Helgarpósturinn - 09.11.1995, Side 12

Helgarpósturinn - 09.11.1995, Side 12
FlMIVmjDAGUR 9. NÓVEMBER1995 \ Heiðar Jónsson snyrtir hefur oft þurft að glíma við söguburð en aldrei sem nú. I opinskáu samtali við Guðrúnu Kristjánsdóttur rekur hann málavexti í viðkvæmu nýju kærumáli og lýsir sjálfum sér eins og fáir þekkja hann. Notfœrði sér annarlegt ástand mitt u Heiðar Jónsson snyrtir hefur verið kærður fyrir brot gegn blygðunar- kennd ungs manns sem búsettur er á Akureyri. Að und- anförnu hafa geng- ið ótrúlegar sögur þessu tengdar um landið þvert og endilangt og í einu dagblaðanna var dylgjað um „lands- þekktan karlmann“ sem þætti ekki „venjulegur“ á Ak- ureyri. Stuttu seinna var rang- lega fullyrt að hann hefði verið kærður fyrir áreitni. Einnig var mynd af Heið- ari, sem ungi mað- urinn tók þegar meint brot var framið, sett á Inter- netið, þar sem allir höfðu aðgang að henni. í samtaiinu hér að neðan greinir Heið- ar lesendum HP frá sinni hlið á málinu; um hvaða áhrif kæran, dreifing mynda af honum á Internetinu og magnaður sögu- burður hefur haft á líf hans og fjöl- skyldu hans síð- ustu daga. Heiðar telur sig hafa verið leiddan í gildru af þeim sem leggja fæð á það sem hann stendur fyrir. „Það er auðvitað ófyrirgef- anlegt hvernig ég hagaði mér á Akureyri í október, sérstak- lega gagnvart eiginkonu minni og mínum nánustu. Það breyt- ir því þó ekki að ég tel að óprúttið fólk hafi notfært sér annarlegt ástand mitt,“ segir Heiðar Jónsson snyrtir, sem allar götur síðan um fermingu hefur verið endalaus upp- spretta kjaftasagna. Hann hef- ur þó að sögn aldrei þurft að taka eins á honum stóra sínum og nú síðustu daga. Atburðurinn sem vísað er til átti sér stað að afloknu konu- kvöldi snemma í október þar sem Heiðar var kynnir. „Ég var nokkuð við skál og í ofanálag í gífurlega erfiðu hugarástandi af mjög svo persónulegum ástæðum, sem varða fjármál mín og fjölskyldu minnar. Ég vissi bókstaflega ekki hvað sneri upp og hvað niður á til- verunni þetta kvöld og var að auki þreyttur og einmana. í stað þess að henda mér í höfn- ina náði ég mér niðri á öðru fólki með ófyrirgefanlegum hætti — sem ég dauðsá auðvit- að strax eftir.“ Þekki manninn ekki neitt Eins og flestir landsþekktir menn fer Heiðar afar sjaldan á opinbera skemmtistaði, þaðan af síður hvarflaði það að hon- um að halda kyrru fyrir í Sjall- anum þetta kvöld þar sem strippari hóf að sýna listir sín- ar að aflokinni dagskrá Heið- ars. Ástæðuna segir hann þá að jafnan skapist mikill múg- æsingur á skemmtistöðum þegar fatafellur bregða á ieik. „Mér var meira að segja égerbaraþessi skelfilega órœði til- finningamaður;-í senn meyr, viðkuœmur, lokaður og grátgjarn við vissar kringumstœður. “ meinilla við að kynna strippið í Sjallanum. Ekki að ég hafi neitt á móti strippi né þeim sem var í því hlutverki þetta kvöld — hann er raunar frændi minn og indælispiltur — heldur vegna þess að oft bítur fólk það í sig að strippararnir séu á mínum vegum. Úr því spinnast gjarn- an kjaftasögur. Ég samþykkti þó með semingi að kynna hann þetta kvöld fyrir þrá- beiðni Þórhalls vinar míns í Sjallanum. Ástæðan fyrir því að ég læt alltaf undan er ein- faldlega sú að nei-ið í mér hef- ur gleymst.