Helgarpósturinn - 09.11.1995, Síða 30

Helgarpósturinn - 09.11.1995, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 popp FIMMTUDAGUR Fjallkonan heldur útgáfukonsert, hvorki meira né minna, á Gauki á Stöng í kvöld. Blátt áfram- dúettinn góði á Fógetanum. Kusk heldur sína fyrstu risarokk- tónleika eftir nokkurt hlé og fara þeir að sjálfsögðu fram í Rósenbergkjallaranum. Laddi er enn fyndnastur þegar hann tekur „Austurstrætis- Iagið“. Hann verður með skemmtun í Ásbyrgi á Hótel íslandi í kvöld. Kos og félagar skemmta á Kaffi Reykjavík í kvöld. FÖSTUDAGUR Útlagamir ku vera kántrý-sveit sem finnur sig örugglega vel í út- hverfi Reykjavíkur. Á Nætur- galanum í Kópavogi. Skítamórall og allt þeirra drullumali á Gauknum í kvöld. Raggi Bjama og Stefán Jökulsson spila lög af nýútkominni plötu Ragnars; Heyr mitt ljúf- asta lag, sem var rétt í þessu að koma út. Á Mímisbar auð- vitað. Guðmundur Rúnar, hinn hafnfirski trúbador, myndlistarmaður og hvað- eina, á Fógetanum. Skárr’en ekkert og Hringimir, sýrupolkasveit sem ætlar að halda uppi einstöku fjöri í Félagsheimili Seltjarnarness í tilefni 75 ára afmælis Stúd- entaráðs. Þar er sko margan fenginn að finna. Karma í aðalsal og Laddi í Ásbyrgi Hótels íslands. DJ Nökkvi og DJ Maggi Magg eru meðal þeirra sem halda uppi föstudagsfiðringnum á Ömmu Lú í kvöld, á sérstakri Knickerbox- hátíð sem þar er haldin. JJ Soul band leikur blús eins og hann ger- ist bestur á Blúsbarnum. Hunang gefur Kaffi Reykjavík lit með sínum skemmtilega glamúr. LAUGARDAGUR Útlagarnir aftur á Næturgalanum í Kópavogi, þar sem bjórinn er á boltaverði. Skítamórall heldur uppi flauelsmjúkum móral á Gauki á Stöng annað kvöldið í röð. Kaffileikhúsið frumsýnir Kennslustundina eftir lonesco á laugardaginn. Jakob Bjarnar komst að því að Gísli Rúnar Jónsson hefur fullkomna samúð með prófessornum sem hann leikur. Sadó/masó-kikk fyrir alla nemendur Það er í raun klúður ef ekki tekst að gera Eugéne Io- nesco fyndinn. En Kennslustundin er jafn- framt hádramatískur ein- þáttungur — óhugnan- legur og skoplegur í senn,“ segir Gísli Rúnar Jónsson, en hann leikur prófessorinn í Kennslu- stundinni eftir fransk/rúmenska leik- skáldið Ionesco. Leikur- inn verður frumsýndur í Hlaðvarpanum á laugar- daginn í leikstjórn Bríet- ar Héðinsdóttur. Það er dóttir leikstjórans, Stein- unn Ólína Þorsteins- dóttir, sem leikur nem- andann og með hlutverk ráðskonunnar fer Guð- rún Þ. Stephensen. Eins og nafnið gefur til kynna gengur Ieikritið meðal annars út á sam- band kennara og nem- enda, sem Gísli segir að sé oft á einhverjum ein- kennilegum tilfinninga- legum nótum. „Slík sambönd ein- kennast af baráttu um völd og oft kemur upp einhver kynferðislegur þáttur.