Helgarpósturinn - 09.11.1995, Side 27
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
27
m
Vínmettaðar ljósmyndir á
Sólon
„Dokkjúmentarí eða ríport-
ers? Ég meina, hvernig myndir
þú þýða það?“ spyr ljósmyndar-
inn Stephan Stephenssen —
Steph eins og hann kallar sig
þegar hann er í listamannsstell-
ingum - - á móti þegar hann er
spurður hverskonar myndir
þetta séu. Steph er núna með
ljósmyndasýningu á Sólon ís-
landus og verður hún opin til
19. þessa mánaðar.
Hfiraldur Jónsson myndlist-
armaður segir í kynningarbæk-
lingi að þetta séu myndir til að
„drekka í sig. Og finna á sér“.
Hvað meinar maðurinn? Eru
þetta einhverjar fyllerísmyndir?
„Þetta eru myndir sem ég tók
úti í París á tilteknum bar sem
ég og félagarnir stunduðum og
köllum Chez Tonio en heitir
reyndar Café du
Marché, þannig
að vissulega er
svona ákveðin
vínlykt af mynd-
unum. Fyrirsæt-
urnar eru fasta-
gestir á staðn-
um, atvinnu-
leysingjar og
djúsarar, en al-
veg frábær
módel — og
góðir vinir."
Þar með var
Steph rokinn,
en það rétt náð-
ist í rassinn á
honum áður en
hann fór til
London að leggja síðustu hönd
á stuttmyndina Nautn sem Gus
Ein myndanna á sýningunni. Steph: „Vissulega er svona
ákveðin vínlykt af myndunum."
gus gerir, en þar er hann töku-
maður.
Oskar Arni Oskarsson og bókaforlagið Bjartur sendu fyrir skemmstu frá sér Ijóðabókina Fjögurra mottu herbergið sem
inniheldur þýðingar á 150 hækum eftir hækumeistarann sjálfan: Matsuo Bashö.
,frjálslega þýddar hœkur
sem ég hengi
eigin stíl utaní“
- seg/r Óskar Árni í samtali við Stefán Hrafn Hagalín.
„Japanska hækan er eitt
knappasta ljóðform sem þekk-
ist, aðeins sautján atkvæði í
þremur ljóðlínum. Hún er
sprottin upp úr öðru stuttu
ljóði, tönkunni ... Hækan varð
vinsæl strax á fimmtándu öld.
Framan af lögðu skáldin mest
upp úr bragfimi og kímni og
varð hækan einskonar tæki-
færisljóð efri stéttanna. En
Matsuo Bashö átti eftir að
breyta því, og einfalda en jafn-
framt skerpa og dýpka svo
hækuna að nú er hún af mörg-
um talin merkasta framlag Jap-
ana til heimsbókmenntanna."
Svo skrifar Óskar Ámi Ósk-
arsson í inngangsorðum bókar
sinnar Fjögurra mottu herbergið
er inniheldur 150 hækur sem
hann jDýddi eftir sjálfan meist-
ara hækunnar, skáldið og zen-
munkinn Matsuo Bashi. Áhrif
hækunnar á heimsbókmennt-
irnar verða seint ofmetin og
má nefna að á þessari öld hef-
ur hún orðið innblástur ekki
minni mönnum en Ezra Po-
und, Octavio Paz, Jorge Luis
Borges og bandarískum
bítskáldum á borð við Jack
Kerouac og Allan Ginsberg.
Japönsk ljóðlist varð ennfrem-
ur hluti af hinum íslenska bók-
menntaheimi með frumsömd-
um hækum eftir Einar Ólaf
Sveinsson sem hann birti í bók
sinni Ljóð árið 1968 og bókinni
Japönsk Ijóð frá liðnum öldum
sem Helgi Hálfdanarson
þýddi og sendi frá sér árið
1976.
Varð hugfanginn af
hækuþýoingum Helga
í samtali við Helgarpóstinn
segist Óskar Árni fyrst hafa
kynnst hækunum í þýðingum
Helga Hálfdanarsonar og þá
strax orðið hugfanginn. Þýðir
Óskar Árni úr japönsku eða...?
