wallace Roneys
á stórveislu RúRek-
hátíðarinnar á Hótel
Sögu í kvöld
Galíleó
heldur upp á
Kínaráðstefnuna á
Gauki á Stöng.
Nuno
og Milljónamæring-
arnir í fyrsta sinn
svona án aðstoðar á
stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Þeir ætla að
eiga helgina á
Ömmu Lú.
Hjörtur Howser
og allir hans vinir á
Sólon íslandus í
kvöld. Hjörtur og Sól-
on, þeir eru einhvern
veginn svona eitt.
Lak með tveimur
KASPER
BÍÓHÖLUN/HÁSKÓLABÍÓ
***
Það verður seint sagt að góði
draugurinn Kasper hafi verið
mikið að ganga aftur í bernsku
manns. Óljóst rámar mann raun-
ar í hann; það litla maður man er
að hann hafi verið frekar daufur.
Og vissulega er hann daufur í
dálkinn, það er hans annað eðli.
Vestur í Kaliforníu eru þeir
farnir að grafa ansi djúpt í sorp-
haugum sjónvarps- og poppkúl-
túrs sem núorðið virðist æði
fornlegur. (Sagði ekki Woody Al-
len: í Kaliforníu fara þeir ekki út
með ruslið sitt, þeir setja það í
sjónvarpið.) í þessum ruslahaugi
er ólíkt dýpra niður á Kasper en
til dæmis Flintstoneliðið, skrípó
sem var ólíkt sniðugra en varð
svo ömurleg bíómynd. Og sann-
arlega hefði Kasper getað orðið
slæm mynd, stundum munar
reyndar mjóu, svo kemur hún
bara fallega á óvart.
Kasper og frændur hans eru
ekki draugar eins og írafellsmóri,
Hlaupa-Manga eða Þorgeirsboli.
Kasper er vænn og hugprúður
en ögn einmana, frændurnir þrír
eru fyndnir ærsladraugar, í
taugaveiklaðri kantinum, með
dálítið grófan húmor en ágætir
inn við beinið; þeir eru ekki bún-
ir til úr gömlum afgöngum, beint
upp úr gapandi gröfinni eins og
íslensku draugarnir, heldur likt
og Kasper segir sjálfur — úr
svipuðu efni og náladofi.
Ennfremur líkamnast þarna
fimmti draugurinn, með rytjulegt
permanent, hrukkóttur eins og
sveskja. Þetta er Eric Idle, gamli
Monty Python-grínarinn og lítur
núna út eins og Gene Wilder, ný-
vaknaður og í slæmu formi.
Raunar getur maður ekki annað
en haft ákveðna samúð með hon-
um; hann fær ekkert að gera af
viti, nema það kviknar í hendinni
á honum, og svo aftur til vonar
og vara — hafi maður misst af
brandaranum í fyrra skiptið.
Sjarmalaust kvenskass sem leik-
ur á móti honum ætti að finna
sér aðra vinnu en gamanleik.
Það er nóg af stórsniðugum
brellum, ærslum og hamagangi,
en að auki liggur einhver notaleg
angurværð yfir húshjallinum þar
sem Kasper á heima. Leikmær-
ingnum Bill Pullman og hinni
ungu Christina Ricci tekst líka æv-
intýralega vel að leika á móti
draugunum sem fljúga um þiljur
og smjúga gegnum veggi. Þetta
er alveg ágætt, svona langleiðina
fram í lokin að myndin fer yfir
strikið mjóa milli viðkvæmni og
væmni. Þá eru grátandi feður
farnir að brosa gegnum tárin,
einmana dætur búnar að fá
snoðrænu af stórasannleikanum
um vináttuna, af himnum ofan
koma dánar mæður og englar en
Kasper hefur fundið friðinn og
sinn innri mann. Og Spielberg tel-
ur sig líklega hafa komist nærri
óspjallaðri barnssálinni sem
hann er alltaf að leita að.
Fyrir utan að vera vinalegur
draugur hefur Kasper annan
góðan kost: Nú er viðbúið að alls
kyns Kasper-varningur fari að
ryðja Lion King-dótinu út úr
barnaherbergjunum. Þeim for-
eldrum sem tíma ekki að leggja
meira í Kasper en sem nemur
andvirði bíómiða má benda á að
hvítt lak með tveimur götum ger-
ir sama gagn.
-EGILL HELGASON
NETHYLUR 2
S: 567-1515
„HUG5 NOT DRUGS“
I
ÍLITRIKUR TONLISTARVETURl
MEÐ ÁHERSLU Á VÍNARKLASSÍK
Gult kort
I gulri áskriftarröð eru 6 tónleikar þar sem
megináherslan er lögð á stærri hljómsveitarverk
og íslenska einleikara. Flutt verða m.a. verk
eftir Beethoven, Bartók, Þorkel Sigurbjörnsson
og Shostakovitsj.
♦
Grænt kort.
í grænni áskriftarröð eru fernir tónleikar
með fjölbreyttri efnisskrá sem ætti að höfða
til breiðs hlustendahóps. í þessari röð eru
m.a. Vínartónleikar og konsertuppfærsla
á óperunni OTELLO.
Rautt kort
I rauðri áskriftarröð eru 6 tónleikar. I þessari röð er
megináherslan lögð á einleikara og einsöngvara sem
hafa unnið sér alþjóðlega hylli. Meðal annars verða
fluttir píanókonsertar eftir Mozart, Beethoven,
Schumann og Grieg.
♦
Blátt kort
f blárri tónleikaröð eru tvennir tónleikar
jsar sem leikin verður trúarleg tónlist
og önnur tónlist sem fellur vel að flutningi
í kirkjum. Hér má m.a. finna
Sálumessu Brahms.
Áskrifendur fd allt að 25% afsldtt af miðaverði sem jafngildir því að fd fjórðu hverja tónleika frítt.
Upphafstónleikar verða í Háskólabíói 14., 15. og 16. september. Einleikarar eru
Guðrún Birgisdóttir, Martial Nardeau og Einar Kr. Einarsson. Hljómsveitarstjóri, Enrique Bátiz.
S a l a áskriftarskírteina e r hafin .
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS (í)
Háskólabíói viö Hagatorg, sími 562 2255
VERTU TÍMANLEGA
OG FÁÐU GOTT SÆTI í VETUR.
littlgll
STOH- UYSMJL
Frábærir
HANKOOK
sumarhjólbarðar á einstöku verði!
3Í566- 2.315 stgr. 175R14 ^4360- 2.970 stgr.
-3^0^ 2.320 stgr. 185R14 3.290 stgr.
3380- 2.370 stgr. 185/70R14 3360- 3.365 stgr.
-4399- 2.750 stgr. 195/60R14 5t89& 4.130 stgr.
~4380- 2.985 stgr. 185/65R14 “6360- 3.935 stgr.
155R12
155R13
165R13
175/70R13
185/70R13
Jeppadekk, 25% afsl.
30-9,50R15 1f)S5fr 7.912 stgr. 31-10,50 R15 8.960 stgr.
Vörubíladekk, 25% afsl.
12R2215/16PR 35 950 26.960 stgr. 13R2215/18PR 39 400 29.600 stgr
11R2215/16PR 32 500 24.375 stgr. 315/80R2215/18PR42 200 31.650 stgr
Takmarkað magn
HF.
PJÍJ
SKÚTUVOGI 2
SÍMI 568 3080