Helgarpósturinn - 09.11.1995, Blaðsíða 22

Helgarpósturinn - 09.11.1995, Blaðsíða 22
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 Hefurðu gert þér upp fullnægingu? Hversu leikin(n) ertu í almennum hvílubrögðum? Við ætlum í sameiningu að komast að því í dag! Framúrskarandi færni í bólfimi er nokkuð sem meirihluti lesenda HP stærir sig af — að minnsta kosti í einrúmi við sjálfa sig. Það hefur verið rækilega staðfest í ítarlegum kynlffskönnun- um menntuðustu fræðinga. Hér á eftir fer í öllu falli ítarlegt próf í kynlrfsleikni sem HP hefur kokkað upp með dyggri aðstoð til þess bærra áhugamanna og leggur nú fyrir þá lesendur sína sem ekki teljast teprur eða meðlimir hinnar mis- jöfnu hjarðar viðkvæmra sálna. Vitaskuld ber að taka prófið og skoða útkomuna af fyllstu varúð og tortryggni á sannleiksgildið, en hafið í huga að öllu (kynlrfs-)gamni fylgi jú umtalsverð alvara... 1. Þú hefur haft kynmök fyrir framan spegil (+1) 2. Þú hefur fest speglaflísar frá Ikea í loft svefnherbergis þíns (-1) 3. Þú hefur brugðið þér heim úr vinnunni á miðjum degi ein- ungis til að hafa kynmök við næsta tiltæka bólfélaga (+1) 4. Þú hefur gert þér upp full- nægingu (+2) 5. Þú veist þegar bólfélagi þinn gerir sér upp fullnægingu (2+) 6. Þú hefur kallað bólfélaga þinn röngu nafni (-2) 7. Þú hefur verið kallaður/köll- uð röngu nafni af bólfélaga þín- um (- 5) 8. Þú aflaðir þér ítarlegra upp- lýsinga um hvar G-blettinn væri að finna á bólfélaga þín- um og fannst hann síðan í fyrstu atrennu án vandræða- legrar leitar (+1) 9. Þú hefur haft kynmök við bólfélaga sem er: 4 árum eldri en þú (+1) 5- 15 árum eldri en þú (+2) 16-60 árum eldri en þú (+3) 10. Þú hefur haft: I- 5 bólféiaga (+1) 6- 10 bólfélaga (+2) II- 20 bólfélaga (+3) 21-50 bólfélaga (+5) 51-100 bólfélaga (-3) Fleiri en 100 bólfélaga (-7) 11. Þú heldur dagbók yfir „- sigra“ þína á kynlífssviðinu (-2) 12. Þú skiptist á kynlífssögum við vini þína sem eru af sama kyni og þú (-1) 13. Þú skiptist á kynlífssögum við vini þína sem eru ekki af sama kyni og þú (+2) 14. Þú hefur gert þér upp þreytu og/eða smávægileg veikindi til að sleppa við kyn- mök við bólfélaga þinn (-1) 15. Þú hefur haft kynmök á eft- irfarandi hátt: Sitjandi á stól (+1) Hundastellingunni (+1) „Hat-Trick“ (+1) Skeiðasamfellunni (+1) Munnmök (+1) Með nokkrum samtímis (+1) Hjólbörustellingunni (+1) Standandi (+1) Sofandi (+3) 16. Þú hefur haft kynmök á eft- irfarandi stöðum: Á öllum hugsanlegum stöð um heimilis þíns (+1) í Flugleiðarútunni klukkan fimm að morgni á leiðinni til Keflavíkur (+2) Útí glugga hvenær sem þú getur (+2) Almenningsgarði (þarmeð taldir kirkjugarðar) (+2) Bifreið (+2) Sundlaug (+3) Kvikmyndahúsi (+3) Strætó (+3) Vinnustað (+4) Flugvél (+5) Hjónarúmi foreidra þinna (-2) Hjónarúmi fólks sem inní stofu er að reyna að halda partí meðal annars fyrir ykkur (-2) Einungis undir sæng í myrkri í svefnherbergi þínu eða bólfélaga þíns (-2) Einungis undir sæng í myrkri í svefnherbergi þínu eða bólfélaga þíns og þá að eins með allar hugsanlegar getnaðarvarnir í notkun (-4) 17. Þú hefur látið þig dreyma um kynmök við aðra mann- eskju en bólfélaga þinn þá