„Nei, ég er ekki svo brattur.
Notast heldur við milliliði —
aðallega ensku, sænsku og
norsku.“ Og heimildavinnan
fyrir Fjögurra mottu herbergið
hefur verið ítarleg ef marka má
umfangsmikla ritaskrá í bókar-
lok sem Óskar Árni hefur
stuðst við. Það er mikið vanda-
verk að þýða hækur þráttfyrir
fábrotið yfirbragð þeirra því
stíllinn er knappur og afar sér-
stakur. (Hækan „er náttúru-
ljóð, andartaksmynd, snögg-
rissuð, oft eins og dropi sem
gárar vatnsflöt, en líka eins og
elding sem lýsir upp veraldir",
einsog segir í kynningu forlags-
ins.) „Ef ég hef náð lagi á að
þýða hækur þá hefur það kom-
ið með æfingunni — á löngum
tíma. Reyndar greini ég frá því
í formálanum að þessar hækur
Bashi séu nokkuð frjálslega
þýddar hjá mér og minn eigin
stíll hangir þarna utaní.“
Óskar Árni bendir á að upp-
runa hækunnar sé að finna í
kínverskum skáldskap. „Japan-
ir fá allt að láni. Það er alveg
sama hvort það er hátækni eða
ljóðlist. Og í því felst helsti
styrkur þeirra." Hann kveðst
svosem ekki hafa verið lengi
að þýða hækurnar 150. „Þann-
iglagað tók þetta skamman
tíma, en aðdragandinn er lang-
ur því þetta hefur um nokkra
hríð blundað í mér.“
Bashö var af samúræj-
um kominn
En hver var þessi Matsuo
Bashi? Svarið er að finna í inn-
gangsorðum Óskars Árna:
„Matsuo Bashi fæddist 1644 í
þorpinu Ueno í Igahéraði ekki
langt frá Kyoto. Þetta var við
upphaf tímabils sem kennt er
við Tokugavaættina (1600-
1868), tíma friðar eftir miklar
innanlandserjur. Landið var að
mestu lokað útlendingum,
sjógúnar sátu í Edo og drottn-
uðu yfir ríkinu. En sautjánda
og átjánda öldin voru blóma-
skeið í þjóðlegri japanskri list
og bókmenntum.
Faðir Bashö var samúræi af
lágum stigum. Bashö var einn
sex systkina og var fjölskyldan
sæmilega efnum búin og gat
komið börnum sínum
til mennta. Innan við
tvítugt gekk hann í
samúræjasveit heima-
héraðs síns og fékkst
við að setja saman
rengur (keðjuljóð) og
hækur í frístundum,
ásamt vini sínum Yos-
hitada, syni samúræja-
foringjans. Annars er
fátt vitað um æsku
hans. Samúræjalífið
virðist þó ekki hafa átt
við hann því árið 1666
er hann kominn til Ky-
oto, vinnur þar ýmis
störf, leggur stund á
forn japönsk fræði og
fæst eitthvað við skáld-
skap. Einnig segir sag-
an að hann hafi átt í
ástarsambandi við
unga konu, Jutei að
nafni, sem síðar gerðist
nunna. Hann á jafnvel
að hafa eignast með
henni börn, en allt er
þetta óljóst í heimild-
um og sveipað tímans
mistri ... Áðdáendum
og lærisveinum skálds-
ins fjölgaði mjög og er
talið að hann hafi haft á
annað þúsund nem-
endur eða lærisveina
síðustu árin.“
Ský kom út í
timm ar Oj
síðan bui
sveif
Svipmynd frá Japan átjándu aldar á blómatíma hækunnar: „Ég drekk kaffi og horfi
útum gluggann," segir hækuþýðandinn og Ijóðskáldið Óskar Ami Óskarsson.
