Helgarpósturinn - 09.11.1995, Síða 31
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995
31
Kusk stígur á stokk
Axel söngvari, Aðalsteinn trommari, Þórarinn Elvar bassi og Hannes Þór gítarleikari mynda Kusk ásamt Pétri Jó-
hanni, sem var vant við látinn þegar myndin var tekin. Með vorinu heldur hljómsveitin utan með tuttugu frum-
samin iög í farteskinu.
var ég að hugsa þetta?“ segir
1. Hver er yngstur þeirra sem hafa
verið kjörnir á Alþingi íslendinga?
2. Hver er höfundur skáldsögunn-
ar Madame Bovary?
3. Stjórnmálamaðurinn sem hér er
í giöðum dansi var helsti leiðtogi
Þýska alþýðulýðveldisins? Hann
hét?
4. Hvaða tvö íslensk skáld eru
sögð jarðsett í þjóðargrafreitnum
á Þingvöllum?
5. Sumarið 1933 kom flugsveit frá
Ítalíu til Reykjavíkur og hefur at-
burðurinn síðan veríð nefndur
Hópflug ítala. Hvað hét foríngi
flugsveitarinnar?
6. Textinn við hið vinsæla dægur-
lag Vorkvöld í Reykjavík er eftir
Sigurð Þórarinsson jarðfræðing.
En eftir hvern er lagið og hverrar
þjóðar var hann?
7. Hvað heitir hin lánsama stúlka
sem hér er í örmum James Bond í
kvikmyndinni Dr. No?
8. Hvaða ár var bruninn í Kaup-
mannahöfn sem meðal annars er
sagt frá í íslandsklukkunni?
9. Hvar eru eyjarnar Lewis og
Uist?
10. Áríð 1976 var fenginn hingað
þýskur lögreglumaður til að ann-
ast rannsókn Geirfinnsmálsins.
Hvað hét hann?
11. Hvað heitir þessi náungi sem
er einn af örgustu þrjótunum í
bókunum um Tinna?
12. Hvaða íslensk landsliðskona í
fótbolta hefur stundað íþrótt sína
á Ítalíu?
■JIHopspuiuuæs unjQng mzj
•jannw JO II
■zinqos |JB» -oi
•erXasapjjqaH mjeu njgo
‘eííajngns |j) )sef|a) jæ<j ‘6
'9ZL\ '8
•ssajputf einsjg 'L
•has ‘aqnei yaAj -9
•oqieg 'S
■uossmug||en
seuof 3o uosspijpauag jeuy
■Wauqm jaiieM £
■paqneu aAefsng mz
■eje £2 suiage eq jba So
‘ÞE6I ‘uasppojoqj. jeuung *|
n)e3||0)| giA joas
Hin rúmlega ársgamla rokk-
sveit Kusk er enn með lífs-
marki, sem væntanlega kemur
frekar í ljós þegar hljómsveitin
stígur í fyrsta sinn í langan
tíma á stokk í Rósenbergkjall-
aranum í kvöld. Þar mun jafn-
framt koma á daginn að hljóm-
sveitin hefur ekki setið auðum
höndum í pásunni löngu. „Það
er rétt, því á tónleikunum í
kvöld flytjum við frumsamin
lög af væntanlegri tuttugu laga
geislaplötu hljómsveitarinnar
sem nú er í vinnslu," segir
trymbill sveitarinnar, Aðal-
steinn Ólafsson, en söngvar-
inn og helsti textasmiður
hljómsveitarinnar, Axel Jó-
hann Bjömsson, var fljótur til
svars þegar minnst var á text-
ana; sem eru upp á ensku:
„Eg er að öllu leyti menntað-
ur erlendis og því liggur ensk-
an beint við. En svona burtséð
frá því er ég geðveikur öryrki
og því er veran í hljómsveit-
inni og textasmíðin í mínum
huga þerapía. Maður byrjar
með óljósar hugmyndir um
hvað maður á að syngja, en
smám saman raðast allt sam-
an. Það er ekki oft fyrr en ári
síðar að maður fattar það: Já,
söngvarinn, sem flakkað hefur
heimshorna á milli.
