Helgarpósturinn - 09.11.1995, Page 22
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
Hefurðu gert þér upp fullnægingu?
Hversu leikin(n) ertu í almennum hvílubrögðum?
Við ætlum í sameiningu að komast að því í dag!
Framúrskarandi færni í bólfimi er nokkuð sem
meirihluti lesenda HP stærir sig af — að
minnsta kosti í einrúmi við sjálfa sig. Það hefur
verið rækilega staðfest í ítarlegum kynlffskönnun-
um menntuðustu fræðinga. Hér á eftir fer í öllu
falli ítarlegt próf í kynlrfsleikni sem HP hefur
kokkað upp með dyggri aðstoð til þess bærra
áhugamanna og leggur nú fyrir þá lesendur sína
sem ekki teljast teprur eða meðlimir hinnar mis-
jöfnu hjarðar viðkvæmra sálna. Vitaskuld ber að
taka prófið og skoða útkomuna af fyllstu varúð
og tortryggni á sannleiksgildið, en hafið í huga að
öllu (kynlrfs-)gamni fylgi jú umtalsverð alvara...
1. Þú hefur haft kynmök fyrir
framan spegil (+1)
2. Þú hefur fest speglaflísar frá
Ikea í loft svefnherbergis þíns
(-1)
3. Þú hefur brugðið þér heim
úr vinnunni á miðjum degi ein-
ungis til að hafa kynmök við
næsta tiltæka bólfélaga (+1)
4. Þú hefur gert þér upp full-
nægingu (+2)
5. Þú veist þegar bólfélagi þinn
gerir sér upp fullnægingu (2+)
6. Þú hefur kallað bólfélaga
þinn röngu nafni (-2)
7. Þú hefur verið kallaður/köll-
uð röngu nafni af bólfélaga þín-
um (- 5)
8. Þú aflaðir þér ítarlegra upp-
lýsinga um hvar G-blettinn
væri að finna á bólfélaga þín-
um og fannst hann síðan í
fyrstu atrennu án vandræða-
legrar leitar (+1)
9. Þú hefur haft kynmök við
bólfélaga sem er:
4 árum eldri en þú (+1)
5- 15 árum eldri en þú (+2)
16-60 árum eldri en þú (+3)
10. Þú hefur haft:
I- 5 bólféiaga (+1)
6- 10 bólfélaga (+2)
II- 20 bólfélaga (+3)
21-50 bólfélaga (+5)
51-100 bólfélaga (-3)
Fleiri en 100 bólfélaga (-7)
11. Þú heldur dagbók yfir „-
sigra“ þína á kynlífssviðinu (-2)
12. Þú skiptist á kynlífssögum
við vini þína sem eru af sama
kyni og þú (-1)
13. Þú skiptist á kynlífssögum
við vini þína sem eru ekki af
sama kyni og þú (+2)
14. Þú hefur gert þér upp
þreytu og/eða smávægileg
veikindi til að sleppa við kyn-
mök við bólfélaga þinn (-1)
15. Þú hefur haft kynmök á eft-
irfarandi hátt:
Sitjandi á stól (+1)
Hundastellingunni (+1)
„Hat-Trick“ (+1)
Skeiðasamfellunni (+1)
Munnmök (+1)
Með nokkrum samtímis (+1)
Hjólbörustellingunni (+1)
Standandi (+1)
Sofandi (+3)
16. Þú hefur haft kynmök á eft-
irfarandi stöðum:
Á öllum hugsanlegum stöð
um heimilis þíns (+1)
í Flugleiðarútunni klukkan
fimm að morgni á leiðinni
til Keflavíkur (+2)
Útí glugga hvenær sem þú
getur (+2)
Almenningsgarði (þarmeð
taldir kirkjugarðar) (+2)
Bifreið (+2)
Sundlaug (+3)
Kvikmyndahúsi (+3)
Strætó (+3)
Vinnustað (+4)
Flugvél (+5)
Hjónarúmi foreidra
þinna (-2)
Hjónarúmi fólks sem inní
stofu er að reyna að halda
partí meðal annars fyrir
ykkur (-2)
Einungis undir sæng í
myrkri í svefnherbergi þínu
eða bólfélaga þíns (-2)
Einungis undir sæng í
myrkri í svefnherbergi þínu
eða bólfélaga þíns og þá að
eins með allar hugsanlegar
getnaðarvarnir í notkun (-4)
17. Þú hefur látið þig dreyma
um kynmök við aðra mann-
eskju en bólfélaga þinn þá
stundina (+1)
