Helgarpósturinn - 09.11.1995, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER1995
9
það að kannski þrjú til fjögur
hundruð þingmenn sitji í
stjórnum fjölmargra fyrirtækja
og sjóða. Þau skipta jafnvel
þúsundum fyrirtækin og sjóð-
irnir þarsem þingmenn sitja í
stjórn. í Bandaríkjunum tíðk-
ast það jafnframt að þingmenn
flytji erindi og ræður á fundum
samtaka og stofnana og taki
fyrir það greiðslur; kannski
þúsundir dollara fyrir eina
ræðu.
Við sem erum í pólitík á ís-
landi höfum ekki vanist því, að
fá greitt fyrir ræðurnar, og til
gamans má geta þess að ís-
ienskir stjórnmálamenn eru
einu aðilarnir sem koma fram í
sjónvarpi sem aldrei fá borgað
fyrir það.
Kerfið er þannig miklu út-
færðara í ýmsum löndum en
hjá okkur og í litlum hópi ein-
sog situr á Alþingi íslendinga
— með sína sextíu og þrjá
þingmenn — og í svona smá-
vöxnu þjóðfélagi vita allir að til
dæmis Vilhjálmur Egilsson
vinnur hjá Verslunarráði. Það
þarf enga opinbera skýrslu um
það og ég held að lítið sé um
umfangsmikla hlutabréfaeign
meðal íslenskra þingmanna.“
Vilhjálmur Egilsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks
Allt í lagi að
þessar upplýsingar
verði gerðar
opinber£u*
Vilhjálmur Egilsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks: Mér myndi finn-
ast það allt í lagi að þessar upp-
lýsingar yrðu gerðar opinberar.
Kjósendur eiga kröfu á að fá upp-
lýst hver hagsmunatengsl þing-
manna þeirra eru.
„Mér myndi finnast það allt í
lagi að þessar upplýsingar
yrðu gerðar opinberar. Ég hef
ekkert á móti því og þetta er
ekkert mál í mínum augum. Ef
einhverjir kjósenda gera sér
ekki grein fyrir hagsmuna-
tengslum þingmanna sinna
finnst mér að þeir eigi alveg
kröfu á að fá þau mál upplýst.
Það vita hinsvegar allir
hvaða tengsl ég hef; það er
ekkert leyndarmál og ég er
jafnvel kosinn útá þau.“
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Alþýðubandalags og óháðra
Myndi hiklaust
styðja tillögu sem
steftidi að þesfju
fyrirkomulagl
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Alþýðubandalags og óháðra: Mér
finnst sjáifsagt að öll kjör og
launagreiðslur þingmanna og ann-
arra séu uppá borði en ekki felu-
mát. Ég myndi hiklaust styðja til-
lögu á Alþingi sem stefndi að því
marki.
„Mér finnst sjálfsagt að öll
kjör og launagreiðslur þing-
manna — sem og reyndar ann-
arra í þjóðfélaginu — séu uppá
borði en ekki felumál. Eg
myndi hiklaust styðja tiilögu á
Alþingi sem stefndi að því
markmiði. Það er hinn versti
ósiður að reyna að fela hluti
sem tíðkast í launakerfinu og
auðvitað eiga alþingismenn —
sem setja öðrum reglur og lög
— að sýna gott fordæmi í þess-
um efnum. Það er jafnframt
nauðsynlegt að menn þekki
hagsmunatengsl alþingis-
manna að þessu leyti.
Ég hef í sjálfu sér ekki hug-
mynd um hvort samþingmenn
mínir myndu taka vel í tillögu-
flutning sem stefndi að því að
gera þessar upplýsingar opin-
berar, en ég ítreka mikilvægi
þess að fjárreiður einstaklinga,
stofnana á borð við stjórn-
málaflokka og yfirhöfuð allra
þeirra sem koma að opinberri
ákvarðanatöku séu lýðum ljós-
ar.“
INTERNET
Námskeiö -12 klst.
Netscape fyrir vefinn og Eudora fyrir póstinn. Farið í
skráarflutning með FTP og ICR samtalsrásirnar. Farið í
notkun Telenet til að tengja saman tölvur. Finger
notað til að leita að tölvum og notendum. Gagna
leitað. Með námskeiðinu fylgir bók um Internetið og
frí áskrift í einn mánuð að Trekneti, sem veitir alhliða
Internet þjónustu.
Upplýsingar og skráning í síma 561 6699.
ÍBÚÐ ÓSKAST TIL LEIGU
Óska eftir aö taka á leigu
4. herb. íbúö í vesturbæ
eða Seltjarnarnesi.
Uppl. í síma 562 - 5746
Nakinn sannleikurinn -
á hverjum fimmtudegi
i