“ Að kynningunni lokinni held- ur Heiðar til herbergis síns á hótelinu þar sem hann dvaldi. Á leið sinni þangað heyrir hann dynjandi tónlist úr ná- lægu herbergi. „í þessu sjálfs- eyðingarástandi mínu þurfti ég á félagsskap að halda og banka því upp á þaðan sem tónlistin íserst og er boðið inn. Þann sem var þarna inni þekkti ég hins vegar ekki neitt, ég talaði bara við hann þarna í þetta eina skipti undir áhrifum áfengis. Og það er skemmst frá því að segja að þarna framdi ég þennan ófyrirgefanlega verknað minn, sem ég kæri mig ekki um að lýsa frekar." Var sáttur við nærveru mína „Ég gat ekki betur skilið en maðurinn, sem nú hefur kært mig, væri alveg sáttur við nær- veru mína. Hann bað mig í það minnsta aldrei að fara út úr herberginu. Það er einmitt þess vegna sem mér finnst „Hafi ég sœrt svona illa blygðunarkennd þessa manns álít ég að hann hefði heldur átt að biðja mig að fara af svæðinu í stað þess að Ijósmynda mig í bak og fyrir, að mér forspurð- um og án þess að ég vissi nokkuð afþví. “ þessi kæra hans og svo þessi myndbirting svo undarleg. Hafi ég sært svona illa blygð- unarkennd þessa manns álít ég að hann hefði heldur átt að biðja mig að fara af svæðinu í stað þess að ljósmynda mig í bak og fyrir, að mér forspurð- um og án þess að ég vissi nokkuð af því. Af þessu að dæma fæ ég ekki betur séð en tilgangur hans nú sé að forsmá það sem ég stend fyrir. í stað þess að fá á mig kæru held ég því fram að sá, sem stendur að baki dreifingunni á þessum myndaóhróðri af mér, ætti að biðjast afsökunar á velsæmis- broti.“ Fleiri orðið fyrir barðinu á rangherminu Heiðar segist engu að síður standa frammi fyrir þeirri dap- urlegu staðreynd að hafa verið kærður fyrir brot gegn blygð- unarsemi, en ein af ástæðum þess að Heiðar taldi rétt að segja sögu sína er að rangt og „ósmekklegt hafi verið af einu dagblaðanna að breyta blygð- unarkenndarbroti í kynferðis- lega áreitni". Heiðar heldur áfram: „Það er nefnilega ekki bara ég sem hef orðið fyrir barðinu á því rang- hermi, heldur margir aðrir mætir menn í þjóðfélaginu, og það finnst mér ljótt. Það sem skiptir öllu máli er að kæra fyr- ir biygðunarsemisbrot og kæra fyrir kynferðislega áreitni er tvennt ólíkt.“ „Égerekki syndlaus maður frekar en aðrir menn. Mig langar heldur ekkert til að þekkja svoleiðis fólk. “ Mun harðari viðurlög eru við kynferðislegri áreitni — ekki bara hjá dómstólunum heldur og almenningi — en við broti á blygðunarkennd. „Ég hef aldrei heyrt til þess að manneskja, sem framið hefur brot gegn blygðunarkennd, hafi verið hart dæmd; hún fær í mesta lagi hart tiltal. En mál- ið verður að fá sína meðferð. Á meðan get ég lítið annað gert en að biðjast afsökunar á fram- ferði mínu.“ Kallaður hommi úti á götu á Akureyri Heiðar og reyndar margir aðrir sem skoðað hafa málið velta því óneitanlega fyrir sér hvort manninum á Akureyri hafi verið att út í að kæra, af svipuðum hvötum og virðast vera kveikjan að dreifingu myndanna. Það eru vangavelt- ur að svo komnu máli, en ungi maðurinn sinnti ekki ítrekuðum fyrirspurnum HP um málið. En er andrúmsloftið á Akureyri í garð Heiðars eitt- hvað öðruvísi en til dæmis í Reykjavík? „Akureyringar eru yndislegt og traust fólk en kannski svo- lítið stífir. Akureyri er eini staðurinn í heiminum þar sem ég hef orðið þess var, nú á tím- um, að það eru ekki bara ung- lingar heldur líka fullorðið fólk sem kallar til mín: Hommi! um miðjan dag í Hafnarstrætinu. Það er löngu liðin tíð að fólk hrópi þetta til mín á Laugaveg- inum. Svo má líka geta þess að ég á tvo góða vini á Akureyri sem báðir eru giftir menn. Það er ekki nema stutt síðan annar þeirra játaði fyrir mér að það væri stundum erfitt að vera vinur minn. Jafnvel þótt hann sé harðgiftur er enn verið að ýja að því að samband okkar sé kynferðislegs eðlis. En kannski heyri ég ekki allt og veit því ekki hvort þetta er eitthvert sérfyrirbæri á Akur- eyri.