“ Gísli fer ekki nánar út í það en tekur fram að hann hafi mikla samúð með persónunni sem hann leikur. „Ég hef reynslu af kennslu og það er tragikómískt þeg- ar nemandinn skilur ekki það sem kennarinn er að leggja upp. Kennarinn er kannski stútfullur af ein- hverri þekkingu sem hann stendur klár á að nemandinn hafi gaman af. Svo er flugið tekið upp í mörg þúsund feta hæð, honum verður óvart litið niður á nem- andann og sér að hann er kominn eitthvert allt annað í huganum." Þau sem standa að Kennslustundinni hafa tekið upp hætti erlendra atvinnuleikara og æft stykkið upp á mettíma eða hálfum mánuði. Það er nýstárlegt hér á landi, þar sem leikhópar gefa sér yfirleitt talsvert meiri tíma í að liggja yfir verkefninu. En allt um það. Gísli á erfitt með að lýsa prófessornum en hafði þó þetta að segja Gísli Rúnar og Steinunn Ólína í hlutverkum sínum. „Slík sambönd einkennast af baráttu um völd og oft kemur upp einhver kynferðislegur þáttur." um samband hans og nemandans: „Allir þeir sem hafa verið nemend- ur — og ekki síður þeir sem hafa fengist við kennslu — munu sjá sig í sambandi þeirra. Ég er alveg sannfærður um að allir sem einhvern tíma hafa verið í skóla, sem eru nú flestir, fá mikið út úr sýningunni. Kennar- arnir fá sadó-kikk út úr þessu — nemendurnir fá svona sadó/masó-kikk.“ Eins og áður sagði er „Kennslustundin" ein- þáttungur og oft sýndur með öðrum einþáttungi eftir Ionesco sem heitir „Stólarnir". Það hefur Jú þegar haustið skellur á viljum við starfsfólk í La Primavera kynna fyrir ykkur nýtt og spennandi tilboðfyrir hópa á bilinu 10-60 manns, í okkar frábæru salarkynnum. Tilvaliðfyrir leikhúshópa. Hópurinn safnast saman á barnum og er þá boðið uppá þrjár tegundir affingurfœði, síðan tæki við matseðill sem t.d. hljóðaði svona: KiáUduerfLifrilhod Inrffrt oiUúfXM&rfvU+tCfG, á lalatLeði *ne& oúiaúfAette- KáLfjOÁneid MdaneAe. Pö*t*tuhaka> {fltlt metí Qnartd MafutieA-njámGfri^ 2.100 frt. * * Auk yiULnjeifttl % JteikttúAXfieitiA afttucfrÁ viÁ r rU LA PRIMAVERA RISTORANTE þótt við hæfi, enda gera þeir samanlagt eina langa kvöldsýningu. Þannig voru leikþættirn- ir kynntir íslendingum í Iðnó árið 1961. Það er þó ekki hægt að segja að Io- nesco hafi verið al- gengur gestur á sviði atvinnuleikhúss hér- lendis. Gísli segir það reyndar í anda Ionesc- os að vera utangarðs. Hann hefur verið þeim mun vinsælli meðal Ieiklistarfélaga fram- haldsskóla, en þar er hann iðulega færður upp. „Ionesco hefur átt mjög greiðan aðgang að yngra fólki,“ segir Gísli. „Og það þrátt fyr- ir að um hann hafi ver- ið vafið einhverri intel- ektúal helgislepju. En það er ekki honum að kenna. Það urðu ein- hverjir aðrir til að setja þann stimpil á hann.“ Ionesco hefur verið flokkaður meðal ab- súrdhöfunda og víst er að hann hefur átt stór- an þátt í því hvernig absúrdstefnan er skil- greind í fræðibókum með verkum á borð við „Sköllóttu söngkon- una“ og „Nashyrninga“. Gísli vill þó benda á að absúrdhöfundar séu mjög ólíkir innbyrðis. „Menn hafa reynt að drepa þessa absúrd- ista af sér með því að segja þá úrelta,“ segir hann. „En Ionesco er fjandi klassískur. Menn verða væntanlega ekki eins slegnir og þegar Kennslustundin var frumsýnd árið 1951. En það er sláandi engu að síður hvað þetta verk heldur sínu. Og til marks um það þá er enn verið að sýna leik- ritið í einhverju skápa- leikhúsi í París. Þeir skipta bara um leikara. Kennslustundin hefur gengið nánast jafnlengi og Músagildran eftir Agöthu Christie í London."

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.