Helgarpósturinn - 14.09.1995, Blaðsíða 30

Helgarpósturinn - 14.09.1995, Blaðsíða 30
'FIMMTUDTO0R~1,r4rSEPTEMBER~'1,9T9'5l popp FIMMTUDAGUR Jet Black Joe ætlar að sýna sínar svörtustu hliðar I Rósen- bergkjallaranum. Reggae on lce sú víðförla rastasveit, á Gauki á Stöng. Hunang mun í tilefni hátíðar- Cosmo-kvölds leika ný lög af væntanlegri plötu sinni í bland við nýjustu tísku og þar fram eftir götunum. Dúettinn Súkkat syngur vonandi Það er vont en það venst á Tveimurvinum og öðrum I fríi. FÖSTUDAGUR Fánar njóta nú liðsinnis Tóm- asar Tómassonar og ætla af því tilefni að spila á Næturgalanum í Kópa- vogi. Stefán Jökulsson og Ragnar Bjarnason; þetta frábæra tím er aftur mætt á Mímisbar á Hótel Sögu. Tin og allt þeirra rokk á Gauki á Stöng. Kaupgarður ■ f M J Ó OD frabæru tilboð gilda til 18. september! w Hrossabjúgu Kjötvörur frá Nýja Bauta- búrinu á Akureyri! Hversdagsskinka kr./kg kr./kg i Brazzi - \ epla- og i appelsínty I (1 lítri) kr. Hjörtur Howser tryllir alla sem fyrir honum verða á Sólon (s- landus. Mickey Jupp Islandsvinur er aftur kominn til Islands og ætl- ar frá og með þessum degi að leggja undirsig Reykjavík, eins og hann gerði á síðasta misseri. Með honum leikur rokk- band Björgvins Gíslason- ar. Þar kveður við alveg nýjan tón í fylgd með Mickey. < V) Kókó- mjólk (1/4 lítri) LAUGARDAGUR Björgvin Halldórsson tekur upp þráðinn að nýju með stórsýninguna „Þó líði ár og öld" sem sló rækilega í gegn á Hót- el Islandi síðasta vetur. Magnús og Jóhann leika fyrir matargesti sama kvöld. Eftir stórsýninguna verður svo ókeypis inn, ( fyrsta sinn í sögu hússins. Saltkjöt....................38S; kr./kg Rófur, nýjar íslenskar.........§5 kr./kg Kellogg's Comflakes 500 g..1 JB kr. Borgames Pizza 3 teg..........289 kr. Olaparty Pizza m/öllu....289 kr. Komax rúgmjöl 2 kg. ....... kr. Opið: Mánud. -fimmtud. kl. 9-19, föstudaga kl. 9-20 og laugardaga kl. 10-18 Eliot og klikkaða konan hans TOM & VIV HÁSKÓLABÍÓI ** T.S. Eliot myndarinnar er látinn segja eitthvað á þá leið að konu sinnar gæti í hverri línu sem hann skrifar. Einhver kynni að efast um þetta, því þótt skrif Eli- ots um skáldskaparlistina séu oft mótsagnakennd er rauður þráður í þeim aðskilnaður prí- vatpersónunnar sem vinnur í banka, tekur strætó og borðar epli og skáldsins sem yrkir kvæði. Hann áleit að skáldskap- urinn ætti ekki að vera tjáning innri manns, heldur fremur flótti frá honum; hann reyndi alla tíð að gæta þess að sama og ekkert yrði uppvíst um einkalíf sitt, skildi fyrir andlátið eftir fyrir- mæli þess efnis að hann kærði sig ekki um að ævisaga sín yrði rituð — sannarlega hefði hann orðið skelfingu lostinn hefði hann vitað að síðarmeir yrði hjónaband hans og Vivien Haigh- Wood efni í leikrit og kvikmynd. Hinu verður svo ekki neitað að þótt Eliot legði sig í óvenjulega framkróka um að lifa hátt- bundnu lífi, vera næstum eins og skopmynd af hversdagslegum < enskum þegn, var myrkur í huga hans undir kyrru yfirborðinu. Ógnarlegar sýnir í kvæðum hans eru ekki sprottnar upp úr tóma- rúmi. Frægasta kvæði sínu, Eyði- landinu, raðaði hann saman þeg- ar