Þeir félagarnir eru sammála
um að rokk sé ekki mikil sölu-
vara á íslandi. Því stefnir allt í
að hljómsveitin fari með vor-
inu út til Skandinavíu, þar sem
hún ætlar að ástunda spilerí
og ef til vill gefa eitthvað út.
Á tónleikunum í kvöld hefur
hljómsveitin í hyggju að láta
áhorfendur taka virkan þátt,
ekki þó með þeim hætti að þeir
þurfi að borga sig inn.
Botninn skafínn
Botnleðja, ein efnilegasta hljómsveit landsins,
heldur útgáfutónleika í kvöld
Heiðar, Haraldur og Ragnar í Botnleðju. „Þessir 25 tímar koma sko ekki
niður á gæðum tónlistarínnar því það er frábært sánd á diskinum."
sjónvarp
HP mælir með:
A Hard Day’s Night ****
(Stöð 2 fös., 21.20)
Bítlamyndin góða. Það er víst
að þeir sem ieggja allt upp úr
lýsingu, klippingu... og bíó-
spekúlantarnir myndu seint
splæsa fjórum stjörnum. En
hverjum er ekki sama? Þema-
dæmið hjá Páli Baldvini byrjar
með iátum; Guðfaðirinn og nú
Bítlarnir. Hvernig í ósköpunum
ætlar maðurinn að fylgja þessu
eftir?
Texasville ***
(RÚVfös., 21.50)
Sjálfstætt framhald The Last
Picture Show með sömu Ieikur-
um. Jeff Bridges enn með
stjörnuleik.
Ein og hálf Iögga ** 1/2
(Stöð 2 fös., 22.50)
Telst kannski ekki með stór-
virkjum bíósins en Burt Reyn-
olds (,,Bud“) er í henni og það
dugar.
fslenskt, já takk
(Stöð 2 sun., 20.05)
Skemmtiþáttur undir stjórn
Bhins geðþekka
Steingríms Ól-
afssonar, sem
verður fínni í
tauinu með degi
hverjum. ís-
lenskir þættir
ávallt vel þegn-
ir, en af hverju þessi haliæris-
legi titill? Ef þetta er ekki pen-
ingalykt þá er þetta minnimátt-
arlykt.
HP varar við
Oprah Winfrey
(Stöð 2 lau.,
17.00)
Þessi bollulega
blökkukona
kallar til „sér-
fræðinga'* og
áhorfendur og
veltir sér upp úr samfélagsleg-
um vandamálum. Algjört
þrauk. Ef einhvers staðar er lít-
il von til þess að fá einhver
svör þá er það þarna. Amerísk
vella og gott ef „í sannleika
sagt“ — eftiröpunin — var ekki
skárra dæmi.
Sjónvarpsmaður
vikunnar
Sigurður Valgeirsson
Það er ekki hægt að segja að
Siggi Valgeirs hafi byrjað feril
sinn sem sjónvarpsstjarna vel.
Hann hefur svona lunta- og
luralegan front, sem er ekki
beint til þess fallinn að hitta
þjóðarsálina beint í hjartastað.
Hann Siggi er enginn smellur.
En það er nú þannig með
mannskepnuna að hún hefur
ótrúlega aðlögunarhæfileika.
Og rétt eins og með Bjarna Fel.
þá hefur þjóðin lært að meta
Sigga svona smátt og smátt. Og
nú er hann orðinn hvers
manns hugljúfi. Nú má það
vera hverjum manni Ijóst að
þessi fúllyndislegi maður er
hreint enginn fúlisti! Það er
helst að hann mætti vara sig
þegar hann er að reyna að gera
lítið úr Jóni Viðari. Jón Viðar er
fullfær um það sjálfur.
Hljómsveitin Botnleðja er að senda
frá sér sinn fyrsta disk og heldur út-
gáfutónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í
kvöld. Diskurinn er tólf laga og heitir
Drullumall — nema hvað? „Nýbylgju-
pönk. Það er skásta skilgreiningin ef við
eigum að skilgreina þetta á annað
borð,“ segja þeir Heiðar Öm Krisljáns-
son og Haraidur F. Gíslason þegar þeir
ráku nefið inn á ritstjórnarskrifstofur
HP. Auk þeirra skipar Ragnar Páll
Steinsson hljómsveitina.
