Helgarpósturinn - 09.11.1995, Page 28

Helgarpósturinn - 09.11.1995, Page 28
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 Vilborg Halldórsdóttir er allt í senn leikari, heim- spekinemi og sjarmör. Þegar Vilborg er annars vegar er það gömul klisja að segja að fötin skapi manninn, því þótt fatnaður Vilborgar sé oft eftir- tektarverður er hún sjálf enn eftirtektarverðari. Það kemur enda á daginn að hún pælir lít- ið í fatnaði. „Ég hef í raun mjög ópraktískan fatasmekk. Ég á eiginlega ekkert nema sam- kvæmisfatnað og híalín en lítið af hversdagsfötum. Ég er nefni- lega fædd í röngu landi á röng- um tíma.“ Vilborg lætur skapið ráða hvernig hún klæðist hverju sinni en segist aldrei hafa fyrir fatnaði; föt séu frekar eitthvað sem reki á fjörur hennar. Sem dæmi um hvað Vilborg er laus við að vera óstjórnleg tískudrós, þótt annað gæti virst, var hún einhverju sinni að setja á sig maskara. í miðj- um klíðum þurfti dóttir hennar á móður sinni að halda. „Ég er ekki ein af þeim sem eru alltaf að líta í spegil til að tékka á því hvort þær séu skotheldar. Og við svo búið rauk ég út. Þegar heim kom uppgötvaði ég að ég var eitthvað skrýtin til augn- anna og lít í spegil. Kemur þá í ljós að ég var bara með ma- skara öðru megin!“ Kjóllinn? „Hann var í eigu frú Ólafar Pálsdóttur, sem er móðir vin- konu minnar og fyrrverandi sendiherrafrú. Þessi kjóll hefur farið víða um heim, enda féll ég gjörsamlega fyrir karaktern- um í honum um leið og ég sá hann. Stílhreinir gamlir kjólar eru það alflottasta sem ég veit. Þessi tjullkjóll er líka þess eðl- is að maður þarf ekki að nota neitt við hann. Það liggur við að maður geti verið berfætt- ur.“ Sverðið, hanskarnir og lokk- arnir? „Það er nauðsynlegt að bera sverð við svona kjól, því í hon- um er maður svo berskjaldað- ur! Eyrnalokkarnir eru úr versl- uninni Flex en hanskarnir, og reyndar sverðið einnig, eru í einkaeign." Hárgreiðslan? „Þetta er svona semí-sam- kvæmisgreiðsla með trylltu ívafi unnin af Rósu Lind á hár- greiðslustofunni Papillu.“ Ljóðapönkrokk á Tveimur vinum „Þetta er besta og eina leiðin til að tapa peningunum sín- um,“ segja þeir Davíð Ólafs- son og Karl Óttar Pétursson, gítarleikari og söngvari hljóm- sveitarinnar Saktmóðigs. Þeir standa fyrir mikilli uppákomu á föstudagskvöldið á Tveimur vinum — tónleikum og upp- lestri. Þeir halda því fram að ljóðið og rokkið fari vel saman. „Þetta eru allt rokkskáld og skáldlegir rokkarar sem þarna koma fram,“ segja þeir. Saktmóðigur hefur starfað í fimm ár við erfið skilyrði. „Þetta er búið að vera hark út í eitt. En nú sjáum við fram á betri tíma og förum sjálfsagt að selja tónlist í bílförmum. Danstónlistin er búin að vera, enda er hún algjör kvöl og pína. Pönkið er popp dagsins í dag,“ segja þeir félagar og eng- an uppgjafartón að heyra. Meðlimir hljómsveitarinnar eru allir háskólanemar ef trommarinn er undanskilinn. Tölvunar-, lög-, sagn- og mat- vælafræði er það sem þeir fást við milli þess sem þeir djöflast í bílskúrnum eða troða upp. „Jú, maður verður svolítið heyrnarskaddaður og bilaður af að djöflast inni í bílskúr," segir Karl söngvari, „en annars væri ekkert gaman að þessu.“ Davíð og Karl eru sammála um að þetta sé leiðin til að halda sönsum. „Pönkið er frí frá fræðilegum þankagangi og lög- leg leið til að haga sér eins og svín.“ Þeir sem fram koma eru ljóð- skáldin Mike Pollock, Bragi Ólafsson, Magnúx Gezzon og Berglind Ágústsdóttir. Og það vantar ekki nöfnin á hljóm- sveitirnar: Örkuml, Popdogs, Botnleðja, Saktmóðigur og Kvartett Ó. Jónsson og Grjóna. Það var nefnilega það. Nú og svo er frítt inn, sem ætti að vera góðar fréttir þeim sem fremur kjósa að kaupa sér krús en að spreða peningnum í inn- gangseyri. Davíð og Karl í Saktmódigi. „Petta er lögleg ieidtil að haga sér eins og svín." Undan oki fordóma Once Upon a More Enlightened Time More Politically Correct Bedtime Stories James Finn Gamer Svíar eru þjóð sem hefur fyr- ir lifandis löngu gert sér grein fyrir því að það er ekki sama hvað við látum börnin okkar lesa, eða hvað við lesum sjálf. Þeir hafa til dæmis vitað um að kynhlutverkin í Andrési önd eru svo brengluð að það er ekki vogandi að láta neitt barn komast í tæri við þann litteratúr allan. En það er víðar sem þarf að taka til hendinni í bókmenntunum. James Flnn Gamer er höf- undur sem starfar í þessum anda. Viðfangsefni hans eru gömul og alþekkt ævintýri, flest ættuð úr safni Grimms- bræðra, sem hann tekur og skrifar upp á nýtt undir for- merkjum pólitískrar rétthugs- unar. Garner leggur til atlögu við alls konar ranghugmyndir sem eru inngrónar í menningu okkar Vesturlandabúa, sér- staklega þó vestrænna karl- manna, og hann gengur ekki að því gruflandi hversu ævintýri eins og Hans og Gréta, Rauð- hetta, Stígvélaði kötturinn, Þyrnirós, Prinsessan á baun- inni og Litla hafmeyjan eru fall- in til að valda alls kyns for- dómum og mismunun, tor- tryggni og ótta. Garner er beinlínis að frelsa þessar gömlu sögur undan oki ranghugmyndanna sem sliga þær, fordóma vegna kynferðis, aldurs, stéttar og útlits. Þetta er þarft verk, enda er þetta annað ævintýra- safnið þessarar tegundar sem Garner gefur út og hafa bæði náð mikilli breiðs1u . Sem að sjálfsögðu er gleði- efni, enda t e k u r hann staklega fram að þ e 11 a sé ekki gert í háði. Djöflast út úr bílskúmum og upp úr skúffunum

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.