18. Þú getur sett smokk á getn-
aðarlim í myrkri með munnin-
um og/eða fundið sníp með
hendurnar bundnar fyrir aftan
bak (+3)
19. Þú hefur tætt fötin utanaf
bólfélaga þínum í frygðartryll-
1,
ingi ánþess að hugsa um að föt-
in voru keypt dýrum dómum
(+1)
20. Þú misstir svein/mey-dóm-
inn þegar þú varst á aldrinum:
12-14 (+5)
15-17 (+4)
18-21 (+3)
22-25 (+2)
25 eða eldri (+1)
Þú hefur enn ekki misst
svein/mey-dóminn (-3)
Þú hefur ekki í hyggju að
missa svein/mey-dóminn (-7)
21. Bólfélagi þinn hefur tjáð
þér að þú búir yfir umtals-
verðri leikni á skeiðvellinum
(+D
22. Vinir bólfélaga þíns hafa
tjáð þér að þú búir yfir umtals-
verðri leikni á skeiðvellinum
(+3)
23. Þegar eitthvað fer úrskeiðis
í kynlífinu þá grípurðu til þess
óbrigðula ráðs að:
Væla og kvarta hástöfum (-1)
Reiðast á ofsafenginn hátt
útí sjálfa(n) þig (-2)
Kenna bólfélaganum um
alltsaman (-2)
Hlæja (+1)
24. Þú hefur notað eftirfarandi
hjálpartæki ástalífsins með
bólfélaga þínum:
Kitlarasmokk (+1)
Matvæli (+2)
Búsáhöld (+2)
Titrara (+3)
Vímuefni (-5)
25. Þú hefur fært bólfélaga
þinn:
í fjötra af ólíklegasta tagi til
að kynda undir duldar
hneigðir og leyft honum/
henni að gera slíkt hið
sama (+1)
Úr öllum fötum á neðan
verðum líkamanum og átt
við hann/hana ástríðu
þrungin kynmök á rauðu,
gulu og grænu Ijósi og hald
ið því áfram uns yfir lauk
þarna í bifreiðinni (+1)
26. Þú hefur aldrei nokkurn-
tímann litið á bólfélaga þinn yf-
ir barm rauðvíns- eða koníaks-
glass á veitingastað ánþess að
ímynda þér einhverjar stór-
fenglegar kynlífsathafnir til að
vinda sér í þegar heim er kom-
ið (+3)
27. Þú hefur keypt munaðar-
fullan undirfatnað fyrir bólfé-
laga þinn (+2)
28. Þú hefur keypt undirfatnað
úr einhverskonar torkennilegu
plastefni fyrir bólfélaga þinn (-
2)
29. Þú lítur á forleik sem:
Ómissandi hluta kynlífsins
(+2)
Algjöra tímasóun (-2)
30. Þú lítur á kynmök sem:
Háfgert óeðli (-1)
Skylduverk (-1)
Ferðalag til sjálfsuppgötv
unar (-1)
Skárri verknað en sjálfsfró
un (-1)
Tilgang lífsins (-1)
31. Þú getur sleikt nefbroddinn
á þér og gert það á þann hátt
að hugsanlegir bólfélagar
tendrast allir upp þegar
þeir/þær sjá þig gera það á al-
mannafæri (+2)
32. Þú átt hvít bómullarlök
(+1)
33. Þú átt svört satínlök (-1)
34. Þú þekkir nærbuxna-
og/eða brjóstahaldarastærð
bólfélaga þíns (+1)
35. Þú þekkir glögglega mun-
inn á því sem bólféiagi þinn
segir og hvað bólfélagi þinn
meinar (+2)
36. Þú hefur lýst þínum innstu
kynlífsórum í smáatriðum í
símtali við:
Bólfélaga þinn (+3)
Einhvern sem þú þekkir all
sekki neitt (-5)
Foreldra þína þegar þú
fékkst þér aðeins of mikið
neðan í því (-15)
37. Þú hefur neytt eftirfarandi
frygðarauka:
Ostra (+1)
Mulins horns af nashyrningi (-
5)
38. Þú hefur steinsofnað innan
einnar mínútu frá kynmökum (-
3)
39. Þú varðst þér útum Háag-
en-Dazs í síðustu utanlands-
ferð og geymir nú ísinn einsog
dýrgrip inní frysti (+1)
40. Þú hefur átt bólfélaga frá
eftirfarandi stöðum:
Eyjaálfu (+2)
Meginlandi Evrópu (+1)
Bandaríkjunum (-1)
Suður-Ameríku (+2)
Afríku (+2)
Asíu (+2)
Suðurheimskautslandi
(+25)
41. Þú hefur horft á klámmynd
með bólfélaga þínum (+2)
