Helgarpósturinn - 09.11.1995, Page 11

Helgarpósturinn - 09.11.1995, Page 11
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER1995 Á óbreyttur rekstur Ríkisútvarpsins rétt á sér? Fyrir um það bil 10 árum var það eitt helsta ágreiningsmál íslenskra stjórnmála, hvort leyfa ætti öðrum en ríkinu að reka útvarps- og sjónvarps- stöðvar. Þá hafði það um árabil verið baráttumál ýmissa frjálslyndra manna, að aflétta ríkiseinokuninni á þessu sviði, en allfjölmennur og áhrifamikill hópur barðist hart gegn breytingunni. Rökin gegn frelsi í útvarpsrekstri voru þau helst, að einkareknar útvarps- stöðvar myndu grafa undan íslenskri tungu og menningu og jafnframt að lýð- ræðislegri umræðu væri stefnt í stór- hættu ef einhver „peningaöfl" næðu tökum á útvarpsrekstrinum. Nú þegar áratugur er liðinn frá því samkeppni var leyfð á þessu sviði geta menn reynt að leggja mat á reynsluna af breytingunni. Ég hygg að niðurstaða flestra verði á þá leið, að áhyggjur af af- leiðingum hennar hafi verið ástæðu- lausar. Viðhorfin í þessum efnum hafa líka breyst, og jafnvel harðir andstæð- ingar frjáls útvarps virðast vera farnir að sætta sig við það; nú heyrist varla nokkur maður mæla því sjónarmiði bót á opinberum vettvangi, að taka beri upp ríkiseinokun að nýju. Astæða er til að rifja þessa sögu upp nú um þessar mundir í tilefni af um- ræðum um nýlega stjórnsýsluendur- skoðun Ríkisendurskoðunar hjá Ríkis- útvarpinu. Niðurstöður þeirrar athug- unar fela í sér margvíslega gagnrýni á rekstur stofnunarinnar og virðist full ástæða til að taka þær ábendingar al- varlega. Ríkisútvarpið er stór stofnun og dýr í rekstri, og ef vilji er til að reka hana áfram verður að leitast við að gera það með sem hagkvæmustum og skynsamlegustum hætti. Þrátt fyrir að stofnunin hafi að ýmsu leyti sinnt lög- boðnu hlutverki sínu vel á undanförn- um árum og áratugum er full ástæða til að skoða rekstur hennar og stjórn- skipulag ofan í kjölinn eins og Ríkis- endurskoðun hefur nú gert, og lagfæra þau atriði, sem betur mega fara. Jafnframt því sem þörf er á að ræða endurskoðun á fjármálum og skipulagi Ríkisútvarpsins er ekki síður nauðsyn- legt að hefja umræður um þá grund- vallarspurningu, hvort ástæða sé til að breyta eignarhaldi á stofnuninni. Menn þurfa til dæmis að velta fyrir sér, hvort það sé yfirleitt eðlilegt að ríkið reki fjöl- miðlafyrirtæki og hvort einhver sér- stök þörf sé á því að ríkið haldi áfram rekstri tveggja útvarpsrása og einnar sjónvarpsrásar, eins og gert hefur ver- ið á undanförnum árum. Ríkisendur- skoðun tekur ekki afstöðu til þessara spurninga í skýrslu sinni, heldur geng- ur út frá óbreyttri eignaraðild, enda er það í samræmi við gildandi lög og þá stefnu, sem mörkuð var í skýrslu svo- kallaðrar útvarpslaganefndar á síðasta ári. Þessum forsendum er hins vegar ' hægt að breyta, ef til þess er pólitískur vilji, og því er nauðsynlegt að málið verði rætt frá öllum hliðum. Nú er það orðið almennt viðhorf hér á landi og víðast hvar á Vesturlöndum, að ríkið eigi ekki að standa að atvinnu- rekstri nema í undantekningartilfellum. Talin er þörf á að rökstyðja ríkisrekst- ur með