Helgarpósturinn - 09.11.1995, Side 8
FlMIVmjDAGUR 9, NOVHVIBE1995
Eiga alþingismenn að gera lögformlega grein fyrir hagsmunatengslum sínum til að auka gegnsæi stjórnsýslunnar?
Sífelldir hagsmunaárekstrar
í vikunni ákvað breska þingið að skylda þingmenn til að gera grein fyrir peningum sem þeir þiggja frá aðilum utan þings.
Svipaðar reglur hafa lengi gilt í Bandaríkjunum og á fleiri þjóðþingum. Upplýsingar þessar eru opinber gögn og það eitt þyk-
ir tryggja ákveðið gegnsæi í stjórnsýslunni þannig að það liggi ávallt ljóst fyrir gagnvart kjósendum hvaða hagsmunatengsl
þingmenn hafa. Jafnframt er talið að fyrirkomulag sem þetta fyrirbyggi spillingu og sé yfirhöfuð á ýmsan hátt nauðsynlegt
lýðræðisríkjum. Stjórnmálafræðingar sem Stefán Hrafn Hagalín ræddi við um málið voru þeirrar skoðunar að skýrar og opin-
berar upplýsingar um hagsmunatengsl þingmanna væru hið mesta þjóðþrifamál því alltof oft væri erfitt að henda reiður á
slíku gegnum almenna vitneskju. Stjórnmálafræðingurinn Gunnar Helgi Kristinsson bendir þannig á, að það sé frekar vinnu-
regla á Alþingi en hitt að stjórnmálamenn gæti eigin hagsmuna. Hann segist persónulega enga trú hafa á að þeir knýi sjálfir
fram umbætur. Þeir stjórnmálamenn sem rætt var við vegna málsins voru hinsvegar flestir sammála um að það væri öldung-
is ágæt hugmynd að taka upp umrætt fyrirkomulag. Og þá stendur aðeins eftir: Hvaða þingmenn ætla að taka af skarið og
leggja fram þingsályktunartillögu um málið — og hvenær?
á Alþingi?
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður
og þingmaður fllþýðuflokks
Skýrari upplýsingar
um hagsmunatengsl
í þágu almanna-
hagsmuna
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður og þingmaður Alþýðu-
flokks: Ég held að það sé full
ástæða til að taka upp þetta fyrir-
komulag hér á landi. Hagsmuna-
hópar skipuleggja sig æ betur og
halda uppi miklum þrýstingi á
þingmenn.
„Já, ég held að það sé full
ástæða til að taka upp þetta
fyrirkomulag hér á landi. Og
hversvegna? Aðallega vegna
þess að í vaxandi mæli er talað
um að menn standi frammi fyr-
ir hagsmunaárekstrum, til
dæmis í skilningi samkeppnis-
laga. Það er einkenni á stjórn-
málaþróun hér á landi — ein-
sog reyndar víða annarsstaðar
— að hagsmunahópar skipu-
leggja sig æ betur og halda
uppi miklum þrýstingi á þing-
menn og stjórnvöld á mikil-
vægum málasviðum; reyna að
hafa áhrif á ákvarðanir sem
varða þeirra hagsmuni — og
almennings.
Þetta er vissulega fylgifiskur
lýðræðis, en það fer ekkert
framhjá manni að vald hags-
munahópa fer vaxandi og ítök
þeirra og áhrif sömuleiðis.
Auðvitað geta og hafa komið
upp fjölmörg dæmi um hags-
munaárekstra af þessum sök-
um. Þau eru náttúrlega sígild á
landbúnaðarsviðinu og á Al-
þingi íslendinga hafa setið
menn sem höfðu beinna fjár-
hagslegra hagsmuna að gæta
þarsem þeir voru bændur eða
fyrrverandi bændur. Hags-
munirnir voru þannig beinlínis
fjölskyldulegir í sambandi við
ákvarðanir á borð við niður-
greiðslur, beingreiðslur og bú-
vörusamninga — svo fáein
dæmi séu nefnd. Svo ekki sé
nú minnst á þegar hagsmunir
bænda rekast á við hagsmuni
neytenda, til að mynda í GATT-
samningunum og við útfærslu
þeirra. Spurningin um hags-
munaárekstra á einnig við um
sjávarútvegsmál, verslun, við-
skipti, þjónustu, tryggingamál,
deilur við sérfræðinga, deilur
við opinbera starfshópa á
borð við heilbrigðisstéttirnar,
deilur vegna aukins frjálsræðis
í verslun með lyf og svo fram-
vegis.
Ef menn eru á annað borð
þeirrar skoðunar að það eigi
að ríkja gegnsæi í stjórnsýslu
— í skilningi stjórnsýslulaga —
og ef menn vilja forðast að
leiða menn í freistni varðandi
hagsmunaárekstra þá er þetta
sú leið sem þjóðþing hafa farið
til að fyrirbyggja það. í nýlegri
breskri þingsögu kom á daginn
að þingmenn leigja þing-
mennskuumboð sitt iðulega til
sérhagsmunaaðila til þess að
fá fjallað um ákveðin mál: selja
til að mynda fyrirspurnir.