stundina (+1) 18. Þú getur sett smokk á getn- aðarlim í myrkri með munnin- um og/eða fundið sníp með hendurnar bundnar fyrir aftan bak (+3) 19. Þú hefur tætt fötin utanaf bólfélaga þínum í frygðartryll- 1, ingi ánþess að hugsa um að föt- in voru keypt dýrum dómum (+1) 20. Þú misstir svein/mey-dóm- inn þegar þú varst á aldrinum: 12-14 (+5) 15-17 (+4) 18-21 (+3) 22-25 (+2) 25 eða eldri (+1) Þú hefur enn ekki misst svein/mey-dóminn (-3) Þú hefur ekki í hyggju að missa svein/mey-dóminn (-7) 21. Bólfélagi þinn hefur tjáð þér að þú búir yfir umtals- verðri leikni á skeiðvellinum (+D 22. Vinir bólfélaga þíns hafa tjáð þér að þú búir yfir umtals- verðri leikni á skeiðvellinum (+3) 23. Þegar eitthvað fer úrskeiðis í kynlífinu þá grípurðu til þess óbrigðula ráðs að: Væla og kvarta hástöfum (-1) Reiðast á ofsafenginn hátt útí sjálfa(n) þig (-2) Kenna bólfélaganum um alltsaman (-2) Hlæja (+1) 24. Þú hefur notað eftirfarandi hjálpartæki ástalífsins með bólfélaga þínum: Kitlarasmokk (+1) Matvæli (+2) Búsáhöld (+2) Titrara (+3) Vímuefni (-5) 25. Þú hefur fært bólfélaga þinn: í fjötra af ólíklegasta tagi til að kynda undir duldar hneigðir og leyft honum/ henni að gera slíkt hið sama (+1) Úr öllum fötum á neðan verðum líkamanum og átt við hann/hana ástríðu þrungin kynmök á rauðu, gulu og grænu Ijósi og hald ið því áfram uns yfir lauk þarna í bifreiðinni (+1) 26. Þú hefur aldrei nokkurn- tímann litið á bólfélaga þinn yf- ir barm rauðvíns- eða koníaks- glass á veitingastað ánþess að ímynda þér einhverjar stór- fenglegar kynlífsathafnir til að vinda sér í þegar heim er kom- ið (+3) 27. Þú hefur keypt munaðar- fullan undirfatnað fyrir bólfé- laga þinn (+2) 28. Þú hefur keypt undirfatnað úr einhverskonar torkennilegu plastefni fyrir bólfélaga þinn (- 2) 29. Þú lítur á forleik sem: Ómissandi hluta kynlífsins (+2) Algjöra tímasóun (-2) 30. Þú lítur á kynmök sem: Háfgert óeðli (-1) Skylduverk (-1) Ferðalag til sjálfsuppgötv unar (-1) Skárri verknað en sjálfsfró un (-1) Tilgang lífsins (-1) 31. Þú getur sleikt nefbroddinn á þér og gert það á þann hátt að hugsanlegir bólfélagar tendrast allir upp þegar þeir/þær sjá þig gera það á al- mannafæri (+2) 32. Þú átt hvít bómullarlök (+1) 33. Þú átt svört satínlök (-1) 34. Þú þekkir nærbuxna- og/eða brjóstahaldarastærð bólfélaga þíns (+1) 35. Þú þekkir glögglega mun- inn á því sem bólféiagi þinn segir og hvað bólfélagi þinn meinar (+2) 36. Þú hefur lýst þínum innstu kynlífsórum í smáatriðum í símtali við: Bólfélaga þinn (+3) Einhvern sem þú þekkir all sekki neitt (-5) Foreldra þína þegar þú fékkst þér aðeins of mikið neðan í því (-15) 37. Þú hefur neytt eftirfarandi frygðarauka: Ostra (+1) Mulins horns af nashyrningi (- 5) 38. Þú hefur steinsofnað innan einnar mínútu frá kynmökum (- 3) 39. Þú varðst þér útum Háag- en-Dazs í síðustu utanlands- ferð og geymir nú ísinn einsog dýrgrip inní frysti (+1) 40. Þú hefur átt bólfélaga frá eftirfarandi stöðum: Eyjaálfu (+2) Meginlandi Evrópu (+1) Bandaríkjunum (-1) Suður-Ameríku (+2) Afríku (+2) Asíu (+2) Suðurheimskautslandi (+25) 41. Þú hefur horft á klámmynd með bólfélaga þínum (+2) 42. Þú hefur horft á