Botnleðja er dúndurtríó úr Hafnar-
firði, en hljómsveitin sigraði í Músíktil-
raunum ‘95 með glæsibrag. Fyrir vikið
fengu þeir piltar 25 stúdíótíma í Sýr-
landi. Og þeir voru jafnlengi að taka
Drullumallið upp. Það var sjálfur Jón
Skuggi sem stjórnaði upptökum og þeir
bera honum vel söguna.
„Þessir 25 tímar koma sko ekki niður
á gæðum tónlistarinnar því það er frá-
bært sánd á diskinum,“ segja þeir
hvergi smeykir. Það kom reyndar á þá
þegar þeir fréttu að Raggi Bjama væri
líka með disk á jólaplötumarkaðinum.
„Shit, Raggi Bjarna og Cigarette! Þetta
er búið.“
Meðlimir Botnleðju eru allir fæddir
‘74 og líta framtíðina sæmilega björtum
augum. „Jájá, við erum ekkert að hætta.
Það er reyndar lítil framtíð hér á íslandi
í þessari poppmenningu þannig að við
hljótum að líta út fyrir landsteinana. Að
minnsta kosti til Vestmannaeyja,“ segja
þeir og það vekur greinilega ekki áhuga
þeirra að hasla sér völl á sveitaballa-
markaðinum. Það var helst á þeim að
heyra að það væri hálfgert mellerí. Á
næstunni ætla þeir að þræða félagsmið-
stöðvarnar og eru sammála um að
þetta sé hark. En Botnleðja? Hvurskon-
ar nafn er þetta á hljómsveit?
„Sko,“ útskýrir Halli trommari. „Nafn-
ið er út af afmæliskókinu. Þegar maður
var sex ára fékk maður kók í afmælum,
missti hálfa kökuna í flöskuna og þegar
maður var búinn með kókið varð botn-
leðjan eftir. Og við erum að skafa botn-
inn á íslensku tónlistarlífi.“
Það er Rafn Jónsson eða Rymur hf.
sem gefur Drullumall út.
popp
Raggi Bjarna og
Stefán Jökulsson,
flottasta bar-parið, aftur
á Mímisbar á Sögu.
Saga Kiass
skemmtir eftir þriggja
rétta máltíð í bland við
Ríó-sögu í Súlnasalnum.
JJ Soui band
og allur blús heimsins á
Blúsbarnum, stað þar
sem vel má fela blús-
kennda framhjáhalds-
rómantík.
Guðmundur Rúnar
aftur og nýbúinn á Fóg-
etanum.
DJ Kiddi Big Foot
ætlar að freista þess að
ná upp gamalli og nýrri
stemmningu með sínu
nefi. Beitan í kvöld er
sýndarveruleiki og
Smirnoff.
Hunang
verður sem fyrr freist-
andi fyrir allar skemmti-
legu býflugurnar sem
sækja Kaffi Reykjavík.
SUNNUDAGUR
Sixties,
já haldið ykkur fast;
hljómsveitin Sixties
skemmtir í höfuðborg-
inni, nánar tiltekið á
Gauki á Stöng á sunnu-
dagskvöld.
Jón Ingólfsson
trúbador endar eins og
venjulega helgina á Fóg-
etanum.
intercoiffure
-hársýningar hafa alltaf
verðið svolítið poppað-
ar, ein slík verður á Hót-
el íslandi á sunnudag.
Grétar Örvars og
Bjarni Ara
fara á kostum á Kaffi
Reykjavík eins og vana-
lega.
SVEITABÖLL
Hafurbjöminn,
Grindavík
Bubbi og Þorleifur með
nýtt og gamalt stöff...
Sandgerði og Grindavík
loga (smáheimfæring). í
Grindavík á föstudags-
kvöld.
La Parilla, Sandgerði
Bubbi Morthens og Þor-
leifur Guðjónsson á
næsta bæ á laugardags-
kvöld.
Siglufjörður —
en hvar á Siglufirði er
ekki vitað. Nuno og Millj-
ónamæringarnir verða
þarna á föstudagskvöld.
Þið rennið bara á hljóð-
ið.
Sjallinn, Akureyri
Nuno Miguel og Millarn-
ir hressa upp á Akureyr-
inga á laugardagskvöld.