42. Þú hefur horft á klámmynd
uppá eigin spýtur og/eða
stungið uppá því við bólfélaga
þinn að þið gerið klámmynd
með ykkur tveimur og VHS-
myndbandstökuvél foreldra
þinna (-2)
43. Þú hefur velt fyrir þér þeim
möguleika að hafa kynmök við
aðila af sama kyni og þú (+1)
44. Þú hefur legið allsnakinn
uppí rúmi með splunkunýjum
bólfélaga og ekki haft kynmök
við hann — svona í fyrsta
skiptið aðminnstakosti (+3)
45. Þú hefur greint bólfélaga
þínum í rólegheitunum frá öll-
um þínum heitustu kynlífs-
draumum (+2)
46. Þú hefur spurt bólfélaga
þinn í rólegheitunum um alla
hans/hennar heitustu kynlífs-
drauma (+2)
47. Þú hefur haft ofsafengin
kynmök við bólfélaga þinn
meðan systkini hans/hennar
biðu stillt og prúð í stofunni
eftir að þið „lykjuð við að
klæða ykkur" svo þið gætuð
öllsaman farið í fermingar-
veislu í ættinni (-1)
48. Þú hefur laumulega athug-
að hvað tímanum leið meðan
þú hafðir kynmök við bólfélaga
þinn (-1)
49. Þú hafðir kynmök í gær-
kvöldi (+5)
50. Þú ert að hafa kynmök
meðan þú þræðir þig áfergju-
lega gegnum þetta kynlífs-
leiknipróf HP og ert þarmeð ör-
ugglega þannig manneskja sem
hefur einhverntímann í prófinu
sagt ósatt til um reynsluheim
sinn (-5)
stigagjöf
Hámarksfjöldi stiga +150; Lág-
marksfjöldi stíga -100
Yflr 125 stig — Framúrskarandi glæsilegt!
Þú ert hinn fullkomni bólfélagi og greinilega
kominn í beinan iegg af annaðhvort Kasan-
óva eða Katrínu miklu, nema hvorttveggja sé.
f guðanna bænum sendu bréf til HP (HP-Kyn-
lífsleiknipróf, Vesturgötu 2, 101 Reykjavík)
og upplýstu ritstjórnarmeðlimi um leyndar-
málið bakvið þessa gríðarlegu færni.
100-124 stig — Allsekki svo slæm frammi-
staða. Þvertámóti er þetta bara ansi þokka-
legur árangur og frekar til að stæra sig af en
hitt. Það liggur sem rauður þráður gegnum
allan þinn kynlífsferil að bólfélagar þínir hafa
rölt tiltölulega fullnægðir á braut inní sólar-
lagið. Og við núverandi bólfélaga þinn viljum
við aðeins segja þetta: haltu dauðataki í þetta
gæðaeintak.
75-99 stig — Þessi frammistaða er augljós-
lega yfir meðallagi og það er svosem útaf fyr-
ir sig ágætt. Þú átt langt í land með að ná
æðri hæðum í kynlífsiðkan og enn ætti að
vera tími aflögu til að bæta sig. Lengi getur
þó gott batnað og vont versnað þannig að þú
þarft virkilega að vinna að málinu ef þú vilt
ekki fá hina sorglegu grafskrift: Hér hvílir
Meðal-Jón/Jóna.
50-74 stig — Um þig er sennilega hægt að
fullyrða: Kom, sá og fór síðan heim til að
missa ekki af síðdegislúrnum og Guiding
Light. Stóraukin þjálfun og óslökkvandi löng-
un til að bæta sig gæti bætt útlitið hjá þér, en
það verður því miður að teijast í hæsta máta
ólíklegt að nokkuð lagist úr þessu því stigin
sem þú landaðir eru svo grátbroslega fá. Já.
Undir 50 stig — Guð minn góður. Þér er
engan veginn viðbjargandi. Þú býrð einn/ein,
hefur ávallt gert það og munt ávallt gera það.
Sjálfsfróun er valkostur fyrir einbúa, en þér
er svosem treystandi til að klúðra því einsog
öðru á kynlífssviðinu. Því miður hentar þér
best að einbeita þér að einhverju alltöðru en
kynlífsathöfnum... Megum við stinga uppá
Legó-kubbum?
Stolið og stælt úr Esquire.