Helgarpósturinn - 09.11.1995, Page 20

Helgarpósturinn - 09.11.1995, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 Uppeldissálarfræðingurinn, femínistinn og „Vassar-stúlkan“ Guðný Guðbjörnsdóttir var aðeins 26 ára þegar hún fékk lektorsstöðu við Há- skólann. Eftir þrettán ár í grasrót Kvennalistans gegnir Guðný nú stöðu þingflokksformanns og í samtali við Stefán Hrafn Hagalín ræðir hún lífshlaupið, skólasystur sína Meryl Streep, jafnréttismálin og landsfund Kvennalistans um næstu helgi — í beinu samhengi við tilvistar- kreppu kvennahreyfingarinnar... Aiþingiskona í | índralanHI ■.. Landsfundur Kvennalistans verður haldinn um næstu helgi, 10. til 12. nóvember. Ekki er ráðgert að taka róttækar ákvarðanir um stefnuatriði eða starfið, heldur fyrst og fremst ræða málin á breiðum grund- velli. „Staða Kvennalistans og kvennahreyfingarinnar í dag er þema landsfundarins og yfir- skriftin er Kvennapólitík — hvernig er henni best borgið? Við ætlum að velta fyrir okkur hvaða skref beri að stíga til framtíðar, en auðvitað ræðum við brennandi pólitísk mál í hópum; svosem launamál, sjávarútvegsmál og búvöru- samninginn," segir Guðný Guðbjörnsdóttir, uppeldissál- arfræðingur og þingflokksfor- maður Kvennalista, í samtali við blaðamann Helgarpóstsins. Við höfum komið okkur fyrir með kaffibolla inná þingskrif- stofu Guðnýjar við Austur- stræti og bakvið hana gefur á að líta plakat með yfirskriftinni Lísa í Undralandi — að vísu uppá enska tungu þarsem þetta er auglýsing fyrstu al- þjóðlegu ráðstefnunnar um stelpur og bernsku stúlkna sem haldin var 1992. Guðný þvertekur ekki fyrir að Alþingi geti á stundum komið fyrir sjónir sem hálfgert Undraland og heldur síðan áfram: „I stór- um dráttum eru fjórir mögu- leikar inní myndinni fyrir Kvennalistann í dag: 1. Halda starfinu áfram í óbreyttri mynd. 2. Hætta tímabundið að bjóða fram til Alþingis. 3. Sam- vinna við aðra flokka eða sam- „Ég held að það skorti afarmikið áþekkingu kvenna á eigin lífi og eigin baráttu og sú staðreynd heftir þœr vitaskuld mjög mikið, því þekkingin hlýtur að vera hin nauðsynlega forsenda framfara. Vitaskuld hefur jafn- réttisfrœðsla verið lög- bundin í um það bil tuttugu áren því miður hefurhún að mestu verið ískötulfki í skólakerfinu. Úrþessu ófremdarástandi þarf að bœta. “ eining. 4. Stækka og breikka Kvennalistann með ýmsum til- tækum ráðum.“ Einsog hvern- ig? „Svosem einsog að taka karla inn á framboðslista,“ svarar hún, en segist ekki vera búin að móta afstöðu sína end- anlega og telur brýnt að ræða alla þessa kosti. Þegar frekar er gengið á Guð- nýju um afstöðu hennar til inn- töku karla kveðst hún allsekki telja útilokað að Kvennalistinn taki í framtíðinni karla góða og gilda í félagsskap sinn. „Mark- mið Kvennalistans er jafnrétti kynjanna — sérstaklega að styrkja stöðu kvenna — og ef einhverjir karlmenn eru sam- mála þeim markmiðum sé ég í sjálfu sér ekkert sem mælir gegn því að taka þá inn. En þetta verður örugglega um- deilt á landsfundinum." Keflavíkurstúlka gengur menntaveginn í Vassar Áðuren lengra er haldið for- vitnast