Helgarpósturinn - 07.09.1995, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 07.09.1995, Blaðsíða 12
12 FIMMTOD7X',GOR-77'SEPTEMBER-'1r9g5i 2500 nemendur í Reykjavík njóta sérkennslu meöan sjálfur grundvöllurinn veltur á brauöfótum Bændur í ýms- um búgrein- um eru ekki sáttir við hinn nýja búvörusamning sem undirritaður var á dögunum um 13 milljarða króna stuðning ríkisins við sauðfjárbændur til aldamóta. Bændur sem stunda eggja-, garðyrkju-, kjúklinga- eða svínabúskap spyrja sig hversu mikið svigrúm ríkið hafi til þess að skapa þessum búgreinum grundvöll til þess að standa undir sam- keppni við væntan- legan innflutning á afurðunum þegar svo mikið er lagt í eina búgrein. Þeir eru ekki bjartsýnir á framhaldið og líklegt er að þessi mál verði talsvert rædd á fund- um hjá Bændasam- tökum íslands á næstunni... 'Jk /// I '1 mwar í ÓGÖNGUM Við lok grunnskólanáms árið 1995 fullnægði þriðjungur nemenda ekki lágmarks- kröfum um kunnáttu í samræmdum námsgreinum til að heíja framhaldsnám, það er, í dönsku, stærðfræði, ensku og íslensku, þrátt fyrir að tæplega hálfum milljarði sé varið til sérkennslu til að jafna aðstöðu nemenda í almennum grunnskólum. Til viðbótar þessari tölu kemur að þriðjungur nemenda sem heija nám í framhaldsskól- um fellur á fyrsta ári. Þetta háa fallhlutfall verður talsvert ískyggilegt þegar haft er í huga að einungis er talið að um fímm prósent barna eigi við erfíða námsfötlun að elja. Hinir hafa því dregist aftur úr af öðrum ástæðum. Umsóknum um sérkennslu hjá fræðsluskrifstofum grunnskóla fer fjölgandi en Qárveiting til sérkennslu hefur ekki hækkað í átta ár. Eftir að grunnskólalögin frá 1974 gengu í gildi ákváðu skóla- yfirvöld að hætta að raða í bekki eftir námsárangri og tilskipun um það er að finna í skólanám- skrá grunnskóla frá 1976. Þetta nýja fyrirkomulag hafði að sjálf- sögðu í för með sér aukið álag á kennara sem voru nú með fjöl- menna bekki einstaklinga með ólíkar þarfir og þar kom sér- kennslan inn og átti að vega upp á móti þeim þáttum sem ynnu gegn slíkri blöndun. í Reykjavík einni eru í dag 120 sérkennara- stöður og 3100 sérkennslutímar sem skiptast niður á 2500 börn, eða 22 prósent allra nemenda á Reykjavíkursvæðinu og gerir það að meðaltali 1.3 tíma á hvert barn á viku. „Þróunin er sú að þörfin fyrir sérkennslu er að auk- ast en að hluta til má skrifa það á skilvirkara skráningarkerfi. Við fáum málin fyrr inn á borð til okkar en við gerðum,“ sagði Art- húr Morthens, sérkennslufulltrúi á Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur. „Þeim sem njóta sérkennslu hef- ur fjölgað um 800 á undanförn- um tíu árum.“ SKILCREIIUIIUGAR ATRIÐI „Eg hef oft heyrt þessa fimm prósenta tölu en aldrei gert mér fullkomlega grein fyrir því hvern- ig hún er til kornin," sagði Atrhúr Morthens. „Þetta er skilgreining- aratriði og ég get nefnt sem dæmi bresku Warren-skýrsluna sem er ein virtasta rannsókn á þessu sviði og var gerð fyrir 15 árum síðan. í henni var talað um 20 prósenta þörf fyrir sér- kennslu. í nýlegri, alþjóðlegri lestrarkönnun sem gerð var kom fram að tíu prósent íslenskra barna eiga við lestrarerfiðleika að stríða. Þörfin er miklu víðtæk- ari en að hún nái einungis til þeirra barna sem stríða við ein- hversslags fötlun. Þetta er ein- faldlega spurning um hvaða kröf- ur við eigum að gera til skólanna og árangurs í grunnskólum." BROTIUA í IUÚVERAIUDI KERFI Sérkennsla skiptist í tvennt; annars vegar er hún til staðar í almennum skólum og sjá þá fræðsluskrifstofur um að úthluta þeim tímum, og hins vegar er hún í sérskólum fyrir fatlaða en í þessari grein er aðeins leitast við að ræða þörfina fyrir sér- kennslu í almennum skólum. Helga Sigurjónsdóttir, kennari í fornámsdeiíd Menntaskólans í Kópavogi, hefur skrifað mikið um menntamál og meðal annars reifað galla núverandi fyrir- komulags. „Það áttu margar sorgarsögur rætur sínar í gamla tossabekkja- fyrirkomulaginu og margir full- orðnir