Helgarpósturinn - 07.09.1995, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 07.09.1995, Blaðsíða 21
21 FIMIvlTU DWS uR7rSEPTEMBER1 r99T5 gullfalleg mörk úr aukaspyrnum, úr vítum, með langskotum og af stuttu færi. Hann er ótrúlega fjöl- hæfur leikmaður og alveg ískald- ur þegar hann kemst í marktæki- færi. Hann sýnir mikla yfirvegun og virðist oftast gera það eina rétta í stöðunni. Hann hefur ver- ið gagnrýndur fyrir að vera ein- Tryggvi hefur verið að spila geysivel með ÍBV og lagt upp mörk og skorað jöfnum höndum. fættur en sú gagnrýni er vart réttmæt ef grannt er skoðað. Tvö markanna sem hann skoraði gegn Grindavík á dögunum skor- aði hann með hægri. Annars er öll gagnrýni um að hann sé ein- fættur allt að því ólögmæt, flestir íslenskir knattspyrnumenn myndu selja sál sína fyrir vinstri fótinn á honum. Það kemur á óvart ef þeir bræður halda ekki utan í haust í atvinnumennsku á ný, allavega hlýtur frammistaða Arnars að vekja athygli, og Bjarki hefur spilað vel á miðj- unni. HVER STEIUDUR UPPI SEM SIGURVEGARI? Það er alltaf erfitt að spá fyrir um hver verði markakóngur, en Það má með sanni segja að tímabilið hafi byrj- að illa hjá Bibercic, eins og í fyrra kom hann seinn og þungur undan vetri og gekk illa að skora fram eftir sumri. iíklegast verður að telja að þeir Tryggvi og Arnar sláist um tign- ina. Tryggvi og félagar hans í IBV eru á mikilli uppleið og síðasti mánuður var lyginni líkastur hjá þeim, leikgleðin hjálpar þeim áfram og ef allir knattspyrnu- menn hefðu jafn gaman af fót- bolta og þeir þá væri skemmti- legra að fara á völlinn. Arnar er hins vegar að spila með meistur- unum og á örugglega eftir að skora meira. Það verður gaman að sjá hvor hefur betur í lokaleik mótsins upp á Skaga. Komi upp sú staða að Arnar verði jafn markahár einhverjum þremenn- inganna þá hlýtur hann titilinn þar sem hann hefur spilað fæsta leiki. VEGLEG VERÐLAUIU Það er Adidas á íslandi, Sport- menn hf. sem gefa markahæstu mönnum mótsins gull-, silfur-, og bronsskó að venju. Það fyrir- komulag hefur haldist frá árinu 1983. í ár verður sú breyting á að verðlaunin eru Predator gullskór. Við afhendingu Gullskósins 1995 verður einnig afhentur brons- skórinn frá 1989. Það ár varð Pét- ur Pétursson þriðji markahæsti leikmaður íslandsmótsins en fékk ekki bronsskó. Hann mun fá sína viðurkenningu í hófi sem Sportmenn hf. halda í lok tíma- bilsins. þeir Hermann Hreiðarsson framtíðarlandsliðsmaður og Gunnar Már Másson, fyrrum markahrókur Leifturs. í allt sumar hefur verið talað um ÍBV-liðið sem sóknarlið og framlínumenn liðsins sem reynd- ar eru mjög góðir hafa fengið mikið lof í fjölmiðlum. Líklega gera menn sér ekki grein fyrir því að ekki væri mögulegt að leika slíkan sóknarbolta sem [BV gerir, ef ekki nyti við sterkrar varnar. Sóknarmenn liðsins og miðjumenn geta leyft sér að „- svindla" í leikjum, vitandi vits að flestar sóknir andstæðinganna verða brotnar á bak aftur af firnasterkri vörninni. Líklega hef- ur þó enginn spilað betur í Vest- mannaeyjavörninni en Hermann Hreiðarsson. Hann er gríðarlega fjölhæfur ieikmaður, getur spilað kant, bakvörð og miðvörð. Her- mann býr yfir fjölmörgum hæfi- leikum, hann er sterkur skalla- maður, fljótur og les leikinn vel. Hann er einnig óhræddur að spila boltanum úr vörninni og getur hæglega tekið menn á ef með þarf. Það er helst að manni virðist hann fullsvalur í aðgerð- um sínum oft á tíðum. Engu að síður þá er hann framtíðarleik- maður og alveg ótrúlegt að fyrir þremur árum hafi hann ætlað að hætta í fótbolta. En það var gamla kempan Ómar Jóhannsson sem fékk hann til að halda áfram knattspyrnuiðkun. Atli Eðvaldsson er eins og kunn- ugt er þjálfari ÍBV. Hann hefur