sérstaklega sterkum röðum, ekki síst þegar um er að ræða starf- semi, sem er í beinni samkeppni við einkaaðila eins og í tilviki Ríkisútvarps- ins. Þau rök, sem einkum eru notuð til að réttlæta áframhaldandi starfsemi stofnunarinnar, eru að hún gegni mikil- vægu menningar- og öryggishlutverki. Efast má um, að þessar röksemdir „Halda má fram með allsterkum rök- um, að Rás 1 gegni mikiluœgu menn- ingarhlutuerki, en stórlega má efast um að það eigi uið um Rás 2. “ dugi til að réttlæta óbreytt eign- arhald og umsvif útvarpsins. Hvað öryggishlutverkið varðar má benda á, að með aukinni út- breiðslu og bættri þjónustu einkareknu stöðvanna hefur verulega dregið úr því. Sam- kvæmt 4. gr. útvarpslaganna frá 1985 ber öllum útvarpsstöðvum skylda til að birta tilkynningar frá Almannavörnum og skyld- um stofnunum og gera hlé á dagskrá sinni til þess að koma þeim að, þegar brýna nauðsyn ber til og almannaheill krefst. Ríkisútvarpið hefur ekki sér- stöðu hvað þetta atriði varðar. Þegar litið er til menningar- hlutverksins er ef til vill meiri vafi á ferðinni. Halda má því fram með allsterkum rökum, að Rás 1 gegni mikilvægu hlutverki á þessu sviði, en stórlega má ef- ast um að það eigi við um Rás 2. Raunar verður ekki séð, að dag- skrá hennar sé á nokkurn hátt frábrugðin dagskrá ýmissa einkarekinna stöðva. Eins má efast um að sá grundvallarmun- ur sé á dagskrárgerð og þjón- ustu Ríkissjónvarpsins og helsta samkeppnisaðilans, að það réttlæti áframhaldandi rík- isrekstur á því sviði. í ljósi þessa virðist full ástæða til að taka það til alvar- legrar skoðunar, hvort rétt sé að færa einstaka þætti í rekstri Ríkisútvarpsins til einkaaðila, annaðhvort með beinni sölu eða með því að leggja núver- andi starfsemi niður og auka þannig svigrúm einkaaðila til að láta til sín taka á viðkomandi sviði. Höfundur er laganemi. Fortíðardraugamir „ Um þennan draugagang snúast nú stœrstu framlög Suauars Gestssonar og Jóns Balduins Hanni- balssonar um samstarfjafnaðarmanna síðustu mánuðina. “ Stundum finnst mér það synd að ekki skuli fleiri lesa Alþýðublaðið en raun ber vitni. Sem áhugamanni um pólitík finnst mér ég verða að sjá það, þótt vitanlega sé það misgott og mis- merkilegt efnislega. Punktar En stundum eru jólin. Eða næstum því. Þannig er það þegar Svavar Gests- son skrifar í blaðið opnugreinar, eins og hann hefur gert að undanförnu, sem eru svar við álíka Ianglokum Jóns Baldvins Hannibalssonar, sem aftur voru viðbrögð við bók Svavars, Sjónar- rönd, sem kom út í sumar. Raunar kemur bók Svavars þessu lít- ið við nú orðið. Á yfirborðinu er tilefni skrifa þeirra félaga hugsanlegt sam- starf jafnaðarmanna, hvað knýr á um það og hvað dregur úr. í reynd eru þeir að skrifa hvor sína útgáfuna af stjórn- málasögu íslands síðustu sextíu árin. Og það er nú vandinn. Það er alltaf gaman að lesa Svavar og Jón, af því að þeir eru leiftrandi pennar þegar vel tekst til. Það er líka gaman að lesa stjórnmálasögu. En það er beinlínis óhuggulegt að lesa stjórnmálasögu eft- ir menn sem eru jafnilla brenndir af átökum síðustu áratuga, en ætla sér að nota þá sögu, sína útgáfu vitanlega, sem umræðugrunn