Helgarpósturinn - 09.11.1995, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
HP spyr
Getum við
þakkaöFinni
Ingótfssyni
stækkun
álversins?
Þorvaldur Ormsson
leigubifreiðarstjóri
„Ekkert frekar, held ég.“
Haukur Hafliðason
stöðuvörður
, Já, eigum við ekki bara að
eigna honum heiðurinn?“
Einar Þorvarðarson
handknattleiksþjálfari
„Ég held að þetta mál
eigi sér lengri aðdrag-
anda, nokkur ár. Finnur
á auðvitað sinn þátt í
stækkun álversins, en
fyrirrennarar hans líka.“
Linda Finnbogadóttir,
gjaldkeri Pósts og síma
„Ég hef voðalega lítið
um það mál að segja af
því að ég hef bara ekki
kynnt mér það.“
Ellert Sigurþórsson
póstbifreiðarstjóri
„Nei, alls ekki, ég held
að aðdragandinn sé
lengri en svo.“
Grétar Böðvarsson og
Úlfur Jónsson, starf-
andi smiðir
Úifur: „Nei, við þökkum
Jóni Sigurðssyni alfarið
fyrir það.“
Grétar: „Ég er reyndar
ekki samþykkur því, ég
þakka það tíu ára starfi
þarna, bæði Jóni og
Finni lngólfssyni.“
Úlfur: „Hvernig geturðu
bara þakkað þeim
tveimur?"
Grétar: „Og Landsvirkj-
un líka.“
Löggan reifniður
ruddalegt vegg-
spjald afHeiðari
snyrti í MA
Eins og greint er frá í Helgarpóstinum í dag hef-
ur Heiðar Jónsson snyrtir verið kærður fyrir
brot gegn blygðunarkennd ungs manns sem
búsettur er á Akureyri. Að undanförnu hafa geng-
ið ótrúlegar sögur þessu tengdar um landið þvert
og endilangt og í DV ýtti akureyrski fréttamaður-
inn Gylfi Kristjánsson undir þær með því að tala í
hálfkveðnum dylgjuvísum um „landsþekktan karl-
mann“ sem þætti ekki „venjulegur" á Akureyri.
Heiðar segir Akureyri reyndar óvenjulegan stað
að því leytinu til að hvergi annars staðar í heimin-
um hafi hann orðið fyrir því að bæði unglingar og
fullorðið fólk kalli til sín „hommi!“ úti á götu. Þess
má geta að einnig var mynd af Heiðari — sem ungi
maðurinn tók þegar meint brot var framið — sett
á Internetið, þar sem allir hafa aðgang að henni.
Það nýjasta sem síðan komið hefur upp á yfir-
borðið í málinu er að nokkrir framtakssamir ung-
lingar tóku sig til fyrir skemmstu og hengdu um-
rædda mynd upp sem veggspjald í hinum sóma-
kæra Menntaskóla á Akureyri. Þegar fréttist af
uppátækinu mættu laganna verðir umsvifalaust á
staðinn og rifu veggspjaldið niður...
Hamarinn eykur umsvif sín
Tölvu-Tótar á íslandi ættu að gleðjast því
væntanlegt er á markað íslenskt tölvutíma-
rit sem ber nafnið Töluuheimur ■—PC World
ísland. Það er Iceland Æeiáew-samsteypan sem
stendur að baki þessu en systurfyrirtækið
Hemra hf. er útgefandi. Tímaritið mun koma út
tólf sinnum á ári og að erlendri fyrirmynd kemur
desemberblaðið út ní í lok nóvember. Það verð-
ur 1. tölublaðið. Ritstjóri Tölvuheims er Styrmir
Guðlaugsson, fyrrverandi blaðamaður HP. Þess
má einnig geta að Marinó G. Njálsson, sem ann-
ast hefur tölvuskrif í Moggann, hætti þar til að
vera til sérstakrar ráðgjafar við verkefnið. Tíma-
ritið er með samning við International Data Gro-
up (IDG) sem er langstærsti útgefandi tímarita
um tölvur og upplýsingatækni í heiminum. Þeirra
þekktustu tímarit eru PC World, MacWorld og
Infoworld, sem flestir tölvuáhugamenn ættu að
þekkja. IDG rekur jafnframt fréttaþjónustu sem
nær um veröld alla og Tölvuheimur hefur aðgang
að henni og efni allra blaða í IDG-fjölskyldunni,
sem samtals eru um 270 talsins í 68 löndum. Auk
þess að ritstýra tímaritinu mun Styrmir vera
fréttaritari IDG á íslandi. Heyrst hefur úr herbúð-
um Haraldar J. Hamars að fyrirtækið ætli sér
stærri hluti á íslenskum blaðamarkaði í náinni
framtíð. Núna gefur Iceland Review út tímaritin
Iceland Review, Atlantica (millilandaflugrit Flug-
leiða), Upphátt (innanlandsflugrit Flugleiða), Ice-
land Reporter sem er í dagblaðsformi og Daily
News á Internetinu.