nýtt sér krafta Hermanns í sum- ar bæði í bakvarðar- og miðvarð- arstöðunni. Sjálfur hefur hann þó sagt að framtíðarstaða Her- manns sé miðvarðarstaðan. „Hermann er náttúrlega ungur og á mikið eftir ólært, en hann hefur alla burði til að verða einn af bestu fótboltamönnunum okk- ar. Hann er sterkur og góður skallamaður og hefur ágætis- tækni, hann er alhliða leikmað- ur. Eitt af einkennum Hermanns er ofursjálfstraustið sem hann hefur. Það einkennir reyndar fleiri Eyjamenn. Hann treystir sér til að gera allt. Að auki fellur Hermann vel inn í hópinn." Atli bætti við að stundum hætti Hermanni til að gera ein- falda hluti flókna en það væri annmarki sem þeir væru að vinna í. Hermann útskýrði velgengni sína þannig: „Maður er náttúr- lega að spila með frábærum sóknarmönnum og varnarmenn- irnir eru gamalreyndir í hett- unni. Þetta er búið að vera mjög skemmti- legt, sér- staklega í s e i n n i umferð- inni og mér per- sónulega h e f u r g e n g i ð ágætlega. Þegar lið- inu geng- ur vel þá g e n g u r m a n n i vel,“ sagði Hermann að lokum. Gunnar Már. „Bið Ólafsfirðinga og aðstandendur liðsins afsökunar á frammistöð- unni í sumar." Gunnar Már Másson er andstað- an við Hemma. Hann er sóknar- maður í spútnikliði Leifturs og hefur lítið til hans sést í sumar. Hann er ekki búinn að skora mik- ið og ekki verið Leiftri sá styrkur sem flestir bjuggust við. Gunnar hefur helst sést þegar hann flikk- ar boltanum eftir innköst og fer í bolta sem engum myndi detta í hug að reyna við. Þessi eiginleiki hans er þó tví- eggja, hann hef- ur meitt ansi marga á þess- um hamagangi s í n u m , skemmst er að l minnast þess V að hann gerði Árna Gaut óvíg- an upp á Skaga. Oftar en ekki virð- ist hann ekki með- \ vitaður um gífurleg- an líkamlegan styrk sinn. Gunnar sem er frekar hávaxinn hefur litia boltatækni og þau mörk sem hann hefur skorað fyrir Leiftur undan- farin ár hafa annað hvort verið eftir þrumuskot eða eftir barning í teignum. Gunnar Már hefur ekk- ert skorað í sumar með langskoti sem verður að teljast skrýtið því hann er gríðarlega skotfastur, og það var ein af hans sterkari hlið- um. Ef Gunnar á að verða sami styrkur og hann var liðinu í fyrra þá verður hann að laga margt. Það er oft eins og hann og bolt- inn séu óvinir, allavega skýst boltinn undarlega af honum oft á tíðum. Það er undarlegt að Gunnar skuli ekki hafa verið dug- legri að vinna í að bæta sig sem knattspyrnumaður, en það verð- ur hann að gera. Páll Guðmundsson, samherji Gunnars í Leiftri, sagði Gunnar vera mikinn íþróttamann sem legði sig allan fram á æfingum og væri duglegur. „Ég get tekið und- ir það að Gunnar er ekki búinn að spila vel í sumar. Hann á mik- Hermann Hreiðarsson. „Maður er náttúrlega að spila með frábærum sóknarmönnum." ið inni. Hann má vel við því að laga boltameðferð og ég veit að hann hefur verið að vinna í því. Hann má einnig passa sig, því hann er svo kappsamur og ákaf- ur að hann er oft rangstæður," sagði Páll. „Frá upphafi tímabils þá er ég búinn að vera eins og vængbrot- inn fugl að reyna að hefja sig til flugs. Ég var það óheppinn að slíta vöðva aftan í læri í upphafi tímabils og á enn við þau meiðsl að stríða. Eg er ósáttur við tíma- bilið og vil biðja Ólafsfirðinga og aðstandendur liðsins afsökunar á frammistöðu minni í sumar," sagði Gunnar. Gunnar sagði hvimleitt að standa í meiðslum og erfitt að geta ekki betur vegna meiðsla. „En ég legg ekki árar í bát held- ur æfi bara vel í vetur og lít bjart- ari augum á framtíðina," sagði Gunnar að lokum. Váldabarátla á Mikil átök eiga sér stað á milli UEFA og FIFA í kjölfar þess að það láku út upplýsingar um ráðagerð Lennarts Johanssons um að auka völd Evrópu og álfanna á