Helgarpósturinn - 28.09.1995, Side 13
FlMIVmjDAGUR 28. SEPTEMBER ±995
13
Lýðrœðið og svínaríið
*
slenska lýðræðis- og flokkakerfið á
við margvíslegan vanda að etja og
stenst varla síauknar kröfur sam-
tímans. Öldur óánægju með kerfið
skella á stíflu sem gæti brostið fyrr
en varir. Miklu skiptir að óánægjan
finni sér farveg og leiði til umbóta.
Stjórnmál
Einar Karl
Æ Haraldsson
Það eru ákveðin hættumerki í
þeirri umræðu sem sprottið hefur út
af niðurstöðu kjaradóms um launa-
hækkanir til embættismanna og sjálf-
teknum skattfríðindum alþingis-
manna og ráðherra. Reiðin er skiljan-
leg. Hörð gagnrýni er sjálfsögð. For-
dæmingin er óhjákvæmilegur fylgi-
fiskur.
En áhyggjuefnið er að fyrirvarann
vantar æ oftar í umræðuna: Þrátt fyr-
ir alla gallana er lýðræðiskerfið besta
stjórnkerfið sem völ er á. Þetta við-
mið þarf alltaf að vera í huga allra
þeirra sem tala og skrifa um stjórn-
mál og efnahagsmál. Annars er stutt í
fasisma og alræði. Gleymist lýðræð-
isfyrirvarinn er hættunni boðið
heim.
Því er haldið fram, meðal annars í
leiðurum DV, að ákvörðun alþingis-
manna um skattfrían 40 þúsund kall
á mánuði til þess að mæta óskil-
greindum kostnaði sé dæmigerð fyrir
það hvernig pólitíkin hafi leikið ís-
land og íslendinga. Þetta er angi af
þeirri kenningu að pólitískar ákvarð-
anir leiði alltaf til verri niðurstöðu en
ákvarðanir sem teknar eru í tengsl-
um við kaup og sölu á einhverskonar
markaði. Sælir eru þeir sem lifa í
þeirri trú að hægt sé að sundur-
greina pólitískar ákvarðanir frá hin-
um efnahagslegu. En kannski er það
ekki einu sinni áhugaverð spurning,
heldur hitt hvar ákvarðanir sem
snerta líf okkar og framtíð eru tekn-
ar. Það má vel halda því fram að
ákvarðanataka hafi verið að færast
úr höndum stjórnmálamanna til
hagsmunasamtaka, embættismanna,
alþjóðasamtaka og alþjóðlegs sam-
spils markaðsafla.
Víða uppnám og svindl
Stundum er látið sem upplausn og
óreiða sé séríslenskt einkenni og að
hvergi í heiminum sé pólitískt og
efnahagslegt uppnám nema hér. En
sannleikurinn er sá að pólitísk
hneykslismál dynja stöðugt yfir ítal-
íu, Frakkland og Spán. Mútumálin
setja blett á bresk stjórnmál. í Banda-
ríkjunum er einlægt verið að fletta of-
an af opinberum lygum og stjórn-
málamönnum sem skara eld að sinni
köku.
Og ekki er ástandið betra í við-
skiptaheiminum. Lockheed mútar í
Japan, Bofors á Indlandi, bandarísku
húshæðislánabankarnir svindla, for-
stjóragræðgin vex og fallhlífasamn-
ingar hneyksla — allt eru þetta dæmi
í alþjóðlegri umræðu um svindl og
svínarí. Og það eru ekki bara íslensk-
ir ríkisbankar sem afskrifa vegna vit-
lausra lána og rangra fjárfestinga,
heldur hafa ríkisstjórnir Norður-
landa orðið að vera með einkabank-
ana í öndunarvél á kostnað skatt-
borgaranna.
Framansagt er ekki tíundað í þeim
tilgangi að réttlæta ástand mála á ís-
landi. Heldur til þess að benda á að
umræðan um svindl og svínarí er
hverju lýðræðisríki nauðsyn. Án
hennar væri ekkert lýðræði.
Úthaldið hefur vantað
Það sem hinsvegar hefur vantað
„ Umrœðan um svindl og
svínarí erhverju lýðrœðisríki
nauðsyn. Án hennar vœri
ekkert lýðrœði.“
hér er eftirfylgni og úthald til þess að
koma málum í höfn. En það gæti ver-
ið að breytast. Lengi hefur verið rætt
um skattsvikin. Upphæð sem nemur
öllum fjárlagahallanum á ári er sögð
vera svikin undan skatti. Loks nú er
eins og hilli undir vatnaskil í þessum
málum. Meðan umræðan um skatt-
svikin virðist hafa skilað því að at-
vinnurekendur og einyrkjar eru und-
ir auknu aðhaldi hins opinbera hvað
varðar frádráttarbæran kostnað og
nótulaus viðskipti, þá eru bæjaryfir-
völd, til dæmis í Keflavík, farin að
skoða misræmi milli vinnukonuút-
svars og áberandi mikillar einka-
neyslu. Kannski er að koma að þeim
punkti að skattsvikin hætti að vera
þjóðarsport!