Hvað er Óskar Árni síðan að
brasa við þessa dagana? „Ég
drekk kaffi og horfi útum
gluggann." Er það ekki ósköp
ágætt? „Jújú, og svo hef ég ver-
ið að sýsla við að skrifa.“ Hann
hefur gefið út fjórar ljóðabæk-
ur og haldið úti tímariti sem
nefndist Ský. Hvað er annars
að frétta af Skýí! „Það er dautt
núna.“ Dautt? „Já, það var búið
að koma út í fimm ár og sveif
bara burt.“
Ekki verður skilið við Fjög-
urra mottu herbergið ánþess að
líta á nokkrar hækur...
1
vor —
nafnlaus hóll
hulinn morgunmistri
undir þakskegginu
tísta músarungar
í kapp við þrestina
3
vorregnið
hripar gegnum þakið;
drýpur af flugnanetinu
fœtur trönunnar
hafa sfyst um helming
í vorregninu
vorblœr —
mistruð mánasigð,
og angan afplómum
lítill krabbi
skríður eftir fótleggnum
í tœru vatninu
Bakhliðin
• Gunnar Þorsteinsson, dagskrárrit-
sjóri sjónvarps og þýðandi með meiru:
Hagfræðingar
langmestu
gleðipinnarnir
Er Heimir Steinsson góður
útvarpsstjóri að þínu viti?
„Er það eínhver spurning?"
Hvert er mest góðmenní nú-
iifandi íslendinga?
„Ég get ekki gert upp á milli
ykkar.“
Hvor er sætari: Davíð Þór
eða Stefán Hilmarsson?
„Báðir eru þeir fríðleikspiltar
en Davíð er vörpulegri.“
Hver er uppáhaidsflikin
þín?
„Svörtu, bláu, gulu, hvítu og
grænu snar-röndóttu gleði-
stundabuxurnar mínar.“
Hvað kanntu best að meta í
fari Guðrúnar Ásmundsdótt-
ur leikkonu?
„Afskiptaleysið."
Hver er þinn eftirlætiska-
rakter i Dægurmálaútvarpi
Rásar 2?
„Fjalar Sigurðarson.“
Hver er skemmtiiegasta
starfsstéttin?
„Ýmsir kynnu að halda að
það væru hljómlistarmenn
eða portkonur, en hagfræð-
ingar eru langmestu
gleðipinnarnir.“
Finnst þér Siggi Dagbjarts
metinn að verðleikum sem
gítarleikari og söngvari?
„Engan veginn. Það má ekki
gleymast að hann var einn af
meðlimum Upplyftingar."
Ef Heiðar Ástvaldsson
myndi hætta sem danskenn-
ari, hvað ætti hann að taka
sér fyrir hcndur?
„Hann ætti að verða forseti
lýðveldisins eins og allar
hjúkrunarkonurnar og prest-
arnir og allir hinir sem gætu
vel hugsað sér að skipta um
djobb.“
í hvaða íþróttagrein hef-
urðu náð mestum metorð-
um?
„Knattspyrnu. í þeirri grein
hef ég rifbeinsbrotnað tvisv-
ar, viðbeinsbrotnað einu
sinni og reif nýlega lær-
vöðva, en á þó enn eftir að
leika í ensku deildinni.“
Finnst þér Ingólfur Guð-
brandsson myndarlcgur
maður? (Ef svo er — hvað er
það einkum sem gerir hann
að þessu glæsimenni?)
„Tvímælalaust. Það er fas
hans allt og framganga, visk-
an og hrifnæmið og lífs-
reynslan sem skín úr hverj-
um drætti.“
Hvað myndirðu gefa Sú-
sönnu Svavarsdóttur í af-
mælisgjöf ef hún byði þér í
afmæiið sitt?
„Ferrari og flottan pe!s.“
Hvemig vildirðu deyja ef þú
fengir einhvenu um það
ráðið?
„Ánægður — búinn að öliu.“
Af hveiju hefur enginn
stungið upp á Salome Þor-
kelsdóttur sem næsta for-
seta?
„Það er af hreinni vangá.“
Einhver skilaboð til ís-
lensku þjóðarinnar?
„Þraukið, félagar. Þraukið."