klámmynd uppá eigin spýtur og/eða stungið uppá því við bólfélaga þinn að þið gerið klámmynd með ykkur tveimur og VHS- myndbandstökuvél foreldra þinna (-2) 43. Þú hefur velt fyrir þér þeim möguleika að hafa kynmök við aðila af sama kyni og þú (+1) 44. Þú hefur legið allsnakinn uppí rúmi með splunkunýjum bólfélaga og ekki haft kynmök við hann — svona í fyrsta skiptið aðminnstakosti (+3) 45. Þú hefur greint bólfélaga þínum í rólegheitunum frá öll- um þínum heitustu kynlífs- draumum (+2) 46. Þú hefur spurt bólfélaga þinn í rólegheitunum um alla hans/hennar heitustu kynlífs- drauma (+2) 47. Þú hefur haft ofsafengin kynmök við bólfélaga þinn meðan systkini hans/hennar biðu stillt og prúð í stofunni eftir að þið „lykjuð við að klæða ykkur" svo þið gætuð öllsaman farið í fermingar- veislu í ættinni (-1) 48. Þú hefur laumulega athug- að hvað tímanum leið meðan þú hafðir kynmök við bólfélaga þinn (-1) 49. Þú hafðir kynmök í gær- kvöldi (+5) 50. Þú ert að hafa kynmök meðan þú þræðir þig áfergju- lega gegnum þetta kynlífs- leiknipróf HP og ert þarmeð ör- ugglega þannig manneskja sem hefur einhverntímann í prófinu sagt ósatt til um reynsluheim sinn (-5) stigagjöf Hámarksfjöldi stiga +150; Lág- marksfjöldi stíga -100 Yflr 125 stig — Framúrskarandi glæsilegt! Þú ert hinn fullkomni bólfélagi og greinilega kominn í beinan iegg af annaðhvort Kasan- óva eða Katrínu miklu, nema hvorttveggja sé. f guðanna bænum sendu bréf til HP (HP-Kyn- lífsleiknipróf, Vesturgötu 2, 101 Reykjavík) og upplýstu ritstjórnarmeðlimi um leyndar- málið bakvið þessa gríðarlegu færni. 100-124 stig — Allsekki svo slæm frammi- staða. Þvertámóti er þetta bara ansi þokka- legur árangur og frekar til að stæra sig af en hitt. Það liggur sem rauður þráður gegnum allan þinn kynlífsferil að bólfélagar þínir hafa rölt tiltölulega fullnægðir á braut inní sólar- lagið. Og við núverandi bólfélaga þinn viljum við aðeins segja þetta: haltu dauðataki í þetta gæðaeintak. 75-99 stig — Þessi frammistaða er augljós- lega yfir meðallagi og það er svosem útaf fyr- ir sig ágætt. Þú átt langt í land með að ná æðri hæðum í kynlífsiðkan og enn ætti að vera tími aflögu til að bæta sig. Lengi getur þó gott batnað og vont versnað þannig að þú þarft virkilega að vinna að málinu ef þú vilt ekki fá hina sorglegu grafskrift: Hér hvílir Meðal-Jón/Jóna. 50-74 stig — Um þig er sennilega hægt að fullyrða: Kom, sá og fór síðan heim til að missa ekki af síðdegislúrnum og Guiding Light. Stóraukin þjálfun og óslökkvandi löng- un til að bæta sig gæti bætt útlitið hjá þér, en það verður því miður að teijast í hæsta máta ólíklegt að nokkuð lagist úr þessu því stigin sem þú landaðir eru svo grátbroslega fá. Já. Undir 50 stig — Guð minn góður. Þér er engan veginn viðbjargandi. Þú býrð einn/ein, hefur ávallt gert það og munt ávallt gera það. Sjálfsfróun er valkostur fyrir einbúa, en þér er svosem treystandi til að klúðra því einsog öðru á kynlífssviðinu. Því miður hentar þér best að einbeita þér að einhverju alltöðru en kynlífsathöfnum... Megum við stinga uppá Legó-kubbum? Stolið og stælt úr Esquire.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.