blaðamaður um lífs- hlaup Guðnýjar í hnotskurn. „Ég er fædd í Reykjavík árið 1949 og flyst síðan fljótlega til Keflavíkur með foreldrum mín- um. Ég á þrjá yngri bræður og tvö eldri hálfsystkini. Ég gekk í barna- og gagnfræðaskóla í Keflavík og síðan í Menntaskól- ann við Laugarvatn. í Keflavík var ég virk í íþróttum, bæði sundi og handbolta, og einnig mikill og góður skáti." Guðnýju gekk ágætlega í skóla og náði þannig að útskrifast sem skóla- dúx úr stærðfræðideild árið 1969. Veturinn eftir lagði hún leið sína til Bandaríkjanna og vatt sér í sálarfræðinám við Vassar- kvennaháskólann. „Þaðan tók ég BA-próf og að því Ioknu fór ég í mastersnám í sálarfræði við Manchester-há- skóla. Kláraði það árið 1974 og vann síðan við sálarfræðideild- ir skóla í Reykjavík í eitt ár, eða þangaðtil ég fékk lektorsstöðu við Háskóla íslands árið 1975 — yngst lektora á þeim tíma. Árið 1979 innritaðist ég í dokt- orsnám og lauk doktorsprófi í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskólanum í Leeds árið 1987.“ 1980 var Guðný sett prófessor og gegndi þeirri stöðu í þrjú ár í fjarveru skip- aðs prófessors. „1987 varð ég dósent við skólann og hef núna sótt um framgang í pró- fessor." Og fjölskyldan? „Árið 1973 giftist ég Gísla Pálssyni mann- fræðiprófessor og við eigum tvö börn: Pál Óskar fæddan 1976 og Rósu Signýju fædda árið 1983.“ Kyniahlutföll snúast við og Guðný varð femínisti Það hlýtur að hafa verið magnað fyrir keflvíska stúlku sem tók stúdentinn frá Laugar- vatni að fá tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn og stúd- era við hinn þekkta Vassar-há- skóla? „Jú, tíminn í Vassar var alveg frábær. Ég kom úr hefð- bundinni stærðfræðideild menntaskóla og kennarar mín- ir höfðu eindregið hvatt mig til að fara í verkfræðinám eða eitthvað þvíumlíkt. En ég var hinsvegar ákveðin í að fara í sálarfræði; læra fag sem ég vissi í rauninni ekkert hvað snerist um.“ í stærðfræðinni á Laugar-. vatni var Guðný með einungis þremur stelpum í bekk, en í Vassar var þessu alveg öfugt farið — þráttfyrir að skömmu fyrr hefði skólinn byrjað að taka karlmenn inn. „Þannig að ég upplifði það að vera í mesta lagi með tveimur til þremur strákum í bekk. Þetta var óvenjuleg en spennandi reynsla. Það má eiginlega segja að þarna í Vassar hafi ég orðið femínisti. Flestar voru stúlk- urnar úrvalsnámsmenn og stjórnuðu félagsiífi skólans nær algjörlega. Eitt árið var ein besta vinkona mín formaður stúdentaráðsins og ég formað- ur félags erlendra stúdenta. Annars vorum við tvær ís- lenskar Guðnýjar í Vassar á þessum tíma, hin var Eiríks- dóttir.“ Þess má geta að ein af eftirminnilegri skólasystrum Guðnýjar í Vassar var leikkon- an Meryl Streep. Eftir að Guðný kom heim frá námi og stoppaði varanlega hér á íslandi — árið 1974 — fór hún að kynna sér rauðsokku- hreyfinguna. „Á kvennafrídag- inn 24. október er ég einmitt nýbúin að fá lektorsstöðuna og um sama leyti verð ég ófrísk að syni mínum og upplifi þennan klassíska kvennakonflikt: Hvort á ég að verða fræðimað- ur eða móðir? Get ég kannski sameinað þetta tvennt og hvernig