um nýja framtíð. Nokkur dæmi úr síðustu grein Svav- ars: Jón Baldvin sagðist hafa læknazt af marxismanum með því að lesa bók eft- ir C.A.R. Crosland á sínum tíma. Hverju svarar Svavar? Jú, hann setur á langa tölu um hvursu rangt þessi Crosland hafi haft fyrir sér og að Marx gamli hafi nú kannske ekki verið jafngalinn og margir halda. Svavar segir að saga AI- þýðuflokksins sé saga brottrekstrar beztu manna flokksins, allt frá sjálfum Einari Olgeirssyni árið 1930. Það sé ein meginástæðan fyrir raunasögu flokksins. Jón Baldvin segist hafa feng- ið nóg af Alþýðubandalaginu snemma á sjöunda áratugnum, en Svavar minnir á að Jón sótti stíft árið 1967 að fá ann- að sæti á framboðslista flokksins í Reykjavík, einmitt við hliðina á mönn- unum sem hann segist hafa verið búinn að hafna sem ónýtum kommúnistum. Svavar nuddar Alþýðuflokknum upp úr atvinnuleysi Viðreisnaráranna og segir flokkinn eiga lítið sem ekkert í velferð- arkerfinu síðustu áratugi. Og svo fram- vegis og svo framvegis. Um þetta snúast nú stærstu framlög Svavars Gestssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar um samstarf jafnaðar- manna síðustu mánuðina. Þið afsakið vonandi orðbragðið, en hvurn fjand- ann kemur það framtíðarsamstarfi jafn- aðarmanna við hvort Einar Olgeirsson var rekinn úr Alþýðuflokknum, hvort Halldór Laxness laug til um Sovét eða hvort kratarnir vildu seinka lýðveldis- stofnun? Er það forvitnilegur söguleg- ur fróðleikur? Já. Hefur það eitthvert gildi fyrir samtímann og framtíðina? Onei. Einu sinni kvartaði Vilmundur Gylfason yfir því, að það væri ekki hægt að ræða hugsanlegt samstarf á vinstri væng á flokksfundum hjá Al- þýðuflokknum, því þá risu eðalkratarn- ir á fætur hver af öðrum og héldu ræð- ur sem hægt væri að taka saman í tvö orð: „Héðinn sveik! Héðinn sveik!“ Lengra náði sú umræða aldrei. Eitthvað svipað er að gerast hjá Svavari og Jóni Baldvini þessar vikurn- ar í Alþýðublaðinu. Það er alvont sem innlegg í umræðu um framtíðina. Kannske er þá, eftir á að hyggja, ágætt að ekki skuli fleiri sjá blaðið en raunin er. Þessi draugagangur truflar þá færri. Og aðrir geta haldið áfram að tala sam- an um samtíð og framtíð án þess að blanda Einari, Héðni, Crosland og Marx í málið. Á uppleið Þorgeir Þorgelrson Hann setti íslenska dóms- kerfið á annan endann og nú er áhrifa hans farið að gæta hinum megin á hnettinum, í Suður-Afríku. Þorgeiri er ekki fisjað saman.Snorri Óskarsson í Betel Vakningin sem hann stendur fyrir í Vestmannaeyjum er slík að unglingar brenna plöturnar sínar. Ærin sem var þjálfuð til að vera fjárhundur og kann allt sem hundar kunna — nema kannski að gelta. Allt til að þurfa ekki að vera íslensk rolla. A niðurleið Handboltalandsliðið íslendingar unnu loksins leik, en það var af því dóm- ararnir hjálpuðu þeim. Þeg- ar þeir hjálpuðu ekki var tapið jafnstórt og endranær. Útlendingaeftiriitið Karlarnir þar fóru endanlega yfir strikið þegar þeir ætl- uðu að henda saklausu stúlkubarninu úr landi. Jólabókin Illa er komið fyrir blessaðri bókinni þegar er búið að setja á hana opinbert verð.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.