einstaklingar minnast ekki á reynslu sína ógrátandi," sagði Helga í samtali við Póstinn. „En gallarnir við þetta kerfi hafa reynst meiri en menn héldu. Ég held því fram að fyrirkomulagið núna sé ekki betra en það gamla nema hvað varðar yngstu börn- in. Það er munur á því að raða eldri og yngri nemendum niður í bekki. Fólk virðist trúa því að nemendur sem eiga erfiðara með nám verði síður varir við van- mátt sinn ef þeir fá að vera í bekk með hinum en það er jafn- vel enn meira áberandi þegar verið er að sækja börn inn í bekkina en ella. Ég veit til þess að börn koma mjög brotin út úr þessu kerfi.“ „Við búum við annan félagsleg- Við fáum málin fyrr inn á borð til okkar en við gerð- um," sagði Arthúr Mort- hens, sérkennslufulltrúi á Fræðsluskrifstofu Reykjavík- ur. „Þeim sem njóta sér- kennslu hefur fjölgað um 800 á undanförnum tíu ár- um." an veruleika en við gerðum fyrir 20 árum og við þurfum að takast á við það á annan hátt en að sækja i sama farið,“ sagði Arthúr Morthens. „Ég er algerlega á móti þessari umræðu um að taka upp röðun í bekki. Mér finnst saga sem ég heyrði um daginn utan af landi lýsa þessu ágæt- lega. Þar var virtur og velmetinn athafnamaður að halda uppá 25 ára júbilæum ásamt fyrrverandi skólasystkinum sínum. Það bar svo við að þessi maður stóð úti á tröppum í langan tíma þar til fyrrverandi skólastjóri tók eftir honum og spurði hvers vegna hann kæmi ekki inn. Þá var hann með tárin í augunum og gat ekki hugsað sér það, minningarnar voru einfaldlega of sárar til að hann gæti rifjað það upp.“ EIUGini VIÐBÓTAR- KEIUNSLA „Ég hef þrettán ára reynslu af kennslu barna sem hafa dregist aftur úr í námi,“ sagði Helga. „Meðan börnin njóta sér- kennslunnar fer bekkurinn áfram á fullum hraða í öðr- um greinum og þau eiga því sífellt erfiðara með að fylgja þeim eftir," segir Helga Sigurjónsdóttir kenn- ari. „Það er ekki um neina viðbótarkennslu að ræða." „Meðan þau njóta sérkennslunn- ar fer bekkurinn áfram á fullum hraða í öðrum greinum og þau eiga því sífellt erfiðara með að fylgja þeim eftir. Það er nefnilega ekki um neina viðbótarkennslu að ræða. Nemandinn sem er á eftir fær aldrei nema jafn margar kennslustundir og hinir á viku en sérkennslan er hins vegar dýrari enda fær sérkennarinn greitt fyr- ir að kenna viðkomandi svo og bekkjarkennarinn. Það er hins vegar ekki vilji til að breyta þessu kerfi þrátt fyrir að það sé algerlega óviðunandi." HAFA HÆFILEIKA TIL AÐ LÆRA „Kennarar ráða ekki við bekki af þeirri stærðargráðu sem þeim er gert að kenna og sækjast í rík- ari mæli eftir sérkennslu í ýms- um greinum sem svo aftur verð- ur til þess að þessir nemendur dragast aftur úr í öðrurn," sagði Helga. „Það má segja að þetta sé hálfgert neyðarástand. Ég leyfi mér að fullyrða að með því að verja fjármagni sem nú er varið til sérkennslu í almennum skól- um, til þess að fækka í bekkjum, halda námskeið fyrir bekkjar- kennara um námsörðugleika og þau úrræði sem bjóðast og for- eldra í þeim námsgreinum sem kenndar eru, þá væri hægt að bæta ástandið til muna. Það er nefnilega svo að stærstur hluti þessara nemenda hefur hæfi- leika og getu til að sýna mun betri námsárangur. Langflest börn geta lokið grunnskólaprófi með viðunandi vitnisburði ef þau fá góða kennslu,“ segir Helga. „Sérkennarar hafa verið óhræddir við að gagnrýna og benda á það sem betur mætti fara í núverandi kerfi og það hef- ur oft komið upp þetta vandamál þegar verið er að taka tíma af einni námsgrein fyrir aðra,“ sagði Arthúr Morthens. „Norður- löndin hafa að mestu beitt ann- arri aðferð en hún er sú að sér- kennnarinn sé einfaldlega inni í bekknum. Hún er heldur ekki gallalaus." Þrátt fyrir þetta bera slakar einkunnir hjá fjórðungi nemenda öðru vitni sem og að í fjórðungi allra grunnskóla á landinu hafa einhverjir hætt námi en auk þess stunda sumir nemendur grunn- skólanám í öðru skólahverfi eða

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.