skal fara að því? Ég man sérstaklega hvernig yfir- maður minn við Háskólann brást við þeim fregnum að ég væri ófrísk. Þá tíðkaðist að setja lektora fyrst til eins árs, en af einhverjum ástæðum fékk ég skipun strax eftir þrjá mánuði. Þetta þótti mér mikil traustsyfirlýsing og ég varð staðráðin í að samhæfa hlut- verkin." Rannsóknir Guðnýjar fyrir masters- og doktorsritgerðirn- ar snerust um vitrænan þroska barna og unglinga — og hvern- ig hann tengist kynferði, stétt- arstöðu, skóla og námsárangri. „Síðustu átta árin hef ég að auki stundað rannsóknir á tveimur öðrum sviðum: ann- arsvegar menntun og kynferði og hinsvegar þekkingu barna og unglinga á íslenskri menn- ingu sem ég hef unnið í sam- starfi við ítalskan prófessor." Verður m|ög virk í kvennahreyfingunni uppúr 1980 Guðný verður fyrir alvöru virk í kvennahreyfingunni þeg- ar hugmyndin um kvennafram- boðið og Kvennalistann er að fæðast — uppúr 1980 — og var þannig með frá stofnfundi þess. „Á þessum tíma var kvennabaráttan orðin mitt hjartans mál, en framað því hafði ég aðallega einbeitt mér að starfinu og fjöiskyldunni." Guðný var ófrísk að dóttur sinni árið 1983 — þegar Kvennalistinn bauð fyrst fram, en það hamlaði henni ekki frá því að taka virkan þátt í kosn- ingabaráttunni. „Ég hef alltaf verið í einhverju af efstu tíu sætunum, en var samt ekkert á leiðinni inná þing. Ég leit fyrst og fremst á mig sem háskóla- manneskju og að stjórnmála- þátttakan væri ein leiðin til að vinna að markmiðum mínum sem kvennabaráttukonu. Stjórnmálin voru aukageta hjá mér.“ Smámsaman vatt þó stjórn- málaþátttakan uppá sig og varð fyrirferðarmeiri í lífi hennar. „Ég kom fyrst inná þing sem varaþingkona skömmu fyrir kosningarnar ár- ið 1991 og var þá í sjötta eða sjöunda sæti. Það stóð þannig á að konurnar fyrir framan mig komust ekki inn og því settist ég á þing. Allt síðasta kjörtíma- bil var ég svo virk sem vara- þingkona." Guðný hefur beitt sér mjög innan Háskólans að jafnréttis- málum og sérstaklega hafa kvennafræðin verið henni hug- leikin. Hún hvatti til stofnunar rannsóknastofu í kvennafræð- um ásamt fleiri konum og hef- ur setið þar í stjórn frá upp- hafi, 1990. „Einnig var ég for- maður nefndar háskólaráðs sem gerði það að tillögu sinni að tekin yrði upp kennsla í kvennafræðum við Háskólann. Vonandi kemst það á næsta haust. Ég held að það skorti af- ar mikið á þekkingu kvenna á eigin lífi og eigin baráttu og sú staðreynd heftir þær vitaskuld mjög mikið, því þekkingin hlýt- ur að vera hin nauðsynlega forsenda framfara. Vitaskuld hefur jafnréttisfræðsla verið lögbundin í um það bil tuttugu ár en því miður hefur hún að mestu verið í skötulíki í skóla- kerfinu. Úr þessu ófremdar- ástandi þarf að bæta.“ Þurfti að velja milli stjórnmálanna og fræðistarfa í bili Guðný segir það síðan hafa verið nokkuð erfiða ákvörðun að stíga skrefið til fulls fyrir al- þingiskosningarnar í vor og fara það ofarlega á framboðs- listann í Reykjavík að þingsæti væri líkleg útkoma. „En ég þurfti að gera þetta mál upp- við mig því mér hafði fundist mjög erfitt á síðasta kjörtíma- bili að vera tvískipt milli fræð- anna og skólans og starfanna kringum þingið. Þegar leið að kosningum var ég orðin harð- ákveðin í að fara annaðhvort ofarlega á listann eða draga mig dálítið í hlé og taka sæti aftarlega." Á endanum varð fyrri kosturinn ofaná. „Mér finnst þetta spennandi verk- efni og sé ekkert eftir þessari ákvörðun.