kostnað miðstjórnarapparats Joao Havelange, forseta FIFA. Ha- velang hefur hins vegar verið duglegur að þefa uppi samsæri í gegnum tíðina og er gert ráð fyr- ir að honum takist að koma í veg fyrir að hugmyndir Johanssons nái fram að ganga. Er að vænta tíðinda af fundi sambandsins nú 8. september. Fyrr á árinu náði Johansson að tengja sig við Afríska knatt- spyrnusambandið CAF og lögðu þau saman fram kröfu upi aukið lýðræði innan FIFA. Þessu fylgdi stefnumótun sem hönnuð er af Johansson sem myndi hafa í för með sér byltingarkenndar breyt- ingar hjá FIFA. Tilvist stefnulýs- ingarinnar hefur gert það að verkum að nauðsynlegt er talið að kalla saman sérstakan fund í .. Joao Havelange. Verið í forsæti i 20 ár og alltaf umdeildur. framkvæmdanefnd FIFA. Enginn fer í grafgötur með það að tillögurnar eru settar fram til að skerða völd Havelange. Þessi brasilíski milljarðamæringur varð forseti FIFA árið 1974 með stuðningi Horst Dassl- er, hins valdamikla for- stjóra Adidas, sem einnig kom Juan Antonio Samar- anch að í embætti hja Ólympíuhreyfingunni sex árum síðar. Þessir tveir menn hafa hins vegar eld- að saman grátt silfur síð- an. Undir stjórn Havelange hafa tekjur knattspyrn- unnar aukist gífurlega og hann hefur að mörgu leyti vísað veginn fyrir aðrar íþróttahreyfingar. Starfsaðferðir Have- lange hafa hins vegar allt- af verið umdeildar og sér- staklega hafa Evrópu- menn gagnrýnt þær enda spillingarstimpillinn aldrei langt undan. UEFA hefur hins vegar aldrei tekist að draga upp al- mennilegan mótframbjóðanda. Nú hefur Evrópa snúið sér til Afríku til að afla samstarfsaðila og er tillaga Johanssons sú að forsetatitillinn gangi hring á milli álfanna. Álfusamböndunum verði fækkað í fjögur með því að Eyjaálfa verði færð undir Asíu og Norður- og Suður-Ameríka sett í eitt samband. Forsetatitillinn gangi á milli álfa á fjögurra ára fresti og verði í þeirri álfu sem hýsir heimsmeistarakeppnina hverju sinni. Þetta þýðir að næst verði Evrópubúi forseti því HM verður í Frakklandi 1998. Evr- ópubúinn skili síðan af sér titlin- um 2002 og þá taki Asíubúi við. Havelang og hans dyggi þjónn Sepp Blattner, framkvæmdastjóri FIFÁ, telja tillögur Johanssons hættulegar. Þær eyðiieggi fram- kvæmdavald FIFA og sendi völd niður til álfusambandanna sem þau geti ekki staðið undir. Telja þeir að stöðugleiki og miðstýr- ing Havelang sé lykill að styrkri stöðu FIFA. Á því kann þó að verða breyting. Lánið hefur ekki beint leikið við Leiftursmenn í sumar. Þótt gengið hafi verið gott þá virðist sem sjúkra- listi þeirra ætli eng- an endi að taka. Nú er svo komið að á varamannabekk Leiftursmanna eru einungis 2. flokks strákar svo ekki má mikið útaf bera eigi ekki illa að fara. Hlíð- arendavírusinn svo- nefndi hefur tekið sinn toll, Baldur Bragason Og JÓN Þór hafa átt við meiðsl að stríða, og Baldur spilar ekki meir á þessu tíma- bili. Þá er MlLO enn meiddur og Gunnar Már og Corovic. Reyndar hafa gár- ungarnir haldið því fram að Óskar Ingi- MUNDARSON þjálfari verði á bekknum hjá þeim, en hann þótti vel boðlegur leik- maður í eina tíð og spilaði með Leiftri á innanhússmóti á Ak- ureyri í vetur. Þjálfari Everton, mótherja Kr í Evrópukeppn- inni, var á leik Vals og KR að njósna um KR-inga. Joe Royle fer væntanlega heim full- ur bjartsýni og von- góður um öruggan sigur sinna manna, eftir að hafa séð arfa- slaka KR-inga tapa fyrir frískum Vals- mönnum. Það er einna helst að manni detti í hug að Guðjón Þórðarson hafi lagt á ráðin um að tapa þessum leik vegna Royle til að fylla hann falskri öryggiskennd. Skyldi Gaui vera svona klókur eða voru KR-ingarnir bara svona hræðilega slappir?

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.