Björk og Presley
að er kannski að bera í bakkafullan
lækinn að segja fleiri sögur af frægð
Bjarkar. En eins og einhver sagði;
hún er frægari og stærri en allt ísland
samanlagt og enn eitt merki um það eru
myndir sem birtast af Björk í bók sem
Rolling Stone- útgáfufyrirtækið banda-
ríska er að gefa út þessa dagana. Þetta er
Ijósmyndabók sem nefnist Images of
Rock & Roll með myndum af nokkrum
helstu stjörnum poppsins og eru þær
teknar af ýmsum frægustu ljósmyndur-
um í heimi, nefnum Annie Leibowitz,
David Bailey og Herb Ritt.
Stjörnurnar sem þarna eru á myndum
eru heldur ekki af lakara taginu: Þarna
eru til dæmis goðsagnapersónur eins og
Elvis Presley, David Bowie, Sid Vicious
— og Björk.
Umrœðuefni vikunnar
Alusuisse ákvað loksins, eftir tveggja ára
umhugsun, að stækka álverið í Straumsvík.
Þar með sönnuðu Svisslendingarnir það sem
engum öðrum hefur tekist að sýna fram á:
Finnur Ingólfsson er ekki flón.
Hægt var að kaupa ódýrara bensín á nýjum
stöðvum Orkunnar. Skeljungur hf. er einn hlut-
hafa í Orkunni, en Kristni Bjömssyni, forstjóra
Shell, tókst samt að koma fram í sjónvarpi með
mjög sannfærandi undrunarsvip og segjast
myndu bregðast hart við þessari óvæntu sam-
keppni.
Einhver útlendingur spáði því að innan
nokkurra ára yrði íslenskt þjóðfélag orðið svo
hátæknivætt að hér yrði allt peningalaust. Al-
menningur greip um tómar buddur sínar og
þótti þessi náungi frekar ómerkilegur spámað-
ur.
Handtaska Guðrúnar Helgadóttur, jafnaura-
laus og aðrar buddur í landinu, ýtti á takkann á
borðinu hennar í atkvæðagreiðslu í þinginu.
Eftir því var tekið að skoðun töskunnar á frum-
varpinu var ekki vitlausari en hvers annars í
salnum.
Önnur
ástæða fyrir
frestun '
landsfundar? ,
Ur innstu röðum Sjálf-
stæðisflokksins hlerar
HP að tvær meginástæð-
ur liggi að baki því að Davíð
Oddsson og helstu ráðgjafar
hans ákváðu að fresta lands-
fundi flokksins fram á vorið, í
stað þess að bíða með að
halda hann í nokkrar vikur
vegna snjóflóðsins á Flateyri.
Þannig mun nefnilega í pottinn
búið að annars vegar vill Davíð
fá tíma til að ákveða sig með
forsetaframboðið — en hann
er eins og kunnugt er býsna
spenntur fyrir húsforráðum í
stássstofunni á Bessastöðum
— og hins vegar vill hann fá
tíma til að undirbyggja ræki-
lega formannsframboð vinar
síns og aðalráðgjafa: Björns
Bjarnasonar, hins skelegga
menntamálaráðherra þjóðar-
innar. Munu þá sannast spá-
dómar véfrétta HP frá því fyrr í
vetur um að Björn muni fyrr en
flesta grunar fá þá ósk sína
uppfyllta, að feta í fótspor föð-
ur síns og jafnvel sanna að
hann sé föðurbetrungur... t
Þórarinn Tyrfings-
son, yfirlæknir hjá SAÁ,
fyrir að spyrja sjálfan
sig hvort verð kunni að
vera of hátt á íslandi.
Þetta kemur kannski úr
óvæntri átt, en Þórarinn
er að pæla í því að betra
væri kannski að alkarnir
skjólstæðingar hans
drykkju bjór fremur en
alls kyns ólyfjan og
unga fólkið hefði öl um
hönd fremur en landa-
sullið...