“ Aldrei reynt að draga úr tvískinnungnum Þótt Heiðar sé giftur maður og eigi þrjú börn segir hann það kannski koma sér illa núna að hann skuli aldrei hafa reynt að draga úr þeim tvískinn- ungs-kynferðisstimpli sem þjóðfélagið hefur sett á hann. „Ég held því fram að sá stimp- ill hafi verið mér ákveðin aug- lýsing í gegnum tíðina og gert mig leyndardómsfulian. Ég er ekki frá því að ég hafi þótt meira spennandi sem slíkur og sparað mér auglýsingakostn- að; ég hef jú ekkert annað að selja en nafn mitt. Ég geri mér alveg grein fyrir því að þetta álit fólks á mér hefur líka haft galla í för með sér og ætli sá stærsti sé ekki einmitt að koma fram núna. Það er helst „Og það erskemmst frá því að segja að þarna framdi égþennan ófyrirgefanlega verknað minn. “ að fósturforeldrar mínir, sem látnir eru fyrir nokkrum árum, hafi liðið fyrir þennan kjafta- gang í kringum mig á sínum tíma. í dag eru það hins vegar aðallega eiginkona mín og börn. Reyndar veit eldri dóttir mín ekki af þessu, enda búsett í Bandaríkjunum. Sonur minn hins vegar er svolítið aumur, en stendur með pabba. Yngsta dóttir okkar er aðeins 17 ára, en það sem gæti bjargað henni er að hún er mjög skörp og af kynslóð sem er sem betur fer ekki næstum því eins fordóma- full og kynslóðirnar á undan,“ segir Heiðar og bætir við að þrátt fyrir að mikið hafi verið á börn sín lagt með kjaftasögum um föður þeirra í gegnum tíð- ina geti hann ekki merkt að þau séu neitt skemmd. „Og svo er það eiginkona mín — sem er alveg sérkapít- uli út af fyrir sig. Hún er minn eini raunverulegi vinur og stendur eins og klettur við hliðina á mér. Það er engin klisja þegar ég segi að hún sé konan á bak við manninn. Hún er það í raun og veru; hún er bæði besta móðir og eiginkona sem hægt er að hugsa sér, greindasta kona sem ég þekki og bara besta manneskja sem ég hef nokkru sinni kynnst. Það sem vafalaust bjargar henni er að hún á margar góð- „Égvarnokkuð við skál og í ofanálag í gífurlega erfiðu hugarástandi afmjög svo persónulegum ástæðum sem varða fjármál mín og fjölskyldu minnar. “ ar vinkonur sem standa með henni, en samt hef ég afskap- lega miklar áhyggjur af henni, því ég veit að þetta er óskap- lega erfitt fyrir hana líka. Ein- mitt af því að ég er maður kvenna veit ég að konur geta verið grimmar í garð annarra kvenna ef því er að skipta, og af því hef ég mestar áhyggjur." Klappaður upp tvisvar í Hafnarfirði Annars segist Heiðar ekki hafa mætt öðru en góðvild og hlýhug hjá fólki eftir að þessi atburður fór að spyrjast út. „Stöð 2 hefur stutt algjörlega við bakið á mér og ég veit ekki hvort ég er að ímynda mér það eða ekki, en mér finnst við- brögðin við því sem ég hef ver- ið að gera miklu sterkari eftir að þessi saga fór í loftið. Ég hélt til dæmis fyrirlestur fyrir unglinga í Flensborg, rétt um það bil sem fréttin um kær- una fór í loftið, og það er skemmst frá því að segja að þar var mér frábærlega tekið; ég var klappaður upp tvisvar. Þá var mér mjög vel tekið af háskólastúdínum auk þess sem ég fékk afar góðar viðtök- ur í hárgreiðslukeppninni á Hótel íslandi, sem haldin var síðastliðinn sunnudag." Komplíment ef karl- maour daðrar við mig Heiðar hefur komið íslend- ingum á óvart á margan hátt í gegnum árin og hefur það vafa- laust haft mikil áhrif á ímynd hans, eða öllu heldur stimpil- inn sem hann hefur fengið á sig. Daður er eitt af því sem Heiðar hefur lagt sig í líma við að kenna íslendingum. „Að daðra er list, en að sama skapi getur það verið algjör kata- strófa að daðra vitlaust. Ég held því fram að daður nái allt til þess þegar til dæmis kona segir „gjugg gjugg" við lítið barn vinkonu sinnar. Daðrið felst í því að vinkonan reynir

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.