Það er í þágu almannahags-
muna að menn geti gengið að
því sem vísu hver hagsmuna-
tengslin eru. Við getum tekið
bein eignatengsl sem dæmi —
í bandaríska þinginu er æva-
forn hefð fyrir því að slíkt sé
skráð. Þetta getur einnig átt
við um annarskonar tengsl
þarsem menn skrá sig og við-
urkenna að þeir hafi þegið fjár-
styrki frá einhverjum tiltekn-
um hópum í kosningabaráttu
og lýsa því yfir hvert þeir telja
áhugasvið sitt vera í tengslum
við slíkan bakgrunn. Þannig að
ég held að það séu ærin rök
fyrir þessu fyrirkomulagi."
Gunnar Helgi Kristinsson,
dósent í stjórnmálafræði
Vinnuregla í
þinginu að þing-
menn gæti hags-
muna sinna
Gunnar Helgi Kristinsson, dó-
sent í stjórnmálafræði: Bæði
stjórnmálamenn og toppembættis-
menn ættu að leggja fram skýrslu
eða lista um hagsmunatengsl sín.
Og það á að vera Ijóst að þeir
komi ekki nálægt afgreiðslu mála
sem á einhvern hátt varða hags-
muni þeirra.
„Mér vitanlega hefur aldrei
farið fram nein umræða um
þetta mál. Persónulega finnst
mér þetta mjög eðlileg krafa.
Bæði stjórnmálamenn og topp-
embættismenn ættu að leggja
fram skýrslu eða lista um hags-
munatengsl sín. Og það á að
vera ljóst að þeir komi ekki ná-
lægt afgreiðslu mála sem á ein-
hvern hátt varða hagsmuni
þeirra.
Ég held að það hafi verið
vinnuregla í þinginu, að menn
komi einmitt sérstaklega ná-
lægt málum sem varða hags-
muni þeirra sjálfra, þannig að
þetta væri mjög róttæk breyt-
ing.
Ég hef enga trú á því hins-
vegar að þingmenn muni taka
vel í óskir eða hugmyndir þess
efnis að svona fyrirkomulag
verði tekið upp. Aðminnsta-
kosti er ég hræddur um að það
gerist ekki af sjálfu sér fyrir
það eitt að þingmenn líti yfir
sviðið og segi: Jæja, hér vantar
nú löggjöf.
Því miður lítur svona löggjöf
oft ekki dagsins Ijós fyrren
komist hafa upp, fyrir tilstilli
fjölmiðla, afar svæsin spilling-
armál eða eitthvað slíkt. Og
fjölmiðlar hafa elt mál mjög
uppi þarsem þingmenn hafa
beitt sér í málum sem varða þá
persónulega."
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, þingkona
Þjóðvaka — hreyfingar fólksins
Full ástæða til að
velta málinu vand-
lega fýrir sér
Ásta Ragnheiöur Jóhannes-
dóttir, þingkona Þjóðvaka —
hreyfingar fólksins: Ég hef setið í
fiölda ráða og stjóma þarsem
maður hefur ekki getað samvisku
sinnar vegna fiallað um tiltekið
mál vegna hagsmunatengsla og
því vikið af fundi meðan rætt var
um það. Þetta gerist aldrei á Al-
þingi.
„Ég hef nú ekki skoðað þessi
mál sérstaklega, en mér finnst
full ástæða til að velta þeim
vandlega fyrir sér. Ég get ekki
ímyndað mér annað en þing-
menn taki vel í tillöguflutning
þaraðlútandi þarsem þeir hafa
ekkert að fela í þessum efnum
— eftir því sem ég best veit.
Það er sjálfsagt rétt sem
Gunnar Helgi Kristinsson hef-
ur sagt, að inná Alþingi tíðkist
að þingmenn komi sérílagi ná-
lægt sínum hagsmunamálum
— frekar en að víkja ef slíkt
kemur upp.
Ég hef setið í fjölda ráða og
stjórna þarsem maður hefur
ekki getað samvisku sinnar
vegna fjallað um tiltekið mál
vegna hagsmunatengsla og því
vikið af fundi meðan rætt var
um það. Þetta sér maður hins-
vegar aldrei gerast á Alþingi."
Björn Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðis-
flokks og menntamálaráðherra
Fræðilega
skynsamlegt,
en jafnframt
margþætt mál
Björn Bjarnason, þingmaður
Sjálfstæðisflokks og menntamála-
ráðherra: Þetta er margþætt mál
sem þarf að ræða og vitaskuld
verður að draga fram öll rök. Jafn-
framt hljótum við að setja umræð-
una í samhengi við launakjör þing-
manna og stöðu.
„Mér finnst nú fátt benda til
þess, að nauðsynlegt sé að
koma þessu fyrirkomulagi á
hérna á íslandi. Hér hafa menn
velt því fyrir sér hvort þing-
menn eigi að vera í fullu starfi
sem stjórnmálamenn eða ekki.
Og sumir hafa verið þeirrar
skoðunar að það sé allsekki
markmið í sjálfu sér að þing-
menn gegni ekki öðrum störf-
um samhliða þingmennskunni.