Mér er til efs að ákvarðanataka sé
miklu verri í íslenskri pólitík en í at-
vinnulífinu almennt séð. Það hefur
lengi legið í landi að stefnumótun hjá
stjórnmálaflokkum, fyrirtækjum,
stofnunum og einstaklingum sé
ábótavant. Jafnvel íslenskri kvik-
myndagerð er legið á hálsi fyrir vond
handrit. Er ekki sagt að við séum
áhlaupsfólk og skorpumenn, en för-
um á taugum frammi fyrir verkefnum
sem krefjast úthalds og markvissra
vinnubragða yfir lengri tíma? Og þar
sé meðal annars að finna ástæðuna
fyrir minni framleiðni hér en í grann-
löndum?
Betri pólrtík
Því verður hinsvegar ekki á móti
mælt að meðan mikið er ritað og gef-
ið út um ákvarðanatöku og stjórnun í
fyrirtækjum er næsta lítið fjallað um
þá hlið mála í stjórnmálum. Umræð-
ur um kosningafyrirkomulag, kjör-
dæmaskipan, jöfnun atkvæðisréttar
og annað sem hugsanlega gæti mót-
að ákvarðanaferlið í pólitíkinni á ann-
an hátt en tíðkast hefur koðna niður
með reglulegu millibili án þess að
þær leiði til lýðræðis og markvissari
stefnumótunar í flokkunum, þvert á
móti, ef marka má nýútkomna bók
Svans Kristjánssonar, prófessors við
HÍ.
I stað þess að níða niður pólitíska
starfsemi, meðal annars starfsemi
stjórnmálaflokka, ættu menn að sam-
einast um að búa stjórnmálahreyf-
ingum þau skilyrði að þær geti tekist
á við stefnumótun og pólitíska skoð-
anamyndun í nútíma þjóðfélagi án
þess að vera bundnar á klafa sér-
hagsmuna og skæklatogs.
HÖFUNDUR ER FRAMKVÆMDASTJÓRI ALÞÝÐU-
BANDALAGSINS.
Martröð flokkseigandans
„Efkosningin fœri fram á venjulegum landsfundi stjórn-
málaflokks vœru útsendarar frambjóðendanna löngu búnir
að kortleggja afstöðu fulltrúanna og snúa upp áhandleggi
allra sem œtluðu að hlaupa út undan sér. “
Formannskjörið í Alþýðubanda-
laginu sem byrjar á föstudag er í
raun afar merkileg tilraun. Þar er
nú hver einasti flokksraftur á flot
dreginn til að kjósa formann í flokkn-
um sínum. Ég veit ekki dæmi þess að
þessi aðferð við formannskjör (hvort
heldur í stjórnmálaflokki eða öðrum
félagasamtökum) hafi verið notuð
áður, sannarlega ekki hér á landi og
að líkindum ekki oft í nágrannalönd-
unum.
Eflaust litu margir á það sem venju-
legt merkingarlaust snakk, þegar
þessi ákvörðun var tekin fyrir tveim-
Punktar
f ll
Karl Th.
fg)_______Birgisson
ur árum og kynnt sem sérstaklega
lýðræðisleg aðferð við formannskjör,
róttæk breyting í flokki sem hefur
sama miðstýringarskipulagið og aðr-
ir gamlir sósíalistaflokkar. Mér sýnist
þetta raup hins vegar ætla að verða
að veruleika — að grasrótin, sem
hvergi hefur verið annað en klisja, fái
nú loks einhverju að ráða í stjórn-
málaflokki.
Það var kjarkað af forystu flokksins
að taka þessa áhættu. Þetta fyrir-
komulag þýðir að í reynd eru völdin
tekin af flokkseigendum, sem eru
vanir að víla og díla sig í gegnum for-
mannskosningar eins og allt annað
sem skiptir máli í valdastrúktúr
flokksins.
Bréfleg atkvæðagreiðsla allra
flokksmanna er martröð flokkseig-
andans — áhrif hans á atburðarásina
eru afar takmörkuð. Venjulegt fólk,
sem hingað til hefur helzt gagnazt til
að sleikja frímerki í kosningabarátt-
unni, hefur nú sama atkvæðisrétt og
forystuspíran. Quel horreur!
Ef kosningin færi fram á venjuleg-
um landsfundi stjórnmálafíokks
væru útsendarar frambjóðendanna
löngu búnir að kortleggja fulltrúana
og afstöðu þeirra af töluverðri ná-
kvæmni — og búnir að snúa upp á
handleggi allra sem ætluðu að
hlaupa út undan sér. Þar væri ekkert
tilviljunum háð og mjög fátt sem
kæmi á óvart.
