Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 14.09.1995, Qupperneq 20

Helgarpósturinn - 14.09.1995, Qupperneq 20
FltvlIvlTuDAGu R'1'4TSE PTEM BER1995 Sportveiðiblað- ið, sem Gunn- ar Bender gef- ur út, er nú flutt á Blönduós, þar sem Gunnar hefur ráðið sig sem æskulýðsfull- trúa. Verður blaðið gefið út á Blönduósi og er líklega fyrsta tímaritið sem gefið er út þar, sem er auðvit- að heppilegt, þar sem mikið er af góðum veiðiám í nágrenninu. Má gera ráð fyrir að Gunnar eigi eftir að fóðra okkur á mörg- um veiðisögunum Kristinn „kraftaverkamaöur" Björnsson, þjálfari Vals, hefurfengiö þrettán stig úr fimm leikjum og bjargað Valsmönnum frá falli Valur er líklega eitt fornfræg- asta knattspyrnufélag íslands og hefur getið af sér marga mjög góða knattspyrnumenn og marg- oft unnið íslandsmeistaratitil og bikar. í fyrra lenti liðið í 4. sæti með 28 stig og því gætti nokkurr- ar eftirvæntingar í herbúðum Vals. Valsmenn misstu reyndar mikið fyrir þetta tímabil, meðal annars landsliðsfyrirliðann Guðna Bergs og Eið Smára, sem er eitt mesta efni sem hér hefur komið fram. Auk þess fóru Atli Helga, en miðað við hans frammi- stöðu í sumar hefur farið fé betra. Steinar Dagur Adolfsson fór í KR, Jón Þór Andrésson í Leiftur og Ágúst Gylfason í Brann. Flestir þessara leikmanna hafa verið lið- um sínum mikill styrkur. Það má sjá á þessu að stór skörð voru höggvin í raðir Valsmanna. For- ystumenn Vals voru engu að síð- ur kokhraustir og réðu nýjan þjálfara, Hörð Hilmarsson, fengu til sín tvo erlenda leikmenn, þá Petr Mrazek og Steward Beards, og einnig voru kölluð til gömlu brýnin Valur Valsson og Hilmar Sighvatsson. Þar að auki fengu þeir miðjumann frá KA, Sigþór Júlíusson, sem hefur staðið sig með miklum ágætum. Af hinum er það að segja að Valur hefur einn staðið undir væntingum sem til hans voru gerðar. Það er skrýtið að fá útlendinga af þess- um styrkleika til landsins og Hilmar var ekki beysinn, hann hefur reyndar verið meiddur lungann úr sumrinu. Hvað sem þessu líður þá voru Valsmenn vongóðir um góðan árangur í sumar. TAP OG AFTUR TAP Valsmenn gengu í gegnum erf- iðasta tímabil sitt sem knatt- spyrnulið fyrrihluta sumars. Tímabilið byrjaði ekki gæfulega, 8-1-tap í Eyjum gegn ÍBV. Segja má að næstu leikir hafi verið lítil lyftistöng fyrir liðið og afrakstur- inn eftir ellefu umferðir var sjö stig og fallsæti. Fjölmiðlar voru búnir að afskrifa liðið undir stjórn Harðar Hilmarssonar, enda hafði ekkert komið út úr því. Þeir sem spiluðu spiluðu illa og menn eins og Sigurbjörn Hreiðarsson, Hörður Már Magnússon, Lárus Sig- urðsson, Jón S. Helgason og Davíð Garðarsson, sem flestir töldu eiga byrjunarliðssæti víst, fengu lítið að spila og Sigurbjörn komst varla á varamannabekkinn. Þess- ir menn hafa mörg hundruð leiki á bak við sig, en Hörður valdi að nota yngri mennina, sem vissu- Lárus Sigurðsson hefur leikið glimrandi vel eftir að Kiddi tók við. Sýndi meðal annars tilþrif sumarsins þegar hann varði frá Ein- ari Dan. Davíð Garðarsson, prímusmótorinn hjá Kidda Björns, vermdi bekkinn hjá Herði Hilmars. Byrjaði inná með U-23 gegn UBK, skoraði eitt og lagði upp tvö, hvað gerði Hörður, jú á bekkinn með hann! lega eru efnilegir en eiga ekki ennþá erindi í 1. deildina. Á bekknum var svo löngum stund- um Davíð, sem var einn af fáum mönnum sem sýndu einhverja knattspyrnutilburði í Valsliðinu. Flestum ber saman um að með einungis sjö stig eftir ellefu um- ferðir þyrftu Valsmenn krafta- verk til að bjarga sér frá falli. KIDDI BJARGAR MÁL- UIMUM Þegar hér var komið sögu voru Valsmenn búnir að prófa allt nema þjálfaraskipti. Jóhann Ingi Gunnarsson kom og las yfir hausamótunum á leikmönnum og ýmislegt fleira var gert til að bjarga því sem bjargað varð. Meðal annars töluðu Valsstelp- ur, sem áttu mjög