“ Þráttfyrir að hún hafi þekkt nokkuð gjörla til þingstarfanna vegna fyrri reynslu var samt- sem áður eitt og annað er kom á óvart. „Það er auðvitað tals- verð breyting að hafa þing- mennskuna að aðalstarfi og annríkið er mikið í svona litl- um þingflokki þarsem um- fangsmikið starf hvílir á fáum herðum. Kannski var ég mest hissa á hvað ég hef í raun litla stjórn á starfsdeginum. Að sumu leyti finnst mér það skemmtilegt — mikið um óvæntar uppákomur og þess- háttar — en á hinn bóginn get- ur verið svolítið slítandi að koma ekki tilteknum verkefn- um frá sér þarsem sífeilt er eitthvað að koma uppá.“ Til að mynda viðtöl við ágengt fjöl- miðlafólk... Sérílagi finnur Guðný fyrir annríkinu núna sökum þess að eiginmaður hennar er útí Sví- þjóð þetta misserið vegna starfs síns. „Að vísu gegni ég þarmeð einu hlutverkinu færra og krakkarnir eru orðnir það stórir að þetta hefur bjargast ágætlega. Það hjálpast allir að.“ Menntakonur hafa ávallt leitt kvenréttinda- baráttuna Kvennalistanum hefur verið legið nokkuð á hálsi fyrir að hafa verið stofnaður af ágæt- lega stöddum og velmenntuð- um millistéttarkonum sem skorti tengingu við þær konur er mest þurfi á jafnréttinu að halda: iáglaunaðar konur í svo- nefndum kvennastörfum. „Jú, það er rétt. En ég held hrein- lega að þetta sé einkenni á kvennabaráttunni gegnum tíð- ina. Það er ekkert skrýtið að „Ég ersannfærð um að það kemurbýsna mörgum konum kring- um tvítugsaldurinn á óvart þegar þær eign- ast fyrsta barnið sitt eða fá fyrsta launaum- slagið sitt og uppgötva ójafnréttið — sem þær héldu að væri ekki til — í reynd. Ég held að það séhreinlega út- breiddur misskilningur meðal ungs fólks að það ríki kynjajafnrétti íþjóðfélaginu. “ starfi kvennahreyfingarinnar hafi verið haldið að miklu leyti uppi af þeim konum sem eru menntaðar og fjárhagslega sjálfstæðar, því þarafleiðandi hafa þær besta möguleika til að beita sér í félagsmálum. En Kvennalistakonur eru þó úr öllum stéttum einsog fram- boðslistarnir sýna; mest þó úr hefðbundnum kvennastörf- um.“ Guðný viðurkennir að gagn- rýna megi hversu vel hafi tek- ist að virkja verkakonur til fylg- is við hreyfinguna. „Það er ein- faldlega erfiðara fyrir þessar konur að taka þátt þarsem þær vinna langan og strangan vinnudag einsog málum er háttað núna og hafa því lítið af- lögu ef þær eiga fjölskyldu og börn.“ Jstórum dráttum eru fjórir möguleikar inní mynd- inni fyrir Kvennalistann í dag: 1. Halda starfinu áfram í óbreyttri mynd. 2. Hœtta tímabundið að bjóða fram tilAlþingis. 3. Samvinna við aðra flokka eða sameining. 4. Stœkka og breikka Kvennalistann með ýmsum tiltœkum ráðum. — Svosem einsog að taka karla inn á framboðslista. “

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.