Enda eru Allaballar í svolitlum
vandræðum núna, sýnist mér. Það
veit nefnilega enginn hvernig staðan
er. Ekki vegna þess að ekki hafi verið
reynt að komast að því. Fólk gefur
bara ekki upp afstöðu sína og enginn
þorir að spá um niðurstöðuna. Mig
grunar að ástæða þess, að fólk er
svona tregt við að gefa sig upp, sé
þessi nýfengni atkvæðisréttur. Fólk
sé búið að fá nóg af manípúleringum
forystumanna í gegnum árin og hugsi
með sér: „Nú get ég. Látiði mig í friði,
bölvaðir."
Gott á Allaballa. Og gott hjá þeim...
Hún var ógeðfelld, fréttin um að
bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ ætli að
rétta við fjárhag bæjarins með því að
hefja rannsókn á fjárreiðum einstak-
linga sem þeim þykir eiga of stór hús
og of rennilega bíla miðað við laun.
Og fá bæjarbúa til liðs við sig með
ábendingum um hag nágranna sinna.
Ojbara.
Látum vera að óljóst er, hvernig
bæjarfulltrúarnir ætla að gera þetta í
praxís og hvaðan þeim eiga að koma
heimildir til slíkrar rannsóknar. Það
er alvarlegra að þeir skuli með þess-
um hætti beinlínis hvetja til gróu-
sagna og rógburðar. Og það í bæ sem
manni sýnist að hafi ekki beinlínis
þjáðst af of mikilli samheldni síðustu
árin.
Skattsvik eru raunverulegt vanda-
mál og aldrei er of oft spurt þeirrar
spurningar, hvernig fólk á verka-
mannalaunum fer að því að byggja
sér einbýlishús og kaupa margmillj-
óna jeppa. Sú réttláta reiði, sem gýs
upp við slíkar fréttir, má samt aldrei
verða til þess að gripið sé til svo
óhuggulegra aðferða.
Þetta minnir svolítið á Feneyjar á
tímum Rannsóknarréttarins, þegar
borgarbúar stungu ábendingum um
syndsamlega hegðun nágrannans inn
um sérstaka rifu á Markúsarkirkj-
unni. Fyrir innan sátu prelátarnir og
hlökkuðu yfir fengnum. Nærtækara
dæmi er vitanlega frá Sovét, þar sem
ógnarvald ríkisins yfir fólki byggðist
á slefburði og nærðist á lygi um ein-
staklinga, hegðun þeirra og hugsanir.
Það er of auðvelt að missa sjónar á
abstrakt hugtökum á borð við lýð-
frelsi og mannréttindi þegar eitthvað
jafnáþreifanlegt og peningar byrgir
sýn. Upphæðirnar, sem ríki og bær
verða af vegna skattsvika, munu aldr-
ei duga til að bæta fyrir brot af þeim
skaða sem skattrannsóknarréttur á
borð við þennan getur valdið.
A uppleið
Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri þ/ngflokks
Alþýðuflokksins
Það var hárrétt ákvörðun að
taka frekar starfið hjá þingflokkn-
um en flokknum: sama starf, en
miklu betri kontór.
Ríkisstjórnin
Allir ráðherrar fá 40 þúsund kall
á mánuði vegna þingkostnaðar
sem enginn er. Enginn segir múkk.
Ólafur Garðar getur ýmislegt lært
af þessum mönnum.
Steinunn Sigurðardóttir
rithöfundur
Komin í hlýjan faðm Máls og
menningar, svo til síðust rithöf-
unda. Nú eru fáir eftir nema
kannski Hilmar Jónsson og
Andrés önd.
A niðurleið
Steingrímur J. Sigfússon
Vælir yfir því að fá ekki að
koma fram á kellingafundi með
Margréti Frímannsdóttur og Jó-
hönnu Sigurðardóttur. Það er far-
ið að slá út í fyrir honum í kosn-
ingabaráttunni. Flestir hefðu prís-
að sig sæla að sleppa.
Séra Pálmi Matthíasson
Þjóðin nefndi hann sem hugs-
anlegan nýjan forseta, en hann
var þar í kompaníi með Davíð,
Denna og Guðrúnu Agnarsdóttur.
Þegar svona er komið veitir sann-
arlega ekki af að hafa almættið
með sér í liði.
Steinunn Sigurðardóttir
rithöfundur
Ekki nefnd sem hugsanlegur
forseti og er þó búin að vera í
starfskynningu á Bessastöðum
árum saman. Það telst greinilega
ekki mikils virði á þessum síð-
ustu og verstu.