Helgarpósturinn - 14.09.1995, Blaðsíða 26
26
j
1
ENSKA KNATT-
SPYRNAN
Mælist nú aftur
sjóöheit eftir að
hafa verið nálægt
alkuli um tíma. Ört
hækkandi hitastig
þeirrar enskú felst
einkum I að búið er
að fjárfesta I fullt af
útlendingum sem
lyfta ensku knatt-
spyrnunni á miklu
hærra plan. Þar ber
sérstaklega að geta
Frakkans Davids
Ginola
Hann er ekki bara
snillingur á fót-
boltavellinum held-
ur líka ógeðslega
sætur. Nú þarf eng-
inn að skammast
sín lengur fyrir að
horfa á ensku
knattspyrnuna í
sjónvarpinu, síst af
öllu konur.
SEPTEMBER
Allur sá kvíði
sem át mann að
innan vegna yfir-
vofandi árstíða-
skipta reyndist
óþarfur. Eftir dap-
urt sumar og sér-
lega dapran ágúst-
mánuð blasti ekk-
ert annað við en
hráslagalegur sept-
ember með rigning-
um og föllnum
laufum. September
— sjö, níu, þrettán
— ætlar hins vegar
að reynast okkur á
suðvesturhorninu
andleg lyftistöng
eftir sumarið;
haustrómantíkin í
sinni fegurstu
mynd.
ÍSLENSK SKÁK
Er á hraðri útleið
eins og fáir áhorf-
endur á Friðriks-
mótinu bera vitni
um. Flestir þeir sem
keppa á mótinu eru
enda útbrunnir,
ekki síst útlendu
öldungarnir þrír
sem fengnir voru til
að skreyta skák-
hattinn. Ekki bætir
svo úr skák að allir
átta íslensku stór-
meistararnir eru
dæmdir til að tefla
á menntaskóla-
kennaralaunum fyr-
ir lífstíð.
Kvennahúmor í Dagsljósi
í haust eru fyrirhugaðar nokkrar
breytingar á Dagsljósi, en einn af burðar-
ásum þáttarins, Radíusbræður, hverfur
af vettvangi. Þeir bræður eru þó aðeins
að færa sig um set innan Sjónvarpsins
og verða með fasta þætti, svipað og
Spaugstofan á sínum tíma. Þetta þýðir
þó ekki að enginn húmor verði í Dags-
ljósi því nú hefur verið ákveðið að þær
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Halldóra
Geirharðsdóttir alías Dóra Wonder fylli
það skarð sem Radíusbræður skilja eftir.
Þær hafa báðar gert það gott undanfar-
ið; Ólafía í aðalhlutverki vinsælasta leik-
rits Þjóðleikhússins á síðasta ári, Taktu
lagið Lóa, og Dóra sem Magenta í söng-
leiknum Rocky Horror. Hlín Agnarsdótt-
ir leikstjóri verður Dóru og Ólafíu innan
handar, en í sameiningu semja þær efnið
sem þær flytja. „Þetta verður með svip-
uðu sniði og hjá Radíusbræðrum, fimm
mínútna sketsar og tveir karakterar,“
segir Dóra. „Þetta er spunavinna og það
er frábært að vinna með Ólafíu, því hún
er drottning íslenskra gamanleikkvenna.
Stundum verður karakterinn til í kring-
um það sem manneskjan er að gera og
stundum kemur karakterinn fyrst og síð-
an finnur maður út hvað hann gerir.“
Fyrst um sinn troða þær stöllur
upp tvisvar í viku í Dagsljósi og
verða myndskeiðin bæði tekin upp í
stúdíóinu og á vettvangi. „Ég hef séð
Dóru ieika og eftir að við fórum að
vinna saman þá komst ég að því að við
höfum svolítið líkan húmor,“ segir Ólaf-
ía. „Við verðum með allan andskotann,
meðal annars nokkuð sem heitir „Ein-
læga hornið", og þetta verður bara allt
sem okkur dettur í hug. Við erum þegar
búnar að skapa tvo karaktera sem skjóta
upp kollinum öðru
hvoru, þeir heita Börk-
ur og Smári. Þetta eru
mjög íslenskir og kostu-
legir kallar sem eru ro-
salega venjulegir og
eiginlega bara fyndnir
fyrir það.“
Segja má að þær
Lolla og Dóra séu skyld-
ar Radíusbræðrum að
því leyti að þær eru full-
trúar fyrir nýja kynslóð
af gamanleikurum sem
fara ekki troðnar slóðir.
Þær birtast sjónvarps-
áhorfendum í fyrsta
sinn þegar Dagsljós hef-
ur göngu sína á ný í okt-
óber.
Lolla og Dóra eru
vaiMegir
Leikkonurnar Ólafía Hrönn
Jónsdóttir og Halldóra
Geirharðsdóttir verða
kostulegir íslenskir kallar á
skjánum í vetur.
Auglýsingin fyr-
ir ungbarnailm-
vatnið Petit Gu-
erlain, sem er
reyndar hugsað
fyrir börn allt
að þriggja ára
aldri.
Ihmvatn fyrir ungböm
Petit Guerlain heitir ilmur
fyrir börn, sem á síðasta
ári kom á markað. Eftir því
sem næst verður komist
er Guerlain eina stóra
tískuhúsið sem framleiðir
ilmvatn fyrir allt niður í
hvítvoðunga, en Eau de
Senteur-týpa þessarar teg-
undar er hugsuð fyrir
börn frá 0 til þriggja ára,
jafnt stúlkur sem drengi.
Reyndar eru til tvær form-
úlur Petit Guerlain; önnur
er sú sem að ofan greinir,
hin er Eau de Toilette sem
allir frá þriggja ára aldri;
hvort sem er mæður, feð-
ur, dætur eða synir, geta
notað, enda svokallað ún-
ísex- ilmvatn. Ilmur þess-
ara tveggja formúla er
eins, nema ólíkt upp-
byggður, það er að segja
ekkert alkóhól er í þeirri
sem hugsuð er fyrir þau
minnstu. Þessi tvíkynja
ilmur samanstendur með-
al annars af sítrónu, ap-
pelsínu, mandarínu og
votti af lavender, kamillu
og myntu.
Þú kemst ekki í qeqnum vikuna...
... nema
komast í
almenni-
legt
freyði-
bað. Það
er víst
nýjasta
trendið í
New York
að dansa
í froðu.