Ég er ekki tilbúinn til að lýsa
því yfir, að það sé rétt að
ganga á þennan hátt að ís-
lenskum þingmönnum. Ef til
vill hafa menn sett þetta fyrir-
komulag á í öðrum löndum af
biturri reynslu. Er einhver slík
reynsla hér að það sé nauðsyn-
legt að gera ráðstafanir sem
þessar?
Fræðilega getur þetta virst
skynsamlegt, en mér finnst að
sumu leyti málið vera þannig
vaxið, að það sé sett fram til að
gefa tii kynna að þingmenn láti
frekar en aðrir stjórnast af ein-
hverjum annarlegum hags-
munum. Og ég er allsekki
reiðubúinn að taka undir þau
sjónarmið.
Þetta er margþætt mál sem
þarf að ræða og vitaskuld
verður að draga fram öll rök —
með eða á móti. Jafnframt
hljótum við að setja umræð-
una í samhengi við launakjör
þingmanna og stöðu. Eiga
þingmenn að vera atvinnupól-
itíkusar eða reyna að rækta
tengsl sín við aðra með öðrum
störfum og svo framvegis."
Kristín Halldórsdóttir, þingkona
Samtaka um kvennalista
Allt sem gerir
hlutina gegnsærri
er af hinu góða
Kristín Halldórsdóttir, þingkona
Samtaka um kvennalista: Ég held
að allt sem getur gert hlutina
gegnsærrí og komið þeim uppá
borðið sé af hinu góða. Við í
Kvennalistanum höfum verið mjög
hlynntar því að hafa allt sem opn-
ast.
„Ég held að allt sem getur
gert hlutina gegnsærri og kom-
ið þeim uppá borðið sé af hinu
góða. Afturámóti hef ég hrein-
lega ekki velt þessu tiltekna
máli mikið fyrir mér.
Við í Kvennalistanum höfum
verið mjög hlynntar því að
hafa allt sem opnast þannig að
það sé enginn laumupokahátt-
ur á hlutunum og í fljótu
bragði sé ég ekki annað en að
þetta væri mjög af hinu góða:
semsagt að hafa það augljóst
hvernig hagsmunatengslum
þingmanna er háttað svo að
kjósendur geti dregið af því
sínar ályktanir.
Ég hef satt að segja ekki hug-
mynd um hvort samþingmenn
mínir myndu taka vel í þetta
fyrirkomulag. Ég þarf að ræða
þetta nánar í mínum hópi og
við samþingmenn mína.
Auðvitað veit maður síðan
að það væri misjafnlega auð-
velt fyrir suma þá sem nú sitja
á þingi að sætta sig við þessa
hugmynd.“
Ólafur Ragnar Grímsson, þingmaður
Alþýðubandalags
Vissulega kemur
til greina að festa
þetta í löggjöf
Ólafur Ragnar Grímsson, þing-
rnaður Alþýðubandalags: Mér
finnst þetta fyrirkomulag vissulega
geta komið til greina og jafnvel að
festa það í löggjöf. Aðalatriðið
finnst mér vera, að við eigum að
búa í opnu og gegnsæju þjóðfé-
lagi.
„Mér finnst þetta fyrirkomu-
lag vissulega geta komið til
greina og jafnvel að festa það í
löggjöf. Það er hinsvegar mis-
jafnt eftir löndum hvernig
þessu er háttað og ýmsir þeir
siðir sem hafa tíðkast erlendis
hafa ekki tíðkast hér. Margt
sem snertir íslenska þingið
helgast kannski af smæð þess
og því að menn þekkja vel til
flestra sem þar sitja.
Það hefur auðvitað verið
þannig, að til dæmis forystu-
menn stéttarsamtaka bænda
hafa lengi setið á Alþingi og
eins hafa ýmsir forystumenn
verkalýðshreyfingarinnar gert
það — til dæmis Hannibal
Valdimarsson og Bjöm Jóns-
son þegar þeir voru forsetar
Alþýðusambandsins. Og marg-
ir fleiri; menn á borð við Guð-
mund H. Garðarsson og Guð-
mund J. Guðmundsson. Vita-
skuld er erfitt að draga mörkin
í þessu samhengi og sjá hvar
línurnar liggja — sérstaklega í
fámenninu hér á landi.
í sjálfu sér kem ég ekki auga
á beint samhengi milli skýrari
upplýsinga um hagsmuna-
tengsl og umræðna um launa-
kjör alþingismanna — það ætti
að vera alveg óháð hvort öðru.
Aðalatriðið finnst mér vera,
að við eigum að búa í opnu og
gegnsæju þjóðfélagi, og ég
held að það hafi ekkert farið
framhjá mönnum þegar fulltrú-
ar ýmissa hagsmunahópa hafa
verið að fjalla um sín mál á
þingi.
Menn verða að vara sig á
samanburði við^ önnur lönd í
þessum efnum. Ég þekki nú vel
til bæði í Bandaríkjunum og
Bretlandi. Og það má nefna að
til dæmis í Bretlandi tíðkast