hann var að jafna sig eftir taugaáfall; hann var blankur, konan hans var hálfvitlaus, hon- < um gekk bölvanlega að yrkja. Þegar Eyðilandið loks tók á sig mynd eftir margra ára heilabrot, mitt í veikindunum, varð það hálfgildings endurlausn: Eliot skrifaði nokkrum árum síðar að vissar tegundir sjúkleika gætu greitt farveg listrænnar sköpun- ar — sjálfsagt átti hann við sjálf- an sig. Vivien og Eliot voru gerólíkar persónur; hún hélt engu eftir og skandalíseraði í veislum, hann hélt svo mikið aftur af sér að það vakti kátínu. Hjónabandið hafði * hörmuleg áhrif á hana og ekki miklu skárri á hann. Vinur þeirra, heimspekingurinn Bertr- and Russel, lét svo um mælt að Eliothjónin hefðu notið þess að vera óhamingjusöm. Nú er sjálfsagt, með ákveðnum vilja, hægt að lesa kvæði Eliots eins og þau séu uppfull af angist- 1 arfullum hugleiðingum um eigin- konuna og hjónabandið. Eyði- landið er vissulega staður þar sem allt er í óáran og öll mann- leg tengsl einkennast af ófrjó- semi og getuleysi — en eins og ’ Eliot sagði í öðru kvæði: „ That is not what I meant at all. That is not it, at all. “ í myndinni fær Eliot þá útreið að hann sé tilfinningasljór mað- ur sem lætur loka konuna sína inni á vitlausraspítala, kannski með örlítilli eftirsjá sem þó er varla tjáð. Eliot var kvæntur kon- unni í átján ár og bestu heimildir geta þess að hann hafi sýnt henni mikla þolinmæði og lang- ^ lundargeð. Myndin tekur hins vegar mið af því að meinsemd hennar hafi verið einhvers konar hormónaóreiða sem auðvelt hefði verið að lækna — að minnsta kosti seinna meir — og því hefði Eliot átt að vita betur. Þetta er ansi mikil kenning og ekki síður sú að hún hafi „breytt . honum úr dauðyfli í skapandi listamann". Sér maður kannski dauða hönd femínismans teygja sig upp úr moldinni? Willem Dafoe leikur T.S. Eliot og leggur sig fram um að ná þeim skringilega — og ögn tilgerðar- lega — raddblæ sem hann ávann sér til að öðlast sæti í stofum ensku menntastéttarinnar; Dafoe sneiðir hjá einföldunum og því er maður ekki miklu nær um persónu skáldsins eftir en áður, kannski sem betur fer. Mir- anda Richardson leikur Vivien á mörkum taugaveiklaðrar glað- værðar og geggjunar; máski stríðir það gegn meginstefi myndarinnar en það flökrar varla neitt annað að manni en að hún sé sjálfsagður kleppsmatur. Náunginn sem leikur Bertrand Russel er einkennilega líkur Colin Porter, hinum kunna klæðskera ^ sem eitt sinn starfaði í Karnabæ. - EGILL HELGASON Gítarskóli Haustönn hefst 18. sept ■ Rafgítar, rokk, blús, metal, jazz o.fl. ■ Kassagítar (raðað í hópa eftir aldri og getu). ■ Dægurlög (fyrir fólk á öllum aldri - spil og söngur). ■ Tónfræðitímar. ■ Rafbassi (fyrir byrjendur). ■ Nýtt og vandað kennsluefni. ■ Góð aðstaða. ■ Eingöngu réttindakennarar. Kennaran Torfi ótafsson • Allir nemendur fá 09 "WHObner 10% afslátt af hljóðfærum hjá Rín. Grensásvegi 5, sími 581-12-81. Skiptistöð SVR við hliðina! Skólinn hefst 18. sept. en skráning hefst 4. sept. í síma 5 81-12-81 kl. 19-21 alla virka daga. Símsvari á öðrum tíma

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.