Helgarpósturinn - 28.09.1995, Side 7
FIMMTUDAGUR 2& SEPTEMBER1995
7
Bréf frá Lárusi Ými Óskarssyni
kvikmyndagerðarmanni
Kæri Karl.
Þú kannast við söguna af
séra Bjarna sem segir frá
því að hann hafi verið á
gangi í Lækjargötunni þagar
það dritaði á hann dúfa.
Séra Bjarni leit til himins og
sagði: „Guði sé lof að kýrnar
hafa ekki vængi.“
Einhverra hluta vegna
„Hrafn ákvað að
meðhöndla Svan
eins og eigin fram-
leiðslu og sýna hana
á þjóðhátíðardaginn
17. júní “
varð mér hugsað til séra
Bjarna, eða réttara sagt
dritsins, þegar ég las um-
mæli höfð eftir Hrafni
Gunnlaugssyni í blaðinu
þínu 21. september um
meint kaup sjónvarpsins á
lítilli kvikmynd sem ég gerði
fyrir nokkrum árum. Greinin
fjallaði um þá upphæð sem
Sjónvarpið hefur greitt fyrir
Tár úr steini. Haft er eftir
Hrafni að „... Svanur sé dýr-
asta mynd per mínútu sem
sjónvarpið hefur keypt og
óhjákvæmilega hafi það haft
áhrif á seinni tíma kaup“.
Þetta eru ósannindi sem mig
langar til að leiðrétta áður
en Hrafn er búinn að hrópa
þau svo oft að þau verða
kvikmyndasaga.
Staðreyndin er sú að ís-
lenska sjónvarpið keypti
ekki Svan. RÚV samfram-
leiddi fimm norrænar stutt-
myndir með öðrum norræn-
um sjónvarpsstöðvum. Út
úr þeim pakka hafa þeir
fengið eitthvert hagstæð-
asta útsöluverð á sjónvarps-
efni sem um getur, það er
nánast ósvífið hvað sjón-
varpið fékk mikið fyrir lítinn
pening.
Svanur var sem sagt hluti
af norrænni seríu sem er
gerð af fimm norrænum
kvikmyndafyrirtækjum og
öllum norrænu ríkisreknu
sjónvarpsstöðvunum í sam-
einingu. Samningurinn, sem
gerður var hjá Nordvision
og sjónvarpsstjórar allra
Norðurlandanna skrifuðu
undir, er samstarfssamning-
ur eins og íslenski sérsamn-
ingurinn en ekki kaupsamn-
ingur. Þar er meðal annars
kveðið á um að sjónvarps-
stöðvarnar eigi rétt á hluta
hagnaðar ef gróði verður af
alþjóðlegri sölu myndanna
fimm.
Hver þessara fimm mynda
kostaði 20 milljónir ís-
lenskra króna, nema Svanur
og sú finnska. Nordvision
borgaði 10 milljónir í hverri
mynd og meiningin var að
sjónvarpsstöð viðkomandi
lands borgaði 10 milljónir í
„sinni" mynd. Þannig var
það alls staðar nema á ís-
landi og í Finnlandi.
Sveinn Einarsson gerði
ákaflega hagstæðan samn-
ing fyrir íslenska sjónvarpið
þegar hann samdi um að
greiða ekki tíu heldur tvær
milljónir (auk tæknilegrar
aðstoðar) og fékk fyrir það
sýningu á og eignaraðild í
fimm leiknum norrænum
myndum, samanlagt upp á
líklega tvo og hálfan tíma.
Gleymum ekki að inni í
þessum pakka voru þrjátíu
og fimm mínútur af leiknu ís-
lensku efni; efni sem aldrei
er sýnt í bíó og hefur enga
dreifingu aðra en í sjón-
varpi.
Svanur fékk einnig styrk
úr menningarsjóði útvarps-
stöðva, en samt endaði með
því að myndin var gerð fyrir
minni pening en nokkur
hinna myndanna. Og ís-
lenska sjónvarpið fékk allt
þetta efni til sýningar og
hluteignar fyrir fimm sinn-
um minni pening en hinar
sjónvarpsstöðvarnar.
ENDURSKINSMERKt
ERU NAUÐSYNLEG FYRIR ALLA!
Best er að hengja
tvo merici,
fyrir neðan mitti
- sitt á hvora hlið.
UMFERÐAR
RÁÐ
Á skjólfatnaði
er heppilegt
að hafa
endurskinsrenninga
fremst á emwm
og á faldi að
aftan og framan.
Allar aðrar norrænar sjón-
varpsstöðvar sýndu mynd-
irnar saman í seríu, en Hrafn
G. ákvað að meðhöndla
Svan eins og eigin fram-
leiðslu og sýna hana á þjóð-
hátíðardaginn 17. júní.
Samningur sjónvarpsins
um gerð m.a. Svans er lík-
lega einhver hagstæðasti
samningur sem sjónvarpið
hefur gert og hann er alls
ekki gott fordæmi fyrir
Hrafn þegar hann fer næst
að semja við sjálfan sig.
Bestu kveðjur,
Lárus Ýmir Óskarsson.
Talaðu við okkur um
s /
BILARETTINGAR
BÍLASPRAUTUN
, sfmi 564 2141
OPIÐ:
miðvikudag og fimmtudag
kl. 22.00-01.00
föstudag og laugardag
kl. 22.00-03.00
sunnudag
kl. 22.00-01.00
Fatafellan Mille
Mille, Kira og Mona
fækka fötum um helgina
Konur athugið!
Á laugardagskvöld fá
þær félagsskap
fatafellis.