gott tímabil, um að fara í klefann til þeirra fyr- ir leiki „og kenna þeim trixin — hvernig á að vinna leiki“. Flestir fjölmiðlar landsins höfðu skýrt frá því að sæti þjálfarans væri rauðglóandi og nýr maður í sigt- inu. Það kom því fáum á óvart þegar það var tilkynnt að Hörður hefði verið rekinn og Kristinn tekið við þjálfun liðsins. Undir hans stjórn hefur liðið fengið þrettán stig úr fimm leikjum, unnið fjóra leiki og gert eitt jafnt- efli. Nokkuð sem fáum ef nokkr- um kom til hugar að myndi ger- ast. VEGIR GUDS ERU SVO SAI\II\IARLEGA ORAIUIU- SAKAIULEGIR Ýmsar alþýðuskýringar hafa verið á lofti um stríðsgæfu Vals, en Kristinn Björnsson „hinn sigur- sæli“ er líklega einna best til þess fallinn að skýra frá galdrin- um á bak við þennan árangur. Við spurðum Kristin hvort hann væri kraftaverkamaður. „Nei það er ég ekki. En það er ekki til nein einföld skýring á þessu, menn fengu tækifæri til að stokka upp spilin. Það eru stundum áramót og stundum aldamót, og núna voru einhver mót. Við settum dæmið þannig upp að við værum að fara í sjö leikja mót sem við ætluðum okk- ur að vinna. Þarna fengu menn nýtt upphaf, nýja byrjun, og eins og oft gerist þegar menn fá nýtt start þá gengur allt betur. Þetta er eins og á æfingu þegar eitt lið byrjar að tapa þá vill tapið oft verða stórt, en stoppirðu leikinn og byrjir upp á nýtt þá er eins víst að tapliðið vinni. Það er eins þegar þú festist í einstefnugötu, þá þýðir ekki að aka endalaust áfram, heldur verðurðu að bakka út úr ógörtgunum,“ sagði Krist- inn.Aðspurður sagði Kristinn að heppni væri einn þáttur í vel- gengni liðsins, en hugsanlega hefði hann hagað sér svo vel að undanförnu að Guð væri að launa honum með þessu. USTAMAIUMAFELAGID FJARFESTIR I VERÐ- LAUIUAGRIP Jón S. Helgason, forseti Lista- mannafélagsins í Val: „Það er engin ein skýring á þessu, menn tóku sig saman í andlitinu og lögðu sig fram fyrir félagið. Krist- inn breytti liðinu talsvert og fékk menn til að trúa því að við gæt- um haldið okkur uppi. Það gekk allt upp; við fengum sjálfstraust- ið og menn eru farnir að hafa gaman af þessu aftur." Listamannafélagið er félag leikmanna í Val og er helsta hlut- verk þess að „auka samstöðu og félagsþroska hjá félagsmönnum og efla listmat þeirra og sköp- un.“ Listamannafélagið hefur fjárfest í verðlaunagrip sem það mun veita sigurliðinu í „sjöleikja- mótinu“. MIKIÐ BREYTT LID Kristinn breytti liðsuppsti- lingu Vals talsvert. „Eftir að hafa talað við leik- menn og hugsað mikið um málið ákvað ég að leita til þeirra leik- manna sem höfðu mesta reynslu og þroska í lífinu. Það var út- gangspunkturinn minn. Ungu mannanna er hins vegar framtíð- in.“ Kristinn gerði róttækar breyt- ingar á liðinu. Hann gerði Lárus Sigurðsson að markmanni númer eitt aftur. Lárus var hrylilega slakur í upphafi móts og flestir sammála um að hvíla hann 1-2 leiki og Tómas Ingason stóð fyrir sínu í markinu á meðan. Það var hins vegar kominn tími til að gefa Lárusi sénsinn aftur, enda góður markvörður. Nýi svíper- inn hans Kristins er Jón Grétar Jónsson, sem hefur staðið sig feikivel sem aftasti maður. Með honum í vörn eru Kristján Hall- dórsson, Bjarki Stefánsson og Jón S. Helga. Inn á miðjuna komu Davíð Garðarsson, Sigþór Júlíus- son, Kristinn Lárusson/Valur Vals- son og Sigurbjörn Hreiðarsson. Frammi hafa svo verið Steward Beards og Hörður Már Magnússon. Allir ofantaldir leikmenn hafa spilað vel og þessi liðsuppstill- ing hefur haldist frá fyrsta leik eftir að Kiddi tók við. „Hringlandahátturinn sem ein- kenndi val Harðar á liðinu er nú frá og við mætum með óbreytt lið og uppstillingu í alla leiki. Við vorum alltaf að breyta liðinu af hræðslu við andstæðinginn, nú hefur þetta breyst, hin liðin hafa *

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.